blaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 29
blaðiö MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2005
DAGSKRA I 37
Jennifer Lope
sendir vöggu
gjöf til fyrr-
verandi
Leikkonan Jennifer Lopez sendi
gjöf til Ben Affleck sem hún var
trúlofuð á síðasta ári. Kona Affleck,
Jennifer Garner, eignaðist stúlku
fyrr í mánuðinum og Lopez sendi
parinu gjafakörfu fyrir barnið.
Jennifer er nú gift söngvaranum
Marc Anthony.
f
Blur vinnur að
nýrri plötu
Meðlimir hijómsveitarinnar Blur hafa ákveðið að þeir ætli að gera
aðra plötu saman. Bassaleikari hljómsveitarinnar hefur sagt að
hijómsveitin ætli að hittast í hljóðveri í mánuðinum. Hann sagði að
það væri reyndar ekki alltaf gaman að hitta Damon Albarn og Dave
Rowntree. „Það er eins og fjölskyldan sé að hittast fyrir jólin. Það er
frábært að við getum allir hist þó að ég viti ekki hvort við verðum eins
miklir vinir eftir tökurnar. Við munum þó nota jólin í upptökur," sagði
James, bassaieikari Blur.
Heiða er með þáttinn Næturvörðurinn á Rás 2.
Sirkus - Fashion Television - kl.
Á síðustu 20
árum hefur
enginn annar
þáttur kynnt
nýjustu tískuna
jafn glæsilega
og Fashion Tele-
vision hefur
gert. Hvort sem
það eru nýjustu
fötin, þotuliðið í salnum eða lætin á
bak við tjöldin, þá sérð þú það fyrst
hér í Fashion Television og það á
fremsta bekk.
Stöð 2 - Ýou Are What You Eat
- kl. 21:25 Óhollt mataræði
er eitt helsta
h e i 1 s u -
vandamál
fólks á Vest-
urlöndum.
D o k t o r
G i 1 1 i a n
McKeith er sérfræðingur á þessu
sviði og hefur komið mörgum til
aðstoðar. { þáttaröðinni sjáum
við hana hjálpa fólki úr miklum
ógöngum.
...œvisögufikla
Sjónvarpið - Karen Blixen - Æv-
intýraleg örlög - kl. 20.55
Ævintýraleg ör-
lög er yfirskrift
þessarar nýju
dönsku heim-
ildamyndar um
viðburðaríka ævi
rithöfundarins
Karen Blixen.
Þar gefur að líta
mikið af gömlum myndum og við-
töi við fólk sem var nákomið Karen
Blixen en myndin var tekin upp í Ke-
nýa, Bandaríkjunum og Danmörku.
Saga Karen Blixen er saga af konu
sem naut velgengni, var sterk og
sjálfstæð og kærði sig kollótta um
viðteknar venjur.
20.30
Hvernig hefurðu það í dag?
„Ég er alveg rosalega svöng og er á
leiðinni að fá mér eitthvað að borða. Ég
borðaði síðast fyrir sex klukkutímum. Fyrir
utan það líður mér mjög vel."
Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna í
fjölmiðlum?
„Ég held að það allra fyrsta sem ég gerði
í fjölmiðlum var þegar ég byrjaði að
vinna á Rás 2 árið 2002 en þá var ég með
Næturvaktina á Rás 2. Ég hef verið í því
reyndar með smá hléi og er nú bæði með
Næturvaktina og sé um unglingaþáttinn
Ungmennafélagið sem ég tók við í sept-
ember 2005."
Hvernig líkar þér að vinna í útvarpi?
„Mér finnst það alveg eins og að drekka
vatn. Ég hafði reynslu af því að tala í
útvarpi en var þá frekar í viðtölum þannig
að ég var ekkert hrædd við hljóðnema
eða neitt slíkt. Það sem mér fannst
erfiðast þegar ég var að byrja að vinna í
útvarpi var að ég þurfti að læra mikið af
tækniatriðum hratt af því að það er ekki
neinn tæknimaður með manni í útsend-
ingum. Um leið og ég var komin yfir þá
þyrjunarörðugleika þá finnst mér það
eins og að drekka vatn eða draga andann,
þetta eru einhver mænuviðbrögð."
Langaði þig að verða útvarpsmaður
þegar þú varst lítil?
„Ég hafði ekki leitt hugann að því en ég
man að mig langaði að vera með þátt í
sjónvarpi sem sýndi myndbönd. Það var
einn af draumunum og ég hef ekki gefið
þann draum upp. Ég verð örugglega
einhvern tímann með þátt í sjónvarþi sem
sýnir myndbönd."
Er vinnan í útvarpi öðruvísi en þú hefð-
ir búistvið?
„Það er f fleiri horn að líta en bara það sem
maður segir og lögin sem maður spilar.
Það kom mér rosalega á óvart þegar ég
þyrjaði að vinna (Næturverðinum hvað
það eru margir sem hringja inn og senda
tölvupóst. Það erfullt affólki sem vill í
alvöru hafa mikið með það að segja hvern-
ig dagskráin á að vera. Sumir hringja bara
til þess að kjafta og það má segja að það
séu fastir kúnnar. Álagið er miklu meira
og maður er ekki bara að dúlla sér. Þetta
er svolítið eins og að vera í ræktinni í fjóra
tíma, maður hleypur á milli laga og er
stanslaust að leita að lögum."
'
Hver finnst þér kynþokkafyllsta/-fyllsti fréttakonan eða -maðurinn?
Spurning
Karl Sigurjónsson
Ég hef nú ekkert
spáð í það.
Hjördís Sigmundsdóttir
Bogi Ágústsson, mér
finnst hann ofsalega
myndarlegur.
írisRún
Gunnarsdóttir
Ætli það sé ekki Logi.
Garðar Sigurðsson
Elfn Hirst.
Halldóra
Hallgrímsdóttir
Það er Logi.
Stefnir Snorrason
Fallegust er alla vega
hún Inga Lind.
Hvað er uppáhalds sjónvarpsefnið
þitt?
„Það allra allra besta sem ég held að hafi
nokkurn tíma verið gert á Tslandi er Popp-
punktur. Ég held að ég hafi aldrei misst
af þætti og verð alveg eyðilögð ef ég sé
það ekki þegar það er sýnt í fyrsta skipti
Blaðið/SteinarHugi
en reyni þá að horfa á endursýninguna.
Annars horfi ég á gamanefni og nýjasta
dellan mín er Little Britain. Það eru bestu
grínþættirnir sem ég hef séð síðan Monty
Python. Ég var mikill aðdáandi Flying Cir-
kus þáttanna og horfði á þá á video."
Skráðu bílinn á
www.bilamarkadurinn.is
46 S * ‘‘frjfrfMnnrr
Hvað er það vandræðalegasta sem hef-
ur gerst fyrir þig í útsendingu?
„Til dæmis kom það fyrir mig um daginn
að ég mundi ekki hvað hljómsveitin Jack
Black Joe hét. Ég var að tala um Pál Rósin-
krans og var að tala um sólóferil hans. Það
eru svona meinlokur sem maður má ekki
taka of alvarlega og maður má alls ekki
taka sjálfan sig of alvarlega því það er ekk-
ert samasemmerki á milli þess að vinna í
útvarpi og að vera alvitur."
Hver myndirðu vilja að væri síðasta
spurningin í þessu viðtali?
„Viltu fimm platna útgáfusamning og
þú mátt gera nákvæmlega það sem þú
vilt og ég borga þérfimmtíu milljónir
fyrirfram?"
„Já takk."