blaðið - 16.11.2005, Page 35

blaðið - 16.11.2005, Page 35
blaöið MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 KVIKMYNDIR I 35 400 kr. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR kl: 12 UM HELGINA í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI STMSTA KVIKMYNDAHUS UNDSINS • HAGATORGI • S. 530 1919 • www.haskolablo.is KÍRSTÐí DtlNSTt ORLAHÐOBLOOM V y FORSYNING ELIZABETH TOWN KL 5.30-8-10.30 UTLI KJÚLLINN KL. i WALLACE & GROMIT onskt tal KL. 6 TIM BURTON'S KL 6-8-10 CORPSE BRIDE FOUR BROTHERS KL 10 B.l. 16 OKTÓBERBÍÓ tct -tb! L'ENFANT KL6 GUY-X KL 10 DRABET KL 8-10 HIP HIP HORAI KL8 THE ASSASSINATION OF RICHARD NIXON KL 8 ELIZABETH TOWN ELIZABETH TOWN VIP LITLI KJÚLLINN ísl. tal LITLI KJÚLLINN VIP ísl. tal CHICKEN LITTLE enskt tal TWOFORTHE MONEY KISS KISS BANG BANG TIM BURTON'S CORPSE BRIDE FLIGHTPLAN WALLACE & GROMIT ísl. tal THE 40 YEAR OLD VIRGIN KL 5.30-8-10.30 KL 8-10.30 KL 4-6 KL. 4-6 KL 4-6-8-10.10 KL 8-10.30 B.1.12 KL 10.30 B.1.16 KL 4-6-8-10.10 KL8.15 B.l. 12 KL 4 KL6 B.l. 14 RINGLAN C 588 0800 DOOM PERFECT CATCH KL.8 KL.8 AKUREYRI TWO FOR THE MONEY FLIGHTPLAN MUST LOVE DOGS CHICKEN LITTLE enskt tal LITLIKJÚLLINN ísl. tal SERENITY TWO FOR THE MONEY KISS KISS BANG BANG WALLACE & GROMIT ísl. tal KL. 6-8-10.10 KL 6 X-FM FORSÝNING KL 8 B.l. 16 KL 8-10.30 B.1.12 KL 10.30 B.l. 16 KL 6 KL.8-10 KLIO KL.8 AKUREYRI ( 461 4666 KEFLAVÍK C 421 1170 elizabfithtovyn PACINO McCONAUGHEY RUSSO ALFABAKKI KEFLAVIK KRINGLAN FOR THE Live 8 á DVD ★★★★★ Frábær skemmtun Plata með Hairdoctor Út er kominn veglegur DVD- diskapakki þar sem hægt er að sjá og njóta hápunkta tónlistar- veislunnar Live 8 sem haldin var 2. júlí á þessu ári. Diskarnir eru fjór- ir og þar er að finna alla stærstu flytjendur frá sviðunum sjö sem spilað var á allan daginn og fram á kvöld þennan dag. Tónleikarn- ir eru frá Hyde Park í London, Philadelphiu, París, Berlín, Róm, Edinborg og Tokyo. Live 8 voru skipulagðir af Bob Geldof sem er sá sami og skipulagði Live 8-tón- leikana snemma á 9. áratugnum. Báðar þessar tónlistarhátíðir voru haldnar til að vekja máls á bágri stöðu fólks í Afríku, þar sem fá- tækt og hungursneyð hafa herjað á íbúana. Yfirskrift Live 8-tónleik- anna var: „Útrýmum fátækt“ eða á ensku: „Make poverty history“ og vöktu þeir gífurlega athygli á málefninu enda líklega um að ræða stærstu tónleika sem haldn- ir hafa verið. Fyrir þá sem misstu af þessu, eða vilja endurupplifa tónleikana með stærstu nöfnun- um, er um að gera að verða sér úti um diskapakkann, enda er mjög vel að honum staðið. Hvern disk er bæði hægt að horfa á frá upp- hafi til enda og svo er líka hægt að velja einstaka flytjendur, eftir því hvað hentar hverju sinni. Mikið er um að ólíkir listamenn leiði sam- an hesta sína á sviði vegna þessa góða málstaðar og oft er um mjög áhugaverðar útgáfur af lögunum að ræða. I London áttu The Who, Pink Floyd og Paul McCartney stjörnutónleika og þó ekki væri nema fyrir þessa fyrrgreindu listamenn væri þess virði að fá sér pakkann. Þegar við þetta bætast ógrynnin öll af framúrskarandi tónlistarmönnum sem gefa sig alla í flutninginn er nánast vit- leysa að fjárfesta ekki í gripnum. 63 listamenn koma fram á disk- unum og efni þeirra spannar um tíu klukkustundir. Framlag Bjark- ar Guðmundsdóttur í Tokyo er mjög flott, en hún syngur reyndar bara eitt lag á disknum og hefði náttúrulega verið skemmtilegra að fá meira með henni. Það er þó varla hægt að kvarta, því öll stærstu atriðin eru þarna með og sýna langflestir frábæra takta. Það besta af öllu er þó að ágóðinn af sölu þessa DVD-diska rennur til hjálparstarfs í Afríku til að berj- ast gegn fátækt. Það er því einlæg ósk þess sem þetta ritar að fólk velji þennan disk í jólagjöf þetta árið. heida@vbl.is The White Stripes: Gefa The Denial Twist til tónleikagesta Á tónleikaferð The White Stripes um Bretlandseyjar hafa tónleikagestir fengið afhendan skrifanlegan geisla- disk, umbúðir og aðgangsorð til að geta náð sér í live tónleikaútgáfu af nýjasta smáskífulagi sveitarinnar TheDetrial TvWsíáNetinu, sem flutt var á þeim tónleikum sem viðkom- andi var á. Lagið er tekið upp á hverj- um einustu tónleikum sveitarinnar i Bretlandi og hver útgáfa því einstök. Síðustu tónleikarnir í tónleikaferð The White Stripes um Bretland eru í Glasgow 17. nóvember - en þremur dögum síðar, sunnudagskvöldið 20. nóvember, spila þau sína síðustu tón- leika í bili í Laugardalshöll, Reykja- vik. Forsvarsmenn hljómsveitarinn- ar hafa ekkert gefið upp um hvort að diskum og aðgangsorðum til nið- urhals á laginu verði dreift á tónleik- um sveitarinnar hér. Enn eru fáanlegir miðar á tón- leika The White Stripes í versl- unum Skífunnar og á Midi.is. Miðaverð er 4.500 krónur. Sveiflukennd hátíðaplata Tríó Björns Thoroddsen spilar létt og sveiflukennd jólalög á nýrri jólaplötu sem kemur út á vegum JR útgáfunnar. Geisladiskur- inn heitir því einfalda nafni Jól og inniheldur hann tólf þekkt jólalög. Tríó Björns Thoroddsen skipa, auk hljómsveitarstjórans, þeim Kristjönu Stefánsdóttur, söngkonu, og Jóni Rafns- syni, bassaleikara, en einn- ig kemur Eyjólfur Þorleifsson, saxa- fónleikari, við sögu í tveimur lögum. Flestir ættu að kannast við lögin á plötunni en þau eru meðal annars Winter Wonderland, Jingle Bells, Ég sá mömmu kyssa jólasvein og Nótt- in var sú ágæt ein. Kristjana Stefánsdóttir er án efa ein af frambærilegustu söngkonum Islands í dag og þeir Björn og Jón hafa starfað mikið saman undanfar- in ár, m.a í Guitar Islancio. Tríóið verður með útgáfutónleika á Næsta bar í Ingólfsstræti miðviku- daginn 7. desember en það verður einnig mikið á ferðinni i desember þar sem þau munu leika fyrir gesti og gangandi. Ný plata er á leiðinni með Hairdoc- tor sem heitir Hairdoctor Sham- poo. Hairdoctor er alteregó Jóns Atla og Árna. Jón Atli hefur hingað til verið hvað mest áberandi á tónlist- arsviðinu sem plötusnúður og bassa- leikari en hann hefur spilað með fjölda listamanna hér á landi, allt frá hip-hop sveitinni Forgotten Lor- es yfir í Bang Gang en lengst af var hann þó í rokkhljómsveitinni Fídel. Tæknitröllið Árni „PlusOne” var svo fenginn til að hjálpa við þetta allt saman og saman hafa þeir Jón Atli náð að gera Hairdoctor að því sem hann er 1 dag: Svölum gaur sem veit hvað hann vill og gerir þar að auki fína tónlist. Tónlistinni væri helst hægt að lýsa sem poppi með taktföstum tölvutónum. Það má í raun segja að Hairdoctor hafi fæðst í upphafi þessa árs þegar Jón Atli fékk nóg af þvi að standa til hliðar á meðan aðrir tóku alltaf besta pláss- ið á sviðinu,. Hann fékk því þá hug- dettu einn daginn þegar hann var búsettur í New York að gera þetta bara sjálfur. Síðan fór hann og hitti Árna og um leið fæddist Hairdoctor sem er fullmótaður tónlistarmaður. Hairdoctor spilar á það sem hon- um dettur í hug og syngur það sem honum dettur í hug. Útkoma þess er platan Shampoo þar sem Hairdoc- torinn sjálfur er þar allt í öllu þótt hann fái reyndar hjálp frá nokkr- um vinum, t.d. Urði Hákonardótt- ur, Úlfi Chaka og Birki í Forgotten Lores. Hljómsveitin hefur nokkrum sinnum komið fram að undanförnu við góðar undirtektir og mun hljóm- sveitin koma fram á tónleikum á næstunni. www. MADE IN ICELAND .is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.