blaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 24
24 I VIÐTAL
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 blaöið
Ástfangin af Páli Óskari
Það þarf svo sannarlega ekki að
kynna Silvíu Nótt enda hefur hún
vægast sagt gripið landann heljar-
tökum með heillandi og kannski
ögn barnalegri framkomu sinni.
Það velkist þó enginn í vafa um
það að ný sjónvarpsstjarna er
fædd og Silvía Nótt staðfesti það
með glæsibrag á Eddu verðlaun-
unum þar sem hún vann Edduna
fyrir sjónvarpsþátt ársins og sem
sjónvarpsmaður ársins. Blaðið
spjallaði við Silvíu Nótt um
ástina, frægðina og fegurðarsam-
keppnina Silvían 2005.
Silvía segist vera ógeðslega stolt af
verðlaununum. „Mér fannst Eddu-
verðlaunin ógeðslega réttlát, ég er
náttúrulega búin að vinna fyrir
þessu skilurðu. Ég er búin að vera
með eina ógeðslega töff seríu og
svo aðra ógeðslega töff seríu. Þetta
er fyrir fyrstu seríuna þannig að ég
á örugglega eftir að vera með allar
Eddurnar næst skilurðu. Þá hefur
akademían líka fattað meira hvað
ég er miklu meira töffaðari heldur
en allir hinir, skilurðu. Serían sem
vann var meira svona „demó“ skil-
urðu. Og það segir sig sjálft, að ef
demóþátturinn vinnur tvö verðlaun,
hvað vinnur þá alvöru þáttur með al-
vöru farða margar Eddur?“
Var viss um sigur
Silvía Nótt segist hafa verið kom-
in upp á svið á Edduverðlununum
þegar hún heyrði nafn sitt kallað,
svo viss var hún um sigur. „Ég var
eiginlega komin upp á sviðið en það
var ógeðslega gott. Ef ég hefði ekki
„fokking" unnið þessi verðlaun þá
hefði ég farið í mál við þessa keppni.
Það eru allir búnir að segja að ég
sé töffuðust og best í sjónvarpi á Is-
landi. Það vantaði aftur á móti flokk
fyrir förðun í sjónvarpi, töffuðustu
fötin, töffuðustu hárgreiðsluna, töff-
uðustu áruna, líka fallegasta per-
sónuleikann og flokk fyrir þá sem
eru ógeðslega góðir við hina. “Silvía
segist vera handviss um að hún
hefði unnið alla þessa flokka hefðu
þeir verið í Edduverðlaununum og
sérstaklega góðsemisflokkinn enda
segir hún að það sé hennar stærsti
galli. „Ég er alltof góð. Ég þarf eigin-
lega bráðum að fá borgað, eða ég fæ
náttúrulega borgað fyrir það sko. Ég
fæ ekki neitt til baka fyrir að vera
góð, skilurðu. Ég er alltaf að segja:
„Hey ógeðslega.“
Mamma með húðkrabba-
mein og þroskaheft systir
Þó að velgengni Silvíu komi sumum
á óvart þá segir hún sjálf að hún hafi
alltaf vitað að hún yrði fræg. „Það
var bara einn hlutur sem ég átti al-
veg inni og ég er bara að innheimta
það sem mér var ætlað í þessu lífi
skilurðu. Að sýna öllum hinum
hvað ég er töff,“ segir Silvía Nótt og
bætir því við að hún hafi sko fæðst
í Nepal. „Ég er uppalin í Garðabæn-
um, skilurðu, á Arnarnesinu og
ég bý þar líka með fjölskyldunni.
Svo á ég líka „penthouse" í 101 skil-
urðu og ég á líka „penthouse" í Los
Angeles. Ég þarf að passa litlu systir
mína sem er þroskaheft út af því að
mamma er á spítala skilurðu, þess
vegna bý ég heima. Mamma brann
nefnilega sko svolítið i ljósum. Hún
er sko með húðkrabbamein út af
því að við vorum fyrsta fjölskyldan
sem keypti ljósabekk heim til okkar.
Hún er bara öll í sárum eitthvað á
spítala og hún er búin að vera þar í
þrjá mánuði.“
Grætur á kvöldin
Silvía Nótt viðurkennir fúslega
að það sé stundum erfitt að passa
þroskahefta systur sína. „Það er
ógeðslega erfitt en ég er svo ógeðslega
góð. Svo fæ ég líka borgað fyrir það.
Ég er alltaf í „penthousinu“ minu
um helgar að djamma og svona. Þá
læt ég systir mína bara inn á svona
heimili með öðrum þroskaheftum.
Hún er alltaf að grenja þar en hún er
alltaf að grenja hvort sem er. Hún er
ekkert töff, ef hún væri töff skilurðu
þá myndi mér kannski ekki vera al-
veg sama. Hún er svo mikill lúði og
henni er ekki viðbjargandi þannig
að hún verður bara að grenja eins og
hinir.“ Silvía Nótt segist sjálf stund-
um gráta á kvöldin og einnig þegar
einhver hefur sagt eitthvað ljótt við
hana en viðurkennir þó ekki að það
gerist nokkurn tímann.
Skilaði Gilzenegger
Eins og glöggir sjónvarpsáhorfendur
hafa tekið eftir lauk sambandi Silv-
íu Nóttar og Gilzenegger nýverið og
Silvía vill ólm koma á hreint hvers
vegna það var. „Þetta gerðist í sum-
ar, ég vildi bara sýna hinum hvað
hann er mikill hommi og hvernig
þetta var í alvörunni því það er bú-
ið að vera ógeðslega mikið af kjafta-
sögum i gangi sko. Sko, þetta var
bara flipp, hann er aðeins að flippa
í hommaskap skilurðu en það er
enginn í alvörunni hommi þú veist.
Ekki hommi, þetta var lygasaga sem
einhver sagði einhvern tímann.“
Komin með nýjan kærasta
Þrátt fyrir sambandsslit Silvíu og
Gilzenegger þá er Silvía Nótt ekki af
baki dottin því hún er komin með
nýjan mann upp á arminn og segist
vera ástfangin sem aldrei fyrr. „Ég
og Páll Óskar erum saman. Við op-
inberuðum samband okkar á Eddu-
verðlaununum eða ég opinberaði
það. Ég er ógeðslega ástfangin, hann
er fullkominn fyrir mig. Hann er
með næstum því eins hár og ég skil-
urðu, hann er alltaf ógeðslega flipp-
aður eins og ég og hann er ógeðslega
töff. Ég þurfti ekki einu sinni að velja
á hann fötin á Edduna.“ Silvía vill þó
ekkert kannast við að Páll Óskar sé
samkynhneigður og segir pirruð að
þetta sé flipp. „Hann er flippaður og
hann var ekki í sleik við neinn, það
getur enginn sagt það að hann hafi
verið í sleik með einhverjum. Það er
ekki satt. Hann var bara að grínast
en hann er hættur þessu gríni. Við
erum ógeðslega ástfangin, hann er
að koma að sækja mig og við ætlum
að skreppa til Costa Rica í „brunch.“
Það er ógeðslega dýrt fyrir svona
fólk sem á enga peninga en það er
ekki dýrt fyrir mig því ég á kortið
hans pabba því ég er að passa systur
mína.“ Silvía segist samt vera fræg-
ari en Páll Óskar en hann sé næstum
því eins frægur og hún. „Hann verð-
ur bráðum næstum því jafn frægur
og ég, sko ég hjálpa honum að gera
hann meira frægan,“ segir Silvía og
bætir við að Páll Óskar sé einmitt í
þessum töluðu orðum að standsetja
íbúð sína upp á nýtt svo hún geti
flutt inn. „Hann á eftir að breyta sín-
um lífsstíl svolítið svo að hann passi
betur mínum lífsstíl. Svo ætlum við
að kaupa íbúð við hliðina á pabba á
Arnarnesinu.“
Silvían 2005
Það hefur mikið verið um kjafta-
sögur að Silvía Nótt hafi einungis
fengið sjónvarpsþátt á Skjá einum
vegna föður síns en Silvía segir það
alrangt. „Ég er búin að segja að
það er algjört rugl. Það var búið að
hringja í mig stanslaust út af því að
þau fréttu að ég væri ógeðslega töff
og svo var mynd af mér sem einhver
sendi örugglega til þeirra. Þeir voru
búnir að vera að bíða eftir mér lengi.“
Talið berst að framtíðarplönum og
Silvía er ansi leyndardómsfull þegar
hún talar um næsta, stóra skref ílífi
hennar. „Þann 7. desember verður
fegurðarsamkeppnin Silvían 2005
- og það má byrja að senda inn um-
sóknir og myndir á silvia@si.is. Það
mega allir taka þátt, bæði „girls and
gays“ og keppnin snýst um hver er
líkust Silvíu Nótt að innan og utan.
Það verður ógeðslega erfitt og það
er náttúrulega enginn næstum því
eins töff og ég en það verður samt
ógeðslega krúttlegt að sjá hverjir
eru að reyna að vera ógeðslega jafn
töff og ég. Það er ótrúlega mikið af
„wannabe" tíkum sem halda að þær
geti verið eins töff og ég en það er
bara krúttlegt."
svanhvit@vbl.is
Allt til innpökkunar!
GRÆNN Opiðfrá kl. 08.00-16.00.
MARKAÐUR
Réttarháisi 2- 110 Rvk- Sími: 535-8500- Netfang: info@flora.is
HLÝJAR ÚLPUR, SÍÐBUXUR OG PEYSUR Póstsendum Opið mán.-föstud. kl. 10-18 lau 10-14
yppfm^nnn V/Laugalæk. sími 553 3755