blaðið - 12.12.2005, Side 4
41 INNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2005 biaAÍA
20-30% afsláttur af
ðllum kuldaflíkum
Hjá okkur er alltaf
hægt að skipta
vörunum!
Verð, gæði og
persónuleg þjónusta
VINNUFATABUÐIN f
Laugarvegi 76 • Sirni 551 5425 k
RÚV:
Á að leggja
niður Rás 2?
Blaöll/SleinarHugi
Jólinfara brattafstað:
Þorláksmessustemmning
við Laugaveg
Jólaverslunin hefur farið afar vel
af stað, að sögn kaupmanna, sem
Blaðið ræddi við í gær. Við Lauga-
veginn töluðu kaupmenn um að
ástandið hefði verið nánast eins og á
Þorláksmessu, margt um manninn
og mikið keypt. Milt og stillt veður
var um helgina og hefur það vafa-
laust haft sitt að segja.
„Þetta hefur verið alveg frábært
um helgina," sagði Elsa María Ól-
afsdóttir, verslunarstjóri Máls &
menningar við Laugaveg 18. „Það lá
við að við þyrftum að hleypa inn í
Amerísk jólatré
netbudir.is
Fallegustu tré í heimi
Margar stæröir
Margar gerðir
hollum, en við komumst nú hjá því.“
Hún sagði að salan hefði verið mikil
um helgina og ljóst að menn væru
ekki bara að skoða. „Við höfum
líka tekið eftir því að fólk er talsvert
að kaupa handa sjálfu sér, því það
hefur minna verið sett í gjafapappír
en maður hefði búist við,“ segir Elsa
María.
Mikil stemning var í mann-
mergðinni á Laugavegi og ýmsar
uppákomur. Sjá mátti jólasveina
læðupokast hér og þar, en margir
verslunareigendur buðu upp á pipar-
kökur, kakó eða aðrar velgjörðir.
Þó mikið hafi verið um að vera á
Laugaveginum virtist það ekki hafa
nein áhrif á Kringluna og Smára-
lind. Gífurleg umferð var á báðum
stöðum og handagangur í öskjunni.
Landsi
úrvai af jólatrjám
Breyting á orðalagi í nýja frumvarpinu um
Ríkisútvarpið gefur möguleika til að leggja
niður eina útvarpsrás ef frumvarpið fer í
gegn.
í nýju frumvarpi, sem lagt hefur
verið fram á Alþingi þess efnis að
Ríkisútvarpinu verði brey tt í hlutafé-
lag, er opnað á möguleika þess efnis
að leggja niður aðra hvora þeirra
útvarpsrása sem nú eru sendar út,
Rás í og Rás 2. Þessi orðalagsbreyt-
ing, ef hún fer óbreytt í gegnum
þingið, gerir Ríkisútvarpinu einnig
kleift að fjölga útvarps- og sjónvarps-
rásum frá því sem nú er. I núgild-
andi lögum fyrir RÚV segir í fjórðu
grein: „Ríkisútvarpið skal senda út
til alls landsins og næstu miða tvær
hljóðvarpsdagskrár og minnst eina
sjónvarpsdagskrá árið um kring.“
Með þessari grein er það því tryggt
að RUV sendi út tvær útvarpsdag-
skrár, en þó ekki fleiri. I nýja frum-
varpinu hafa verið gerðar nokkrar
orðalagsbreytingar á þessu atriði,
en í öðrum kafla frumvarpsins, sem
fjallar um hlutverk og skyldur RÚV,
segir að hlutverk RÚV hf. sé útvarps-
þjónusta í almannaþágu, bæði hljóð-
varps og sjónvarps. Útvarpsþjónusta
í almannaþágu felur í sér meðal ann-
ars samkvæmt öðrum tölulið þriðju
greinar: „Að senda út til alls lands-
ins og næstu miða a.m.k. eina hljóð-
varps- og sjónvarpsdagskrá árið um
kring.“ Það verður því ekki betur
séð en að með þessari breytingu sé
opnað fyrir möguleikann á því að
fækka um eina, eða fjölga þeim út-
varpsrásum sem RÚV heldur úti.
BlaÓiÖ/lngó
Frumvarpið er framfaraspor
Páll Magnússon, útvarpsstjóri, seg-
ist ekki sjá neina grundvallarbreyt-
ingu af þessum völdum. „Ég sé
ekki að þetta hafi neina praktíska
þýðingu,“ segir Páll. „Vegna þess að
ég veit ekki til þess að það liggi pólit-
ískur vilji til þess að fækka eða fjölga
útsendingarrásum.“ Páll segist vera
mjög ánægður með nýja frumvarpið.
„I öllum grundvallaratriðum held ég
að þetta frumvarp sé mikið fram-
faraspor fyrir þessa stofnun.“
Margt að skoða í frumvarpinu
Mörður Árnason hefur ekki trú á
því að með þessari breytingu sé að
baki sú hugsun að fækka rásum um
eina. „Mér hefur heyrst að það sé
ekki túlkun ríkisstjórnarinnar, en
það veit maður ekkert um. Þetta er
eitt af því sem skoða þarf í þessu
frumvarpi. Það er svo lítið fest
niður hvað á að fara fram innan
Ríkisútvarpsins og útvarpsstjóra og
stjórninni er gefið mikið svigrúm.
Menntamálaráðherra fær einnig
mikið svigrúm því þó það komi ekki
fram i frumvarpinu þá ætlar hann
að gera þjónustusamninga við RÚV
og það veit enginn hvað er í þeim
samningum. Þó ég hafi ástæðu til
að vera fullur tortryggni gagnvart
menntamálaráðherra og rikisstjórn-
inni, þá finnst mér það almennt vera
spurning um hvort það eigi að festa
það í lög hve margar rásir RÚV er að
nota. Ég legg því ekki sérstaklega
mikið upp úr þessari breytingu. En
það væri mjög furðulegt almanna-
útvarp sem aðeins væri með eina
útvarpsrás."
Gjöfin
sem vermir
4
PELSINN
Kírkjuhvoli • simi 5520160 I i W I
-ÐU GÓD '<AUP
SwRjÓUN!
Vilt selja eitthvað á uppbod.is? Endalausir möguleikar! Hafðu samband í síma 552 7977 eða á uppbod@uppbocl.is. uppbodis