blaðið - 28.11.2005, Side 4

blaðið - 28.11.2005, Side 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 blaöiö Ingibjörg Sólrún og Gunnar Smári Sjávarútvegsráðherra: kvödd til vitnis í máli Hannesar? ráðherra Héraðsdómur fjallar um aðfararhœfi bresks meiðyrðadóms yfir Gissurarsyni. Hann véfengir lögsögu hans ogsegir ummœli sín sönn, hefur óskað eftir vitnaleiðslum í málinu. Hannesi Hólmsteini Lögmaður Hannesar Heimir Örn Herbertsson, lögmaður dr. Hannesar Hólmsteins Gissurar- sonar, hyggst óska eftir vitnal- eiðslum við þinghald Héraðsdóms Reykjavikur um aðfararhæfi bresks meiðyrðadóms yfir Hannesi. Slíkt tíðkast að öllu jöfnu ekki í slíkum málum, en heimild er til þess að lögum. Fallist dómurinn á ósk lög- mannsins má gera ráð fyrir því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Gun- nar Smári Egilsson og ýmsir aðrir verði kvaddir til vitnis um málefni Jóns Ólafssonar. I 40 síðna greinargerð sinni, sem dr. Hannes Hólmsteinn Gissurar- son, stjórnmálafræðiprófessor, af- henti Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag, leggur Hannes áherslu á að breskur meiðyrðadómur yfir sér sé ekki aðfararhæfur á íslandi og dregur lögsögu breska dómstólsins íefa. Hannes segir ummælin sönn I framhaldinu snýr Hannes Hólm- steinn sér að því að greina ummæli sín um Jón, sem hann var dæmdur fyrir, en þau telur hann fráleitt flokkast undir meiðyrði á Islandi. Byggir hann það á því að hann hafi aðeins lýst fréttaflutningi og grei- narskrifum um Jón, en ekki fellt neinn dóm yfir honum sjálfur. Jón hafi verið kunnur athafnamaður hér á landi á þeim tíma, stýrt fjöl- miðlaveldi og haft afskipti af stjórn- málum og verði því að una því að vera umfjöllunarefni gagnrýnin- nar opinberrar umræðu. Auk þess skipti máli að ummælin væru sönn. Fyrri ummælin snúast um, að Jón Ólafsson sé ruddalegur náungi, sem fullyrt hafi verið að hafi komið undir sig fótunum með sölu ólögle- gra fíkniefna; hann sé líka kunnur af hörku í viðskiptum og hafi gert stjórnmálamenn fjárhagslega háða sér. Seinni ummælin eru efnislega, að samkvæmt skattaframtölum hafi Jón Ólafsson óverulegar tekjur á íslandi, á sama tíma og fréttir bir- tust um það, að hann lifi í miklum munaði. Ummælin rökstudd I greinargerðinni nefnir Hannes dæmi um ruddaskap Jóns og rekur ummæli fyrrverandi samstarfs- manna hans og orð Jóns um sjálfan sig í fjölmiðlum því til staðfestingar. Þá er vikið að tengslum hans við sakamál, þar sem Jón hafi ýmist neitað eða játað sök og alvarlegri ásökunum, þar sem ruddaskapur sé vægt orð um meint athæfi hans. Igreinargerðinni er einnig sýnt fram á, að fullyrt hafi verið á opin- berum vettvangi, að Jón Ólafsson hafi komið undir sig fótunum með sölu ólöglegra fíkniefna. Eru nefnd til sögunnar margvísleg frétta- og greinaskrif í þá veru á síðasta ára- tug. Sérstaklega er nefnd grein eftir Gunnar Smára Egilsson, núverandi framkvæmdastjóra 365 miðla, og ýmis skrif Helgarpóstins um lögre- gluskýrslur, þar sem fram kom að Jón hefði flutt inn og selt ólögleg fíkniefni og að Jón hefði undirritað skýrslurnar. Hvað þá fullyrðingu að Jón þyki harðleikinn í viðskiptum er vitnað í fjölda ummæla í Jónsbók. Að Jón hafi gert stjórnmálamenn fjárhagslega háða sér er rökstutt með tilvísun í viðtal við Jón í Heims- mynd 1987, þar sem hann lýsti því markmiði sínu, og að hann hafi lánað R-listanum fyrir sjónvarp- sauglýsingum í kosningabaráttu, sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttur veitti forystu. Er svo rakið hvernig Jóni hafi verið launaður greiðinn. Að lokum er rakið hvernig fram hafi komið á margan hátt að Jón hafi árum saman greitt skatt af óverulegum tekjum hérlendis, þótt hann hefði hér mikil umsvif, ætti sjónvarpsstöð og bærist mikið á. Hannes mótmælir því að Jón hafi verið búsettur á Englandi þegar um- mælin féllu. Hann hafi átt hér hús og mikið verið hér, svo mikið raunar að hann gegndi stöðu ræðismanns Indónesíu á íslandi frá 2001 og hafi átt hér lögheimili. Aðalatriðið segir Hannes Hólm- steinn hins vegar það, að fullt tilefni hafi verið til ummæla sinna og að þau hafi fallið í frjálsum umræðum á Islandi um mann, sem lét mjög að sér kveða og var mjög umdeildur. Hér teldust þau hvorki bótaskyld né refsiverð háttsemi og því væri rangt að fullnusta dóm frá Bretlandi um þessi ummæli. Einar K. Guðfinnsson segir að eina innlegg stjórnarandstöð- unnar í þjóðmálaumræðuna sé að óskapast yfir íjarveru ráðherra. Hann gefur lítið fyrir þær gagnrýnisraddir sem hljómað hafa að undanförnu um að ráðherrar eigi að vera viðstaddir á Alþingi þegar umræður um fjárlögin fara fram. Einar segist á heimasíðu sinni sjálfur hafa verið erlendis, í lögmætum erindagjörðum sem voru fyrir löngu ákveðin. Sjávarútvegsráðherra var staddur í Róm og sat aðalfund matvæla- og landbúnaðarstofn- unar Sameinuðu þjóðanna. Þar sagði hann meðal annars að matvælaframleiðsla í þróunar- ríkjum væri mikilvæg til þess að tryggja þar næga og heil- næma fæðu. Á heimasíðu sinni segir Einar erlend samskipti vera vaxandi þátt í starfi stjórn- málamanna. „Endurspeglar þetta vaxandi alþjóðavæðingu og þátttöku okkar í alþjóðlegu samstarfi.“ Að mati Einars er það stjórnarandstaðan sem er að yfirgefa alvöru þjóðmálaum- ræðu og segir hann hana vera með „langtímafjarvistarleyfi". Líkamsrœkt: Fæðubótarefnin ýta sterunum út Undanfarið hefur verið töluverð umræða um að steranotkun sé að aukast hér á landi í kjölfar „metró- tískunnar“, en samkvæmt henni eiga menn að vera vel til hafðir og með mikinn vöðvamassa. Þeir að- ilar sem Blaðið ræddi við vilja þó ekki kannast við þessa þróun. „Það er nú ekkert meira núna en áður var,“ segir einkaþjálfari á vinsælli lík- amsræktarstöð í samtali við Blaðið. „Þetta er frekar að minnka út af betri fæðubótarefnum sem eru lögleg og eru að virka alveg hroðalega vel. Það er I raun mjög hröð þróun í þessum geira þannig að það er alltaf minni og minni þörf á þessum hættulegu efnum.“ Viðmælandinn sagði þó að þeir sem eru illa upplýstir nái sér í þessi efni. „Það er alltaf ákveðinn heimur sem stendur í þessu, en þeir menn ná aldrei árangri.“ Aðspurður um það hvernig nálgast megi stera segir hann að þetta sé fáanlegt á svörtum markaði. Sterum er ýmist smyglað eða þá að fólk sem fær þeim ávísað hjá lækni selur þá áfram. Lyfjaeftirlitið þarf að slaka á klónni „Ég er mikið spurður út í þetta og ég segi bara nákvæmlega eins og er, þetta er bara ekki áhættunnar virði. Það er samt staðreynd að lík- amsræktin er ávanabindandi. Ef þú hefur ekki ákveðin markmið, þá lendir þú í vítahring. Fólk getur týnst I þessum vítahring og leiðst út I allskyns vitleysu, þar á meðal stera- notkun." Viðmælandinn benti á að ef menn vilja útrýma þessu vanda- máli að fullu þá þurfi einfaldlega að leyfa sterkari fæðubótarefni. „Þá myndi þetta alveg hverfa. Þeir eru voðalega stífir í lyfjaeftirlitinu og þá fer fólk bara og reddar sér annars staðar. Þeir eru að setja bann á efni sem eru í góðu lagi, og eru leyfð víða annars staðar.“ Landlæknir hefur ekki skoðað steranotkun sérstaklega „Þetta hefur nú ekki verið athugað að undanförnu,“ segir Matthías Hall- dórsson hjá Landlæknisembættinu þegar hann er spurður um hvort menn þar á bæ greini aukningu á steranotkun. „Mest af þessum sterum er smyglað en eru ekki út- skrifaðir hjá læknum. Það teljum við ekki vera stórt vandamál hér á landi. En það er full ástæða til að fylgjast vel með þeim málum. Lyfjagagna- grunnurinn okkar er nú tiltölulega nýkominn í gagnið og við höfum verið að athuga önnur mál. Það væri kannski full ástæða til þess að skoða þessi mál betur en það hefur ekki verið gengið í það.“ Kemur í bylgjum Hjá fíkniefnadeild tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli fengust þær upp- lýsingar að þeir greini ekki mikla aukningu í haldlögðum sterum. „Þetta kemur í bylgjum hér hjá okkur. Við finnum einn og einn sem er að taka eitthvað inn í einhverju magni en það er ekkert reglulegt. Við höfum ekki orðið varir við mikla aukningu í innflutningi á þessum efnum síðustu misserin.“ Lögreglu- maðurinn sem Blaðið ræddi við sagði ekkert endilega vera tengingu á milli þeirra sem standa í sterainn- flutningi og þeirra sem flytja inn hefðbundin fíkniefni. „Þetta eru ekk- ert alltaf sömu mennirnir sem eru að standa í sterainnflutningi og eru í venjulegum fíkniefnum." Lögreglu- maðurinn bætti við að ef um aukn- ingu í innflutningi væri að ræða þá færi smyglið fram annars staðar en í gegnum Keflavíkurflugvöll. ■ SNILLDARTAKTAR! . „qnaholunduí ' 6"'°PU í ánauð Nýjasta bók Ians Rankin um lögreglumanninn John Rebus. Enn einn snilldar- krimminn frá Ian Rankin! Besta bók Rankins til þessa og það segir þó nokkuð! - Observer SKRUDDA Eyjarslóð 9-101 Reykjavík s. 552 8866 - www.skrudda.is VEÐURSPÁTÆKI Oregon Scientific BAR-926 Þetta er ný útfærsla af BAR-938 en við það bætist UV skynjari og litaskjár. Það getur einnig mælt hita og raka frá allt að 5 útiskynjurum ■ Þráðlaus útihitamælir með 30 mtr. drægni og minni fyrir Hámarks og lágmarkshita. Innb. innihitamælir. ■ Heimsklukka, getur sýnt tíma í 130 borgum. ■ Rafhlöður fýlgja, (endast í 9-12 mán) ■ Hægt er að fá auka-útiskynjara sem mælir hitastigið í heita pottinum o.fl o.fl Verð kr: 19.900 K-' /I' Eico ehf - Skútuvogur 6 - sími 570-4700 eico@eico.is - www.eico.is Ljósin í bænum $uau«vi«i Stigahlfð45 • 105 Reykjavfk

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.