blaðið - 18.10.2005, Qupperneq 12
12 I NEYTENDUR
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 blaöió
Metvöxtur Veraldarvefsins
Fréttavefurbreska ríkisútvarps-
ins BBC greindi nýverið frá
því að könnun á umfangi
Veraldarvefsins hafi sýnt fram á að
það hafi aukist meira á þessu ári en
nokkru sinni áður.
74,4 miiljónir heimasíður
Frá áramótum fram í októbermán-
uð hafa um 17 milljónir vefsíðna
bæst við Veraldarvefinn samkvæmt
vefvöktunarfyrirtækinu Netcraft.
Það eru um það bil milljón fleiri en á
fyrra metárinu 2000 þegar netbólan
var í sem mestum blóma. Netcraft
fann alls 74,4 milljónir heimasíður
og er vöxturinn frá síðustu mæling-
um í september meiri en 2,68 millj-
ónir. Árið í ár er það tíunda í röðinni
sem Netcraft framkvæmir þessar
mælingar og er athyglisvert að rýna
í þann vöxt sem hefur átt sér stað. I
fyrstu mælingunum árið 1995 fund-
ust einungis 18.957 vefsíður en fimm
árum síðar voru þær orðnar 19,8
milljónir. Vöxturinn hefur síðan þá
verið mun örari eins og fyrr greinir.
Þó ber að taka niðurstöðunum með
þeim fyrirvara að hingað til hefur
verið talið að um það bil 60% allra
þeirra síðna sem Netcraft telur með
séu ekki virkar.
Auðveldara að koma sér á vefinn
Þrátt fyrir þetta telur Rich Miller,
talsmaður Netcraft, að vöxturinn sé
verulegur. Helstu ástæður aukning-
arinnar eru samkvæmt honum þær
að minni fyrirtæki séu í meira mæli
að netvæðast auk þess sem fyrirtæki
almennt af öllum stærðum og gerð-
um eru að nýta sér til hins ítrasta
auglýsingamöguleika netsins. Vöxt-
urinn útskýrist einnig af notenda-
vænni hugbúnaði og þjónustu til að
hleypa af stokkunum vefsíðum sem
gerir það auðveldara og ódýrara að
hefja netverslun með varning.
Mikil aukning bloggsíðna er önn-
ur breyta sem útskýrir þennan öra
vöxt. Það færist sífellt í aukana að
fólk alls staðar að úr heiminum
haldi úti reglulega uppfærðum vef-
dagbókum þar sem það skrifar um
allt milli himins og jarðar. Þá virð-
ist það einnig lenska að fyrirtæki
kaupi lén sem eru ekki lengur virk
eða uppfærð en draga samt sem áð-
ur að sér umtalsverða vefumferð.
Slík lén er hægt að nýta til að koma
fyrirtækjunum á framfæri með því
að notfæra sér auglýsingakerfin sem
starfrækt eru af leitarvélarisunum
Google og Yahoo. ■
Sífellt fleiri nýta sér möguleika
vefsins
Norrœna ráðherranefndin
Heilbrigði og
sóknaríœri heíð
bundins matar
í síðustu viku bauð Norræna
ráðherranefndin, sem hefur að-
setur í Kaupmannahöfn, tæplega
700 börnum á „uppskerudag"
nefndarinnar þar sem þeim var
kynntur hollur matur frá öllum
Norðurlöndunum. Nefndin þjón-
ar því hlutverki að fjalla um hags-
munamál Norðurlanda og tekur
ákvarðanir um framkvæmd sam-
norrænna verkefna í samráði við
Norðurlandaráð.
Leiðarkort að heilsu-
samlegra líferni
Hollustuhópur fyrir Norðurlanda-
búa hefur verið starfræktur af
Norrænu ráherranefndinni um
nokkurt skeið og setti hann upp
sýningarbása við húsnæði nefnd-
arinnar þar sem leiðarkort henn-
ar að heilsusamlegra líferni var
kynnt fyrir gestum. Hún mælir
með því að fólk borði sex máltíðir
á dag og leggi áherslu á fjölbrey tta
fæðu. Þá voru viðstaddir hvattir
til að borða meira af grófu brauði
en minna af sykri og fitu og sér-
stök áhersla lögð á að fólk borði
meira af ávöxtum og grænmeti.
Börnin sem tóku þátt í viðburð-
inum fengu meðal annars ýmsa
fræðslu um meðferð og nýtingu
dýra til manneldis og hvers kon-
ar fiðurfénaðar væri æskilegt að
neyta.
Vili skapa markað fyrir hefð-
bundinn norrænan mat
Nefndin ýtti einnig nýlega úr vör
verkefni undir fyrirsögninni „Ný
norræn matvæli" til að efla þekk-
ingu á hráefnum til matvælafram-
leiðslu og vekja athygli á norrænni
matarmenningu. Verkefnið mið-
ar að því að Norðurlöndin nýti sér-
stöðu sína í matarhefðum og mat-
armenningu í kynningarskyni.
Þekking á norrænum matvælum
er ekki eins víðfeðm og ráðherrar
Norðurlandanna telja æskilegt og
því þótti nauðsynlegt að ráðast í
svona verkefni.
Einfaldur og góður matur.
Hugmyndin er sú að kynna Norð-
urlöndin sem heimshluta sem
framleiðir einfaldan, öruggan og
góðan mat. Með þessu er leitast
við að styrkja stöðu Norðurlanda
á alþjóðlegum matar- og ferða-
þjónustumarkaði. Vonast er til að
verkefni auki skilning utanaðkom-
andi þjóða á hefðbundnum mat
Norðurlandanna og skapi nýjan
markað fyrir hann.
Tilgangurinn er að styrkja
norrænan matvælamarkað og
matvælaframleiðslu í norrænu
ríkjunum og markaðssetja Norð-
urlönd á alþjóðamarkaði á þeim
forsendum. ■
Bensinverð
lœkkarenn
Bensínverð lækkaði þrjá daga í
röð í síðustu viku og er lægsta
verðið í dag hjá Orkunni, 108,6
kr., en sama verð er á lítranum
á öllum bensínstöðvum þess
söluaðila. Orkan býður viðskipta-
vinum sínum einnig upp á að
notast við fyrirframgreidd bensín-
frelsiskort sem veita korthöfum
aukalega 3 króna afslátt. Þeir sem
eru með slík kort fá því lítrann
af 95 oktana bensíni á 105,6 kr.
Hæst var sjálfsafgreiðsluverðið
110,2 krónur á ýmsum sölustöð-
um stóru olíufélaganna þriggja,
Oiís, Essó og Skeljungi. Lægsta
lítraverð hefur því lækkað um 2,9
krónur frá síðustu könnun okkar
þann 10. október síðastliðinn þeg-
ar það var 111,5 krónur.
feh 1 eru ódýrastir? Samanburður á verði 95 oktana bensíns
AO — Sprenglsandur 108,80 kr. Köpavogsbraut 108,80 kr. Óseyrarbraut 108,80 kr.
Vatnagaröar Fellsmúli Salavegur
eeo 108,80 kr. 108,80 kr. 108,80 kr.
(0) fltt. 110920 kr. 110,20 kr.
Alfheimar Ananaust Gullinbrú
BolisB I10,20kr. 110,20 kr. 109,70 kr.
Elöistorg Ananaustum Skemmuvegi
ORKANj 108,60 kr. 108,60 kr. 108,60 kr.
Arnarsmári Starengi Snorrabraut
03 Mfrtbmrti 108,80 kr. 108,80 kr. 108,80 kr.
/rn\ Gylfaflöt Bæjarbraut Bústaðarvegi
109,70 kr. 110,20 kr. 110,20 kr.
1mdii
Opið laugard. 10-14
Allar nánari uppl. www.orninn.is
Visa- og Euroraðgr.
SCHWINN PRO-rOXM NordicTrack™ <r>a/BEX NAUTILUS
sem SKÍta þérámvigrL
Landsins mesta úrval af hlaupabrautum við allra hæfi.
Fyrir heimili, vinnustaði, íþróttahús, líkamsræktarstöðvar,
skip og fl. Margir verðflokkar.
Tækin eru uppsett í verslun!
TaJdu dfní með íækjum...
ÖRNINNV*
Skeifunni 11 d, Sími 588 9890
Nýr iPod
á markað
Apple tölvurisinn hefur svipt
hulunni af nýjustu útgáfu
sinni af iPod spilaranum,
iPod sem spilar myndbönd,
og verður hann þvi líklega
áberandi í jólapakkaflóðinu
íár.
Getur hýst 150 klukku-
tíma af myndböndum
Nýi iPodinn getur hýst allt
að 15.000 lög, 25.000 mynd-
ir og um 150 klukkutíma af
myndböndum sem hægt er að
horfa á á 2.5 tommu litaskjá.
Minni gerðin verður með 30
GB minni og sú stærri með
helmingi meira, eða 60 GB.
Rafhlaða hins nýja iPods hefur
líka verið betrumbætt og endist
nú í allt að 20 klukkustundir,
sem er aukning um heilar 5
klukkustundir frá því sem
áður var. Þá er minni gerðin
sem nú er að koma á markað
miklu þynnri en fyrirrennar-
arnir og tekur um 45% minna
pláss en upprunalegi iPodinn.
Hægt að horfa á uppá-
halds sjónvarpsþáttinn
Apple tilkynnti um leið að fyr-
irtækið hefði náð samningum
við afþreyingarrisann Disney
sem mun gera þeim er fjárfesta
í nýja iPodnum kleift að hala
niður og horfa á vinsælar sjón-
varpsþáttaraðir eins og Lost
og Desperate Housewifes. Sú
þjónusta er þó enn sem komið
er einungis á boðstólunum
fyrir viðskiptavini Apple í
Bandaríkjunum en samkvæmt
fréttatilkynningu er von á
henni til Evrópu fljótlega. Sam-
hhða þvf að nýi spilarinn var
kynntur var tilkynnt að Apple
er búið að opna fyrir aðgengi
að meira en 2000 tónlistar-
myndböndum í iTunes verslun
þeirra á netinu. Myndböndin
kosta um 200 krónur stykkið.
Þá geta notendur sótt sex teikni-
myndastuttmyndir frá Óskars-
verðlaunahöfunum hjá Pixar. ■