blaðið - 06.10.2005, Qupperneq 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 blaðiö
Hœtta á hungursneyð í Simbabve
Matvælaaðstoð verður að koma tU
Simbabve þarf að flytja inn meira
korn til að geta fætt að minnsta kosti
2,2 milljónir fólks sem getur ekki séð
sér farboða fram að næstu uppskeru
að mati yfirvalda i landinu. Alþjóðleg-
ar hjálparstofnanir telja aftur á móti
að um fjórar milljónir Simbabvebúa
eða um þriðjungur þjóðarinnar þurfi
á matvælaaðstoð að halda fram að
næstu uppskeru sem verður í apríl.
Ríkisstjórn landsins hefur lýst því yf-
ir að hún muni ekki biðja Matvælaað-
stoð Sameinuðu þjóðanna formlega
um aðstoð þó að hún fagni framlög-
um svo fremi sem að þeim fylgi engin
skilyrði.
Sydney Mishi, embættismaður í fé-
lagsmálaráðuneytinu, hefur upplýst
þingnefnd um það að Robert Mugabe,
forseti landsins, hefði þurft að láta
flytja inn 222.000 tonn af korni til
að fæða eldra fólk, munaðarleysingja
og fólk sem haldið væri langvarandi
sjúkdómum. Frekari innflutningur
er í bígerð. „Um 2,2 milljónir manna
munu þurfa á matvælaaðstoð að
halda vegna þess að þeir hafa ekki fé
til að kaupa maís,“ sagði Mhishi.
Landbótaáætlun Muga-
bes gerir illt verra
Þurrki er kennt um uppskerubrest
en einnig hefur verið bent á að mat-
vælaskorturinn sé alvarlegri en ella
vegna þess að lanbúnaður í Simbab-
ve hafi hrunið eftir landbótaáætlun
Mugabes. Hún gekk út á að landlaus-
ir þeldökkir íbúar landsins tóku við
býlum hvítra bænda sem hraktir
höfðu verið í burtu. í mörgum tilfell-
um skorti nýju bændurna þekkingu
eða færni til að geta nýtt auðlindirnar
sem skyldi. ■
Heilsunudd þegar þér hentar
Með fullkominni tölvustýringu og hátækni nuddbúnaði framkallar Rongtai
RT-H09 nuddstóllinn áhrifaríkt nudd frá toppi til táar. Með þvi að styðja á hnapp
á meðfylgjandi fjarstýringu velur þú það nuddkerfi sem þér hentar hverju sinni.
Stóllinn nuddar þig líkt og fagmaður þegar þú vilt og þar sem þú vilt. Rongtai
nuddstóilinn er hannaður með þig og þínar þarfir í huga. Við bjóðum þér að
koma í nudd í verslun okkar að Skúlagötu G3 til að sannfærast.
www.ecc.is
ECC Skúlagötu 63
Sími 5111001
Opið 10-18
Blair ogPútínfunda iLondon
Vilja efla tengsl
ESB og Rússlands
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Vladimir Pútín, forseti Rússlands, takast í
hendur á fundi þeirra í Downing-stræti 10 í gær.
Rússland og Evrópusambandið
ættu að efla frekar samskipti sín
á milli að mati Tony Blairs, forsæt-
isráðherra Bretlands sem fundaði
með Vladimir Pútín, forseta Rúss-
lands, í London í gær. „Niðurstöður
fundarins í London staðfesta enn á
ný að við erum stöðugt að efla sam-
skipti okkar,“ sagði Pútín. I fyrradag
átti Pútín einnig fund með Blair og
Jose Manuel Barroso, formanni
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, og Benita Ferrero-Waldn-
er sem fer með alþjóðasamskipti hjá
sambandinu.
Ýmis mikilvæg málefni voru rædd
svo sem efnahags- og viðskiptamál,
mannréttindamál og baráttan gegn
glæpum og hryðjuverkum. Þá bar
orkumál einnig á góma en Rússar
selja í auknum mæli olíu og elds-
neyti til landa Evrópusambandsins.
Rússar sjá nú þegar um helmingi
aðildarríkjanna fyrir jarðgasi og
þriðjungi þeirra fyrir olíu. Blair
gerði lítið úr vangaveltum um hvort
þetta hefði í för með sér að Evrópu-
sambandið veigraði sér við að spilla
samskiptum sínum við Rússa með
því að minnast á viðkvæm málefni
svo sem mannréttindabrot í Tétén-
íu. „Við tölum á mjög hreinskilinn
hátt um málefnin, hvort sem þau
tengjast mannréttindamálum eða
lýðræði. Við ræddum til dæmis
Téténíumálið fyrr í dag,“ sagði Blair
og bætti við að þetta snerist ekki um
hvort Evrópusambandið væri háð
Rússlandi eða öfugt. ■
GRÆNA TEIÐ!
Græna teduftið frá Pharma Green er engu líkt. Hvert bréf
inniheldur 1 g af kjarnaseyði úr teblöðum (Camellia sinesis).
Til að varðveita náttúrulegt jafnvægi efnanna í teblöðunum
er kjarnaseyðið virkjað með vatni en ekki alkóhóli eða öðrum
leysiefnum. Svo magnað að það rífur í!
HIMNESK
HOLLUSTA
Sundaborg 5
104 Reykjavík
s. 554-7273
Eykur orku I Eykur einbeitingu
Vatnslosandi
Minnkar sykurlöngun
Styrkir ónæmiskerfið www.himneskt.is