blaðið - 10.01.2006, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTXR
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 bla6iö
Engin merki um
smit milli manna
Ekki eru nein merki um að fugla-
flensuveiran í Tyrklandi berist
manna á milli. Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin (WHO) greindi frá
þessu í gær. Stofnunin hefur staðfest
fjögur tilfelli fuglaflensu í mönnum
í landinu þar á meðal dauðsföll
tveggja systkina í síðustu viku í
bænum Dogubayazit í austurhluta
landsins.„Eins og er bendir ekkert
til þess að sjúkdómurinn hafi borist
á milli manna í þorpinu," segir
Guenael Rodier, verkefnisstjóri
WHO í Tyrklandi og bætir við að
tilfellin hafi verið svipuð þeim sem
áður hafi greinst í Asíu. Rodier var
í hópnum sem rannsakaði fugla-
flensuna í austurhluta Tyrklands.
Yfirvöld í Tyrklandi segja að 14
manns hafi greinst með banvæna
fuglaflensu þar á meðal þrjú systk-
ini í Dogubayazit sem þegar hafa
látist.Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin segir aftur á móti að ekki hafi
verið gengið úr skugga um hvort
um fuglaflensu væri að ræða með
rannsóknum í öllum tilfellum.
Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar segja að engin merki hafi
fundist um að fuglaflensa berist manna á
milli íTyrklandi.
Sjáið myndirnar á
www.biiamarkadurinn.is
Smdliw*** 46 S •
S. 567 1800
Sharon sýnir merki um
heilastarfsemi
Ariel Sharon, forsœtisráðherra ísraels, andaði af sjálfsdáðum eftir
að læknar tóku til við að vekja hann afdái ígœrmorgun. Ennfremur
greindi sjónvarpsstöðfráþví að hann hefði lyft hœgri handleggnum.
Sérfrœðingar utan sjúkrahúsveggjanna segja að hvort tveggja sé til
marks um heilastarfsemi.
Gyðingar í fsrael og vfðar um heim hafa beðið fyrir Ariel Sharon, forsætisráðherra fsra-
els, á undanförnum dögum.
Þrátt fyrir að Sharon hafi sýnt bata-
merki er ekki hægt að draga neinar
ályktanir af þeim hver andleg eða
líkamleg geta hans verður í kjölfar
heilablóðfallsins. Læknar hafa haldið
Sharon sofandi síðan á fimmtudag til
að gefa heila hans færi á að jafna sig
eftir blóðfallið og þær aðgerðir sem
fylgdu í kjölfarið.
Dr. Shlomo Mor-Yosef, forstjóri
Hadassah-sjúkrahússins, sagði í gær
að það gæti tekið allt frá fáeinum
klukkustundum upp í nokkra daga
að vekja Sharon úr dáinu. Síðdegis
í gær höfðu fulltrúar sjúkrahússins
ekki enn tjáð sig um frétt þess efnis
að Sharon hefði lyft hægri hendinni.
Það hefðu verið enn meiri tíðindi ef
hann hefði lyft þeirri vinstri þar sem
hægri hlið heilans stjórni henni en
það var einmitt á þeirri hlið sem blóð-
fallið varð.
Enn í lífshættu
Dr. Mor-Yosef sagði síðdegis í gær
að þrátt fyrir að Sharon hefði andað
sjálfur væri hann enn tengdur við
öndunarvél og í lífshættu. Sérfræð-
ingar utan sjúkrahúsveggjanna
segja að læknar ættu að hafa góða
hugmynd um hversu illa heili for-
sætisráðherrans hefði skaðast. Einn
af skurðlæknum hans lýsti því yfir
að ólíklegt væri að hann myndi geta
gegnt störfum forsætisráðherra á ný.
Þegar mat lækna á heilaskaða Shar-
ons liggur fyrir kemur það í hlut Meni
Mazuz, lögfræðilegs ráðgjafa ríkis-
stjórnarinnar, að taka ákvörðun um
hvort Sharon verði varanlega lýstur
vanhæfur til að gegna embætti for-
sætisráðherra. Þar sem Ehud Olmert
hefur þegar tekið við sem starfandi
forsætisráðherra í fjarveru Sharons
er ekki talið liggja á að gefa út slíka
tilkynningu. Olmert getur setið sem
bráðabirgðaforsætisráðherra í 100
daga. Komi til þess að Sharon verði
lýstur vanhæfur verður ríkisstjórnin
að velja nýjan forsætisráðherra úr
eigin röðum innan sólarhrings.
Tók kærustuna
fram yfir Elvis
Hundruð muna
sem tengjast rokk-
kónginum Elvis
Presley voru boðnir
upp um helgina
af bandaríska
uppboðshúsinu
Regency-Superior.
Jim Curtin, eigandi
munanna, ákvað
að losa sig við þá eftir að kærasta
hans hótaði því að hún myndi fara
frá honum ef hann gerði það ekki.
Meðal þeirra muna sem boðnir
voru upp má nefna þrjá búninga
sem Elvis klæddist þegar hann
kom fram á tónleikum. Einn bún-
ingurinn seldist á 125.000 dali (7,5
milljónir íslenskra króna) og annar
á 50.000 dali (3 milljónir dala).
Alls fylltu munirnir 600 kassa en
Curtin hafði safnað þeim í meira
en 30 ár og hitti goðið fáeinum
sinnum. Heildarágóði af uppboðinu
ætti að liggja fyrir í dag en áætlað
er að hann kunni að nema allt
að tveimur milljónum dala (um
120 milljónum íslenskra króna).
Árás á ráðuneyti
Að minnsta kosti 21 fórst og
fjölmargir slösuðust þegar tveir
menn, klæddir sem lögreglumenn,
sprengdu sjálfa sig í loft upp í inn-
anríkisráðuneyti Iraks í gær. Báðir
höfðu þeir skilríki sem gerðu þeim
kleift að komast í gegnum aðal-
eftirlitshliðið. Slík skilríki eru ekki
veitt hverjum sem er og hefur þegar
verið fyrirskipuð rannsókn á því
hvernig mennirnir komust yfir þau.
Elvis Presley
NISSAN
PATROL
SKIPT_ um væntingar
'i í n i
W/J
LENGI MÁ GOTT BÆTA
Nissan Patrol hefur löngu sannað sig sem einhver
traustasti fjallajeppi sem völ er á. Hann tekur líka
stöðugum framförum og fæst nú með 35" og 37"
breytingu frá Arctic Trucks.
Tegund
Patrol Luxury beinskiptur
Patrol Luxury sjálfskiptur
Patrol Elegance beínskiptur
Patrol Elegance sjálfskiptur
Verö
3.990.000,-
4.090.000,-
4.390.000,-
4.490.000,-
Nýárstilboð - 250.000,- kaupauki
33" dekk, stigbretti og dráttarbeisl
að verðmæti 250.000 krónur.
'iúömiij jjjéaii.
w
Veíðikortið 2006 og árs aðild
að 4x4 klúbbnum I kaupbæti!
Ingvar Helgason
Sævartiöföa 2 Sími 525 8000 www.ih.is
Opiö: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
Talibanar hafna
boði Karzai
Hótafrekari árásum á hersveitirBandaríkja-
manna á þessu ári.
Aðstoðarmaður Mullah Mohammad
Omar, leiðtoga talibana, hefur hafiiað
boði Hamid Karzai, forseta Afgan-
istans, um friðarviðræður. Mullah
Obaidullah Akhund, sem var varn-
armálaráðherra í talibanastjórninni
sem steypt var af stóli af bandarískum
hersveitum árið 2001, kallaði Karzai
ennffemur „strengjabrúðu Bandaríkja-
manna,“ sem ætti að rétta yfir fyrir
íslömskum dómstóli. Omar hótaði jafn-
framt frekari árásum á bandarískar her-
sveitir í Afganistan og hvatti til heilags
stríðs. „Árásir talibana í Afganistan
munu aukast enn frekar á þessu ári og
það mun neyða Bandaríkjamenn til
að yfirgefa Afganistan mjög bráðlega,“
sagði Omar í tilkynningu sem hann
sendi fr éttastofú í Pakistan.
„Hamid Karzai, útsendari Banda-
ríkjanna, hefur breytt Afganistan i
ameríska herstöð og drepið þúsundir
Afgana,“ sagði Akhund í samtali við
Reuters-fréttastofuna.
Karzai sagðist í viðtali við AP-ffétta-
stofuna á sunnudag vera tilbúinn til að
hlusta á hvað Omar hefði fram að færa
en varaði jafnffamt við því að fyrst
þyrfti talibanaleiðtoginn að svara til
saka fyrir gerðir sínar.
Bandaríkjamenn hafa lagt 10 millj-
arða Bandaríkjadala til höftiðs Omar
en hann á einnig fjölda óvina meðal
Afgana sem börðust gegn talibönum
og máttu búa við ofríki þeirra og harð-
stjórn í fimm ár.
Hamid Karzai forseti Afganistans.
Fogralund við Furugrund Kópavogi
Námskeið hefjast 11. jarnúar
Skráning í síma 891 7190
Kennari:
Sigríður Guðjohnsen
Rope Yoga kennarl
www.sigga.is