blaðið - 18.10.2005, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 bla6iö
Tímamót í norskum stjórnmálum:
Ný ríkisstjóm í Noregi
Jens Stoltenberg, leiðtogi Verkamannaflokksins og nýr forsætisráðherra Noregs, heilsar
fólki fyrir utan Norska stórþingið í gær.
Mannfall í
loftárásum
Um 70 meintir vígamenn féllu
í röð loftárása bandarískra
hersveita í frak á sunnudag
samkvæmt upplýsingum frá
bandaríska hernum. 20 manns
féllu þegar herinn varpaði
sprengju á hóp vígamanna sem
var að reyna að koma sprengju
fyrir í vegakanti austur af
borginni Ramadi í vesturhluta
landsins. Um 50 til viðbótar
voru felldir í öðrum árásum í
grennd við borgina. f yfirlýs-
ingu bandarískra hernaðaryf-
irvaida segir að ekki hafi verið
tilkynnt um mannfall í röðum
bandarískra hersveita eða á
meðal óbreyttra borgara en
læknir í Ramadi sagði aftur á
móti að á þriðja tug óbreyttra
borgara hefði fallið í árásunum.
Árásirnar áttu sér stað degi
eftir að frakar gengu til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um nýja stjórn-
arskrá. Bráðabirgðaniðurstöður
benda til að stjórnarskrárdrög-
in hafi verið samþykkt. Ekki
er búist við að endanlegar
niðurstöður hggi fyrir fyrr
en í fyrsta lagi á morgun. ■
Norska landhelgisgœslan
eltir rússneskan togara:
Stakk af með
gæslumenn
um borð
Áhöfn norska landhelgisgæslu-
skipsins KV Tromso íhugaði í
gær að skjóta viðvörunarskot-
um að rússneska togaranum
Elektron sem það hafði fylgt
inn 1 rússneska lögsögu í
Barentshafi. Til stóð að vísa
togaranum til hafnar í Tromso
á laugardag vegna meintra
fiskveiðibrota í Smugunni. Degi
síðar skildu hins vegar leiðir
með skipunum og togarinn
stefndi í átt til Rússiands með
tvo norska eftiriitsmenn um
borð. f gær nálgaðist togarinn
mörk 12 mílna lögsögu Rúss-
lands en innan hennar geta
norsk yfirvöld ekkert aðhafst. ■
Ríkisstjórn Verkamannaflokksins,
Miðflokksins og Sósíalíska vinstri-
flokksins tók við völdum í Noregi
í gær. Jens Stoltenberg, leiðtogi
Verkamannaflokksins, er forsætis-
ráðherra í hinni nýju stórn sem er
ennfremur fyrsta meirihlutastjórn
í landinu í 20 ár. Ríkisstjórnarflokk-
arnir unnu sigur í kosningum til
norska stórþingsins þann 12. sept-
ember og þá fóru í hönd viðræður
um málefnagrundvöll stjórnarinn-
ar sem stóðu í um mánuð. f síðustu
viku kynntu leiðtogar flokkanna
helstu stefnumál hinnar nýju ríkis-
stjórnar. Helstu stefnumál hennar
verða að hækka skatta, auka fram-
lög til velferðarmála og uppræta
félagslegt ójafnrétti. Ennfremur
stefnir ríkisstjórnin að því að kalla
norskar hersveitir heim frá frak og
Afganistan.
Konur tæpur helmingur ráðherra
Jens Stoltenberg fór á fund Haraldar
Noregskonungs í gær og kynnti rík-
isstjórn sína. Nítján ráðherrar sitja í
stjórninni og þar af níu konur. Með-
alaldur ráðherra er 44 ár og flestir
Yfirvöld í Argentínu reyndu í gær að
bera kennsl á lík þeirra sem brunnu
í eldsvoða í fangelsi í borginni Mag-
dalena á sunnudag.
Að minnsta kosti 32 fangar fórust
og sex slösuðust í eldsvoðanum sem
varð í kjölfar uppþota í fangelsinu. f
gær var ekki búið að bera kennsl á
níu lík. Eldur og reykur barst hratt
um fangelsið eftir að fangar lögðu
eld að dýnum og teppum. Dóms-
málaráðherra landsins sagði að
flestir hinna fátnu hefðu kafnað en
einnig hefðu fundist sár eftir hnífs-
stungur á sumum líkanna.
Líkin voru færð í kapellu fangels-
isins þar sem bera átti kennsl á þau.
Hundruð aðstandenda komu saman
fyrir utan fangefsið og biðu örvænt-
ingafullir fregna af ættingjum sín-
um. Nokkuð var um árekstra á milli
lögregfu og aðstandenda.
Rannsókn á því sem gerðist er haf-
in. Áður en eldurinn braust út höfðu
koma þeir af landsbyggðinni. Að-
eins fjórir ráðherrar koma frá Ósló.
Verkamannaflokkurinn er stærsti
stjórnarflokkurinn með 61 þingsæti
af 169, Sósíalíski vinstrifiokkurinn
með 15 sæti og Miðflokkurinn með
fangar mótmælt stuttum heim-
sóknartíma og farið fram á bættar
aðstæður. Yfirvöld neita þó að eld-
urinn hafi verið kveiktur í kjölfar
mótmælanna. Óeirðir og eldsvoðar
eru algeng í fangelsum í Argentínu
og víðar í Suður-Ameríku. Fangelsi
11. Kristin Halvorsen, leiðtogi sósíal-
ista, er fjármálaráðherra i stjórninni
en Aaslaug Haga, er héraðaráðherra.
Þetta er í fyrsta sinn sem Sósíalíski
vinstriflokkurinn situr í ríkisstjórn
í Noregi. ■
í landinu hafa yfirfyllst á undanförn-
um áratug og alvarleg glæpaalda
riðið yfir landið í kjölfar efnahags-
hruns fyrir fjórum árum. Fyrr á ár-
inu fórust átta manns eftir uppþot
fanga í fangelsi í Cordoba.
Rannsókn hafin á eldsvoða
Ættingjar fanga bíða eftir því að komast inn í fangeisið í Magdalena þar sem á fjórða tug
fanga fórust f eldsvoða um helgina.
Björgunar-
starf held-
ur áfram
Björgunarþyrlur gátu hald-
ið áfram að flytja vistir til
hamfarasvæða í Pakistan í
gær eftir að þar stytti upp en
milól úrkoma hefur hamlað
mjög björgunarstarfi. Nýlegar
aurskriður komu aftur á móti í
veg fyrir að hægt væri að flytja
vistir landveginn. Pakistansk-
ir embættismenn telja nú að
tala látinna sé hugsanlega
komin yfir 54.000 manns.
Indverjar hafa boðist til að
senda þyrlur til aðstoðar við
hjálparstarf í PaMstan. Yfirvöld
í Pakistan hafa lýst því yfir
að þau muni þekkjast boðið
svo framarlega sem indversk-
ir flugmenn verði ekki við
stjórnvölinn. Samskipti eru
stirð á milli þjóðanna sem
hafa þrívegis háð styrjöld
sín á milli. Nú þegar hafa
Indverjar sent margs konar
hjálpargögn til nágranna sinna.
Flugfreyja nennti ekki í
vinnuna:
Hringdi inn
sprengju-
hótun
Flugfreyja hjá SriLankan
Airlines flugfélaginu hringdi
inn sprengjuhótun á dögun-
um þar sem hún nennti ekki í
vinnuna daginn þann og vildi
fá frí. Lögregla rakti símtalið
og komst að því að það kom
úr farsíma í eigu kærasta flug-
freyjunnar. Flugfreyjunni var
sagt upp störfum í kjölfarið. Á
undanförnum mánuðum hafa
flugvélar tvisvar sinnum þurff
að snúa til baka vegna sprengju-
hótunar á flugvellinum í
Colombo á Sri Lanka. í síðara
tilfellinu tróðst einn farþegi
til bana og um 20 slösuðust
þegar verið var að rýma vélina.
Verð 1.850.000
eða 19.320 á mánuði*
Suzuki Liana 4x4
Fjölskyldubíli með drifi á öllum, fæst sjálfskiptur
$SUZUKI
...er lífsstill!
SUZUKI BILAR HF.
Skeifunni 17. Sími 568 5100.
www. suzukibilar. is
Árið 2005 eitt það
hlýjasta sem mælst hefur
Það stefnir í að árið 2005 verði ann-
að eða þriðja hlýjasta ár sem mælst
hefur í heiminum samkvæmt upp-
lýsingum frá veðurstofu Bretlands.
„1998 var hlýjasta ár sem mælst hefur
og allt stefnir í að árið 2005 verði í
öðru sæti,“ sagði Wayne Elliott, tals-
maður veðurstofunnar. Veðurstofan
mælir hitastig jafnt á landi sem í sjó.
Síðustu fjögur ár skipa sér í sæti 2-5
yfir hlýjustu árin en mælingar stof-
unnar ná aftur til ársins 1861.
Þessi þróun eykur áhyggjur
margra vísindamanna um að hita-
stig á jörðinni sé að hækka og að
maðurinn eigi þar stærstu sökina
vegna brennslu jarðefnaeldsneytis
og framleiðslu gróðurhúsaloftteg-
unda. Talið er að þessar veðurfars-
breytingar hafi ýmis konar áhrif.
Meðal annars hafa einhverjir mestu
þurrkar sögunnar gengið yfir Spán
og Portúgal og mannskæðir felli-
byljir og hitabeltislægðir gengið yfir
suðurríki Bandaríkjanna og lönd í
Mið-Ameríku.