blaðið - 10.01.2006, Blaðsíða 16

blaðið - 10.01.2006, Blaðsíða 16
20 I BÖRN OG UPPELDI ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 blaðiö Úrræðagóð dagmóðir í Reykjavík Auðveldir göngutúrar með fimm bama kerru Ólöf Gunnarsdóttir: „Það er eiginlega toppurinn á tilverunni þegar kerran er tekin út." Ólöf Gunnarsdóttir, dagforeldri í Reykjavík, stóð frammi fyrir því vandamáli að hana langaði jafnan í göngutúr á morgnana en allajafna dveljast hjá henni fimm lítil börn þann tíma dagsins og það er ekki hlaupið af stað með hópinn án ráðstafana. Ólöf dó ekki ráðalaus heldur leitaði á náðir Internetsins og fann þar forlátan grip, fimm barna kerru. Ólöf kemst auðveldlega í göngu- túra með barnaskarinn núna þegar kerran góða er komin í hús og hún segir að börnin fagni þeim ráðahag ákaft. Ólöf segir að hún hafi lengi verið búin að leita eftir einhverju svona þar sem vel færi um alla. „Ég var bara að leita á Internetinu að kerru sem tæki fleiri en tvö börn í sæti og þá birtist síðan http://www.bergde- sign.net/runabout.htm með þessari kerru. Kerran er fyrir nýbura og upp í fimm ára gömul börn. Ég hef verið með þau í kerrunni þangað til þau hætta hjá mér, svona upp í tveggja ára. Þau sitja öll í sínu sæti með fimm punkta belti, þetta eru svona sæti eins og eru á hjólum. Ég get hallað bakinu á sætinu ef þau sofna. Þau eru samt ekkert varin, það er enginn skermur eða neitt svoleiðis. Ég keypti tvö plöst þannig að ef það rignir þá hafa þessi yngstu plast til að skýla sér.“ Kerran er toppurinn á tilverunni Ólöf er búin að vera dagforeldri í 16 ár og því mikill reynslubolti í barna- vistun. „Ef allir mæta á réttum tíma á morgnana þá komumst við aðeins út og hægt er að viðra börnin. Ég er nú samt með garð en mér sjálfri finnst voða gott að geta farið aðeins um. Stundum labba ég hérna upp í Breiðholt og hitti fleiri dagforeldra, 99........................... Það er búið að hringja mjög mikið í mig og allir vilja helst byrja ekki seinna en á morgun. Manni finnst að for- eldrar séu komnir í þrot. því ég er orðin eina dagforeldrið í mínu hverfi. Þau eru agalega glöð þegar ég tek fram kerruna,“ segir Ólöf og hlær. „Það er eiginlega topp- urinn á tilverunni þegar kerran er tekin fram.“ Mál að fá kerruna heim Ólöf segir að það hafi reyndar verið svolítið mál að fá kerruna senda heim. „Ég þurfti að hafa tengilið úti sem hægt er að senda kerruna til og sá aðili sendi hana síðan til íslands. Ég var það heppin að bróðir manns- ins míns á fyrirtæki og kaupir svo- lítið frá New York. Tengiliður hans hjálpaði mér þegar ég var komin alveg í þrot og sendi mér kerruna. Hún kostaði 1.100 dollara og svo kostar 120 dollara að senda hana. Ég held að með virðisaukaskatti og öllu hafi hún kostað um 120 þúsund krónur.“ Aðspurð að því hvort það hafi ekki verið mikið mál að setja eitt stykki kerru saman segir hún að það hafi ekki verið neitt mál. „Hún kemur í tveimur mjög stórum kössum. Grindin er alveg heil. Ég setti bara hjólin á, festi sætin og stýrið á. Þetta er mjög handhægt og tók stutta stund.“ Starfið erfiðara en það var Ólöf vílar ekkert fyrir sér að keyra kerruna út um allan bæ þó hún við- urkenni að stundum geti hún verið þung. „ Þetta er náttúrlega þungt upp í móti en þú byggir bara upp þol. Þú velur svolítið leiðirnar, hvert þú ferð. Hún fer svolítið hratt niður brekkur en það er handbremsa á henni til þess að hægja á henni. Þetta er alveg frábær kerra,“ segir Ólöf glaðlega og bætir við að það sé alltaf jafn skemmtilegt og gefandi að vera dagforeldri. „Mér finnst þetta erfiðara í dag en það var. Mér finnst þau fara svo ung á leikskóla þannig að maður er eiginlega alltaf með aðlögun. Það er eiginlega helsta ástæðan enda eru þau einungis hjá mér í 9-11 mánuði.“ Foreldrar komnir í þrot Undanfarið hefur mikið verið fjallað um skort á dagforeldrum í Reykja- vík þar sem tugir barna komast ekki að. Ólöf segist finna rosalega mikið fyrir þessum skorti. „Það er búið að hringja mjög mikið í mig og allir vilja helst byrja ekki seinna en á morgun. Mér finnst sem foreldrar séu komnir í þrot. Þau börn sem eru hjá mér núna verða alveg fram að sumarfríi. Ég hef því ekkert pláss strax.“ Það liggur næst að spyrja Ólöfu hvort hún hyggi á mikið lengri frama sem dagforeldri í ljósi nærri tuttugu ára farsæls ferils. „Ég hef alltaf sagt að ég fari nú að hætta en ég held ég verði eitthvað áfram. Ég á von á barnabarni og svona,“ segir Ólöfkímin. Skortur á dagforeldrum er staðreynd Enn börn á biðlista í Kópavogi og Reykjavík Það hefur ekki farið fram hjá neinum að fjöldamörg börn í Reykjavík sem og öðrum sveitarfé- lögum komast ekki að í dagvistun hjá dagmæðrum. Þessi staða er mjög slæm og setur bæði foreldra og börn í mikinn vanda. Þegar hafa borist freginr af foreldrum sem hafa þurft að segja starfi sínu lausu til að annast börn sín. Þetta ástand er vitaskuld ólíð- andi í velferðarsamfélagi en slík skilgreining á þó illa við þar sem dagvistunarúrræði standa ekki öllum til boða. Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar, segist ekki vera viss hvernig staðan sé í Reykjavík í dag. „Við tökum stöðuna á menntaráðsfundum annan hvern fimmtudag og fyrsti fundurinn eftir áramót er 19. janúar. Það voru rúmlega 30 börn sem vantaði pláss fyrir áramót.“ Gerður segist ekki vita hvenær mál- efni dagforeldra leysist en segir að það sé verið að ráða núna. Kópavogur hefur ekki annað eftirspurn Kópavogur stendur frammi fyrir svipuðum vanda en þar eru um þrjá- tíu dagforeldrar. Samkvæmt Emilíu Júlíusdóttur, daggæslufulltrúa hjá Skráðu bílinn á www.bilamarkadurinn.is TSijlci4§tðtfl^€ticUciÍ9iK Sm<3tfuvt+i 46 £ • Félagsþjónustu Kópavogs, vantar því fleiri dagforeldra. „Það verður að segjast eins og er að við höfum ekki annað eftirspurn. Við höfum auglýst heilmikið en það er erfitt að fá fólk. Það hefur verið mjög hröð uppbygging í leikskólunum í Kópa- vogi en núna er skortur á fólki þar og þá stoppar þetta flæði,“ segir Em- ilía og bætir því við að hún telji þetta ekki hafa neitt með launin að gera. Emilía var ekki með neinar tölur yfir hve mörg börn bíða eftir plássi hjá dagforeldrum. Há niðurgreiðsla í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær er í annarri stöðu en Kópavogur og Reykjavík því þar er ekki skortur á dagforeldrum. Hildur Sigurbjörnsdóttir segist því ekki vita betur en að öll börn sem þurfa séu með pláss hjá dagforeldri. „Það er ekki skortur eins og er en 99........................... Það verður að segjast eins og er að við höfum ekki annað eftirspurn. Við höfum auglýst heil- mikið en það er erfitt að fá fólk. Það hefur verið mjög hröð upp- bygging í leikskólunum í Kópavogi en núna er skortur á fólki þar og þá stoppar þetta flæði. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að fjöldamörg börn í Reykjavík sem og öðrum sveitarfélögum fá ekki pláss hjá dagmæðrum. svo veit maður ekkert hvað verður því þetta helst í hendur við leikskól- ana. Það eru ekkert að losna pláss þar fyrr en með vorinu. Við höfum verið svo heppin í Hafnarfirði að niðurgreiðslan er nokkuð há, alveg frá 1. september 2002. Þessar nið- urgreiðslur renna til dagforeldra en ekki foreldra sem er í rauninni kostur því foreldrar þyrftu að greiða skatta af þessu.“ Leynast skotelclar á þínu heimili? Á liðnum árum hafa börn og unglingar slasað sig á skoteldum fram í lok janúar eða löngu eftir að skoteldatímabilinu lýkur. Það er því afar mikilvægt að foreldrar séu á varðbergi gagnvart því að börnin á heimilinu safni ekki skoteldum. I fyrsta lagi er mjög hættulegt að geyma skot- elda inni á heim- ilum. Skoteldar eru mjög vand- meðfarnir og þola illa mikinn hita og raka. Ekki Herdís L. Storgaard þarf mikið magn af skoteldum til að orsaka mikla sprengingu og bruna. Drengir á aldrinum 8-16 ára í mestri hættu Tölur frá slysadeild sýna okkur að ungir drengir eru í mestri hættu. Margir halda, því miður, að minni- háttar skoteldar séu alveg hættu- lausir en svo er ekki ef þeir eru not- aðir öðruvísi en leiðbeiningar segja til um. Börnum á aldrinum 12-16 ára er heimilt að kaupa minniháttar skotelda sem innihalda lítið púður- magn en hættan skapast þegar þeir eru teknir í sundur og gerðir að stærri sprengjum, púðrinu hellt yfir í dósir eða flöskur, límdir við hluti eða kastað í önnur börn. Það er því mikilvægt að foreldrar brýni fyrir börnum sínum að leika ekki þennan hættulega leik og að skottímabilinu sé lokið. Fikt með eld Um þessar mundir er mikið um að börn séu að safna saman notuðum skoteldum ogkveikja brennur. Mörg börn haft brennst illa við þennan leik. Mikilvægt er að fylgjast með slíkum leikjum og stoppa þá af áður en slys verður. Með þessum orðum vil ég óska landsmönnum öllum gleðilegs árs með von að börnin okkar geti notið ársins og vaxið án þess að verða fyrir alvarlegum slysum á nýju ári. Þar sem þessir pistlar verða viku- lega langar mig að benda ykkur á það, lesendur góðir, að hægt er að óska eftir sérstöku efni um slysa- varnir barna með því að senda mér tölvupóst. Með bestu kveðju Herdís L. Storgaard, herdis@lydheilsustod.is Verkefnastjóri barnaslysavarna Arvekni, Lýðheilsustöð

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.