blaðið - 18.10.2005, Side 15
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005
VÍSINDI I 15
Þekkingu manna kollvarpað með fornleifafundi
Fundur á Hobbita kollvarpar
þekkingu manna
Höfuðkúpa Homo florensiensis
Vísindamenn hafa fundið beina-
grind af tegund manns sem er
fullvaxinn en þó ekki stærri en
þriggja ára gamalt barn, með höf-
uðkúpu á stærð við greipaldin að
sögn vísindatímaritsins Nature. Að
sögn tímaritsins bjuggu þeir á Ind-
ónesíu fyrir um 12.000 árum. Það
eru vísindamenn frá Ástraliu og
Indónesiu sem fundu beinin og teg-
undin hefur verið nefnd eftir Homo
florensiensis eftir eyjunni sem hún
fannst á.
Eftirvænting eftir frekari fundum
„Flórensfólkið hefur komið þvert
á allt sem maður hélt, hafði þekkt
og hélt að maður hefði þekkingu
um,“ segir mannfræðingurinn Har-
aldur Ólafsson sem hefur kennt um
þróun mannsins í Háskóla íslands.
Hann segir að málið hafi svo sann-
arlega vakið áhuga sinn enda segir
hann margt í málinu þess eðlis að
það krefjist þess að fræðin verði end-
urmetin. Hann segir það eðli fræð-
anna að þau krefjist sífelldrar endur-
skoðunar því alltaf sé að koma fram
nýþekking. „Maður bíður eftir frek-
ari fundum og þeir vekja menn mjög
til umhugsunar. Enda gætu fundirn-
ir breytt gífurlega miklu í þekkingu
manna á mannkyninu, þróun þess
og hvernig það hafi getað þróast á
mismunandi hátt.“ Hann segist því
fullur af áhuga og forvitni.
Bein af Hobbit fundin
Beinin sem fundust voru af konu
sem er rétt um 1 meter á hæð og
um 25 kíló. Hún er af tegundinni
Homo florensiensis og hefur verið
kölluð Hobbit eftir Hobbitunum í
Hringadróttinssögu. Fundirnir á
tegundinni Homo florensiensis eru
sífellt að færast nær okkur í tíma en
áður höfðu fundist leifar frá 18.000
árum en þeir nýjustu eru síðan fyrir
12.000 árum. Samkvæmt upplýsing-
um frá fundunum veiddu Hobbit-
arnir smáu sér ekki einungis til mat-
ar heldur elduðu þeir hann einnig
og merki á steinum gefa til kynna
að eldur hafi verið notaður til matar-
gerðar. Síðan gröfturinn hófst er
talið að fundist hafa bein af allt að
níu einstaklingum sem óneitanlega
gefur vísindamönnum möguleika á
að rannsaka lífveruna frekar. Fyrsti
fundurinn á hobbitum sýndi að teg-
undin væri 18.000 ára gömul en þau
bein sem nú hafa fundist sýna að líf-
veran var uppi fyrir 12.000 árum.
Þróaðist Homo florensiens-
is frá Homo erectus?
I fyrstu var talið að um beinagrind
af barni væri um að ræða en frekari
rannsóknir hafa sýnt að um full-
orðna manneskju var að ræða og fót-
leggur sem fannst sýnir að lífveran
hafi gengið á báðum fótum. Sú álykt-
un hefur verið dregin að tegundin
hafi þróast frá Homo erectus en
leifar af þeirri tegund hafa fundist
á eyjunni Java. Þá hefur verið álykt-
að að Homo erectus hafi ferðast yfir
frá Flores á bát og þróast á eyjunni.
Áður hefur slíkt verið talið óhugsan-
legt þar sem að á þessum tíma hef-
ur verið talið að lífverur hafi ekki
verið taldar búa yfir svo flókinni
Homo florensiensis, eins og hún er talin
hafa litið út
þekkingu. Það vekur mikla undrun
hversu þróaðir Hobbitarnir virðast
hafa verið og það er jafnvel talið að
þeir hafi verið farnir að þróa hljóð
sem er vísir að tungumáli.
Gæti leitt til að endurskrifa
þurfi kennslubækur
Málshátturinn sem notaður er í
ýmsum tungumálum að „heimskir
séu jafnan höfuðstórir" virðist eiga
vel við í þessu samhengi enda voru
Hobbitarnir mjög svo höfuðlitlir og
bjuggu yfir mikilli hæfni. Uppgötv-
anir þessar eru hugsanlega sagðar
leiða til þess að endurskrifa þurfi
bækur sem fjalla um þróun manns-
ins. Það er margt í fundinum sem
vekur áhuga vísindamanna. Þar
má nefna stærð heila Hobbitanna
en höfuðkúpan gefur til kynna að
fundurinn blási á fyrri þekkingu
þar sem stærð heila er tengd við
þróun mannsins. Ennfremur þykja
verkfærin sem liggja við hlið Hob-
bitanna einkar áhugaverð því verk-
færanotkun gefur til kynna mikla
þróun mannsins og hefur hingað
til einungis fundist við hlið þróaðra
manna, ekki við hlið manns með
svo lítinn heila sem Hobbitinn hef-
ur. Vegna þess hversu leifarnar eru
nýlegar gefur það von um að hægt
sé að nýta DNA við rannsóknirnar
sem gæti gefið okkur þekkingu sem
menn hafa áður ekki vonast eftir að
finna. Frekari niðurstöðum úr rann-
sóknunum á Indónesíu er beðið
með eftirvæntingu enda telja marg-
ir að hægt verði að finna Hobbita
sem séu nær okkur á tímatalinu.
sara@vbl.is
Getum við kennt
foreldrum okkar
um svefnleysi?
Ef þú ert ein af þessum manneskj-
um sem átt erfitt með svefn þá er
hugsanlegt að þú hafir erft það frá
foreldrum þínum. Þetta hefur með-
al annars komið fram í rannsóknum
sem framkvæmdar voru í Háskólan-
um í Ziirich. f rannsókninni voru
svefnvenjur tveggja hópa bornar
saman við genamengi þeirra.
Mismunandi áhrif koffeins á fólk
Annar hópurinn samanstóð af ein-
staklingum sem fann að koffein trufl-
aði svefn þeirra en seinni hópurinn
sofnaði auðveldlega þótt einstakling-
arnir hafi verið látnir drekka sterkt
kaffi seint um kvöldið. Munurinn
fólst einkum í hversu viðkvæmir
einstaklingarnir voru við koffeini.
Með því að rannsaka DNA hjá ein-
staklingunum kom í ljós að þeir
sem þoldu koffein vel hafa meira þol
í genunum og eiga almennt auðveld-
ara með að festa svefn. Rannsóknir
hafa sýnt að 10% af einstaklingum
hafa erft erfiðleika með svefn frá
öðrum eða báðum foreldrum sín-
um. Niðurstöðurnar eru taldar geta
aðstoðað fólk við að finna lækningu
við svefnvandamálum og til að ná
betri og dýpri svefni í framtíðinni.
Vatnispraut-
að i skýin
Stephen Salter er verkfræðingur sem
deyr ekki ráðalaus. í mörg ár hefur
hann reynt að finna leiðir sem sporna
gegn gróðurhúsaáhrifunum og núna
hefur hann fundið enn eina slíka.
Hann ætlar að fara með flota af skút-
um út á sjó og láta þær sprauta smá-
dropum upp í skýin í þeim tilgangi að
draga úr hnattrænni hitun. Droparn-
ir munu örva hvítleika lágskýjanna
þannig að endurkast sólar aukist.
Salter hefur lýst því yfir að 500
sprautunarskútur munu fresta því
að gróðuhúsaáhrifm aukist á þeim
hraða sem þau gera núna.
Hann hefur lýst þvl yfir að hann
bindi gríðarlega miklar vonir við
þessa nýju aðferð og vonast til að fá
stuðning yfirvalda. Margir vísinda-
menn hafa lýst yfir stuðningi sínum
við Salter á meðan aðrir eru tortryggn-
ir. ■
-ÖSSSS'
Tómstundahúsið
Nethyl 2,
sími 5870600,
www.tomstundahusid.is