blaðið - 21.11.2005, Page 6

blaðið - 21.11.2005, Page 6
6 I IWWLEWDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2005 blaðið 365 gefur út símaskrá í febrúar á næsta ári kemur út þjónustuskráin Allt sem 365 fjöl- miðlar gefa út. Gunnar Smári Egilsson ffamkvæmdastjóri hjá 365 fjölmiðlum segir þetta verða þjónustuskrá þar sem fyrirtæki í landinu eiga kost á að skrá sig í bókina. „Það er byrjað að selja í bókina og það gengur mjög vel,“ segir Gunnar Smári. Hann segir fyrirtæki geta sótt um misstór pláss í blaðinu og munu greiða í sam- ræmi við stærð. í upplýsinga- bæklingi um Allt kemur fram að stefnt sé að því að gefa ritið út einu sinni á ári frá næsta ári. Þar kemur einnig fram að bókin verði yfirgripsmikil þar sem upplýsingar verði settar fram á skipulegan hátt. Þjónustuskránni verður dreift ókeypis á öll heimili í landinu. Umferðin: Einn slasað- ist í hörðum árekstri Einn slasaðist í árekstri á Hafnarfjarðarvegi á móts við Kársnesbraut í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar f Kópavogi fór annar bfllinn yfir á öfugan vegarhelming með þeim afleiðingum að hann skall framaná bfl sem var að koma úr gagnstæðri átt. Ökumaður úr öðrum bflnum var fluttur á slysadeild en ekki er talið að meiðsl hans séu alvarleg. Báðar bifreiðarnar voru í óökufæru ástandi eftir árekst- urinn. Þá stöðvaði lögreglan í Kópavogi þrjá ökumenn í fyrrinótt útaf grun um ölvun við akstur. í Reykjavík aftur á móti var aðfaranótt sunnu- dags róleg og lítið um óhöpp. Framsóknarflokkur: Fagna sam- komulagi aðila vinnu- markaðar Eðlflegt er að stjórnarskráin verði endurskoðuð og skýrar reglur mótaðar um þjóðarat- kvæðagreiðslu segir í ályktun kjördæmisþings framsóknar- manna í Norðausturkjördæmi sem lauk í gær. Þá lýsti þingið yfir áhyggjum af háu gengi íslensku krónunnar en fagnaði að náðst hefði samkomulag milli aðila vinnumarkaðar. Þingið lagði ennfremur áherslu á áframhaldandi uppbyggingu Háskólans á Akureyri og lýsti yfir stuðningi við hugmyndir um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Jólalög í útvarpinu byrja ofsnemma: Aðventan á að ganga út á kyrrð og ihugun Hjalti Hugason prófessor í kirkju- sögu við Háskóla fslands segir jólalög og jólaauglýsingar byrja of snemma. Hjalti segir mikilvægt að varðveita sérstöðu aðventunnar og jólanna og finnst að opinberir aðilar eigi ekki að setja upp jólakreytingar fyrr en á aðventunni. „Mér finnst sömuleiðis að bíða ætti með að flytja jólalög þar til á aðventunni," segir Hjalti og bætir við að með því að fara spar- lega með þessa tónlist geti fólk betur aðgreint sig frá auglýsingafarganinu sem byrjar alltaf fyrr og fyrr. En það eru ekki aðeins útvarps- stöðvar sem eru full fljótar á sér með jólalögin, í kirkjum landsins ómar jólasöngurinn Heims um ból sum- staðar á aðventukvöldum en Hjalti segir að í sálmabókinni sé gerð skýr greinarmunur á þeim sálmum sem fluttir eru á aðventu og jólum. „Það er mikilvægt að kirkjan standi vörð um jólatónlist en Heims um ból á ekki að flytja fyrr en á jólum,“ segir Hjalti Hugason prófessor í kirkjusögu Hjalti. Hann segir að áður fyrr hafi aðventa verið kölluð jólafasta en segir að þetta hafi snúist við með árunum. „Það hljómar undarlega þegar veitingarstaðir reyna að fá fólk til að snæða hjá sér á jólaföst- unni en nafnið fasta bendir til þess að fólk eigi ekki að neyta matar,“ segir hann. Hjalti segir aðventuna eiga að vera tfma undirbúnings, eftirvæntingar, íhugunar og sjálfsafneytunar og finnst að sumu leyti að aðventan hafi snúist upp í andhverfu sína með jólahlaðborðum og fleiru sem tilheyra alsnægtum en ekki föstu. Hjalti segir að aðventa eigi að snúast um að sýna samstöðu og hugsa um þá sem minna mega sín og þess vegna séu margar safnanir á aðventu. Hjalti er einn af þeim sem stendur fyrir kyrrðardögum í Skálholti 24. - 27. nóvember. „Kyrrðardagar ganga út á samveru í þögn, og það er ætl- ast til að þátttakendur séu hljóðir á meðan á dögunum stendur“. Hann segir þögnina hafa endurnærandi og hvílandi áhrif ólíkt öllum þeim áreitum sem dynja á okkur í fjöl- miðlum fyrir jólin. Jólalög á rás tvö spiluð í desember Ólafur Páll Gunnarsson þátta- stjórnandi Rokklands á Rás 2 segir þá hefð hafa skapast að miða sé við að byrja að spila jólalögin á Rás 2 fyrstu helgi í aðventu. „Fólk er ekkert að nauða í okkur að byrja fyrr,“ segir Ólafur og bætir við að það sé nóg að spila jólalögin í desember. Hann segir að nú sé hafin jólalagasamkeppni og verður jóla- lag Rásar 2 valið 19 desember. Ekki náðist í útvarpsstöðina Létt 96.7 en þar hafa jólalögin ómað í nokkrun tíma. f ár er Óperukór Hafnarfjarðar fimm ára. f tilefni af því verður kórinn með jólahátíð í Víðistaðakirkju í Haf narfirði 12 desember kl 20. Frá upphafi hefur Óperukórinn lagt áherslu á flutning vínar- og óperutónlistar og er eini sjálfstætt starfandi óperukór landsins. Kórinn hefur frá upphafi hlotið mikið lof fyrir flutning sinn hér á landi sem erlendis. Stjórnmál: Vinstri grænir auka fylgi sitt Vinstri hreyfingin-grænt framboð (VG) fengi ellefu menn kjörna ef kosið væri til Alþingis í dag samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins sem birt var í gær. Samkvæmt könnuninni mundu VG fá 18,2% atkvæða, Framsókn 9,9% og sex menn kjörna, Sjálfstæðisflokkurinn 38,7% og tuttugu og fimm menn kjörna, Frjálslyndir 3,4% og tvo menn kjörna og loks Samfylkingin 29,4% og nítján menn kjörna. Gengi þessi könnun eftir væri því rfldsstjórnin fallin með aðeins 31 þingmann á móti 32 þingmönnum stjórnarandstöð- unnar. Könnunin náði til 800 manns og tóku rétt rúmlega helmingur afstöðu í henni. Hátœkniiðnaður: Þarf að styðja við rannsóknar- og þróunarvinnu íslensk stjórnvöld verða að koma til móts við hátækniiðnaðinn hér á landi því annars er hætt við því að fyrirtæki flytji úr landi og störf tapist. Þetta kom fram á ráðstefnu um stöðu hátækniiðnaðar á Islandi sem Sam- tök iðnaðarins stóðu fyrir sl. föstudag. Kallað er eftir stefnumótun af hálfu stjórnvalda í málefnum hátækni- og sprotafýrirtækja. Allir aðrir í hörku aðgerðum Á ráðstefnunni kom fram að að hátt gengi krónunnar hafi haft slæm áhrif á greinina og að ekki væri hlúð nógu vel að rannsóknar- og þróun- arstarfi innan hátkæknifyrirtækja af hálfu stjórnvalda. Erlendir aðilir sjái sér hag í því að sækja hingað til lands og bjóða fyrirtækjum að flytja starfsemi sína úr landi gegn ýmsum ívilnunum. Þá er það almenn vitn- eskja að það er dýrt að byggja upp hátækniiðnað og það mundi verða þjóðfélaginu dýrt ef fyrirtæki hverfi af landi brott til annarra landa þar sem aðstæður fyrir slíkan iðnað eru mun betri. Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir stöðuna ekki vera glæsilega og þörf sé á markvissum aðgerðum. „Ef við viljum byggja upp hátækniiðnað hér eins og allar þjóðirnar í kringum okkur eru að keppa um þá gerum við það ekki öðruvísi en með einhverri stefnu og einhverjum aðgerðum. Það væri mjög einkennilegt ef slíkt ætti að gerast að sjálfu sér hér, en allir aðrir væru í hörku aðgerðum til að byggja þessa starfssemi." Bjóða gull og græna skóga Sveinn segir að erlendir umboðs- menn gangi nú á milli fyrirtækja hér á landi og bjóði þeim gull og græna skóga gegn því að þau flyti sig milli landa. „Það sem við erum einfaldlega að segja er að ef stjórnvöld hér bregð- ast ekki við með líkum hætti og er verið að gera í kringum okkur þá má alveg búast við því að fleiri fari. Flaga er nú bara nýjasta dæmið.“ Sveinn vill að stjórnvöld byrji að styrkja greinina með óbeinum hætti í formi skatta- afsláttar og ýta þannig undir rann- sóknar- og þróunarvinnu og bendir á það hvernig staðið er að þessu í Nor- egi. „í Noregi endurgreiða þeir rann- sóknar- og þróunarkostnað upp að vissu marki. Gera það í gegnum skatt- kerfið. Það er ekkert skilyrði að þessi fyrirtæki séu í skattgreiðslum. Heldur fái bara endurgreiddan kostnað í gegnum skattkerfið." Sveinn segist ekki hafa fengið viðbrögð frá stjórn- völdum en segir að ef ekki verði brugð- ist skjótt við gætu frekari störf tapast úr landi. ■ V. Við mælum með Bridgestone loftbóludekkjum jtMDGESTOnE BUZZAK LOFTBÓLUDEKK FYR/R FÓLKSBÍLA Brídgestone WSSO loftbóludekkin eru afbragðs vetrardekk - án nagla! eftir að hafa reynt þau í þrjá vetur“ segja þeir Rúnar og Baldur Jónssynir - margfaldir íslandsmeistarar í Rallyakstri • Meira öryggi og akstursánægja • Mun betra veggrip • Mun styttri hemlunarvegalengd • Mikið skorin og mjúk • Ónegld og hljóðlát • Minna slit á malbikinu • Umhverfisvænni ORMSSON DEKKJAÞJÓNUSTA • LÁGMÚLA 9 SALA 530-2842 / 896-0578 VERKSTÆÐI 530 2846 / 899-2844 y

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.