blaðið - 12.12.2005, Síða 2

blaðið - 12.12.2005, Síða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2005 blaði6 Alþingi: 58 frumvörp lögð fram - 126 eftir Ríkisstjórnin áformar að leggjafram 184 mál á yfirstandandi þingi. 31% þeirra eru komin fram. Útlitfyrir stuttþing eftir áramót. Á málaskrá ríkisstjórnarinnar, sem lögð var fram þegar Halldór Ásgríms- son, forsætisráðherra, hélt stefnu- ræðu sína þann 4. október sl, eru 179 mál áætluð á yfirstandandi þingi. Fimm mál bættust svo við listann, svo alls eru málin 184. Þegar þing- menn fóru í jólafrí á föstudaginn var höfðu ráðuneytin lagt fram 58 þess- ara mála. Eftir standa 126 mál sem bíða þess að þingmenn snúi til baka úr fríinu þann 18. janúar á næsta ári. Fyrir liggur, að vegna sveitar- stjórnakosninga sem haldnar verða í vor, verður þinghald á vorþinginu í styttra lagi en hefð er fyrir því að þingmenn dragi sig í hlé áður en kosningabaráttan í bæjunum hefst fyrir alvöru. Össur Skarphéðinsson segir í samtali við Blaðið að ríkis- stjórnin hafi verið óvanalega slöpp á þessu hausti. „Þingið verður stutt eftir áramót. Auk þess eru mörg mál sem kalla á mikla umræðu eins og til dæmis frumvarp um Ríkisút- varpið. Þannig held ég að þeir verði í miklum vandræðum með að koma þessum málum sínum í gegn fyrir þinglok." Mikill munur á ráðherrum Össur segir að sumir ráðherranna hafi verið ótrúlega svifaseinir við að koma sínum málum inn á þing á þessum tveimur mánuðum sem liðnir eru af þinginu. Jón Kristjáns- son, heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra, áformar að leggja fram 14 frumvörp til laga, en af þeim hafa að- eins tvö verið lögð fram. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamála- ráðherra, áætlar að koma fram með 15 mál, en af þeim eru fjögur komin fram. Umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, hefur hins vegar lagt fram sjö mál afþeim 17 sem mála- skráin gerir ráð fyrir og Valgerður Sverrisdóttir hefur verið enn dug- legri og lagt fram níu mál. Hún ráð- gerir reyndar að leggja fram heil 30 mál fyrir þingið, svo segja má að Sig- ríður Anna hafi vinninginn ef litið er til hve stór hluti mála er kominn fram. Ef sá mælikvarði er notaður er BlaÖið/SteinarHugi það Sturla Böðvarsson, samgöngu- ráðherra, sem hefur vinninginn. En af þeim 13 málum sem hann hyggst leggja fram hafa heil níu þegar litið dagsins ljós. Hann mun því væntan- lega hafa það nokkuð náðugt eftir jól. Leiðtogi ríkisstjórnarinnar, Halldór Ásgrímsson, hefur lagt fram þrjú af þeim átta málum sem áformað er að komi frá forsætisráðuneytinu. Ágætis mælikvarði á dugnað Aðspurður hvort þessar tölur segi meira um dug ráðherranna eða skil- virkni innan ráðuneytanna svarar Össur: „Það er skipstjórinn sem stýrir ráðuneytinu svo ég held að það sé ágætis mælikvarði á dugnað þeirra sjálfra hversu vel þeim gengur við að koma málum sínum á flot. Ef menn ætla að koma þetta 14- 15 málum inn á þingið, sem ætti nú ekki að vera mikill vandi, finnst mér það feykilega slappt að vera ekki bú- inn með meira en raun ber vitni fyrir jól. Það er ekki vel unnið.“ Hafnarfjörður: íbúðarhús rísa á olíutanka- svæðinu Á laugardaginn var fyrsta skóflustungan tekin að nýrri íbúðabyggð á Hvaleyrarholti í Hafnaríirði, þar sem áður voru gömlu olíutankarnir sem margir muna eítir. Frá þessu er greint á síðu Víkurfrétta. Gert er ráð fyrir um 320 íbúðum í fimm til sex hæða húsum og af þeim verða 120 fyrir eldri borgara. Einnig verður byggt á svæðinu samkomuhús fyrir eldri borgara. Það verður mikil breyting til hins betra fyrir íbúa í næsta nágrenni Hvaleyr- arholtsins að sjá íbúðir rísa á svæðinu í stað olítankanna sem fóru fyrir brjóstið á mörgum. Olíustöðin var tekin í notkun árið 1953 og þótti á sínum tíma sú fullkomnasta sinnar tegundar hér á landi, en stöðin var sannarlega komin til ára sinna þegar notkun var hætt. Enn eru olíumálin þó í umræðunni í bænum því nýverið lýsti Lúðvík Geirsson áhyggjum sínum á því mikla magni eldsneytis sem á hverjum degi er flutt í gegnum bæinn. Mynd:ÓmarÓskarsson. Forsætisráðherra fagnar hér hinum nýja stórmeistara fslendinga, Hinriki Danielsen, en hann varð íslenskur rfkisborgari á föstudag. Á milli þeirra stendur Hrafn Jökulsson, for- seti Hróksins, glaðbeittur eftir velheppnaða Grænlandsferð. Grœnlandsleiðangur Hróksins: Hróksmenn snúa heim eftir velheppnaö skáklandnám Það var mikil stemning á Reykjavík- urflugvelli á laugardag þegar Hall- dór Ásgrímsson, forsætisráðherra, tók á móti Hróksmönnum, sem þá snéru úr miklum skákleiðangri á Austur-Grænlandi, þar sem 500 grænlensk börn fengu tafl að gjöf og tilsögn í skáklistinni. Leiðang- urinn var samstarfsverkefni Hróks- ins og Barnaheilla, Rauða krossins og Kalak, vinafélags íslands og Grænlands. Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins, notaði tækifærið og þakkaði Hall- dóri kærlega fyrir dyggan stuðning hans við skáklandnám Hróksins og aukin samskipti Grænlands og ís- lands. Um leið tók Halldór við gjöf frá börnunum á Grænlandi sem þeir Vittus Maaru Mikaelsen, bæjarstjóri í Tasiilaq, og Stefán Þór Herbertsson afhentu. Forsætisráðherra fagnaði einum leiðangursmanna Hróksins sérstak- lega, en það var hinn nýi stórmeist- ari Islendinga, Hinrik Danielsen, en Alþingi íslendinga samþykkti samhljóða á föstudag að skólastjóri Hróksins yrði íslenskur ríkisborgari. Vel fór á með Halldóri og Hinriki og kvaðst síðarnefndi leggja hart að sér við íslenskunám. Kínverskir heilbrigðis- starfsmenn í heimsókn Tveir kínverskir heilbrigðisstarfs- menn Xie, sem er hjúkrunarfræð- ingur og stalla hennar Hong, sem er læknir, dvöldu um vikutíma á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka. Þær eru hér á landi í boði heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og munu dvelja hér um níu mánaða skeið til þess að kynna sér íslenska heilbrigðiskerfið á vegum landlækn- isembættisins. Frá þessu er greint á heimasíðu Kárahnjúkavirkjunar. Hjúkrunarfræðingnum Xie líkaði vistin að Kárahnjúkum svo vel að hún ákvað að dvelja þar lengur en upphaflega var áætíað. Grýla og Leppalúði mætt til byggða Þáer runninn uppsá tími þegar jólasveinarnir fara að hópast til byggða einnaf öðrum. Foreldrar þeirra, Grýla og Leppalúði, mættu ásamt gæludýrinu sínu, Jólakettinum, í Þjóðminjasafnið í gær, en í dag er komið að fyrsta jólasveininum, honum Stekkjastaur. Þeir bræður munu svo mæta einn af öðrum í Þjóðminjasafnið og skemmta krökkum eða hrekkja eftir atvikum. Það er Kertasníkir sem rekur lestina, en hann verður á safninu á sjálfan aðfangadag. Þessir herramenn eru víst ekkert skyldir hinum rauðklædda Santa Claus, sem kominn er af Nikulási biskupi, heldur eru þeir af kyni trölla eins og sjá má á foreldrunum. (3 Heiöskirt 0 Léttskýjaö ^ Skýjað £ Alskýjaö Rigning, lítilsháttar / // Rigning 9 9 Súld Snjókoma ^ Slydda ^ Snjóél ^ Skúr Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal NewYork Orlando Osló París Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 07 11 07 -12 03 06 -03 06 07 08 12 -05 -01 06 04 06 03 08 0 14 07 05 ✓ ✓ / / / / / / no / / / ' "7° # / ' Cf5° er '// ’ 1° t/l° €f / / /// / / 7<> / // V" / '3° / x Á morgun ✓ / ✓ / Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.