blaðið - 28.11.2005, Qupperneq 6
6 I IMWLEWDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Wn
Þó nýja Morgunblaðs-
höllin sé engin smásmíði
er hún samt talsvert hóf-
stilltari en sú gamla og
lætur ekki mikið yfir sér
við hlið prentsmiðjunnar.
J
Sjónvarpsver
byggt í nýju
Morgunblaðs
höllinni
Gert ráð fyrir íoo m2 sjónvarps-
veri í nýbyggingu Morgunblaðs-
ins við Hádegismóa. Skýtur
stoðum undir boðaða sókn Árvak-
urs á öllum sviðum fjölmiðlunar.
I nýbyggingu Morgunblaðsins við
Hádegismóa er gert ráð fyrir sjón-
varpsveri í líkingu við það, sem reist
hefur verið undir Nýju fréttastöð-
ina (NFS) í Skaftahlið. Ekki er ljóst
hverjar fyrirætlanir blaðsins eru á
þeim vettvangi, en að undanförnu
hefur verið nokkuð um það rætt að
Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðs-
ins, tengist öðrum fjölmiðlum með
einhverjum hætti. Þegar nýir hlut-
hafar, Ölafur Jóhann Ólafsson og
Straumur-Burðarás, gengu til liðs
við það, var sú stefna svo staðfest
og boðuð ný sókn á öllum sviðum
fjölmiðlunar.
Eftir þvi sem Blaðið kemst næst er
um að ræða íoo m2 myndver á ann-
ari hæð hins nýja húss, auk útsend-
ingarstjórnar, förðunarherbergis og
annars er til þarf. Það er afar svipuð
aðstaða og NFS hefur í Skaftahlíð.
Bygging þessa myndvers mun þó
ekki vera nein skyndiákvörðun, en
hún mun hafa verið ráðgerð allt frá
því að ákveðið var árið 2004 að byggja
nýtt hús undir Morgunblaðið.
Hið nýja húsnæði Árvakurs í
Hádegismóum verður um 3.900
fermetrar, en húsnæði Árvakurs í
Kringlunni er um 4.900 fermetrar.
Áfram er þó gert ráð fyrir nánast
sama fjölda starfsmanna, en húsa-
skipan er hönnuð með það fyrir
augum að rýmið sé betur nýtt.
Þó kann það að setja strik í reikn-
inginn að nýjar áherslur fyrirtæk-
'J imautr 'áfftfápáKKttnuút
í ittikfu úrvafi.
isins, sem fram hafa komið að und-
anförnu, munu vafalaust breyta
þörfunum nokkuð. Aukin áhersla á
netútgáfu blaðsins mun væntanlega
kalla á að þar verði meira í lagt, en
eins kunna ýmsar skipulagsbreyt-
ingar og aðgreining í rekstri að hafa
áhrif þar á.
Komið hefur til tals að undan-
förnu að Árvakur gangi til samstarfs
við önnur fjölmiðlafyrirtæki með
einhverjum hætti, jafnvel með eign-
araðild. Hefur í því samhengi verið
rætt um að Árvakur og íslenska sjón-
varpsfélagið, sem rekur Skjá 1, gætu
átt samleið að því leyti, en einnig
hefur komið til tals að Árvakur eign-
ist hlut í Ári og degi, sem er útgáfufé-
lag Blaðsins.
Það er fasteignafélagið Klasar,
sem byggir hina nýju Morgunblaðs-
höll í Hádegismóum, en smíði þess
er hluti af samningi, sem félagið
gerði við Árvakur þegar það keypti
húseignir og lóð Morgunblaðsins í
Kringlunni. Kaupverðið voru rúmir
tveir milljarðar króna, enda hin
stóra lóð í Kringlunni sjálfsagt ein
allra verðmætasta lóð landsins. Þar
af var 1,5 milljarður greiddur, en 570
milljónir af kaupverðinu felast í nýja
húsinu.
Árvakur hóf starfrækslu hinnar
nýju prentsmiðju í Hádegismóum
fyrir rúmu ári og framkvæmdir
við nýja húsið hófust í sumar. Gert
er ráð fyrir að þeim ljúki um næstu
páska og í framhaldinu á öll starf-
semi Árvakurs að vera á einum stað.
Nr
&
<v
r-?
ILMANDI VEROLD
nn ^_______^ q 4? n __________
nn™nnrp Mín^r^íTnfFiFi
UULÍUUWJIÍ J vUJUcÍiLÍULRJcil
_ ru. q
©[? liuí á] ©uS
iR3
AÁOt n »
Gfœða íerti frd (Bandaríttjunum.
reykelsi,
nuddoliur,
sápur,
línsprey,
aromattierapy - olíur,
engia og fieira,
‘Hoye ihnurinn ásamt areniiCm otj ficinnn er komtnn !
Kertaheimur • Reykjavíkurveqi 62 • 220 Hafnarflöröur • Sfmi. S65-2233
Slys:
Bíll með yfirfar-
þega í útafakstri
Fimm manna fólksbíll með sex
manneskjur innanborðs á aldrinum
17-19 ára fór út af veginum um fjög-
urleytið aðfararnótt sunnudagsins.
Farþegarnir slösuðust allir nokkuð,
sumir alvarlega en enginn er talinn
í lífshættu. Fólkið var flutt ýmist
á Selfoss eða á bráðamóttökuna í
Fossvogi. Tildrög slyssins eru óljós
en að sögn lögreglunnar á Selfossi
hefur ökumaðurinn sennilega ekki
ekið miðað við aðstæður. Hvorki
er grunur um ölvun né ofsaakstur.
Samkvæmt lögreglu má reikna með
að ökumaðurinn fái á sig ákæru um
líkamsmeiðingar sökum þess að of
margir voru í bílnum, en slikt er al
gengt þegar slys verða á fólki. Einnig
má telja líklegt að tryggingafélag
setji spurningarmerki við bótarétt
af sömu ástæðu.