blaðið

Ulloq

blaðið - 16.11.2005, Qupperneq 10

blaðið - 16.11.2005, Qupperneq 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 blaðift Bátur skreyttur meö marglitum rafljósum líöur um Tonle Sap-fljótið á Vatnshátíðinni í borginni Phnom Penh f Kambódíu. Vatnshátföin er árlegur viðburöur f Kambódíu og f henni taka þátt tæplega 400 bátar frá Kambódfu og fleiri Asíuríkjum. ísrael og Palestína: Samkomulag um landamæri Palestínumaður á hinum umdeiida vegg á landamærum Vesturbakkans og Israels. Samkvæmt nýja samkomulaginu verður auðveldara fyrir Palestínumenn á Vesturbakk- anum að ferðast til Gasasvæðisins og öfugt. ESB-ríki sem leyfðu rekstur CIA-fangelsa: Eiga yfir höfði sér refsiaðgerðir Engin sönnunargögn eru um hvort eitthvert ríkja Evrópusam- bandsins hafi leyft bandarísku leyniþjónustunni (CLA) að reka leynileg fangelsi innan landa- mæra sinna. Verði hins vegar eitthvert þeirra uppvíst að því á það yfir höfði sér refsiaðgerðir. Þetta sagði Franco Frattini sem fer með dómsmál og innri mál- efni sambandsins á mánudag. „Hafi þessir atburðir átt sér stað þá er greinilega um al- varleg brot að ræða á gildum og reglum Evrópusambands- ins,“ sagði hann við þingmenn Evrópuþingsins. „Ef sönnur verða færðar á svo alvarleg brot kann það að leiða til alvarlegra pólitískra refsiaðgerða gegn að- ildarríki," bætti hann við. Þingmenn hvetja til rannsóknar Bandarísku mannréttindasam- tökin Human Rights Watch hafa sagt að slík fangelsi kunni mögulega að hafa verið starf- rækt í Rúmeníu og PóUandi. Pólland er aðildarríki ESB en Rúmenía hefur áhuga á að ger- ast aðildarríki þess. Bæði lönd- in hafa fullvissað framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins um að engin CIA-fangelsi hafi verið á landsvæði þeirra. Þingmenn hvöttu Frattini til að hefja formlegri og ítarlegri rannsókn á hvað hæft væri f ásökununum en hann svaraði því til að slík rannsókn væri ekki á valdssviði framkvæmda- stjórnarinnar. Evrópuráðið hóf rannsókn á málinu fyrr í mán- uðinum. Flugvöllur í Póllandi þar sem mann- réttindasamtökin Human Rights Watch telja að leynifangelsi CIA hafi verið starfrækt. ísraelsmenn og Palestínumenn náðu í gær samkomulagi um opnun landa- mæra ríkjanna við Gasaströnd sem gerir Palestínumönnum auðveldara að ferðast til og frá svæðinu. Ef allt gengur eftir áætlun ætti að vera hægt að opna landamærin þann 25. nóvember undir eftirliti fulltrúa Evrópusambandsins. Þetta er talið mikilvægt skref í þá átt að koma á varanlegum friði á milli hinna fornu fjenda. Að auki skiptir það miklu máli fyrir útfiutning og efnahag Pal- estínumanna. Samningaviðræður stóðu langt fram á nótt til að ganga frá samkomulagi sem unnið hefur verið að vikum saman. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, tókþátt í ferlinu á lokasprettin- um. „Ég verð að segja sem unnandi ruðnings að oft eru síðustu metrarn- ir þeir erfiðustu og ég held að við höfum einmitt upplifað það í dag,“ sagði hún. „Þessu samkomulagi er ætlað að veita palestínsku þjóðinni frelsi til að ferðast, stunda viðskipti og lifa venjulegu lífi,“ sagði Rice enn- fremur. Hafnarframkvæmdir á Gasaströnd Samkvæmt samkomulaginu verða Rafah-landamærin við Egyptaland og Karni-landamærin við lsrael opn- uð en á báðum stöðum hefur verið lokað síðan ísraelsmenn yfirgáfu Gasasvæðið í haust. Þá er ennfremur gert ráð fyrir að hafnarframkvæmd- ir hefjist á Gasaströnd en ekki náðist samkomulag um að opna flugvöll- inn á Gasa á ný þó að Rice hafi lagt áherslu á mikilvægi þess að samn- ingur um það yrði gerður senn. Samkomulagið þykir styrkja stöðu Mahmoud Abbas, leiðtoga Pal- estínumanna, fyrir þingkosningar sem fram fara í lok janúar á næsta ári. % V Ritt Bjerregárd, sem talið er líklegt að verði næsti borgarstjóri Kaup- mannahafnar, greiðir atkvæði í gær. Danir ganga að kjörborðinu: Bjerregárd lík- lega borgarstjóri Talið er að Ritt Bjerregárd, borg- arstjóraefni jafnaðarmanna og íyrrverandi ráðherra og þing- maður á Evrópuþinginu, verði næsti borgarstjóri Kaupmanna- hafnar samkvæmt skoðana- könnunum. Danir gengu til bæj- ar- og sveitarstjórnakosninga í gær. Jafnaðarmönnum var einn- ig spáð sigri í Árósum sem er önnur stærsta borg landsins en í þriðju stærstu borginni, Óðins- véum, var búist við sigri íhalds- manna. Kosningarnar fóru rólega af stað og um ellefuleyt- ið í gær höfðu aðeins tæplega 13% kjósenda greitt atkvæði. Kosið verður til 98 bæj- ar-, hverfis- og borgarráða í landinu en danska þingið samþykkti fyrr á árinu að fækka sveitarfélögum úr rúm- lega 270 i 98 meðal annars til að auka skilvirkni þeirra. Þá var ennfremur héraðsstjórn- um fækkað úr 14 í fimm. Verjandi flýr frak Thamir al-Khuzaie, einn af verj- endum í réttarhöldunum gegn Saddam Hussein, fyrrverandi forseta íraks, og sjö félögum hans, hefur flúið land og leitað hælis í ríkinu Katar við Persa- flóa. Khuzai særðist í fyrirsáti sem varð einum félaga hans að bana á dögunum. Hann var verj- andi tveggja samverkamanna Saddams Hussein í réttarhöld- unum sem stefnt er á að haldi áfram þann 28. nóvember. Af öryggisástæðum vildi hann ekki að nákvæm staðsetning hans yrði gefin upp. „Ég var bara lögmaður sem sinnti sfnu starfi í írak. Samt lenti ég í morðtilraun og það stafaði jafnvel hætta að fjölskyldu minni. Þess vegna ákvað ég að yfirgefa landið," sagði hann í viðtali við AP-fréttastofuna. Khuzaie áréttaði að hann hefði ekki tekið starfið að sér vegna pólitískra skoðana sinna og að það sama gilti um félaga hans. ARCTIC WEIAR vinnuföt - hlífðarföt Vesturvör 7 • 200 Kópavogur ©ÖID08 2900 mm Bush í heimsókn til Asíu NR.1 I AMERfKU GLUCOSAMINE & CHONDROITIN EXTRA STERK LIÐAMOT GÓÐ HEILSA-GULLI BETRI George Bush, Bandaríkjaforseti, hóf í gær heimsókn sína til nokkurra ríkja í Asiu. í heimsókninni, sem tekur um viku, mun hann meðal annars eiga fundi með stjórnmála- mönnum og leiðtogum í Japan, Suður-Kóreu og Kína. Staðan í viðræðum um kjarnorkumál Norð- ur-Kóreu mun bera á góma sem og baráttan gegn fuglaflensu. Þá mun Bush einnig nota tækifærið og hrósa Kínverjum fyrir að hafa losað um tökin á efnahagsmálum og hvetja yf- irvöld í Peking til að veita þegnum sínum aukið pólitískt frelsi sem og frelsi í trúmálum. Fyrsti viðkomustaður forsetans verður borgin Kyoto í Japan en þar mun hann heimsækja eitt frægasta búddahof landsins í dag áður en hann ræðir við Junichiro Koizumi, forsætisráðherra. Efnt var til mótmælafundar í japönsku borginni Kyoto í tilefni af heimsókn George Bush, Bandaríkjaforseta. Síðar mun forsetinn ferðast til Suður-Kóreu og taka þátt í fundi ríkja Asíu og Kyrrahafsríkja, fara í opinbera heimsókn til Kína og ferð- ast til Mongólíu, fyrstur Bandarfkja- forseta, áður en hann heldur aftur til Washington.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.