blaðið - 28.11.2005, Síða 26

blaðið - 28.11.2005, Síða 26
34 I KVIKMYNDIR MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 biaðiö ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR ★ ★★ .SKDV ★ ★★ ★ ★★ -SVMBl Fxorcism .* .jpy Kaut «.»«>*k JL 1' JL J, ® Sýnd kl. 5,8 og 10.40 B.i. 18 ara Sýnd í Lúxuskl. 5,8 og 10.40 SER£NI Frá höfundi Buffy the Vampire Slayer. Ótrúlegar brellur og svöl átakaatriði. Sýnd kl. 5 og 8 B.i. 16 ára >oi. xn THUNDER Sýnd kl. 5.40,8 og 10.20 B.i. 12 ára Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 14 ára ln Her * OES. Sýnd kl. 10.40 B.i. 12 ára ÞAD SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR ★★★ ★★★ >Oi \D THUNDER KORCISM KMIlt ikökl 1 V 1 1 m ® Sýnd kl. 5.40,8 og 10.20 B.i. 12 ára Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30 B.i. 16 ára ; 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýnlngar merktar með rauðu Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30 Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30 B.i. 14 ára LAUQARAS BIÓ Hroltalegt otbelai os grotur humor i einni svakalegustu mynd srsins Ira leíksljoranum Rob Zombie! Waititig— Sýntnd^^|n0j2^^^|Sýnd kl. 4,6,8 og 10 biM Tj i ** ■ jtaJBC ■ ■ ■ ■ ■ ■ Sýnd kl. 4 i boöi Hrofnistu 1 PW HSBtf LBQQBJ OLiMil. fritt inn meðan búsrúm leyfír J MJ PARF BhlfVSl ffi &J.A.LD * ■ti’ 'V JSMru ■ ■ ■ jUfiBBOTHC fr-TN * n ■ 1 ■ Hirta laœntunrini 1n Kíu'iiri W ' r—L ,. naiuí ■ ■ -az t hrma' w twj'! t æ *mnr Sýndkl. 5:30og 10:20 kj.it | | SýndkL4 ist tel www.laugorasbio.is Judy Dench áfram í James Bond Harry Potter og eldbikarinn ★★★★ Sagan endalausa Leikkonan Judi Dench á langan feril sem M í James Bond myndunum. Hún var spurð að þvi hvort hún ætli að halda áfram í myndunum. „Já auðvitað. Ég ætla að fara til Prag og Bahamas því þeir eru að flytja mig til og reyndar alla myndina. Ég hlakka til að leika með Daniel en við höfum ekki ennþá séð handritið. Allt sem ég veit er að við munum hefjast handa í janúar.“ Dench var í öllum fjóru myndunum sem Pierce Brosnan var í og margir hafa velt því fyrir sér hvort hlutverk hennar muni halda áfram en nú er það komið á hreint. VmsœldaiUstinn Kiss-FM ♦ I Madonna Hung Up ▲ 2 Jamiriquai Don 't give hata a change ▼ 3 Robbie Williams Tripping * 4 Pussycat Dolls StickWitChu * 5 Lil Kim Ughtersup ▼ 6 Sugababes Pushthebutton ♦ 7 Kanya West/J.Fox GoidDigger ♦ 8 Hjálpum þeim Popplandsliðið A 9 Beyonce/Slim Thug Checkonit ▼ 10 Akon Ghetto (reaggymix) VmsœldarUstwan X-Dominos ▲ 7 System Of A Down Hypnotize A 2 Weezer Perfect Situation ▼ 3 The Darkness OneWayTicket ▲ 4 Ampop (ísl) MyDelusions A 5 The Strokes Juicebox (n) 6 Jakobínarína (ísl) 1 ve GotA Date With My Television ▼ 7 Bioc Party TwoMore Years ▼ 8 DeathCabForCutie Soul Meets Body ▼ 9 Supergrass LowC ▼ 10 Arcade Fire Wake Up Harry Potter og eldbikarinn er þrjár klukkustundir en ekki langdregin. Það er kannski ekkert ofboðslega sanngjarnt að setja þessa fyrirsögn á umfjöllun um nýjustu myndina um Harry Potter. Staðreyndin er nefni- lega sú að myndin er hreint út sagt frábær skemmtun fyrir næstum alla aldurshópa. Mér þykir vel skilj- anlegt að hún sé bönnuð börnum innan tíu ára aldurs, að minnsta kosti býst ég ekki við að sofa vært eftir herlegheitin og er ég kominn nokkuð til ára minna. Fyrirsögnin hefur þó lúmskt sannleiksgildi þar sem eftir myndina fær maður sömu tilfinningu og eftir síðasta þáttinn af Lífsháska, maður er mun nær byrj- uninni en nokkru sinni endanum á myndinni. En nóg af neikvæðni, snúum okkur að því góða. Það er augljóst frá upp- hafi að Harry litli galdrastrákurinn Potter er ekki gerður úr sama efni og Simpson fjölskyldan og eru því Potter og félagar farnir að kynnast sinni innri hormónastarfsemi. Það er því eins og að hella olíu á eldinn þegar Hogwarts skólinn fyllist af frönskum galdra-„mademoisellum“ og karlmannlegum búlgörskum galdrastrákum með skeggrót. Ofan á baráttuna við hvers kyns óvætti þurfa því söguhetjurnar Harry, Ron og Hermione einnig að berjast við til- finningar í garð hvers annars, sem sífellt verða flóknari. Kvikmyndin er stórskemmtileg og heyrðist mér á milli poppbraks- ins í ungum áhorfendunum sem þeim þætti slíkt hið sama. Allir sem að henni koma skila sínu verk- efni prýðisvel frá sér og í raun er fátt hægt að setja út á myndina. Rafmögnuð spenna liggur í loftinu og er hún hæfilega oft brotin upp með skemmtilegum og hnyttnum innskotum. Boðskapurinn er sem áður manngæska og að breyta rétt, nokkuð sem Harry Potter er einstak- lega duglegur í að gera. í hverri ein- ustu Potter-mynd finnst mérþó sem drengurinn læri ekki neitt á milli þeirra. Maður hefði haldið, verandi jafnmikilvægur og hann er, að hann hefði lagt eitthvað á sig til að þekkja sögu sína og þeirra afla sem hann berst við í hverri sögu. Stundum held ég hreinlega að hann hafi nokkrar lausar skrúfur í kollinum. Að lokum getur hann þó alltaf stólað á að vinir hans komi honum til hjálpar, sem þeir ætíð gera. Auk þess legg ég til að hlé verði lögð niður i kvikmyndahúsum á ís- landi. Sýnd í Sambíóunum og Háskólabíói Best: Baráttan við kynhvötina. Verst: Harry Potter lærir aldrei. agnar. burgess@vbl. is Metsöfnun hjá fermingar- börnum Söngkonan Kelly Osbourne ekki að hœtta Kelly Osbourne hefur neitað því að hún ætli að hætta í tónlistinni. „Ég veit ekki hvaðan þessar sögur koma. Ég hef nýlega tekið upp Girls Just Wanna Have Fun sem Cyndi Lau- per söng.“ Kelly hefur áform um að hefja vinnu á nýrri plötu í desember. Þangað til ætlar hún að búa áfram í London. „Ég er hamingjusamari en ég hef nokkru sinni verið og ég elska að búa í London. Húsið mitt er frábært og það er gaman að versla hér,“ sagði Kelly. Fermingarbörn um land allt söfnuðu 6,6 milljónum þegar þau gengu í hús þann 7. nóv- ember með bauk hjálparstarfs kirkjunnar. Undanfari þess var fræðsla um aðstæður í fá- tækum löndum og verkefni hjálparstarfs kirkjunnar þar. Féð sem þau söfnuðu rennur til verkefna í Afríku. Fimmtíu og sex prestaköll tóku þátt og rúmlega 31.000 börn. Árangur af söfnuninni hefur vaxið ár frá ári. 1 fyrra söfnuðust 5,5 milljónir og voru þátttakendur þá aðeins færri en nú. Hjálparstarf kirkjunnar þakkar öllum sem gáfu, ferm- ingarbörnum fyrir dugnað og prestum og kirkjustarfs- mönnum samstarfið.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.