blaðið - 18.10.2005, Side 18

blaðið - 18.10.2005, Side 18
26 I AFÞREYING ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 blaöiö HOLLYWOOD VILL BITA AF EPLINU Nokkrum dögum eftir að Apple kynnti iPod video til sögunnar hafa fimm sambönd leikara, höfunda og leikstjóra óskað eftir viðræðum til þess að tryggja að peningar fyrir bíómyndir og sjón- varpsþætti hlaðið með iTunes Apple lendi örugglega í réttum vösum. „Við hlökkum til að heyra í þeim sem standa að iPod video til þess að ganga úr skugga um að meðlimir sambandanna fái greiðslur fyrir verk sín.“ ABC sjónvarpsstöðin og Apple hafa gert samning sín á milli þess efnis að Apple megi selja t.d. hina geysivinsælu sjónvarps- þætti Lífsháski (e. Lost) daginn eftir að þeir eru sýndir í sjón- varpi vestanhafs. ABC er hins vegar einungis fyrsta sjónvarps- stöðin af mörgum til þess að gera samning sem þennan og er búist við að fleiri fylgi í kjölfarið. Apple mun selja þætti ABC fyrir $1.99 (um 125 krónur) og hafa samböndin áhuga á að koma höndum á eitthvað af þessum krónum. „Ég er spenntur yfir því að geta horft á þættina mína í lófanum, en ég vil líka vera viss um að fá rétt borgað," sagði Patric Verrone, forseti Sambands höfunda. MICROSOFT TIL NÍGERÍU Microsoft og stjórnvöld í Nígeríu hafa tekið höndum saman og ætla að uppræta Nígeríubréfin svokölluðu. Þau koma með tölvupósti og lofa viðtakendum gulli og grænum skógum ef þeir bara gefa upp reiknings- númer sitt eða leggja inn á reikning í Nígeríu lága upphæð (miðað við það sem er í boði). Samfara þessu skoða stjórn- völd í landinu að gera sendingar ruslspósts á netinu refsiverð- ar þannig að allt að þriggja mánaða fangelsi fáist fyrir. SU DOKU talnaþraut nr. 73 Leiðbeiningar Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. 6 2 7 5 5 7 1 9 3 2 1 9 6 7 8 4 6 1 6 7 3 9 4 4 6 1 2 Lausn á 73. þraut verður aö íinna í blaðinu á morgun Lausn á 72. gátu 2 4 3 9 5 8 7 1 6 7 8 5 3 6 1 2 9 4 6 9 1 7 2 4 8 3 5 8 6 9 5 4 3 1 2 7 1 2 4 6 9 7 3 5 8 3 5 7 8 1 2 4 6 9 5 7 8 1 3 9 6 4 2 9 1 2 4 7 6 5 8 3 4 3 6 2 8 5 9 7 1 LEIKIR (SENA : VIKA 41) 1 Fifa 06 Allarvélar 2 Black / White 2 PC 3 BurnoutRevenge PS2/Xbox 4 Sims 2 Nightlife PC 5 NBAIive 06 PS2/Xbox 6 World ofWarcraft PC 7 Singstar Pop PS2 8 Warcraft XXVI PS 9 Counter-Strike 1 Anthology PC 10 Total Overdose PC/PS2/Xbox 11 Sims2 PC 12 FifaManager06 PC 13 Warhammer D.0.W.W.A PC 14 Incredible Hulk - U.D PS2/Xbox 15 Charlie & The Chocolate Factory PC/PS2/Xbox -», Mýjasti leikurinn frá framleiðendun- um sem færðu okkur Grand Theft Auto seríuna mun láta spilara leggja í einelti. Foreldrar eru æfir. i’að velkist enginn í vafa um að jSTA serían náði nýjum hæðum í San Andreas leiknum en framleiðandinn, Rockstar Games, lætur engan bil- bug á sér finna og ætlar að feta í ný fótspor með leiknum Bully - Back to schoöí. Á sýnishornum , á heimasíðu Rockstar má sjá ' hvernig aðalpersóna leiksins lumbrar á skólafélögum sínum og óneitanlega bendir nafn leiksins til þess að einelti og almennt ofbeldi verði í hávegum haft. Miðað við helstu upplýsingar sem til eru um Bully - sem þó eru mjög takmarkaðar - er ætlunin að gefa fólki kost á því að gera það sem það sér eftir frá skólaárunum, t.d. reyna við sætu stelpuna í bekknum, svara kennaranum fullum hálsi og svo framvegis. Nú hafa mótmælaraddir heyrst vegna leiksins eftir að móðir, sem segir að einelti hafi leitt dóttur hennar til sjálfsvígs, hóf undirskriftasöfnun á netinu til þess að korna í veg fyrir að leikurinn komi út. Móðirin, Rochelle Sides, segir að Bully komi til með að búa til sýndarveruleika Columbine fyrir krakka. „í kjölfarið áf þessum leik mun ofbeldi í skólum verða mun meira en það er nú þegar. Tæplega tooo manns höfðu skrifað undir söfnunina í gær þótt sérfræðingar telji ólíklegt að hún muni hafa áhrif á útgáfu leiksins. Þá telja sumir að leikurinn muni aldrei ná miklum hæðum þar sem hann muní ekki ná til markhópsins." Risastórt plakat af leikkonunni og rithöfundinum Pamelu Anderson prýðir vegg á stærstu bókahátíð heims sem opnuð verður í Frankfurt í Þýskalandi í dag. Eins og vitað er hefur strandvörðurinn fyrrverandi söðlað um og lagt stund á ritsmíðar undanfarið og lagt sundbolinn á hiliuna. Nýjasta bókin hennar, Star struck, hefur fengið góðar viðtökur erlendis og selst eins og heitar lummur víða. Star struck er sjálfstætt framhald fyrri bókar Pamelu, Star, en sú segirfrá raunum leikkonu sem líkist Pamelu sjálfri skuggalega mikið.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.