blaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 12

blaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 12
121 BÍLAR MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2005 blaðiö Rispulagandi bílalakk Nissan Murano og aðrir jeppar frá Nissan verða í framtíðinni með„græðandi iakki." Nissan heldur því fram að fyrir- tækið hafi þróað bílalakk sem getur lagað rispur. Hið nýja lakk á að vera miklu harðara og viðþolsmeira en áður hefur þekkst og getur einnig samkvæmt heimildum „grætt“ þær rispur sem hafa komið í lakk bílsins. Nýja lakkið kallast „Scratch Guard Coat“ og er glært hlífðarlakk sem inniheldur afar teygjanlegt resín auk þess að vera vatnsþynnanlegt. Resínið kemur í veg fýrir að rispur hafi áhrif á innra lag bílalakksins og dregur þannig úr dýpt þeirra. Að sögn talsmanna Nissan þá þornar lakkið mun hraðar en áður hefur þekkst og nær því fullri hörku mjög fljótt. Talið er að bílaeigendur geti lækkað viðgerðarkostnað sinn um 8o% af því sem áður var þegar lakkið er komið í fulla notkun. Væntanlegt eftir 2-3 ár Lakkið virkar þannig að það leggst yfir bifreiðina og fer ofan í rispurnar eða sprungur sem fyrir eru i lakk- inu og endurskapar samtímis jafna litaráferð á bifreiðinni. Þessi endur- bygging tekur allt frá sólarhring og upp að viku eftir því hversu djúpar rispurnar eru og hversu hár lofthit- inn er þar sem lökkunin fer fram. Hver lökkun af þessum toga dugar í um það bil þrjú ár. Nissan sagði að hið nýja lakk muni fyrst koma fyrir sjónir almennings á jeppabifreiðum frá framleiðandanum en þó er búist við að slíkt muni ekki verða að veru- leika fyrr en eftir tvö til þrjú ár. FLYTUR Kæri viðskiptavinur. Skrifstofa, varahlutir og söludeild vélabúnaðar Merkúrs hafa flutt starfsemi sína. • Skrifstofa og varahlutir eru að Malarhöfða 10 (húsnæði Steypustöðvarinnar). • Söludeild vélbúnaðar er að Bæjarflöt 4 í Grafarvogi. Símanúmer eru óbreytt - 594 6000 Við tökum vei á móti þér í nýjum húsakynnum! blaðið= TJtam Meira en 30 Volkswagen bjöllur af 1960 árgerö hófu í gær árlegt 100 kílómetra ferðalag í Bangladesh. Þetta er í sjötta sinn sem þetta ferðalag er farið og er tilgangurinn sá að reyna að fá Volkswagen bjöllurnar varðveittar sem forngripi svo að komandi kynslóðir geti notið þeirra. Hætt var að framleiða 1960 árgerðina fyrir nokkrum árum. Öruggustu bílarnir verðlaunaðir Stofnun sem sérhæfir sig í þjóð- vegaöryggi í Bandaríkjunum útdeildi nýlega verðlaunum til þeirra bifreiða sem að þeirra mati skara fram úr í öryggi. Hvorki pallbílar né jeppar voru gjald- gengir til verðlaunanna að þessu sinni þar sem hliðarárekstrarpróf- anir á þannig bílum höfðu ekki verið framkvæmdar á viðunandi hátt þegar verðlaunaafhendingin fór fram. Volvo ekki meðal verðlaunahafa Tíu bifreiðar hlutu gull- eða silfur- verðlaun. Af þeim voru fimm fram- leiddir af systurfyrirtækjunum Volkswagen og Audi, en bílar þeirra hlutu allir silfurverðlaun. Á meðal meðalstórra bíla hlutu Saab 9-3 og Subaru Legacy gullverðlaun en ein- ungis einn smábíl hlaut gullið að þessu sinni, fjögurra dyra Honda Civic. Það vakti athygli að nokkrar bílategundir sem hafa þótt persónu- gervingar öryggis komust ekki á listann að þessu sinni. Þar ber fyrst að nefna Volvo, en Volvo hefur alla jafna markaðssett bifreiðar sínar undir öryggisformerkjum. Dan Johnston, talsmaður Volvo, neitaði því þó að það væri skortur á öryggi í Volvo bifreiðunum. Hann sagði að mismunandi aðferðafræði ætti við þegar verið væri að kanna öryggi bíla í svona athugunum og þegar verið væri að framleiða öruggan bíl. Eigin öryggisathuganir Volvo sýndu enda að hans sögn að bifreiðarnar væru afskaplega öruggar en þær at- huganir eru að hans sögn miðaðar við að vernda farþegana í alvöru árekstrum sem gætu mögulega átt sér stað í raunveruleikanum. John- ston sagði ennfremur að þær kring- umstæður sem gætu leitt til slíkra árekstra væru mun flóknari en þær forsendur sem notaðar eru í þeim árekstraprófunum sem verið var að veita verðlaun fyrir að þessu sinni. Tryggir neytendum raun- hæfan samanburð Brian O’Neill, forseti stofnunar- innar sem útdeildi verðlaununum, sagði að þessi verðlaun þýddu það að neytendur gætu borið saman kosti bíla mun hraðar og auðveldar. Allar þær bifreiðar sem hlutu verðlaun að þessu sinni eru útbúnar hliðarör- yggispúðum sem er ætlað að vernda höfuð þeirra sem eru í bílnum. Bílaframleiðendum hafði verið tilkynnt um það fyrr á árinu að stofnunin ætlaði sér að veita þessar sérstöku viðurkenningar til þeirra bílategunda sem best kæmu út úr öryggisprófunum þeirra. Stofnunin bauðst auk þess til að framkvæma forathuganir á hverju því ökutæki sem framleiðendurnir töldu að gætu unnið til verðlauna og voru margar slíkar framkvæmdar án þess þó að nokkur önnur bifreið af 2006 árgerð uppfyllti þær kröfur sem gerðar voru. ER RAFGEYMIRINN ÍÓLAGI! FRÍ RAFGEYMAPRÓFUN OG ÍSETNING Cúmmívinnnitofan GÚMMÍVINNUSTOFAN OG POLAR SKIPHOLTI 35 Þeir bílar sem hlutu verðlaun: Stórir bflar: Gull: Ford 500 Silfur: Audi A6 Millistórir bflar: Gull: Saab 9-3 Gull: Subaru Legacy Silfur: Audi A3 Silfur: Audi A4 Silfur: Chevrolet Malibu Silfur: Volkswagen Jetta Silfur: Volkswagen Passat Smábflar: Gull: Honda Civic t.juliusson@vbl.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.