blaðið - 21.11.2005, Qupperneq 16
16 I SNYRTIVÖRUR
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2005 blaöið
Uppáhalds snyrtivara
Hrefnu í Orðlaus
Glossið góðafrá Mac
Hrefna Björk Sverrisdóttir, mark-
aðsstjóri tímaritsins Orðlaus, seg-
ist ekki mála sig mikið alla jafna
þó svo hún bregði stundum út af
vananum við sérstök tilefni. Uppá-
halds snyrtivara hennar þessa
dagana er gloss frá snyrtivörufyr-
irtækinu Mac, en hún segist nota
það mjög mikið.
„Ég er yfirleitt með gloss frá
Mac, þó svo að maður prófi nú
stundum önnur merki líka. Þessi
er í sérstöku uppáhaldi núna,
enda mjög flottur og þægilegur í
notkun. Hann heitir Lipgelée Sap-
ilicious og fæst í Mac í Debenhams.
Ég fer að jafnaði með eina svona
túpu á sex vikna fresti og get eig-
inlega ekki án hennar verið,“ segir
Hrefna, en að hennar mati er gloss
algjör nauðsyn. „Ég mála mig
reyndar voðalega lítið yfirhöfuð
- hendi kannski á mig maskara og
smá sólarpúðri og svo er það glos-
sið sem gerir gæfumuninn." ■
fyrir fólk sem þarf að borða!
SUÐURLANDSBRAUT12 // sími:
535 1400
Ilmur
fyrir bæði
kynin
Nýttfrá Calvin Klein
Það nýjasta frá Calvin Klein er CK
one scene ilmurinn. Það sem er
hvað merkilegast við téðan ilm er
það að hann er hannaður fyrir bæði
herra og dömur. Mörgum kann að
þykja það einkennileg samsetning,
en þessu hefur snyrti- og tískuvöru-
risinn nú bryddað upp á og virðist
varan mælast vel fyrir hjá fólki.
Calvin Klein hefur löngum verið
þekktur fyrir góð og vinsæl ilmvötn
en er nú farinn að færa út kvíarnar
og hanna ilm fyrir bæði kynin. Ilm-
vatn þetta er skemmti-
legakryddað aukþess
að vera ferskt, hlýlegt
og með djúpa angan.
Þá helst það
einnig vel á og
því óþarft að
úða á sig í gríð
og erg allan
daginn.
Þetta er án
efa skemmti-
leg nýjung í
flóru Calvin
Klein og eitt-
hvað sem allir
ættu að prófa.
Fyrir samrýmd-
ustu pörin er nóg að fjárfesta í þessu
eina ilmvatni og nota saman, þó svo
að vafalaust kjósi það nú fæstir. ■
Langvarandi
gloss frá
Clinique
Tollir á nokkrar
klukkustundir
Flestar konur og
stúlkur kannast við það að
þurfa að setja glossið á aftur og
aftur. Það er yfirleitt vegna þess að
það tollir ekki mjög lengi á, þó að
misjafnt sé, og því nauðsynlegt að
bæta alltaf við nýrri umferð.
Margir snyrtivöruframleiðendur
eru þó byrjaðir að hanna sérstakt
gloss sem helst lengi á og gerir
því konum auðveldara fyrir, en
Clinique er einmitt einn af þeim.
Nú er hægt að fá gloss í einni af nýj-
ustu línu fyrirtækisins sem helst á
vörunum tímunum saman. Fyrst er
borin ein umferð af litnum sjálfum
og síðan er glæra glossið sett yfir,
en það virkar eins og varalitafestir.
Glossið er hægt að fá í hinum ýmsu
litum, björtum sem dökkum, á góði
verði í öllum helstu snyrtivöruversl-
unum. Mjög sniðug vara fyrir þær
sem vilja hafa langvarandi lit á vör-
unum í kvöldboðunum. ■