blaðið - 18.10.2005, Page 29

blaðið - 18.10.2005, Page 29
blaðiö ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2005 DAGSKRÁ I 37 ◄ ◄ Eastwood sýnir báðar hliðar Clint Eastwood mun gera tvær myndir samhliða hvor annarri til að fjalla um baráttuna í Iwo Jima. Ein verður frá sjónarhóli Bandaríkjanna en hin verður sögð frá sjónarhóli Japans, samkvæmt Time-magazine. Clint hefur lokið við amer- ísku hlið málsins, Flags of Our Fathers, og mun bráðlega hefja tökur á japönsku hliðinni í febrúar sem fær nafnið Lamps Before the Wind. Eastwood segir um gerð myndanna: „Ég veit ekki, stundum fær maður bara eitthvað á tilfinninguna. Manni finnst að maður geti gert eitthvað gott og verður bara að treysta innsæi sínu.“ Myndirnar tvær munu sýna að bardag- inn í Iwo Jima var ekki bara vopnaskak heldur líka árekstur ólíkra menningaheima. ■ EITTHVAÐ FYRIR... Asa Briem stjórnar Hlaupanótunni á Rás 1 Sjónvarpið, Hrjóta ekki allir? - kl. 21.25 Hrjóta ekki allir? er yfirskrift nýrr- ar fræðslumyndar um kæfisvefn á Islandi. í þessari nýju íslensku fræðslumynd útskýra læknar og hjúkrunarfræðingar hvað kæfisvefn er og hvernig hægt er að meðhöndla ástandið. Umsjón með myndinni hefur Páll Kristinn Pálsson. Hvernig hefurðu það í dag? .Ljómandi fint, þetta virðist ætla að verða nokkuð hefðbundinn dagur. Ég erað vinna að undirbúningi við þáttinn sem ég sé um í dag." Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna í fjölmiðlum? ,tg byrjaði að vinna hjá RÚV árið 2003 í afleysingum og með námi. Ég hef verið með ýmislegt í útvarpi og hef meðal annars einhvern tíma verið með þátt um indverska tónlist. Þá hef ég stundum séð um útsendingar á sinfóníutónleikum. Það er alltaf bein útsending á fimmtudögum og við hjá RÚV skiþtumst á að sjá um þá. Hlauþanótan er aðalþátturinn sem ég sé um og ég tók við honum árið 2003." Geturðu lýst dæmigerðum degi hjá Ásu? ,Dagarnir eru mjög fjölbreytilegir og það er eitt það skemmtilega við þessa vinnu. En flesta daga er ég að hlusta á tónlist og lesa mér til um hana. Oft nýja tónlist sem ég þekki ekki og hef ekki heyrt áður en það er mjög gaman. Þá vinn ég mikið ég vefnum okkar, www.ruv.is/hlaupanotan, en það fer frekar mikil vinna í hann. Þá er ég mikið að lesa mig til, leita að tóndæm- um og svo framvegis og gera skýrslur og fleira skemmtilegt." Hvað er uppáhalds sjónvarpsefnið þitt? „Alls konar heimildaþættir sem Sjónvarþið sýnir svo oft og má þar nefna heimilda- þætti um geiminn." Sirkus, Laguna Beach (3:11) - kl. 21.00 Einn ríkasti og fallegasti strandbær Veraldar og Sirkus er með ótak- markaðanað- gang að átta moldríkum ungmenn- um sem búa þar. Bærinn er paradís á jörðu. Skjár 1, Design Rules - kl. 20:00 Láttu Laurence Llewellyn-Bowen leiða þig í gegnum grundvallarregl- ur innanhússarkitektúrsins. f þátta- röðinni er fjallað um allt frá litasam- setningum og nýtingu rýmis upp í verkstjórn yfir saumakonum og teppalagningarmönnum. Hvað er uppáhalds tónlistin þín? ,Ég hlusta á mjög fjölbreytta tónlist og á mér engann einn uppáhalds tónlistar- mann. Ég hlusta á mismunandi stefnur af tónlist, var til dæmis með þátt um indverska tónlist. Ég er með bakgrunn í klassískri tónlist, tók meðal annars einleikarapróf í píanóleik." Langaði þig að verða útvarpskona þegar þú varst lítil? „Nei, ég held mér hafi aldr- ei dottið f hug að verða útvarpskona. Ég held frel- ar að ég hafi viljað verða búðarkona eða eitthvað mjög hefðbundið." Hvernig finnst þér að vinna í útvarpi? „Mérfinnst alveg rosalega skemmtilegt að vinna i útvarpi og þetta er tvímælalaust ein skemmti legasta vinna sem ég hef unnið. Enda erég er umkringd svo skemmmtilegu og gáfuðu fólki í vinn- unni." Hver er uppáhalds útvarpsmaður eða -konan þín? „Þetta er mjög viðkvæm spurning, ég á mjög erfitt með að gera upp á milli sam- starfsfólks míns og ég vill síður gera það." Ervinnan ífjölmiðlum öðru- vísi en þú bjóst við? „Nei, ég myndi ekki segja það nema kannski að því leyti að þetta er mjög fjölbreytt starf." Tyrkneska sjónvarpið fjallar um Ástarfleyið Tökur hafa nú staðið yfir á Ástarfl- eyinu í nokkra daga við strendur Tyrklands við Miðjarðarhafið. Snekkjan sem þátttakendur eru á er engin smásmíði, glæný og búin öllum þægindum dýrustu lúxus- snekkja. Eins og ætla má hefur geng- ið á ýmsu þessa fyrstu tökudaga hinum megin við hafið. Nú þegar hafa til dæmis tvær stúlkur orðið hrifnar af sama stráknum sem hef- ur skapað mikinn hita um borð 1 Ástarfleyinu. Tyrkneska sjónvarpið fjallar um íslendingana í þættinum Á miðvikudaginn síðasta gerðist það svo að tyrkneska sjónvarpið fjallaði um Islendingana og þáttinn. Þetta er í fyrsta sinn sem Loveboat, eins og þátturinn heitir á frummál- inu, er tekinn upp í Tyrklandi. Nú þegar hafa verið tekin viðtöl við marga keppendur og alla umsjónar- menn þáttarins á staðnum. Merki- legast fannst tyrkneska sjónvarp- inu hve opnir þátttakendur voru fyrir því að finna sér lífsförunaut á snekkjunni. Ekki sögðust þó all- ir taka þátt í þeim tilgangi og sáu þetta því meira sem ævintýri eða langt partí. Tyrkneska sjónvarps- fólkið spurði einnig framleiðendur þáttarins spjörunum úr. Þátturinn fékk mikla umfjöllun í tyrkneska sjónvarpinu og í dagblöðum. Islenskur veruleikaþáttur 500 íslensk ungmenni sóttu um að komast um borð í bátinn, 40 kom- ust áfram í viðtöl en aðems 14 fengu að fara út. Sjö strákar og sjö stelpur. Fólk frá mörgum mismunandi lönd- um sótti um en átti það samt allt sameiginlegt að tala íslensku sem aðaltungumál. Ástarfleyið er nýr íslenskur raunveruleikaþáttur sem sjónvarpsstöðin Sirkus mun hefja sýningar á næsta fimmtudag, 20. október. Verkefnið er stærsta verk- efni Sirkuss til þessa en þátturinn hefur strax vakið mikla athygli. ■ Morgunverður/Brunch Mán-fös frá 08:00 til 11:30 Lau-sun frá 09:00 til 15:00 o O L I V <? R www.cafeoliver.is Hvernig lýst þér á nýja Kastljósið? Fida Abölebdeh „Bara mjög vel þetta er rosalega flott, meira slúður og skemmtilegra." Gunnar Gunnarsson „Ég hefekki séð það þannig að ég get ekkert sagt um það." Guðmundur Óskarsson „Bara nokkuð vel það sem maður hefur séð afþví." VMtm Claudia „Á hvaða rás er það?" Marín Rut Kristjánsdóttir „Ég hefekkertfylgst með því." Wala Abölebdeh „Mér líst vel á það, það er miklu skemmtilegra núna." Holmes hœttir við mynd Hin ófríska unnusta Tom Cruise, Katie Holmes, hefur hætt við að leika í bíómyndinni Shame on you því hún er hrædd um að stressið við tökurnar hafi vond áhrif á ófætt barn hennar. Hin 26 ára leikkona úr myndinni Batman Begins hafði skrifað undir samning um að leika konu Spade Cooleys 1 nýrri Dennis Quaid-mynd. Þessar fréttir tefja tök- ur myndarinnar í New Orleans enn meira, en tafir voru orðnar umtals- verðar vegna fellibylsins Katarinu. Hollywood-parið, sem á eftir að tilkynna dagsetningu á brúðkaupi sínu, sagði frá því að þau ættu von á barni fyrir tveimur vikum. ■ íslensk trúarbragSasaga efrir Þórhall Heimisson -T sr- Hin mörgu andht trúarbragðanna > ijt a w4| TrOarttreytinger, ,c nýi»< ttuMtiugmy<m*_ Kristni • íslam • gyÖingdómur • búddismi • hindúismi • nýtrúarhreyfíngar • trúfélög á Islandi • spíritismi • leynihreyfingar og margt margt fleira. Aðgengileg og ómissandi bók um fjölbreytileika mannlífsins. Salka Ármúla 20 • sími 552 1122 • wwvv.salkaforlag.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.