blaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 23
blaóió MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005
FERDALÖG I 23
Pakkaferðir
Icelandair vinsœlar
Utanlandsferð erprýðilegur kostur íjólapakkann hvortsem verið er að kaupa handa maka
eða öðrum ástvinum. Icelandair hafa um árabil boðið upp á jólapakka til sölu hjá sér og
engin breyting verður þar á í ár.
„Við verðum að sjálfsögðu áfram með
jólapakkana okkar í ár,“ segir Stefán
Sveinn Gunnarsson, markaðsstjóri
hjá Icelandair. Stefán segir jólapakk-
ana hafa slegið sölumet hjá fyrirtæk-
inu í fyrra og að þeir virðast vinsæll
kostur hjá fólki til jólagjafa, því eftir-
spurn sé mikil. Stefán segir London
og Kaupmannahöfn vinsæla áfanga-
staði fyrir jólin, ásamt Boston og
New York. „Fyrir jólin hefur verið
mikil eftirspurn eftir verslunarferð-
um - sérstaklega til Bandaríkjanna.
Gengið á Bandaríkjadalnum gerir
það að verkum að fólk getur sparað
stórfé með því að skreppa þangað,
versla jólagjafirnar og auðvitað
skemmta sér í leiðinni," segir Stefán
og bætir við að New York og Minnea-
polis séu vinsælir verslunarstaðir.
Ódýrara en almenn fargjöld
Jólapakkarnir hafa þó hækkað um-
talsvert í verði milli ára og er hækk-
unin á bilinu 16,7-37,6%. Þetta gerist
á sama tíma og evran er 17% lægri
en í fyrra og Bandaríkjadalur hefur
lækkað um 9%.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir þó að kjör-
in séu svipuð og í fyrra þegar yfir
20 þúsund jólapakkar seldust hjá
félaginu. „Verðið er núna 23.900 til
Evrópu og 34.900 til Bandaríkjanna
sem er ódýrara en almenn fargjöld,"
segir Guðjón. „Með jólapökkunum
erum við að bjóða ferðir eftir ára-
mótin á frábærum kjörum. Ef tekið
er mið t.d. af eldsneytisverðhækkun-
um á árinu eru kjörin svipuð og á
síðasta ári, þegar við seldum gríðar-
legt magn sæta. Jólapakkarnir gilda
til allra áfangastaða sem Icelandair
flýgur til í beinu áætlunarflugi frá
Islandi á tímabilinu annarra en Or-
lando.
Ákveðnir skilmálar fylgja
„Jólapakkarnir virðast vinsælir
hjá mjög mörgum og sumir kaupa
marga, en ætli það sé ekki algeng-
ast að hjón ákveða að gefa sér dek-
urferð í jólagjöf. Þá er þessi kostur
frábær því hægt er að nota janúar
til að velta fyrir sér hvert á að fara
og hvenær,“ segir Guðjón. Hann
segir ákveðna skilmála fylgja þess-
um miðum en fólk geti notað þá á
tímabilinu 10. janúar-14. maí. Guð-
jón segir að ef fólk geti ekki notað
miðann geti það átt inneignina og
notað hana síðar. Miðarnir eru bók-
anlegir til og með 27. janúar en sæta-
framboð er takmarkað. Ef ekki eru
til sæti á jólafargjaldi er mögulegt
að uppfæra miðann í næsta skráða
fargjald, utan netsmella, og greiða
mismuninn. Endurgreiðslur eru
ekki heimilaðar þó að breytingar á
dagsetningum séu mögulegar gegn
5.000 króna gjaldi innan gildistíma
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
blaðiö=
fargjaldsins. Dveljast verður yfir að-
faranótt sunnudags og ferðin verður
að hefjast á íslandi. Þá er einungis
hægt að ferðast til og frá sömu borg
undir skilmálum jólapakkanna.
Handhafar Vildarkorts Visa og Ice-
landair geta greitt með Vildarpunkt-
um og peningum fyrir jólapakka á
almennu farrými.
Guðjón segir söluna fara vel af
stað og á fyrsta söludegi hafi á þriðja
hundrað jólapakkar selst. Mest selj-
ist gjarnan síðustu dagana fyrir jól.
Jólapakkinn verður í sölu til og með
24. desember 2005.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúl
lcelandair
999
niaoDoro
KR.
Alla virka daga frá 11.30 - 13.15 - Súpur - Ávextir - Grænmeti - Fiskur - Pizzur - Pasta
Kjúklingur - Lasagna og margt fleira
Allir hamborgarar á matseðli á
Tilboð þessa viku
Súperdós 99 kr. gildir í Take away
16” pizza m/2 áleggstegundum
sími 535 1400