blaðið - 16.11.2005, Side 38
38IFÓLK
)
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 blaöiö
LESTURí
FÓTABAÐI
Smáborgaranum finnast bækur rosalega
mikilvægar í heiminum. t>ær eru eins og
lykill inn í heim sem einhver annar býr í
eða aðferð til að sjá heiminn með augum
einhverrar annarrar mannveru. Bóka-
lestri fylgja líka oft ákveðnir helgisiðir
og hver og einn hefur komið sér upp
sínum siðum og venjum tengdum lestri.
Smáborgarinn fær sér til dæmis alltaf te
og kex, ef hann á það til. Vinkona Smá-
borgarans verður að eiga bland í poka ef
hún ætlar að leggjast í sófann með góða
bók. ískalt vatn og hlýir sokkar hljóma
líka mjög notalega í tengslum við lest-
ur. Einhverju sinni kom Smáborgarinn
i heimsókn og þar sat maður í stofu og
las. Hann var með fæturna í vaskafati
og var í fótabaði. Hann sagðist aldrei
lesa öðruvísi, þetta væri svo róandi og
hann einbeitti sér líka betur á þennan
hátt. Það er ansi sorgleg þróun að margir
taki sjónvarpsgláp fram yfir lestur góðra
bóka. Smáborgarinn er ekki einn af
þeim og reynir iðulega að lesa eitthvað
fræðandi eða upplífgandi. Það er helst
að ástarsögur og ævisögur eigi ekki upp
á pallborðið hjá Smáborgaranum, en
hann er þó aldrei í meira stuði til að lesa
en þegar hann, af einhverjum ástæðum,
getur það ekki. Þegar Smáborgarinn var
í skóla og námsefni i formi greina og
bóka hrönnuðust upp á náttborðinu, fór
hann stundum á bókasafnið bara til að
skoða. Honum leið eins og félausu barni
í dótabúð, því hann vissi að ef hann tæki
sér bækur myndi hann skila þeim ólesn-
um með þyngsli fyrir brjóstinu, eða sem
verra væri: Hann myndi freistast til að
lesa skáldsögurnar, Ijóðabækurnar eða
smásögurnar sem hann hafði áhuga á og
sitja uppi ólesinn og stressaður í skólan-
um, og líkasttil með samviskubit í ofaná-
lag. Því er það tvímælalaust helsti kostur
þess að vera ekki í skóla sem stendur, aö
tíminn til lesturs sér til yndisauka hefur
margfaldast. Það er því ánægður og
hamingjusamur Smáborgari sem töltir á
bókasafnið þessa dagana. Vetrardagskrá
sjónvarpsstöðvanna fer að mestu fram
hjá Smáborgaranum, því hugur hans er
annars staðar: (heimi bókmennta.
■ AS netinu
,Þessi viðhorf til varnarmála sem
Halldór Ásgrímsson viðraði nú um
helgina eru efnislega þau sömu og
ég hef lengi látið í ljós. Ég hef lengi
mælst til þess að við leituðum leiða
til samstarfs með Evrópuhluta
NATO, eins og til að mynda í þessu
útvarpserindi í Speglinum á RUV
sumarið 2003 þegar ég var nýkjör-
inn þingmaður. Þar sagði ég með-
al annars um hugsanlega brottför
Bandaríkjamanna: “í það heila þá
þarf það ekki að þýða neitt stórtjón
fyrir okkur þó Bandaríkjamenn
hverfi á brott. Farvel Frans, segi
Z_» «
Magnús Þór Hafsteinsson á http://
www.althingi.is/magnush/safn/002141.
html#oo2i4i
,Herinn er að fara, hægt og bítandi
Mér finnast fréttirnar af viðbrögð-
um við því að herinn vill fara (er að
fara, hefur verið að fara, veit ekki
alveg hvaða tíð á að hafa á þessu) af-
ar áhugaverðar þessa dagana. Eink-
um geðillska og uppgjöf Halldórs
Ásgrímssonar og orðaleppar Stein-
gríms J. Heyrði í morgun að hon-
um finnst ríkisstjórnin ekki vera á
hnjánum núna heldur á maganum
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Hallgrímur Helgason, rithöfundur.
Hvað finnst þér um dag
íslenskrar tungu?
„Dagur íslenskrar tungu er auðvitað fæðingardagur Jónasar Hallgríms-
sonar og því ber að fagna. Jónas fæðist ekki á hverjum degi. Það má segja
að 16. nóvember sé 17. júní andlega lífsins." Aðspurður að því hvort þörf sé
á sérstökum degi helguðum íslenskri tungu svarar Hallgrímur: „Þurfum
við 17. júní? Það er spurningin. Við elskum landið okkar og fögnum því 17.
júní. Við elskum líka tungumálið okkar og fögnum 16. nóvember til að tjá
þá ást. Ég held að hann eigi fullan rétt á sér.“
Pierce blótar í Playboy
Pierce Brosnan ætlar ekki að afhenda kjólföt James Bond án þess að láta að-
eins heyra í sér. Leikarinn blótaði yfirmönnunum sem ráku hann og
réðu Daniel Craig í hlutverk njósnarans 007 í sand og ösku. I viðtali
í tímaritinu Playboy sagði Pierce framleiðendunum að fara í rass og
rófu og bætti við: „Það er ömurlegt að þessir fávitar hafi hent mér
út núna, en gaman að segja þeim að fara í rass. Þið eruð hálfvitar að
halda að ég sé einhver aumingi." Hinn 52 ára gamli leikari heldur því
fram að nýja myndin sem hann leikur í, Matador, muni sanna að þeir
hafi gert mistök að reka hann. Daniel Craig, sem er 37 ára og mun
verða fyrsti ljóshærði Bondinn í bíómyndinni Casino Royale sem
kemur út á næsta ári, var varkárari í orðum í sjónvarpi í Bandaríkj-
unum. Hann var spurður að því hvernig hann fékk hlutverkið
og svaraði því: „Þeir höfðu samband við mig og ég hugsaði mál-
ið. Þeir hugsuðu líka málið og nú er ég hér.“
—
Katie hœttir að leika
Katie Holmes er að hætta að leika. Leikkonan vill verða móðir í fullu starfi.
Hún er ófrísk af sínu fyrsta barni með unnusta sínum Tom Cruise og sam-
kvæmt The Sun er búist við erfingjanum snemma á næsta ári. Heimildar-
maður sagði: „Katie hefur ákveðið að hætta alfarið að leika. Hún hefur sagt
vinum sínum að hún og Tom hafi tekið þá ákvörðun að best sé að hún sé
heima og ali upp barnið. Þessi ákvörðun vekur hörð viðbrögð í Hollywood.
Katie er á besta aldri fyrir mörg hlutverk og hefur algjörlega lokað hurðinni
á farsælan frama sinn.“
Ný smáskífa frá
Arctic Monkeys
Arctic Monkeys hafa tilkynnt um næstu smáskífu sína. Hún fylgir í kjölfarið
á fyrsta smelli þeirra, I Bet You Look Good On The Dancefloor og kemur
út 16. janúar á næsta ári. Mun smáskífan heita When The Sun Goes Down.
Fyrsta stóra plata þeirra hefur enn ekki fengið nafn og mun að öllum líkind-
um koma í búðir í lok janúar, en þetta eru þó óstaðfestar fregnir.
eftir Jim Unger
Svanfríður Jónasdóttir á http://www.
jafnadarmenn.is/svanfridur/
„Þegar menntamálaráðherra var
spurður út í niðurskurðinn var
svarið að það myndi efla skólann til
framtíðar. Þetta eru alger öfugmæli
að mínu viti.
Það er miklu heiðarlegra fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn að koma hreint
fram við Norðlendinga og segja
að svokölluð menntasókn nái ekki
norður í land. 1 þessu sambandi má
einnig minna á að flokkurinn lagði
niður nám í fiskvinnslu sem fór m.a.
fram á Dalvík.
Það er erfitt að átta sig á því hver
ástæðan er fyrir þessu fjársvelti rík-
isháskólanna.þ.e. Háskólans á Akur-
eyri og Háskóla íslands. Líklegasta
skýringin er sú að ráðherra sé að
svelta skólana svo að ráðamenn skól-
anna fari sjálfir að óska eftir að geta
lagt skólagjöld á nemendur. Með
því væru skólastjórnendur farnir
að enduróma flokkssamþykkt Sjálf-
stæðisflokksins um að leggja skóla-
gjöld á nemendur."
Sigurjón Þórðarson á http://www.alt-
hingi.is/sigurjon/safn/oo2i48.ml#oo2i48
1-30
OJIm Unaei/dist. by United Media, 2001
Viltu lækka í viftunni!
HEYRST HEFUR...
Unnur Birna Vilhjálmsdótt-
ir, fegurðardrottning, er
stödd í Kína þar sem hún tek-
ur þátt í
k e p p n -
inni Miss
W 0 r 1 d ,
en þar
keppa feg-
urstukon-
ur heims
u m
titilinn.
Keppend-
ur eru meðal annars kynntir á
heimasíðu keppninnar og þar
segist Unnur vera með sinn eig-
in sjónvarpsþátt á íslandi. Unn-
ur var jú með sjónvarpsþátt á
Sirkus en honum var slaufað
fyrir þó nokkru síðan...
Samsæriskenningarnar
náðu áður óþekktum hæð-
um í fyrrakvöld þegar í ljós
kom að ekki var hægt að senda
út margboðað viðtal við Jón
Ólafsson
í Kastljós-
inu. Þarna
átti „hönd
g u ð s “ ,
öðrunafni
blá hönd-
in, að hafa
gripið inn
í, enda
var Jón
stóryrtur í garð Davíðs Odd-
sonar og Sjálfstæðisflokksins í
fréttunum á undan. Útgefend-
ur ævisögu Jóns, Edda miðlun,
voru þó hreint ekki ósáttir við
atganginn, enda langt síðan
að bók hefur fengið jafn mikla
ókeypis kynningu.
Mörður Árnason gerir varn-
arliðssamningana að um-
talsefni á heimasíðu sinni, sem
heitir því skemmtilega nafni
mordur.is. Niðurstaða þing-
mannsins er klár: „Sumir túlka
ræðu Halldórs Ásgrímssonar á
Framsóknarfundinum þannig
að hann
hafi verið
að senda
Bandaríkja-
mönnum
skilaboð.
Sjálfsagt
ýta spuna-
drengir
hans undir
slíka túlk-
un eftir
undirlægjuhátt ráðherrans i
Iraksmálinu. I raun er miklu
eðlilegra að túlka ræðuna sem
spark í Sjálfstæðisflokkinn,
nánar tiltekið í afturendann
á Geir H. Haarde utanríkisráð-
herra.“ Þá vitum við það.
m
Agæt heimildamynd þeirra
Þórhalls Gunnarssonar
og Lýðs Árnasonar um undir-
heima Reykjavíkur var sýnd í
Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi.
I myndinni, sem ber heitið
Skuggabörn, er Reyni Trausta-
syni, ritstjóra, fylgt eftir þar
sem hann
kafar í heim
eiturlyfja
og glæpa. Á
forsýningu
myndarinnar
um síðustu
helgi mættu
margir mekt-
a r m e n n ,
meðal annars Björgólfur Guð-
mundsson. Það var hins vegar
ein aðalsöguhetja myndarinnar
sem stal senunni. Einsi mætti í
fylgd fangavarða á Kvíabryggju.
Eftir sýninguna flutti hann
hjartnæma ræðu sem fékk við-
stadda til að rísa úr sætum og
klappa honum lof í lófa.