blaðið - 28.11.2005, Side 2
2 IINNLEWDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 bla6iö
SUSHI
OPNAR1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
Slys:
Ekið á mann
á Miklubraut
Á aðfararnótt sunnudags var
ekið á fótgangandi vegfaranda
á Miklubraut austan Rauðar-
árstígs. Tildrög slyssins eru
ókunn en bíllinn var á vestur-
leið eftir Miklubrautinni um
hálf þrjú leytið, þegar hann ók
á vegfarandann. Hann er mikið
slasaður og var fluttur meðvit-
undarlaus á bráðamóttöku og
þaðan á gjörgæslu. Maðurinn
er skilríkjalaus og þegar Blaðið
fór í prentun hafði enn ekki
tekist að bera kennsl á hann.
Lögreglan hefur grennslast
fyrir um manninn í nágrenni
slysstaðarins, án árangurs.
Hjá lögreglunni fengust þær
upplýsingar að hugsanlegt væri
að maðurinn sé úflendingur.
Þá ályktun draga menn af því
að hann hafði á sér sígarettur
sem ekki er vitað til að séu
seldar hér á landi. Þeir sem
telja sig hafa upplýsingar
um málið eru beðnir um að
hafa samband við lögreglu.
Bankarnir:
Yfir 70 miUjónir í
færslugjöld í desember
Landsmenn greiða gríðarlegar upphœðir á ári hverju til bankanna í formi fœrslugjalda.
Bankarnir munu taka um 72 millj-
ónir króna í færslugjöld debetkorta
bara í desembermánuði. I fyrra höl-
uðu bankarnir inn um 500 milljónir
í færslugjöld. Talsmaður neytenda
telur eðlilegt að skoða hvaða liggur
að baki þessum gjöldum.
Stefnir í metár
Samkvæmt upplýsingum Seðlabank-
ans straujuðu íslenskir neytendur
debetkortin sín fimmtíu milljón
sinnum hér á landi á síðasta ári. Sé
tekið mið af því að bankarnir rukka
nú 12 til 13 krónur fyrir hverja ein-
ustu færslu sem fer í gegnum posa
má áætla að þeir hafi halað inn
rúmum sex hundruð milljónum í
færslugjöld á síðasta ári. Þó sumir
bankar bjóði viðskiptavinum sínum
upp á ákveðið magn af ókeypis
færslum nemur heildarvelta þeirra
á síðasta ári vegna færslugjalda þó
ekki minna en fimm hundruð millj-
ónum. Á fyrstu tíu mánuðum þessa
árs voru heildar debetkortafærslur
alls 48 milljónir og sé tekið mið af
því að meðal færslufjöldi í mánuði
er 4,5 milljónir er Ijóst að það stefnir
í metár. Rannóknarsetur verslunar-
innar spáir því í nýlegri úttekt að
BlaliS/Steinar Hugi
(slendingar greiða háar upphæðir á hverju ári fyrir að nota peningana sína.
jólaverslun verði um 11% meiri á
þessu ári en í fyrra og því er hægt
að álykta að færslufjöldi í desember-
mánuði muni verða á bilinu 5,5 til 6
milljónir. Það þýðir í stuttu máli að
bankarnir muni taka um 72 millj-
ónir í færslugjöld í desembermánuði
einum.
Eðlilegt að skoða málið
Hér er um verulegar upphæðir að
ræða og erfitt að sjá hvað nákvæm-
lega skýrir þessi háu færslugjöld.
Að sögn Gísla Tryggvasonar, tals-
manns neytenda, hafa honum borist
nokkrar ábendingar frá fólki vegna
færslugjalda en það mál hefur hins
vegar ekki verið skoðað sérstaklega
af hálfu embættisins. Fyrir liggur þó
að embættið mun á næstunni m.a.
gera úttekt á gjöldum í tengslum
við greiðslu reikninga og bankavið-
skipta. Að sögn Gísla er eðlilegt að
færslugjöld vegna viðskipta með de-
betkort verði skoðuð í leiðinni. „Ég
er nýbúinn að ákveða hvaða verkefni
verða í forgangi hjá mér fyrsta árið.
Þar er liður sem tengist bankavið-
skiptum og það er ekkert útilokað
að debetkortafærslur verði skoðaðar
í leiðinni,“ segir Gísli.
Laugavegur:
Samkeppni um
nafn á nýju bílahúsi
Á laugardaginn var hluti Laugaveg-
arins, á milli Barónsstígs og Snorra-
brautar, opnaður með pompi og
praktþegar Alfreð Þorsteinsson, for-
seti borgarstjórnar, klippti á borða
og nokkrir fornbílar óku niður göt-
una. Þó á eftir að ganga frá gang-
stétt að sunnanverðu auk annars
frágangs, en búist er við að því verki
ljúki fyrir vikulok. Um leið og um-
ferð var hleypt á götuna var nýtt bíla-
hús á Stjörnubíósreitnum svokallaða
tekið í notkun. Húsið rúmar 193 bíla
og verða stæðin gjaldfrjáls, fyrst um
sinn. Efnt hefur verið til samkeppni
um nafn á bílahúsið og gefst borgar-
búum kostur á að skila inn tillögum
allt til 23. desember næstkomandi en
hægt er að taka þátt á vef bílastæða-
sjóðs. Bílahúsið er talið falla mjög vel
að stefnumótun bílastæðamála í þró-
unaráætlun miðborgarinnar, en þar
er fjallað um íjölgun skammtíma-
stæða í austurhluta borgarinnar. Á
heimasíðu borgarinnar segir að
tengsl við akandi umferð séu ágæt
þegar miðað er við hina miklu um-
ferð sem fer niður götuna á hverjum
degi. Þar séu á ferð ökumenn sem
eru að stórum hluta í bílastæðaleit.
Verkinu lauk nokkrum vikum á eftir
áætlun, en mikil áhersla var lögð á
að ná að ljúka verkinu fyrir árlegan
annatíma jólaverslunarinnar.
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Þaö var mikið um dýrðir í Kringlunni í gær þegar Dorrit Moussaieff, forsetafrú, tendraði Ijósin á jólatrénu í verslunarmiðstöðinni. Við
sama tækifæri hófst formleg jólapakkasöfnun undir trénu á vegum Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar íslands.
O Heiðskirt (5 Léttskýjað Skýjað A Alskýjað ✓ / Rigning, lítilsháttar //' Rigning 9 9 Súld :fc ^ Snjókoma
s ' /// •
*
y,? .......... ..........---------------- Snjóél ^ Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
Parfs
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublln
Glasgow
04
11
01
11
02
0
04
02
03
05
13
02
11
17
0
04
0
0
01
14
04
03
40 o*
-3°*
◄o
•
40 2°
✓ / 3° ' ' Breytileg ' / 2°t x / , ' Breytileg ** 0° *
Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands 2°^
* -5°
Breytileg
Ámorgun
**
'//Jfa
/ //
2°