blaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 10

blaðið - 12.12.2005, Blaðsíða 10
101 ERLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2005 blaAÍÖ Stefnubreyting stuönings- manna Saddam Hussein Stuðningsmenn forsetans fyrrverandi hvetja súnníaraba til að taka þátt í kosningunum síðar í vikunni. Ennfremur vara þeir Al Kaída við að gera árásir á skotmörk sem tengjast kosningunum. Stuðningsmenn Saddam Hussein, sem snérust harkalega gegn þing- kosningunum í írak í janúar, hafa kúvent og hvetja nú súnníaraba til að greiða atkvæði í kosningunum sem fram fara á fimmtudag. Enn- fremur vara þeir vígamenn A1 Kaída við því að gera árásir í tengslum við kosningarnar. Skæruliðar í Anbar-héraði í vest- urhluta landsins þar sem ítök upp- reisnarmanna hafa verið sterk segj- ast jafnvel vera tilbúin til að vernda kjörstaði fyrir vígamönnum sem eru hliðhollir Abu Musab al-Zarqawi, leiðtoga A1 Kaída í Irak. 1 stað slag- orða sem hvetja til heilags stríðs eru komin kosningaveggspjöld á veggi í borgunum Ramadi og Fallujah þar sem uppreisnarmenn hafa haft sterk ítök. Súnníarabar í þessum borgum sniðgengu flestir síðustu kosningar í borgunum tveimur enda hafa upp- reisnarmenn verið öflugir i þeim. Pólitískur ávinningur í boði ,Súnniarabar ættu að greiða atkvæði vegna þess pólitíska ávinnings sem í boði er. Við höfum dreift bæk- lingum þar sem fram kemur að A1 Kaída megi eiga okkur á fæti ef Öryggisvörður gætir kjörgagna fyrir þingkosningar i Irak sem geymd eru f vöruhúsi í borginni Hilla. þeir ráðast á kjósendur," segir Ali Mahmoud, fyrrverandi hershöfð- ingi í stjórnartíð Baath-flokksins. Viðvörun Baath-flokksins til A1 Kaída-samtakanna gefur til kynna að hugsanlega séu leiðir að skilja með fylkingunum tveimur sem fram að þessu hafa háð í sameiningu baráttu sína gegn bandarískum her- afla í landinu. Það þykir þó vera of snemmt að lýsa því yfir að um tíma- mót sé að ræða sem muni draga úr árásum uppreisnarmanna sem hafa orðið þúsundum að bana. Ót: rú lega búðin® Kringlan • Fjörður • Keflavík ÁLFASTYTTA cM®> FORM til að teikna eftir MJUK LYKLAKIPPU hundabudda 6X ÞRÍVÍDDARPÚSL mótorhjól,flugvélar BARNATÖLVUÚR margar gerðir margir litir LÍMMIÐAR með broskörlum Þrír risa BLÝANTAR SKORDÝR í poka 6X ÞRÍVÍDDARPÚSL með vasaljósi sjóræningja AUGNLEPPUR Fimm SMÁBÍLAR 55318 Vörurnar í þessari auglýsingu kosta frá kr. 45,- til kr. 295,- Fólk sem mótmælti fundi Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO) setti svip sinn á Hong Kong í gær. WTO-fundur í Hong Kong hefst á morgun: Búist við þúsund- um mótmælenda Búist er við um 10.000 mótmæl- endum til Hong Kong á meðan á fundi Heimsviðskiptastofnunar- innar (WTO) stendur en hann hefst á morgun. í gær voru þegar um 3.000 mótmælendur komnir til Hong Kong og settu þeir svip sinn á borg- ina með skrautlegum samkomum. Fulltrúar 150 þjóða, jafnt ríkra sem fátækra, taka þátt í fundinum sem er ætlað að hleypa lífi I viðræður um viðskipti á heimsvísu. Stuðningsmenn viðræðnanna segja að viðskiptasamningar gætu leitt til ávinnings sem næmi millj- örðum Bandaríkjadala og hugsan- lega bjargað milljónum manna úr fá- tækt en andstæðingar þeirra halda aftur á móti fram að samningar kæmu einkum ríkari þjóðum til góða á kostnað þróunarríkja. Lögregla jók öryggisgæslu í grennd við ráðstefnuhöllina í Hong Kong á sunnudag enda hefur ofbeldi sett mark sitt á fyrri fundum WTO meðal annars í Cancun og í Seattle. Richard Pryor látinn Gamanleikarinn Richard Pryor lést á laugardag úr hjartaáfalli á sjúkra- húsi í Los Angeles. Pryor, sem var 65 ára, gat sér gott orð sem skemmti- kraftur og kvikmyndaleikari í Holly- wood. Ferill hans reis hæst á áttunda og níunda áratug síðustu aldar þegar hver gamanmyndin á fætur annarri sem hann lék í sló í gegn. Af frægum myndum sem Pryor lék í má nefna Silver Streak og Stir Crazy. Hann varð fljótlega einn af hæst launuðu leikurum í Hollywood og fyrirmynd annarra gamanleikara og skemmti- krafta svo sem Eddie Murphy og Ar- senio Hall. Pryor var búinn að vera með MS-hrörnunarsjúkdóminn í 20 ár og hafði þar að auki átt við áfengis- og vímuefnavanda að etja. Háðfuglinn og gamanleikarinn heims- frægi Richard Pryor er látinn, 65 ára að aldri. Fangar flýja a stolinni þyrlu Þrír fangar flúðu á ævintýralegan hátt úr fangelsi í Aiton I austurhluta Frakklands á laugardag. Tveir vopn- aðir menn rændu þyrlu skömmu fýrir flugtak í bænum Albertville sem er í grennd við fangelsið. Ræn- ingjarnir neyddu flugmanninn til að lenda í fangelsisgarðinum. Þar stukku fangarnir þrír um borð áður en þyrlan hóf sig á loft á ný. Fimm- menningarnir yfirgáfu þyrluna í grennd við borgina Grenoble og héldu flóttanum áfram á bíl. Víðtæk leit var þegar í stað fyrir- skipuð og vegum lokað í nágrenn- inu. Vegatálmar voru teknir niður nokkru síðar þegar sýnt þótti að mönnunum hefði annað hvort tekist að komast í burtu eða væru í felum. Leitin hafði ekki borið árangur síð- degis í gær. Einn þremenninganna var í fang- elsi fyrir eiturlyfjasölu, annar fyrir vopnað rán og sá þriðji, sem jafn- framt er talinn hættulegastur, var sakfelldur fyrir að hafa farið fyrir hópi manna í ráni. Um 500 fangar eru í fangelsinu í Aiton sem þó er aðeins byggt fyrir um 400 fanga. Það er einkum ætlað gæsluvarð- haldsföngum og er öryggisviðbún- aður ekki jafnmikill og í öðrum fangelsum. Kaupmannahöfn - La Villa ódýr og góð gisting miðsvæðis í Kaupmannahöfn. Tölum íslensku. Sími 0045 3297 5530 • gsm 0045 2848 8905 ______www.lavilla.dk • Geymiðauglýsinguna_

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.