blaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 26

blaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 26
Komum í veg fyrir áfengis- og vímuefnaneyslu barna og ungmenna! Neysla áfengis og annarra vímuefna raskar uppvexti og ógnar velferð margra barna. Sum bíða ævarandi tjón. Það er bitur reynsla foreldra og annarra aðstandenda að sjá barn sitt lenda í fjötrum vímuefnaneyslu og villast á brautir glæpa og ofbeldis. Það er átakanleg fórn sem snertir okkur öll. í æsku er lagður grunnur að framtíð hvers einstaklings. Þá mótast mikilvægar forsendur lífssýnar, þroska og heilbrigði síðar á ævinni. Börn og ungmenni eru berskjölduð fyrir áróðri og hvatningu til neyslu áfengis og annarra vímuefna. Rannsóknir sýna að því seinna sem ungt fólk byrjar neyslu áfengis og tóbaks því minni líkur eru á að þaö leiðist í neyslu vímuefna, hætti í skóla eöa lendi í öörum erfiðleikum. Höfum það í huga. Tökum höndum saman um að skapa börnum þroskavænleg skilyrði. Styðjum börn og ungmenni í að hafna neyslu áfengis og annarra vímuefna. Látum velferð þeirra ráða við mörkun stefnu í áfengis- og vímuefnamálum. Hagsmunir barna og ungmenna eiga að hafa forgang! Bandalag íslenskra skáta Biskupsstofa Brautin - bindindisfélag ökumanna íþrótta- og ólympíusamband íslands Félag íþrótta-, æskulýðs-, og tómstundafulltrúa Heimili og skóli KFUM&K Krabbameinsfélag Reykjavfkur Kvenfélagasamband íslands Lionshreyfingin Samtök félagsmiðstöðva - SAMFÉS Samstarfsráð um forvarnir Samtök skólamanna um bindindisfræðslu Barnahreyfing IOGT ÍUT-forvarnasamtök Ungmennahreyfing IOGT IOGT á íslandi Ungmennafélag íslands Vímulaus æska/Foreldahús SAMFOK BAÐSTOFAN VÍV/ ICEL AND

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.