blaðið - 21.11.2005, Side 30

blaðið - 21.11.2005, Side 30
38IFÓLK MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2005 blaöiö MÁTTUR AUGLÝSINGA Smáborgarinn er alltaf að gera sér betur grein fyrir hversu mikill máttur auglýs- inga er, eða kannski er hann bara svona meðtækilegur fyrir þeim af því hann er smáborgari. Nú er tæp vika í upphaf að- ventu og jólaauglýsingarnar eru þegar farnar að óma á öldum Ijósvakans. Smá- borgarinn er þegar farinn að fá fiðring í j tærnar og finnst að hann þurfi að kaupa alla skapaða hluti til að geta haldið gleði- leg jól. Þrátt fyrir að Smáborgarinn sé einhleypur og geti gert öll jólainnkaup- in á klukkutíma finnur hann samt fyrir pressunni, kaupa meira og meira, meira í dag enn i gær. Verður hann ekki örugg- lega að kaupa sér nýja seríu í gluggann, er sú gamla í lagi? Smáborgarinn fann sjálfan sig inn f geymslu árla sunnudags fyrirviku síðan til að gá hvort serían væri ekki örugglega á sínum stað, svo allt sé nú klárt á aðventunni þegar setja á upp skreytingarnar. Smáborgarinn getur rétt ímyndað sér hvernig áreitið erfyrir bless- uð börnin en margar auglýsingar beinast einmittað þeim. Eftir sex vikur af innkaupaferðum hérlendis eða erlendis með tilheyrandi stressi getur svo fjölskyldan loksins sest niður og hvílt sig eftir ósköpin. Hvíldin þetta árið sendur yfir í heila þrjá daga sem samsvarar einni verslunarmanna- helgi og þá byrjar stressið aftur. (febrúar kemur svo vfsareikningurinn og honum fylgir meira stress og e.t.v. meiri auk- vinna til að eiga fyrir dögunum þremur í desember sem kostuðu marga mánaðar- launin. Fyrir Smáborgarann eru jólin, og hafa ætið verið ódýr, jólagjafir eru fáar og verði þeirra stillt íhóf. FyrirSmáborgar- ann eru jólin meira en dagarnir þrfr. Alla aðventuna reynir hann að eiga notalega stund með serfuna upp í glugga (sem von- andi er í lagi) og með þægilega jólatónlist á spilaranum. Við þessar aðstæður reikar hugurinn einhverra hluta vegna aftur til æskuáranna, það færist ró yfir hugann, og Smáborgarinn kemst í hálfgert hug- leiðsluástand. Eins er með jólin, þau eiga að snúast um ró og frið og eiga ekki að kosta peninga heldurtíma sem fólk hefur til að eyða með sfnum nánustu. HVAÐ FINNST ÞÉR? Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi: Hvernig verður að vera án Alfreðs? „Lífið heldur áfram, þó auðvitað sakni maður alltaf vinnufélaga, sem halda til annara starfa. Það er enginn vafi á því að það verður sjónarsviptir af Alfreð Þorsteinssyni úr borgarmálapólitíkinni. Það hefur alltaf gustað af honum, hann hefur miklu áorkað á vettvangi Reykjavíkurborgar. Eins og gerist og gengur hefur sumt af því verið umdeilanlegt, en þótt við Alfreð höfum verið andstæðingar og oft þurft að takast á hefur okkur langoftast tekist að gera það á málefnalegan hátt. En Alfreð óska ég góðs gengis á nýjum vettvangi." Er Nicole trúlofuð? Nicole Kidman er sögð vera trúlofuð kántrístjörnunni Keith Urban. Nicole, sem var gift Tom Cruise, sást skarta einhverju, sem leit út eins og trúlofun- arhringur, á baugfingri. Nicole hefur þó sjálf ekki staðfest þessar fregnir og almennatengslafulltrúi hennar þvertekur fyrir sannleiksgildi þessarar sögu en hann segir: „Eins og stendur er þetta bara kjaftasaga. Þegar og ef það verður einhver tilkynning um málið, munu þið heyra af því.“ Kylie verður í París um hátíðarnar Kylie Minogue mun ekki komast heim til Ástralíu um jólin. Kylie, sem er í krabbameinsmeðferð í París, langaði til að komast heim til Melbourne yfir hátíðarnar svo hún gæti notið hennar í faðmi fjölskyldunnar, en læknar stúlkunnar vilja ekki að hún fari fet fyrr en um miðjan janúar. Talsmaður slúðurblaðsins The Sun segir að Kylie ljúki meðferðinni þann 18. desember og þá er ekki langt til jóla. En Kylie þarf að fara í blóðkornatalningu eftir að meðferð lýkur, og þá er hægt að úrskurða hvort hún er nógu hraust til að fara í svona langa ílugferð. Læknarnir ráðleggja henni að vera bara um kyrrt og hún hefur ákveðið að fara að þeirra ráðum. Hún verður því hjá kærastanum sínum, Olivier Martinez yfir jólin. Kimberly elskar rassinn á sér Stjarnan úr sveitinni Girls Aloud, Kimberley Walsh, segir að hljómsveitarmeðlimurinn Nicola Roberts sé afar upptekinn af rassinum á sér. Kimberley segir að Nicola sé alltaf að klípa sig í rassinn: „Nicola lætur bossann á mér ekki í friði. Hún er alltaf að koma við hann og reyna að fá hann til að hristast. En ég spenni vöðvana og við það verður hann grjótharð- ur“. Kimberley segist jafnframt vera afar stolt af afturendanum og bætir við: „Mér finnst ekkert mál að hafa svona klípulegan bossa, ég bara elska hann“. ,, Ég er hins vegar handviss um að Sam- fylkingin muni finna fjölina sína og ná sér á góðan skrið. Sólrún er nú í sama fasa og ég lenti í sjálfur þegar ég varð fyrsti formaður Samíylldngarinnar. Skrímsladeildinni og öllu atgervi Sjálf- stæðisflokksins var þá einhent í árásir - einsog hún sætir nú. Hún er að því leyti í erfiðari stöðu að í kringum hana sköpuðust miklu meiri væntingar. Fjöl- miðlar taka oft ástfóstri við stjómmála- menn, byggja upp væntingar kringum þá, og þegar þær ganga ekki eftir helst í gær verða þeir vægðarlausir og geta orðið grimmir.,, Össur Skarphéðinsson á http://web. hexia.net/roller/page/ossur „Guðmundur Magnússon, fulltrúi rit- stjóra, dregur taum Jóns Ólafssonar í Skífunni í Fréttablaðinu í dag með því að skrifa hæðnislega um leiðrétt- ingar á rangfærslum Jóns um menn og málefni. Eitt af því furðulega, sem nefnt hefur verið til sögunnar vegna út- komu bókar Einars Kárasonar um Jón, er ræða Davíðs Oddssonar til heiðurs Þórarni Eldjárn fimmtugum, en Jón Ól- afsson, sem ekki var í afmælinu, hefur látið orð falla á þann veg, að hún hafi snúist að mestu um sig. Þórarinn hef- ur leiðrétt þessa rangfærslu um ræðu Davíðs, þar hafi að vísu verið minnst á Jón Ólafsson en sá hafi verið Indíafari en ekki kaupsýslumaður. Þótt Jón Ól- afsson í Skífunni hafi um tíma verið að- alræðismaður Indónesíu á íslandi, hef- ur engum dottið í hug að nefna hann Indíufara. Guðmundur nefnir Davíð konung í athugasemd sinni og þá Þór- arinn Eldjárn, Hannes Hólmstein og Baldur Hermannsson, sem ritaði um framgöngu Jóns í Kastljósi í Morgun- blaðið, hirðmenn “ Björn Bjarnason á http://www.bjom. is/ „ Hæstiréttur hefur úrskurðað að óheim- ilt sé að skerða tekjur öryrkja ( og elli- lífeyrisþega) vegna tekna maka. Samt skerðir ríkisstjórnin lífeyri aldraðra og öryrkja frá Tryggingastofnun.Þess- ir elli-og örorkulífeyrisþegar fá aðeins hálfa tekjutryggingu. Þeir sæta helm- ings skerðingu tekjutryggingar enda þótt Hæstiréttir hefði úrskurðað að óheimilt væri að skerða vegna tekna maka.Síðan bætir ríkisstjórnin um bet- ur núna og ákveður að þeir ellilífeyris- þegar sem eiga maka,sem hefur tekjur (t.d. úr h'feyrissjóði) fái ekki óskerta ein- greiðslu. Það eru engin takmörk fyrir eftir Jim Unger 2-3 Þú getur sjálfum þér um kennt að hafa gleymt að kaupa kattamat. © Jim Unger/dist. by UniteJ Media, 2001 HEYRST HEFUR... Bj ö r n I n g i Hrafnsson er þegar far- inn að safna liði í próf- kjör Fram- sóknar sem verður op- ið, þannig að allra flokka kvikindi geta smokrað sér í kosninguna. Munu menn hans þegar vera farnir að leita hófanna við ungliða annarra flokka um atkvæðaskipti. Bróðir Björns Inga heitir Jakob Hrafnsson og er í lykilstöðu sem formaður Sambands ungra framsóknar- manna. Þar fyrir utan er hann í nánu vinfengi við Andrés Jónsson, kollega sinn í ungliða- hreyfingu Samfylkingarinnar, en innan Samfylkingarinnar hefur hann legið undir ámæli fyrir að vera arkitektinn að vafasömum kosningasigri Ól- afs Ágústs Ólafssonar í varafor- mannskosningu á landsfundi flokksins í vor. Andrés er sjálf- ur sagður staðráðinn í að fara í framboð hjá Samfylkingunni og þegar eru komnar óformleg- ar þreifingar á miklu dýpi um atkvæðalán milli ungliða flokk- anna til að styðja Björn Inga og Andrés hvorn í sínum flokki... An n a r s undrast menn hvað Halldór Ás- grímsson hafi verið reiðubú- inn að leggja mikið í sölurn- ar til þess að Alfreð Þorsteinsson rýmdi til fyrir Birni Inga, Alfreð hafi hvort eð er verið búinn að gera upp við sig að hætta í pólitík. En enginn þarf að efast um að nýja hátæknisjúkrahúsið, sem Alfreð á að byggja, verði hið glæsilegasta á alla lund. Alfreð sjálfur hefur vísað til reynslu sinnar við byggingu kastala Orkuveitunnar og sagt hana munu koma að góðum notum. Miðað við reynslu Alfreðs er því líklegast að hátæknisjúkra- húsið kosti íoo milljarða frem- ur en þá 18, sem rætt hefur verið um. Og menn geta bókað að sjúkrarúmin verða öll topp- hönnun úr Epal... Porgerður Katrín Gunnars- dóttir, menntamálaráð- herra, þyk- ir ganga hratt á sitt pólitíska k a p í t a 1 um þessar mundir. Ræðahenn- ar á lands- f u n d i þótti slöpp - sérstaklega í samanburði við leiftrandi herhvöt Kristjáns Þórs Júlíussonar - og jók frem- ur á efasemdir um hana sem leiðtoga en hitt. Á dögunum skar hún síðan niður Háskól- ann á Akureyri um 50 milljónir og sagði að niðurskurðurinn myndi styrkja skólann! í kjöl- farið lenti hún í miklum ógöng- um vegna styttingar framhalds- skólanna og setti sjónarmið sín fram með svo ónærgætnum hætti að kennarastéttin er nú öll grá fyrir járnum. Telja menn að ef ráðherrann sýni ekki meiri pólitísk hyggindi á næstunni myndist tómarúm í forystu íhaldsins, en nóg er af fólki sem getur hugsað sér að fylla í það skarð...

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.