blaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 8

blaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTÍR MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 blaöiö Úrkoma hamlar hjálparstarfi Snjókoma og rigning ollu töfum á hjálparstarfi í Pakistan í gœr. Unnið hefur verið í kappi við tímann að því að útvegafólki húsaskjól og matvœli. Búast má við aðfólk ífjallahér- uðumflykkist í tjaldbúðir á láglendi um leið ogveður versnar ennfrekar. Tafir urðu á hjálparstarfi í Pakistan í gær vegna mikillar úrkomu. Allt að 20 sentimetra lag af snjó féll á sumum svæðum sem liggja hátt yfir sjávarmáli og úrkoma mældist allt að þremur sentimetrum á lág- lendi samkvæmt upplýsingum frá veðurstofu landsins. „Það verður ekkert flogið í dag,“ sagði talsmaður matvælaaðstoðar Sameinuðu þjóð- anna í Muzaffarabad, höfuðborg Kasmírshéraðs. Talsmaður alþjóða- ráðs Rauða krossins sagði einnig að aðgerðum þeirra, jafnt í lofti sem á landi, hefði verið frestað. Meira en 73.000 manns, flestir í hálendi Ka- smírhérðs, fórust í skjálftanum sem reið yfir þann 8. október. Unnið hefur verið í kappi við tím- ann að því að útvega hundruðum þúsunda fólks húsaskjól og nægileg matvæli til að það geti lifað af hinn harða vetur sem í vændum er. Að öðrum kosti er hætta á því að dauðs- föllum fjölgi enn frekar. Snjókoma féll í þorpinu Pieer Maður sem komst lífs af úr jarðskjálftanum í Pakistan heldur á barnabarni sínu í Neelam- dalnum. Chanasi síðdegis á sunnudag og var þorpið von bráðar undir nokkurra sentimetra snjóþekju. Úrkoman virðist ennfremur hafa hrundið af stað aurskriðum sem ollu töfum á umferð til þorpsins. „Við erum í vandræðum. Börn okkar og dýr eru einnig í vandræðum," sagði Tanvir Naqvi, íbúi í þorpinu. „Hitastigið er að falla og þá dugir tjald ekki til.“ Fólkflytur sigumset Yfirvöld vonast til þess að fólk sem býr hátt yfir sjávarmáli muni færa sig um set og dvelja í tjaldbúðum í dalverpum yfir veturinn en flestir hafa þó kosið að þrauka í hálf- hrundum heimilum sínum. Hjálp- arstarfsmenn búa sig undir það að hópar fólks þyrpist úr fjallahéruð- unum í tjaldbúðir í Muzaffarabad og í öðrum bæjum. Slíkt gæti gerst um leið og veður versnar enn frekar. I tjaldbúðunum býr nú þegar fjöldi fólks við óheilnæmar aðstæður og gríðarleg þrengsli. ■ íbúar Harbin skrúfa frá kran anum á ný íbúar borgarinnar Harbin í norðaust- urhluta Kína bjuggu sig í gær undir að skrúfa á ný frá vatnskrananum. Efnamengun í Songhua-ánni fyrr í mánuðinum varð til þess að millj- ónir manna voru án vatns í fimm daga. Yfirvöld áttu von á því að hægt yrði að endurræsa vatnsveitu borgar- innar síðdegis í gær en vöruðu íbúa þó við að drekka vatnið fyrst í stað. Yfirmaður vatnsveitunnar sagði að vatnið væri hættulegt þar sem það hefði legið í vatnslögnunum í fimm daga. Þrátt fyrir það sýndi kínversk sjónvarpsstöð myndir af Zhang Zuiji, héraðsstjóra Heilongjianghéraðs, þar sem hann drakk soðið vatn til að sýna að það væri drykkjarhæft. Sýni sem umhverfisverndaryf- irvöld tóku fyrr um daginn sýndu að dregið hefði úr magni bensens í vatninu og væri það komið niður i 0,0031 milligrömm á lítra sem væri í samræmi við staðla. Til saman- burðar má benda á að á föstudags- morgni var magn bensens í vatninu 30 sinnum hærra en opinber öryggis- viðmið kveða á um. ■ Kínverskur veiðimaður heldur á fiski úr Songhua-ánni sem verður sendur i rannsókn til að mæla magn eiturefna. Angelicajurtaveig Sjaldnar kvef oq aukin orka! Með Anqelícu færð þú tuenns konar virkni ísömu uöru: Vörn gegn kvefi og aukna orku. Rannsóknir sýna að ætihvönn inniheldur virk heilsubótarefni. Angelica hefureinnig reynst vel gegn álagi og streitu. Angelica jurtaveig er framleidd úr íslenskri ætihvönn. '-MEDICA , A -- . nngenui % ,1 25% afslánur **”<>*'«*' af Angelíca jurtaveíg fís. 24. - 30. nóvember [Bhcilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi Sœnskur friðargœsluliði fellur í Afganistan Konungur vott- ar samúð sína Karl Gústaf, Svíakonungur, og Göran Persson, forsætisráðherra Sví- þjóðar, vottuðu fjölskyldu sænsks friðargæsluliða sem féll í Afgan- istan samúð sína á laugardag. Frið- argæsluliðinn sem var félagi í alþjóð- legum friðargæslusveitum undir stjórn Atlantshafsbandalagsins lést eftir sprengjuárás á föstudag. Hann var einn af fjórum friðargæslu- liðum sem særðust þegar fjarstýrð sprengja lenti á bílalest í útjaðri borg- arinnar Mazar-i-Sharif í norðuhluta Afganistans. Karl Gústaf, Svíakonungur, sagði að hugur konungsfjölskyldunnar væri hjá fjölskyldu hins fallna her- Mokkakápur Mokkajakkar i PEISINN \ Kirkjuhvoli - sími 5520160 I Jml manns. Persson tók í sama streng en bætti við að Svíar og önnur ríki hefðu heitið því að efla lýðræði í Afg- anistan, uppræta uppeldisstöðvar alþjóðlegra hryðjuverkamanna og binda endi á ópíumframleiðslu í landinu. „Við munum standa við þær skuldbindingar sem við höfum tekið okkur á hendur,“ sagði hann í viðtali við sænsku fréttastofuna TT. Ríkisstjórn Svíþjóðar vill fjölga friðargæsluliðum á sínum vegum í landinu. Þeir eru nú um hundrað en stefnt er á að þeir verði á milli 185 °g 375- Enn í lífshættu Annar sænsku friðargæsluliðanna sem særðust var enn í lífshættu í gær samkvæmt upplýsingum frá hernum. Meiðsli hinna tveggja voru minniháttar og dvelja þeir á sjúkra- húsi í Úsbekistan. Þetta var fyrsti sænski friðargæsluliðinn sem fellur við skyldustörf í Afganistan. Síðast lést sænskur hermaður við skyldustörf á erlendri grundu í slysi í Kosovo fyrir tveimur árum. Síðan 1972 hafa 72 sænskir hermenn fallið á erlendri grund, þar af tíu í bardaga. ■ Ósprung- in sprengja finnst í Tókýó Þúsundir Tókýóbúa þurftu að yfirgefa heimili sín í gær á meðan unnið var að því að grafa upp ósprungna 550 punda sprengju sem talið er að bandaríski flugherinn hafivarpað á borgina í síðari heimsstyrjöldinni. Sprengjan, sem er um 14 tommur í þver- mál og 47 tommur á lengd, fannst fyrr í mánuðinum í íbúðahverfi í borginni. Um 3.900 manns sem bjuggu í rúmlega 300 metra radíus frá svæðinu þurftu að yfirgefa heimili sín af öryggisástæðum í hálfan annan tíma á meðan sprengjan var fjarlægð. Ennfremur fundust á föstu- dag 59 ósprungnar sprengjur sem talið er að japanski keisaraherinn hafi skilið eftir i vatni í nágrenni Tókýó. Ósprungnar sprengjur sem Bandaríkjamenn vörpuðu á japanskar borgir eða vopn sem keisaraherinn faldi á síðustu dögum styrjaldar- innar finnast oft í Japan. Tíu farast í öflugum jarðskjálfta Að minnsta kosti tíu fórust og margir slösðust þegar jarðskjáfti sem mældist 5,9 á Richter-skala jafnaði fiögur þorp í suðurhluta Irans við jörðu í gær. Björgunarsveitir komu fljótt á vettvang og þeir sem komust lífs af voru fluttir í öruggt skjól. Jarðskjálftamiðstöð Irans sagði að upptök skjálftans hefðu verið í Persaflóa, á milli hafnarborgarinnar Bandar Abbas og Qeshm- eyjar. Skjálftans varð einnig vart í Oman og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Masoud Dalman, yfirmaður almannavarna í Hormozgan- héraði, sagði að nokkrar byggingar á Qeshm eyju hefðu skemmst í skjálftanum en eyjan er um 1.500 ldlómetra fyrir sunnan höfuðborgina Teheran. Shahram Alamdari, yf- irmaður björgunarsveita Iransdeildar Rauða hálfmánans, sagði að verið væri að flytja hina slösuðu með þyrlum frá Qeshm til Bandar Abbas þar sem skjálftans varð einnig vart. Ekki var búist við að margir hefðu látið lífið eða slasast í skjálftunum vegna þess hversu dreifbýlt svæðið er. Innan við 120.000 manns búa á um 920 ferkílómetra svæði. Sums staðar í Oman og Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum voru byggingar rýmdar í kjölfar skjálftans og fólk þyrptist út á götur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.