blaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 30
38IFÓLK
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2005 blaðiö
SMÁ
borgarínn
BREYTTIR
TÍMAR
Smáborgannn var að skrifa jólakort um
helgina og áttaði sig á því að skriftin
hans er næstum orðin ólæsileg. Þetta
er kannski ekkert skrítið því Smáborgar-
inn vinnur eins og margir við tölvu allan
liðlangan daginn og er næstum hættur
að skrifa upp á gamla mátann. Ekki nóg
með það að skriftin sé slæm heldur lend-
ir hann oft f því að færa tölvuhugsunina
f raunveruleikann. Þannig finnst honum
oft mjög óþægilegt þegar hann getur
ekki ýtt á „copy" og „paste" skipanir til
að lagfæra hluti sem hann hefur gert f
raunveruleikanum eða hætta við eða
„undo" þegarhann gerir mistök.
Smáborgarinn rifjar það oft upp
hvernig lífið hafi verið hér áður þegar
tæknin var ekki jafn langt á veg komin.
Þegar ritvélar voru notaðar og tvígera
þurfti hlutina, skrifa textann og vélrita
hann svo, þegar ekki var hægt að senda
tölvupóst og ekki auðveldlega hægt að
skoða hvað var að gerast úti í heimi eins
og í dag er hægt með því að nota Inter-
netið. Þó Smáborgaranum finnist skrftið
til þess að hugsa að einu sinni hafi ekki
verið til farsímar þá minnist hann þess að
hann var einn af þeim sem ætlaði aldrei
að fá sér farsíma þvf honum fannst það
vera sýndarmennska. Nú brosir hann út
í annað þegar hann minnist þess þegar
stimplað var í bækurnar á bókasafninu
og upphæðin slegin inn í kassana þeg-
ar verslað var í stórmörkuðum en ekki
skönnuð eins og í dag.
Það sem Smáborgaranum finnst skrít-
ið er hversu fljót við erum að aðlagast
nýjungunumog gleyma því sem við höf-
um nýlega hætt að nota. Hann áttaði sig
á þessu um daginn þegar hann pantaði
flugmiða fyrir móður sína á Internetinu
og hún trúði því ekki að miðinn væri pant-
aður af því að hún hafði hann ekki í hönd-
unum og spurði í sífellu hvort Smáborgar-
inn hefði örugglega pantað hann.
Smáborgarinn veltir því líka fyrir sér
hvernig hlutirnir hafi verið framkvæmdir
héráðurfyrroggeturekkiannaðenhugs-
að til þess hversu hlutirnir hafi verið flókn-
irog gengið hægt fyrirsig. Honum finnst
skrítið til þess að hugsa að í framtíðinni
verði margt sem við gerum í dag orðið
úrelt og þá verði hugsað til fortfðar og
hlegið að því sem nú er gert. Þá þarf fólk
sennilega ekki einu sinni að fara í versl-
anir og ná í vörurnar sjálft, því þá þarf
ekki annað en að stinga korti í rauf við
innganginn og þá hefjast tölvur handa
við að velja það sem vantar. Smáborgar-
inn fær hroll þegar hann hugsar til þess
að hann eigi sjálfur eftir að vera í þeim
sporum að eiga erfitt með að tileinka sér
nýjungarnar.
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
HVAÐ FINNST ÞER?
Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona Femínistafélags íslands.
Hvað finnst þér um Miss World?
„Femínistar hafa meðal annars gagnrýnt fegurðarsamkeppnir vegna þess að þær
virkja þjóðina í þvi að búa til einhvern staðal, ákveðinn útlitsstaðal. Einnig við-
halda þær því hlutverki kvenna að þær eigi að vera skrautminjar í samfélaginu. Að
því leytinu til lýst mér illa á Miss World keppnina. Hvað varðar Miss World sjálfa,
þá þekki ég hana ekki neitt. Þetta er örugglega besta stelpa en gagnrýni á keppnina
beinist ekki að keppendunum sjálfum, fyrir utan það að með því að taka þátt eru
þær að viðhalda vissu hlutverki kvenna. Það væri auðvitað voða gaman ef þessar
keppnir myndu leggjast af einfaldlega af þeirri ástæðu að konur vildu ekki taka
þátt. Það er fint að Unni Birnu gangi vel í því sem hún tekur sér fyrir hendur, en það
hefði verið gaman ef það væri á öðrum vettvangi.“
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir var krýnd Miss Worid 2005 í Kína á föstudaginn.
Naomi Watts i King
Kong án þess að
lesa handritið
Leikkonan Naomi Watts hefur sagst hafa tekið hlutverkið í myndinni
King Kong án þess að lesa handritið. Hún sagðist hafa samþykkt hlutverk-
ið þegar hún heyrði að Peter Jackson væri leikstjóri. Naomi leikur Ann
Darrow í myndinni en hlutverkið var í höndum Fay Ray í upprunalegu
útgáfu myndarinnar sem kom út árið 1933. „Ég var yfir mig spennt að fara
að hitta Peter Jackson þó að ekkert handrit hafi verið til staðar. En þegar
ég loks las yfir handritið þá uppgötvaði ég að hlutverkið væri öðruvísi en allt
sem ég hef gert áður,“ sagði Naomi. Myndin King Kong kemur í kvik-
myndahús í desember.
Victoria Beckham
í X Factor
Söngkonan Victoria Beckham mun taka við af Louis Walsh í þáttunum sen
dómari í X Factor á næsta ári. Hún hefur ákveðið að taka tilboðinu sem
hljóðar upp á 1 milljón punda en Louis Walsh segist hafa fengið nóg af
því að vera dómari í þáttunum. Simon Cowell, framleiðandi þáttanna,
sagði: „Ég á eftir að elska að vera dómari með Victoriu.
Hún er hnyttin og gerir óspart grín að sjálfri sér.
Ég held að þetta sé gott tækifæri fyrir áhorfendur
þáttanna ^ til að sjá hver hún virkilega er.“
Narnia írumsýnd
Mikið af frægu fólki var viðstatt frumsýningu á myndinni Narnia, the Lion,
the Witch and the Wardrobe. Þar voru meðal annars leikarar myndarinnar
Tilda Swinton, James McAvoy, Dawn French og Ray Winstone. Aðallinn var
líka mættur á svæðið og má þar nefna Charles prins og hertogaynjuna af Corn-
wall. Royal Albert Hall var gert að íshöll í samræmi við sögu CS Lewis og
blár dregill var notaður í stað rauðs sem venjan er að nota. Myndin fjallar
um Pevensie börnin sem uppgötva fataskáp sem er inngangur að frosna
töfralandinu. Tilda Swinton, sem leikur hvitu nornina, var sjálf yfir sig
hrifin af myndinni.
eftir Jim Unger
HEYRST HEFUR...
Jón Baldvin Hannibalsson,
fyrrverandi sendiherra, var
gestur Egils Helgasonar í Silfri
Egils á Stöð 2 og ræddu þessir
tveir gömlu
A 1 þ ý ð u -
blaðsmenn
h e i m a
og geima.
Helst tíð-
inda var
þó það að
Jón Bald-
vin svaraði
loks spurn-
ingu um það hvort hann væri á
leið inn í pólitík. Af svörunum
varð ekki annað ráðið en að
það teldi hann fjarlægan kost,
enda kvaðst hann hafa miklar
mætur á Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, formanni Sam-
fylkingarinnar. Hins vegar
kvaðst hann ekki mundu víkja
sér undan því að vinna fyrir
Samfylkinguna ef eftir þvi yrði
leitað, þannig að ekki er öll nótt
úti enn um endurkomuna...
Ekki var Jón Baldvin heldur
á því að stanslaust fylgistap
í skoðanakönnunum væri eitt-
hvert vandamál. Hann minnti
á að á sínum
blómatíma
hefði fylgi Al-
þýðuflokksins
rokkað frá 3%
upp í 30% og
yfirleitt mælst
minnst þegar
hann hefði
verið að standa sig hvað best,
svona eftir á að hyggja! Miðað
við fylgistap Samfylkingar-
innar undanfarna sex mánuði
mun fylgi hennar mælast 3% í
september á næsta ári...
Hátíðartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar síðast-
liðinn fimmtudag þóttu takast
með ágætum, en hins vegar
hefur mikill kurr orðið um
umgjörðina, þar sem herra
Ólafur Ragnar Grímsson og
KB-banki voru gestgjafar ásamt
Sinfóníunni. Almenningur átti
þess ekki kost að komast á tón-
leikana, heldur einvörðungu út-
valdir boðsgestir, sem að sögn
voru hinn nýi íslenski aðall. 1
DV tætti Eiríkur Jónsson þessa
hneigð sundur og saman í háði,
leiðari Fréttablaðsins deildi
hart á forsetann fyrir alls kyns
hégóma og flottræfilshátt, en
í Lesbók Morgunblaðsins var
Jónas Sen, tónlistargagnrýn-
andi, jafnvel enn brúnaþyngri.
Hann sagði tónleikana ekki að-
eins tímaskekkju, heldur einn-
ig smekkleysu, sem forsetinn
hefði kórónað með því að leiða
barónessu frá Englandi með
sér á tónleikana...
Eins og greint var frá í Sunn-
lenska fréttablaðinu í lið-
inni viku og vitnað var í hér í
Blaðinu hafa ýmsir sjálfstæð-
ismenn í sveitarfélaginu Ár-
borg leitað eftir því hjá Eyþóri
Arnalds, að hann gefi kost á
sér í prófkjöri flokksins fyrir
sveitarstjórnakosningarnar í
vor. Hann mun hins vegar hafa
tekið sér umhugsunarfrest og
spennan eykst. Þingmenn á
Suðurlandi munu hafa snúist
á þessa sveif undanfarna daga,
ekki síst vegna þess að þeir ótt-
ast að ella etji Eyþór kappi við
þá í prófkjöri fyrir þingkosning-
arnar 2007
Einu sinni fékk ég fímmþúsundkall í þjórfé.