blaðið - 18.10.2005, Blaðsíða 30
38IFÓLK
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER blaðið
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Sigmar B. Hauksson, formaður Skotvís
Hvað finnst þér um upphaf
rjúpnaveiðitímabilsins?
„Þetta var góð helgi fyrir rjúpuna. Það var slæmt veður á landinu og rjúpan
er ekki alveg orðin hvít þannig að hún féll vel inn í landið. Veiði var því ekki
mikil. Það er talsvert af rjúpu í landinu en hún er mjög dreifð, svo margir
fengu eitthvað en fáir fengu mikið. Ég sjálfur ætlaði til dæmis að veiða alla
helgina en veðrið var svo leiðinlegt á sunnudeginum að við fórum heim.
Við förum svo bara aftur þegar betur viðrar en mottóið í ár er að fara oft
og veiða lítið í einu. Ég er gríðarlega sáttur með að ráðherrann okkar skuli
treysta okkur veiðimönnum til þess að fara vel um auðlindina og ég heyri
1>að á veiðimönnum að þeim sé mjög í mun að halda því trausti. Þetta er
íka svo mikið meira en bara að veiða. Þetta er spurning um félagsskap-
inn, náttúruupplifun og bara eiga góða stund. Ég heyrði einmitt í nokkrum
veiðimönnum á sunnudaginn sem voru á heimleið. Flestir höfðu veitt lítið,
aðrir mjög lítið en allir voru þeir ánægðir og höfðu átt góðan dag.“
Robbie finnur
ekki ástina
Robbie Williams hefur játað að hann hafi aldrei fundið sanna ást. Sam-
i kvæmt breska blaðinu The Sun segir Robbie: „Ég hef aldrei verið ástfanginn.
I Ég held að það sé bara sjálfum mér að kenna en það hefur heldur aldrei neinn
k orðið ástfanginn af mér. Ég hélt að ég þyrfti að láta renna af mér og svo myndi
L ég finna innihaldsríkt samband. Nú hef ég verið edrú í fimm ár og ekki í
sambandi í sex ár.“ Robbie hefur verið í samböndum með fjöldanum öllum
^ af stjörnum á borð við Rachel Hunter og Nicole Appleton.
Angelina hin
nýja Bondstelpa?
Samningaviðræður standa yfir við Angelinu Jolie um að hún taki að sér hlut-
verk næstu Bond-stelpu. Framleiðendur vilja endilega sjá hana sem Vesper Lynd,
rússneskan njósnara, sem fer í bólið með Bond. Talið er að Angelina sé einfald-
lega hin fullkomna Bond-stúlka. Staðfest var að Daniel Craig væri hinn næsti
007 í síðustu viku. Angelina og Daniel léku saman í bíómyndinni Tomb Raider.
Evuklœðunum
Sharon Stone mætti á opnun nýrrar Louis Vuitton-búðar í Champs-Elysee i Parisar-
borg í forlátri kápu og engu undir. Hin 47 ára leikkona mætti í Louis Vuitton-kápu, en
þar fyrir utan var hún allsber, rétt eins og flassari! Stone er fræg fyrir að hafa leikið
svipaðan leik i myndinni Basic Instinct frá 1992 en þar er frægt atriði á móti Michael
Douglas þar sem hún er nærbuxnalaus.
Misnotkunin á stúlkunum í gula
húsinu var á vitorði barna í skól-
anum á sínum tíma. Það skal því
enginn segja mér að þeir fulltrúar
sem undanfarið hafa svarið af sér
grun eða vissu í málinu hafi ekkert
vitað. Þeir hafa hins vegar eflaust
átt mjög erfitt um vik að aðhafast
nokkuð. Það er líka alltaf þægi-
legra að gera það ekki.
Þetta leiðir hins vegar hugann
að öðru. Margir sem telja sig til
þekkja fullyrða að Barnavernd-
arnefnd taki aldrei börn af fólki
nema öll önnur ráð séu þrotin og
í raun séu mörg dæmi um að hún
geri það ekki þó að ástæða væri til.
Fjölmiðlar, sem hafa verið mjög
uppteknir af Telmu-málinu, hafa
hins vegar hvað eftir annað slegið
upp fréttum um foreldra sem hafa
misst börn sín í hendur kerfisins
að virðist að ósekju. í slíkri um-
fjöllun er einungis dregin fram
málshlið foreldranna en barna-
verndaryfirvöld geta lögum sam-
kvæmt ekki tjáð sig um slík mál.
Með sumum slíkum umfjöllunum
fylgja hins vegar ljósmyndir af
foreldrum sem nægja einar og sér
til að fullvissa mann um að við-
komandi einstaklingur geti ekki
alið upp barn. Þetta eru ekki for-
dómar gegn útliti, en sum andlit
segja bara einfaldlega of mikla og
berorða sögu til að hægt sé að leiða
hana hjá sér.
http://agustborgthor.blogspot.
com/
Eru þið ekki að grínast með ís-
lenska bachelorinn. Ég horfði í
fyrsta sinn á tæplega heilan þátt af
bachelor í gær og Guð minn góður,
þvílík klisja og að fólkið skuli láta
hafa sig út í þetta. Fannst samt ótrú-
lega fyndið þegar ein stelpan sagði
nei við rósinni. Hélst nú ekki yfir
heilum, var alltaf að skipta yfir á
Ríkissjónvarpið því þessi þáttur er
bara ekki að gera sig! Á hreinlega
ekki til orð yfir honum, ætla sko að
reyna að sniðganga þennan þátt á
meðan hann er til sýningar.
http://www.blog.central.is/inga-
hrefna
FARÞE6ARAN
MIÐA
€> Jim Unger/dist. by United Media, 2001
Sharon á
®
eftir Jim Unger
„Mér heyrist hann segjast vilja fá
miða til Egyptalands aðra leið
LIKAMS-
VESSAR
Smáborgarinn er stundum að velta
fyrir sér siðum og venjum hjá fólki.
Það er til dæmis mjög til siðs hjá fólki
á Islandi að þakka fyrir sig þegar það
hefur lokið við að snæða góða mál-
tíð en það er alls óþekkt í mörgum
þeirra landa sem Smáborgarinn hefur
heimsótt. Hann hefur reynt að segja
.Thank you for me“, .Danke fur mich'
og .Merci pour moi' en alltaf hlotið að
launum augngotur og vandræðalega
þögn. Heilmikill munur er á ýmsum
öðrum smáhlutum í daglega lífinu
og er Smáborgaranum minnisstætt
er hann var staddur í Þýskalandi með
kvef og saug hressilega upp í nefið í
sporvagninum að morgni til. Viðbrögð-
in sem hann fékk við því voru ekkert
minni en hefði hann staðið upp, snúið
sér í hringi og ælt kröftuglega í leið-
inni, þannig að spýjan hefði dreifst
skipulega á alla í vagninum. Seinna
komst Smáborgarinn að því að það
þykir afskaplega dónalegt að sjúga
upp í nefið og ganga Þjóðverjar alla
jafna með gamaldags vasaklúta á sér
og blása úr nös við öll tækifæri. Það
fer því lítið fyrir góðu hljóði á almenn-
um, opinberum stöðum eins og bóka-
söfnum þar í landi, því þokulúðrar
kvefaðra Þjóðverja hljóma þar með
nokkurra mínútna millibili, sér í lagi á
veturna, þegar kalt hefur verið í veðri.
(Frakklandi þykir hins vegar hin mesta
fásinna að þrífa eyrnamerg úr eyrum
sínum og fyrir því er nokkuð góð og
mjög áhugaverð ástæða. Þegar Smá-
borgarinn var staddur í Frakklandi um
sumartíma, að leita sér að kremi til að
bera á moskítóflugnabit sín og draga
úr kláða, tók hann eftir því að lítið úrval
var í kremdeildinni. Hann fann starfs-
stúlku í apótekinu og spurði hverju
þetta sætti. Útskýringin kom svo sann-
arlega á óvart. Hún sagði að Frakkar
notuðu ekki slík krem því þeir smyrðu
eyrnamerg sínum á bitin til að stöðva
kláðann. Þessar upplýsingar reyndust
síðan hárréttar og kaus Smáborgarinn
að spara sér kaup á kláðakremi OG
eyrnapinnum og beita frönsku aðferð-
inni. Sinn er siður í landi hverju.
HEYRST HEFUR...
Pær fregn-
ir berast
nú úr höfuð-
stöðvum 365
að þátturinn
Veggfóður,
sem Vala
Matt hefur
stýrt á sjón-
varpsstöðinni Sirkus, muni
framvegis verða sýndur á Stöð
2. Ástæðan er vafalaust sú að
Vala Matt er talin trekkja fleiri
áskrifendur að þeirri stöð. Eft-
ir situr Sirkus sjónvarpsstöðin
í sárum og ekki bætir úr skák
að Kvöldþátturinn hefur verið
styttur um nær helming og er
því orðið fátt um fína drætti á
Sirkus sem byrjaði með mikl-
um lúðrablæstri fyrir örfáum
mánuðum. Eftir eru hjáróma
tónar...
Ríkisútvarpið
hyggur líka á
breytingar. Þann-
ig höfum við heyrt
að leggja eigi nið-
ur dægurmálaútvarpið á Rás
2, sem er síðdegisþáttur þeirrar
stöðvar. Þetta ku vera hluti af
skipulagsbreytingum innan-
dyra. I staðinn á að koma nýr
þáttur á vegum fréttastofu sem
Áslaug Skúladóttir á að stjórna.
Nú hafa menn bara áhyggjur af
því hvað Sigrún Stefánsdóttir á
eiginlega að hafa fyrir stafni
Framarar eru
enn í sárum
eftir Islandsmót-
ið í knattspyrnu
og nú virðist
sem þeir hafi
misst af Sigurði
Jónssyni þjálfara sem líklega er
að fara til Grindavíkur. Innan-
búðarmaður hjá Fram segir að
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari
KA, sé eini valkosturinn sem
fyrir hendi sé. Það er kannski
ekki alveg rétt því heyrst hefur
að til greina komi að ráða Stein-
ar Guðgeirsson, lögmann, sem
lék með Fram á sínum tíma,
sem þjálfara.
Sú saga
g e n g -
ur fjöllum
hærra í
bænum að
hljómsveit-
in Mínus sé
hætt við að
koma fram á Airwaves tónlist-
arhátíðinni sem hefst á morg-
un. Ástæðurnar eiga að vera
persónulegar. Þetta hefur ekki
fengist staðfest en hljómsveit-
in er að semja efni fyrir næstu
plötu sem kemur væntanlega
út fljótlega eftir áramót. Mín-
us hefur haft hægt um sig að
undanförnu og ef þeir hætta
við að koma fram á Airwaves
þá er það ekki í fyrsta sinn sem
það gerist - hljómsveitin hætti
við að koma fram á Live Aid
tónleikunum i Hljómskálagarð-
inum.
II 1 u g L
Gunnarsson,
fyrrverandi að-
stoðarmaður
Davíðs Odds-
sonar, ætlar ekki
að fylgja Davíð
í Seðlabankann, þó hann hafi
menntun til sem hagfræðing-
ur. Sagan segir að hann hyggist
leita fyrir sér í atvinnulífinu,
en hann hverfur þó ekki alveg
af hinu pólitíska sviði, því senn
hefst Sunnudagsþátturinn á
Skjá einum og þar mun Illugi
láta móðan mása í vetur.