blaðið - 10.01.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 10.01.2006, Blaðsíða 6
6 I INWLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 blaóió Straumur-Burðarás: Selur hlut sinn í Illum Baugur Group hefur náð sam- komulagi við Straum-Burðarás (SB) um kaup á eignarhlutum þess síðarnefnda í óskráðum félögum. Um er að ræða félög á borð við Illum, verslanakeðj- unnar Iceland og Magasin Du Nord svo fátt eitt sé nefnt. Þetta kom fram í fréttaskeyti frá SB í gær. Þá kemur einnig fram að bankinn muni innleysa á fyrsta ársfjórðungi 2006 um þrjá millj- arða í hagnað vegna sölunnar. Viðskipti: Atorka kaupir Atorka Group hefur keypt um 6,34% í breska iðnfyrirtækinu Romag Holdings. Um var að ræða 1.490.000 hluti í Romag en fyrirtækið fram- leiðir meðal annars gler og húðunar- vörur fyrir öryggishurðir og glugga. Bankarnir Samruni Landsbanka og Straums ekki á dagskrá BlaÖiÖ/Gúndi Salan á hlut Straums-Burðaráss í Islandsbanka kann að greiða fyrir sam- einingu Landsbankans og Straums, en SKIPULAG Skápar á brautum Hámarks nýting á plássi Leitið tilboða Skjalaskápar Læstir fataskápar fyrir vinnustaói og skóla Margar stæröir og gerðir! Gæði og gott verð! 100 cm Geymsluskápar 200 cm ÍSOldehf. Nethyl 3-3a -110 Reykjavík Sími 5353600- Fax 5673609 www.isold.is www.hillur.is heimildir Blaðsins herma að slíkt sé ekki á dagskrá. Eiginíjárstaða Straums hefúr styrkst gífúrlega við söluna og á næstunni verður áhersla lögð á það að efla starfsemi bankanna á erlendri grundu. Ýmsir sérfræðingar í viðskiptalíf- inu hafa velt upp þeim möguleika að Landsbankinn og Straumur sameinist nú eftir að Straumur losaði megnið af bréfúm sínum í íslandsbanka. Slíkt myndi á einu bretti skapa afar sterkan banka, ekki aðeins á íslenska vísu heldur alþjóðlega. „í þeim metingi, sem er á milh íslensku bankanna, væri það örugglega freistandi," sagði sér- ffæðingur hjá einum af keppinautum Landsbankans. Heimildir Blaðsins herma á hinn bóg- inn, að slíkt sé ekki á döfmni. „Lands- bankinn hefúr í nógu að snúast við að samtvinna starfsemi þeirra verðbréfa- fyrirtækja, sem bankinn hefur verið að kaupa ytra og það eru engar knýj- andi ástæður til þess að eyða næstu 18 mánuðum í sameiningarferli. Lands- bankinn og Straumur eru að gera góða hluti hvor í sínu lagi og er styrkur hver að öðrum.“ Jafnframt benti hann á að bönkunum kynni vel að takast að efla sig á næstu tveimur árum á þann hátt sem ella næðist með sameiningu. ■ RETTUR DAGSINS fiskur eða kjöt laugardaga 10.00-18.00 CAFÉADESSO 2. hæð í Smáralind v/Vetrargarðinn sunnudaga 11.30-18.00 Sími 544 2332 www.adesso.is Samfylkingin: Engar orkufram- kvæmdir á Þjórs- árverasvæðinu Þingflokkur Samfylkingar kom saman í gær þar sem ályktað var um friðun Þjórsárvera. Þar kemur fram að í kjölfar úrskurðar umhverf- isráðherra, þar sem hann hafnaði skipulagstillögu samvinnunefndar miðhálendisins, séu öll framkvæmd- aráform á svæðinu komin á byrjun- arreit. Þingflokkurinn telur einnig að undanfarin misseri hafi komið fram gögn og upplýsingar sem breyta í grundvallar- atriðum þeim forsendum sem litið var til þegar Alþingi samþykkti að veita iðnaðarráðherra heimild til að leyfa Norðlingaölduveitu. Þess vegna telur þingflokkurinn að hætta eigi við öll áform um orkuframkvæmdir á Þjórsárvera- svæðinu og ítrekar ályktun síðasta landsfundar um verulega stækkun friðlandsins. Flokkurinn mun taka málið upp á Alþingi um leið og það kemur saman aftur eftir jólaleyfi. Einnig mun Samfylkingin beita sér fyrir því að Þjórsárver verði sett á heimsminjaskrá UNESCO. Hörpudiskur: Stofnstærð minnkar Stofnvísitala hörpudisks dróst saman um 30% árið 2005 miðað við árið á undan. Þetta kemur fram í niðurstöðu stofnmælinga Hafrannsóknastofnunar á hörpu- diski í Breiðafirði. Stofnstærð hörpudisks hefur verið að dragast saman á undanförnum áratug og nú er svo komið að hún er aðeins 20% af viðmiðunarstærð stofnsins. Talið er að frumdýrasýking eigi mestan þátt í minnkun stofnsins. íslandsbanki: Bjart framundan Útlit er fyrir jákvæða þróun á inn- lendum hlutabréfamarkaði og úrvalsvísitalan gæti hækkað um allt að 20% á árinu. Þetta kemur fram f afkomuspá greiningardeildar íslandsbanka fyrir árið 2006. Sam- kvæmt spánni er útlitið almennt bjart en ofþensla gæti sett strik í reikninginn. Eitthvað mun þó draga úr ávöxtun á hlutabréfamarkaði sé miðað við undangengin þrjú ár. Þá gerir spáin ráð fyrir því að krónan muni veikjast á árinu og stýrivextir muni hækka um eitt prósentustig frá 10,5 upp í 11,5%. Hafrannsóknarstofnun: Loðnan finnst hvergi Engin loðna fannst f loðnuleit Haf- rannsóknunastofnunar sem lauk síðastliðinn föstudag. Leitað var frá sunnanverðum Vestfjörðum að Austfjörðum án árangurs. Sex skip tóku þátt í leitinni þar á meðal Árni Friðriksson, skip Hafrannsóknar- stofnunar. Að sögn sérfræðinga hjá Hafrannsóknarstofnun hefur aldrei gengið jafn illa að finna loðnu og ríkir mikil óvissa um afdrif þess árgangs sem halda á uppi vertíða- veiðinni í ár. Talið er að hlýnun í sjónum umhverfis landið eigi stóran þátt í því hversu lítið finnst af loðnu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.