blaðið - 21.11.2005, Page 29

blaðið - 21.11.2005, Page 29
blaðið MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2005 DAGSKRÁI37 Courtney Love úr meðferð Söngkonan Courtney Love er komin úr áfengismeðferð. Vandræðagemlingurinn var látin fara í sex mánaða eitur- lyfjameðferð sem hluti refsingar fyrir eiturlyfjaneyslu síð- asta sumar aukþess að þurfa að vinna í félagslegri þjónustu. Hún er sögð hafa staðið sig vel í meðferðinni. Courtney hef- ur leyfi til að fara út að versla, hitta fjölskyldu og slikt en hún verður áfram að fylgja 12 sporunum og mæta á fundi. Sögnkonan mun gefa út plötu 20. janúar. EITTHVAÐ FYRIR... ...listrœna Sjónvarpið 20.55 Listin mót- ar heim- inn (5:5) (How Art Made the World) Breskur heimildamynda- flokkur. Á okkar tímum sér fólk færri lík í umhverfi sínu en á öðrum skeiðum sögunnar en fólk virðist gagntekið af myndum af látnu fólki. Stöð 2 21:40 Six Feet Under (4:12) Fimmta syrpan í þessum frábæra myndaflokki sem fengið hefur fjölda Emmy- og Grammyverð- launa. Bræðurnir David og Nate reka útfararþjónustu Fisher-fjöl- skyldunnar. Þetta er harður bransi og þeir verða að hafa sig alla við til að lenda ekki undir í samkeppninni. Bönnuð börnum. ...tískuliðið Sirkus 20.30 Fashi- onTelevision(4:34) í þessum frægu þátt- um færðu að sjá allt það heitasta og nýj- asta í tískuheimin- um í dag. Á síðustu 20 árum hefur engin annar þáttur kynnt nýjustu tískuna jafn glæsilega og Fashion Television hefur gert. Hvort sem það eru nýjustu fötin, þotuliðið í salnum eða lætin á bakvið tjöldin, þá sérð þú það fyrst hér í Fashion Television og það á fremsta bekk. Hjördís er þáttastjórnandi þáttarins í vikulokin Hvernig hefurðu það í dag? ,Ég hef það dásamlegt af því að ég á frí í dag". Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna í fjölmiðlum? ,Eg byrjaði að vinna á Rúv í október 1985 en ég hef nýlega átt 20 ára starfsafmæli. Ég hefalltaf verið ífréttunum á Rúven byrjaði í innlendum fréttum". Hvernig finnst þér að vinna í útvarpi? ,Ég kann mjög vel við mig i útvarpi og finnst það skemmtilegur miðill. Hann er líflegur, fjörugurog hraðurog býður upp á að ef fréttamaðurinn er staddur einhvers staðar úti með sima getur hann hringt inn og sagt frétt- inaefhúnergóð Langaði þig að verða útvarpskona þeg- ar þú varst lítill? ,Ég held ég hafi ætlað að verða bóndi en ég átti heima í sveit. Ég man að þegar ég var þínulítil þá talaði ég alltaf um„kallinn í útvarþinu" en það var þulurinn sem fyrir mér var Jóhannes Arason. Svo liðu áratugir þangað til að ég sat einu sinni í prófi úti í Háskóla íslands og þar sat lágvaxinn maður yfir í þrófunum. Þegar kom að skilum á prófunum þá tekur maðurinn til máls og segir: vinsamlega athugið að merkja blöðin, ég þekkti röddina en þarvar kominn kall- inn í útvarpinu". Er vinnan í útvarpi öðruvísi en þú hefðir búistvið? ,Ég held ég hafi ekki vitað alveg við hverju ég bjóst en ég hafði mikinn áhuga á frétt- um og þegarég byrjaði að vinna í útvarpi fór ég beint í þær þannig að ég var kunnug efninu en þurfti að læra allt um miðilinn". Hvernig er dæmigerður dagur hjá Hjördísi? ,,Það er enginn dagur alveg dæmigerður og það er það sem er svo skemmtilegt. Þegar maður fer út í bíl og af stað á morgnana í vinnuna þá veit maður aldrei hvað dag- urinn muni bera í skauti sér því að maður ræðursvolitlu um það". Hvert er uppáhalds sjónvarpsefnið þitt? „Uppáhalds sjónvarpsefnið mitt eru fréttir og náttúrulífsþættir". Hver myndirðu vilja að væri síðasta spurningin í þessu viðtali? „Hvað ætlarðu að gera í næsta frfi?" „Fara til Galapakoseyja" Sadie aftur með leikfanga- stráknum Sadie Frost og Jackson Scott eru aftur byrjuð saman en þau hættu saman í ágúst á þessu ári. Þegar sambandinu lauk sögðust þau vilja einbeita sér að framanum og vinn- unni. Eins og margir muna er Sadie Frost fyrrverandi eiginkona leikar- ans Jude Law. Keypti Yoko texta Lennon? Nú eru uppi sögur um að Yoko Ono hafi borgað um 250.000 punda fyrir upprunalegar handskrifaðar útgáf- ur af texta John Lennon „Give Peace A Chance“. Textann átti að selja á uppboði hjá Bonhams, en hann var hripaður niður aftan á umslag á meðan á hinni frægu brúðkaups- ferð með Yoko stóð þar sem þau eyddu viku í rúminu. En áður en að uppboðinu kom hafði dularfullur kaupandi gengið frá einkasölu. Upp- boðshúsið, sem er eitt það virtasta í Bretlandi, hafði sett á textann milli 175.00 og 200.000 pund. Talsmaður Bonhams segir: „Textinn við Give Peace A Chance var tekinn af upp- boðinu vegna einkasölu sem geng- ið var frá hjá okkur. Þessi sögulegi texti var seldur á hærri upphæð en búist var við til aðila sem vill ekki láta nafns síns getið“. Lennon skrif- aði Give Peace A Chance á meðan hann og Yoko dvöldu á Queen Eliza- beth Hotelinu í Montreal í Kanada í maí 1969. Þar fóru þau ekki framúr rúminu í eina viku, og voru þannig að mótmæla stríðinu í Víetnam. Hvað fannst þér um Edduna? Arnar Bjarklind Mérfannsthúnalveg ágæt Sigríður Ellertsdóttir Mérfannsthún allt í lagl og svipuð og venjulega Kristín Elísa Guðmundsdóttir Ég sá hana ekki Ai - 41 Andri Hallgrímsson Ég fylgdist ekki með henni Arctic Monkeys vara við sölu á ókeypis tónlist Hljómsveitin Arctic Monkeys hef- ur varað aðdáendur við að kaupa tónlist sem það getur fengið ókeyp- is á netinu. Samkvæmt tónlistarrit- inu NME hafa einhverjir óprúttnir náungar tekið tónlist sem gefin hefur verið á netinu og selt - og hver annarstaðar en á netinu. Hljómplötu- útgefendurnir Domino Records eru brjálaðir og segja að lög sem hægt sé að fá frítt á netinu eigi að vera ókeypis og vara við slíku svindli. Áð- ur en að lagið „I Bet You Look Good On The Dancefloor" varð vinsælt þá var hægt að hala þvi niður af netinu og upptökur gengu manna á milli á tónleikum. Mörg laga Arctic Mon- keys hafa verið endurupptekin fyrir plötu sem hljómsveitin gefur út á næsta ári. Fyrstu útgáfur af Arctic Monkeys lögunum eru mjög verð- mætar og í síðustu viku seldist smá- skífan „Five Minutes With The Arct- ic Monkeys“ fýrir hundrað pund. Gjœða (zenífrá 'Bancfarílzjunum. reykelsi, nuddolfur. sápur, línsprey, aromatherapy • olíur, engia og fleira, ‘Hopc Umurinit áímtnr (jrcníUm oq ffeirum cr fominn í Kertaheimur • Reykjavíkurvegí 62 • 220 Hafnarfjörður • Sími. 56S-22B3

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.