blaðið - 10.01.2006, Síða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 ! blaöiö
blaöið^—
Bæjarlind 14—16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
■ b w m h m w j* Útrásin:
Nýir Islendingar naðu EaSyJettekurtii
300.000 manna markinu IngumFL&oup
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Hcestiréttur:
Baugsmálið
ekki fellt niður
Hæstiréttur staðfesti í gær þann
úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur, að þeir átta ákæruliðir,
sem enn eru fyrir Héraðsdómi,
skyldu ekki látnir niður falla eins
og verjendur Baugsmanna höfðu
krafist. Hæstiréttur féllst ekki á
að Sigurður Tómas Magnússon,
settur ríkissaksóknari í málinu,
hefði skort umboð til að fara með
ákæruvald í málinu.
Úrskurðurinn er Baugsmönnum
nokkurt áfall því verjendur þeirra
höfðu lagt mikið kapp á að fá málið
fellt niður á þessum forsendum.
Reistu þeir kröfu sína á því að um
útivist ákæruvaldsins hefði í raun
verið að ræða, líkt og enginn hefði
mætt fyrir hönd hins opinbera, þar
sem settur ríkissaksóknari hefði
ekki haft ákæruvald í þeim ákæru-
liðum, sem fjallað skyldi um. Að
auki hefði Björn Bjarnason, dóms-
málaráðherra, verið vanhæfur til
að setja sérstakan saksóknara yfir
málið vegna óvinveittra ummæla
um suma sakborninga og fyrirtæki
í þeirra eigu og eins gæti ríkissak-
sóknari ekki farið með málið eftir
að ríkislögreglustjóri hafði gefið út
ákæru.
Hæstiréttur féllst ekki á neitt af
þessu og staðfesti sem fyrr segir
úrskurð héraðsdóms. ■
Þarftu góða andoxun og orku
t Zhena's Gypsy Tea
Gæti komið sterkt inn.
Prófaðu Grand Green,
y . / græna teið með
egypska myntulaufinu.
Sölustaðir
Bakarameistarinn, Bernhöfts-bakarí,
Breiðholtsbakarí, Fjarðarkaup, Gjafir
Jarðar, Hjá Jóa Fel, Kaffi Hljomalind,
Kaffi Berg, La Vida, Maður Lifandi,
Melabúðin, Ostabúðin, Yggdrasill,
Kaffi Rós á Akureyri.
Englatár - Listhúsinu - 551 8686
íbúar á íslandi eru orðnir 300.000. Mikinn hluta þeirrarfólksfjölg-
unar má rekja til innflutnings erlends vinnuafls í tengslum við stór-
iðjuframkvœmdir á Austurlandi. Hagstofan hefur tilnefnt dreng
semfœddist ígœr 300 þúsundasta íbúann.
í frétt frá Hagstofunni síðastlið-
inn desember kemur fram að und-
anfarin tvö ár hafi íbúum hvergi
fjölgað meira en á Austurlandi. Þar
fjölgaði íbúum hlutfallslega mest á
landinu. Hins vegar fækkaði íbúum
á Austurlandi með íslenskt ríkisfang
á tímabilinu frá 1. desember 2004
til 1. desember í fyrra. „Sú mikla
fólksfjölgun sem átti sér stað verður
því einungis rakin til aðstreymis út-
lendinga,“ segir í frétt Hagstofunnar.
Það er því ekki síst þetta mikla
innstreymi erlends vinnuafls sem
hingað kemur til starfa í stuttan
tíma og einnig aukning nýrra Islend-
inga, fólks sem hingað flyst til þess
að setjast hér að, sem veldur því að
íbúar landsins hafa náð þessari tölu.
Það er til að mynda ekki útilokað að
300 þúsundasti íbúi landsins hafi
verið á meðal þeirra 900 farþega sem
komu til landsins um Egilsstaðaflug-
völl um helgina en fimm flugvélar
lentu á vellinum með verkamenn
frá ýmsum löndum á leið til vinnu
við virkjanaframkvæmdirnar.
Það var drengur
Hagstofan hefur haldið úti sérstakri
mannfjöldaklukku þegar fyrir lá að
íbúar landsins yrðu 300 þúsund. Sú
talning byggðist á stöðu íbúaskrár
frá degi til dags og raunverulegum
og áætluðum fjölda fæðinga, and-
láta og skráninga á fólki sem fluttist
til landsins og frá því. Mannfjölda-
klukkan sló 300.000 um klukkan
sjö í gærmorgun. Þá þótti við hæfi
að það barn sem fæddist hér á landi
sem næst þeim tíma er klukkan
sló, yrði útnefnt 300 hundruð þús-
undasti íbúi landsins. Það barn er
drengur, fæddur á Landspítalanum
BlaÖiÖ/lngó
og eru foreldrar hans þau Erla María
Andrésdóttir og Haraldur Arnarson.
Þau eru búsett í Reykjanesbæ. í dag
á drengurinn von á Halldóri Ás-
grímssyni, forsætisráðherra, í heim-
sókn ásamt hagstofustjóra. ■
Lágfargjaldaflugfélagið Easyjet
hefur ákveðið að taka til varna gegn
hugsanlegri yfirtöku FL Group, sem
hvíslað hefur verið um að undan-
förnu að kynni að vera í bígerð. Til
þess að styrkja stöðu sína hefur
flugfélagið fengið bandaríska fjár-
festingabankann Goldman Sachs á
mála hjá sér.
FL Group er næststærsti eigandi
Easyjet á eftir Stelios Haji-Ioannou,
stofnanda þess. FL Group hefur
verið að auka hlut sinn jafnt og þétt
undanfarið ár og er nú aðeins sjón-
armun á eftir stofnandanum hvað
eignarhlut áhrærir, það á 16,2% en
hann 16,5%. ítök stofnandans eru
þó meiri en þessar tölur segja til um,
því fjölskylda hans ræður einnig
yfir talsverðum hlut í félaginu. Þeir
kunna þó að vera lausari en eignar-
hlutur Stelios Haji-Iohannou, en
hann hefur til þessa þvertekið fyrir
að hlutur sinn sé til sölu og á raunar
„easy“-vörumerkið persónulega, sem
hann leigir flugfélaginu.
Stjórnendur og eigendur FL Group
hafa sem minnst viljað segja um
áform sín með bréfin í Easyjet, en
vera Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, for-
stjóra Baugs, í stjórn félagsins þykir
breskum kauphallarsérfræðingum
örugg vísbending um að yfirtöku-
tilraunar kunni að vera að vænta.
Kaup FL Groi p á Sterling í október
þykja styrkja' ;runsemdir í þá veru.
Breskir fjöímiðlar fjalla talsvert
um þessar væringar og benda á að
FL Group hafi nýverið tryggt sér
gnægð fjár með hlutafjáraukningu
og stjórnin hafi heimild til frekari
aukningar að tilteknum skilyrðum
uppfylltum. Telja þeir einsýnt að FL
Group hyggi á víking á Bretlandi að
hætti Baugs. ■
Actavis:
Stærsta lán íslandssögunnar
Lyfjafyrirtækið Actavis hefur
gengið frá láni að upphæð 77 millj-
örðum króna samkvæmt frétta-
skeyti frá fyrirtækinu. Um er að
ræða stærsta lán sem veitt hefur
verið til íslensks fyrirtækis.
25 bankar
1 heild standa tuttugu og fimm
erlendir bankar á bak við lánið
en bankarnir UBS Limited, ABN
Amro, Bank of America, BNP, Par-
ibas, HSBC og WestLB leiddu lántök-
una. Lánið er tvískipt. Annars vegar
er um að ræða lán til fimm ára að
hagur i heilsu
upphæð 970 milljóna dala og hins
vegar 300 milljón dalir I veltulán.
Þá hafa Islandsbanki og Landsbank-
inn tryggt félaginu 425 milljónir
dala með kaupum á forgangsréttar-
hlutabréfum. Lánið mun verða
notað til þess að fjármagna kaup
Actavis á samheitalyfjastarfsemi
Alpharma Inc. og til endurfjármögn-
unar á eldra sambankaláni frá því í
fyrra. Þá mun hluti af veltuláninu
verða notað til að styðja við fram-
tíðarvöxt félagsins.
Sýnir traust
Að sögn Róberts Wessman, for-
stjóra Actavis, sýnir þessi lántaka
getu félagsins til þess að fjármagna
sig og einnig það traust sem félagið
nýtur á alþjóðlegum markaði. Þá
segir Róbert að næstu mánuðir
munu fara í það að samþætta
rekstur fyrirtækisins en einnig sé
verið að skoða nýja markaði. „Við
munum eyða töluverðum tíma á
þessu ári í það að samþætta rekst-
urinn. Á síðasta ári fjárfestum við
upp á tæpan 1,5 milljarð Banda-
rikjadala þegar við keyptum átta
félög. Tíminn á næstu mánuðum
mun fara að mestu leyti í það. En
svo höfum við talað um að styrkja
okkur frekar á Indlandi og skoða
ákveðna markaði í Evrópu eins og á
ítalíu, Spáni og í Frakklandi." ■
UTSflLfl
ÚTSHLfl
úTsnifl
ÚTSflLfl
úTSflin
Opnunartími
11-18 virkadaga
11-14 lau
www.ynja.is Hamraborg7 Kópavogi Sími 544 4088
O Heiöskirt O Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað ✓ í Rigning, lltilsháttar /Z' Rlgnlng 9 9 Súld 4; 'I' Snjðkoma
Slydda ^~j Snjóél \jj
Skúr
Amsterdam 04
Barcelona 10
Berlín -02
Chicago -03
Frankfurt 02
Hamborg 0
Helsinki -01
Kaupmannahöfn 01
London 07
Madrid 06
Mallorka 12
Montreal -06
New York 03
Orlando 15
Osló 03
París 06
Stokkhólmur -02
Þórshöfn 05
Vín 0
Algarve 13
Dublin 10
Glasgow 10
-2°
*
*
*
1°
Breytilegt
-3°*
*
'/A
/ //
3°
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn )02 0600
Ðyggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
*
-T
*
*
40
*
■V
Breytilegt
lO'Í'
Á morgun
-2”"' 0» ®
rfc* , 0°
3° *
* 4°