blaðið


blaðið - 18.10.2005, Qupperneq 16

blaðið - 18.10.2005, Qupperneq 16
16 I BÖRN OG UPPELDI ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 blaAÍÖ Helmingur mála felld- ur niður Á þeim sjö árum sem Barna- hús hefur verið starfrækt hafa komið 1.047 börn í viðtöl. Stærsti aldursflokkurinn er 6-9 ára. Ef skoðaðar eru upp- lýsingar frá Ríkissaksóknara má sjá að frá árinu 1998 til ársins 2003 bárust þeim 302 mál um kynferðisbrot gegn 17 ára börnum og yngri. Af þeim enduðu 99 mál með sakfellingu, 22 með sýknu en 159 brot voru felld niður. Mikil aukning hefur orðið í brotum sem berast Ríkissaksóknara en árið 1998 bárust 13 mál til hans en árið 2003 voru þau 75. Ekki dæmt efbrotaþoli er einn Jóhanna K. Jónsdóttir og Þor- björg Sveinsdóttir gerðu rann- sókn þar sem þær rannsökuðu framburð 60 barna sem komu í Barnahús vegna lögreglurann- sóluiar á árinu 1999. í ljós kom að framburður sakborninga er í fæstum tilvikum í samræmi við framburð barna en tilhneiging er hjá sakborningum að játa á sig veigaminna brot en barn hefur tilgreint. Einn er fram- burður barns í flestum tilvikum ekM nægilegur til saJcfellingar og má sín lítils gegn staðfastri neitun sakbornings. Dómur féll 1 öllum málum þar sem brotaþolar voru fleiri en einn. Öll þjónusta í Barnahúsi Dómarar meta hvar best er að rœða við börn í vel grónu og vinalegu hverfi í Reykjavík stendur Barnahús, líkt og skjól gegn vindum, sem það vissulega er í meiri skilningi en einum. Barnahús hóf starfsemi sína í nóvember 1998 og er ætlað að sinna málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Markmið Barnahúss er að veita börnum sem þolað hafa kynferði- sofbeldi alla þá þjónustu sem þörf er á á einum stað. Vigdis Erlendsdóttir, forstöðumaður Barnahúss, segir að Barnahús gegni mildlvægu hlutverki. „Það er svo brýnt að skapa umhverfi sem auð- veldar börnunum að segja frá vegna þess að vandinn er sá að ef börnin eru eldd tilbúin til að segja ffá þá er mjög erfitt að vinna í þessum málum. Það er náttúrulega íþyngjandi fýrir börn að margsegja þessa sögu. Fyrir utan það þá er lítil skilvirkni fólgin í því að vera að fá sömu upplýsingar hvað eftir annað á ólíkum stöðum. Svo er það líka þannig að það myndi skaða trúverðugleika framburðar barnsins fyrir dómi ef það væri marg- búið að spyrjaþað áður en það mætti fyrir dóm að gefa skýrslu.“ Vigdís bætir við að þetta sé flókinn mála- flokkur og það sé því mikilvægt að safna þekkingu saman og samræma og samhæfa vinnubrögð þeirra sem koma að málum af þessu tagi til þess að þau séu leyst á faglegan og skilvirk- an hátt. Brotaþolar allt niður í kornabörn Dómurum er í sjálfvald sett hvort Héraðsdómur Reykjavíkur nýtir sér ekki Barnahús I Barnahúsi er góð aðstaða til skýrslutöku barna þar sem barnið er ávallt eitt með sérhæfðum viðmælanda í viðtalsherbergi en viðstaddir fylgjast með á sjónvarpsskjá og geta beint spurningum til spyrilsins. Samkvæmt Vigdísi Erlendsdóttur eru það helst dómarar í Héraðsdómi Reykja- víkur sem kjósa að nota ekki Barnahúsið þegar viðtöl eru tekin við börn í kynferðisbrota- málum. í staðinn kjósa þeir að nýta sér sérbúna aðstöðu í Héraðsdómi. Þrátt fyrir ítrekað- ar tilraunir náðist ekki í neinn hjá Héraðsdómi Reykjavíkur til að fá skýringu á ástæðu þess að dómarar nýttu ekki Barnahús. Barnahús að íslenskri fyrirmynd Barnahús hefur vakið mikla athygli erlendis. Svo milda raunar að sænskyfirvöld opnuðu fyrsta Barnahúsið í Svíþjóð í enda september og húsið er að íslenskri fyrirmynd. Barnahúsið í Svíþjóð er stað- sett f Linköping en þar hefur miðstöð Svía í rannsóknum og meðferð lrynferðisbrota á börn- um verið staðsett.Áform eru uppi um að opna fleiri Barna- hús í Svíþjóð í náinni framtíð. brotaþolar séu yfirheyrðir í Barna- húsi eða ekki en Vigdís segir að flest- ir nýti Barnahús. „Sumir óttuðust að dómarar myndu taka þetta algjörlega upp á sína arma og við myndum þá missa þessi mál úr höndunum á okk- ur en það gerðist ekki. Langflest mál koma til okkar en dómarar meta það í hverju tilviki og það er í rauninni Héraðsdómur Reykjavfkur, fyrst og fremst, sem kýs að gera þetta í sfnum húsakynnum og án okkar aðstoðar en aðrir leita hingað.“ Vigdís segir að málum sé vísað til Barnahúss þar sem börnin eru allt niður í korna- börn. „Þótt ekki sé hægt að tala við börnin þá eru framkvæmdar læknis- skoðanir hérna aukþess sem forráða- menn svo ungra barna kunna að hafa þörf fyrir leiðbeiningar og ráðgjöf. Við notum sérstaka aðferð til að ræða við börnin og ræðum ekki við yngri börn en þriggja og hálfs árs. Þetta er svanhvit@vbl.is BlaÖiÖ/Frikki aðferð sem hentar vel til þess að afla staðreyndaupplýsinga og er mjög ólík hefðbundnu meðferðarviðtali." Lítil börn skilja ekki ofbeldið Þegar tölur yfir komu barna í Barna- hús eru skoðaðar má sjá að stór hluti barnanna er á aldursbilinu 6-9 ára. Þegar Vigdís er spurð hverju þessu sæti segir hún að þá séu börnin að stfga sín fyrstu skref í skólanum og komast þá kannski í tæri við önnur börn. „Þá eru þau lfka í umhverfi þar sem þau geta sagt frá. Börn sem eru mjög lítil hafa ekki skilning á því að það er verið að brjóta á þeim. Maður heyrir frásagnir þar sem börn skilja ekki að eitthvað sé að. Lítil börn hafa svo takmarkalaust traust á fullorðn- um að þau skilja þetta kannski ekki fyrr en þau eru orðin 6-7 ára. HYUNDAI - RENAULT • BMW • LAND ROVER Sama hvernig þaö lítur út fáðu kaupaukann beint í veskið *Frí ábyrgðar- og kaskótrygging í 1 ár. Gildir ekki með öðrum tilboðum. Bensínkort með 50 þúsund króna inneign og fti ábyrgðar- og kaskótrygging* fylgir nú öllum nýjum bílum frá B&L. Ef þú ert í bílahugleiðingum, fáðu þér nýjan og glæsilegan Hyundai, Renault, Land Rover eða BMW með kaupauka sem þú færö beint í veskió, að verðmæti allt að 140 þúsund krónur. Komdu við hjá okkur. Vlð erum með bílinn handa þér. B£|jvr LÝSING HYUnDRI hefur gæðin B&L - Grjóthálsi i - íio Reykjavík - 575 1200 - www.bl.is OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 10 TIL 18 OG LAUGARDAGA FRÁ KL 12 TIL l6. GO BEYOND™ REIMAULT Btlasala Akureyrar sími 461 2533 • Btlás Akranesi sfmi 431 2622 • SG Bílar Reykjanesbæ sími 421 4444 Áki Sauöárkróki sími 453 6140 • Bíla- og búvélasalan Hvammstanga sfmi 451 2230 • Álaugarey Höfn sími 478 1577

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.