blaðið - 10.01.2006, Page 18
22 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 blaöið
SS-bikar kvenna í handbolta:
Grótta komst áfram
eftir framlengingu
Dragi Pavlov og Kolfinna
Matthíasdóttir, formaður kvenna-
ráðs knattspyrnudeildar FH við
undirritun samningsins.
Pavlov
skrifaði
undirhjáFH
Um helgina skrifuðu knatt-
spyrnudeild FH og Dragi Pav-
lov undir samning um að hann
þjálfi meistaraflokk félagsins í
knattspyrnu kvenna sem og 2.
flokk kvenna. Pavlov tekur við
af Aðalsteini Örnólfs-
syni sem lét af störfum
undir lok síðasta árs.
FH-ingar ætla sér stóra hluti
á næstu árum í knattspyrnu
kvenna en meistaraflokkur
karla hjá félaginu hefur orðið ís-
landsmeistari síðasthðin tvö ár.
Eins og segir í fréttatilkynn-
ingu FH-inga er markmiðið
með ráðningu Pavlovs „að
byggja upp sterkan meistara-
flokk hjá félaginu með mark-
vissu starfi og verður leitað
allra ráða til þess að styrkja
liðið sem mest fyrir komandi
keppnistímabil. Takmarkið i
byrjun er að halda sæti í efstu
deild með stefnuna á miðja
deild og næsta skref er svo að
koma liðinu í hóp þeirra bestu”,
segir í fréttatilkynningunni.
FH-ingar hafa þegar hafið leit
að nýjum leikmönnum en átta
ungir og efnilegir leikmenn FH
skrifuðu í gær undir svokall-
aða KSÍ-samninga við félagið.
Um helgina mættust Grótta og Vík-
ingur(b) í SS-bikarkeppni HSÍ. Þetta
var leikur í 8-liða úrslitum SS-bikar-
keppni HSÍ í 4. flokki kvenna í hand-
knattleik. Leikið var á Seltjarnar-
nesi og það má með sanni segja að
um alvöru bikarleik hafi verið að
ræða.
Gróttustelpur höfðu frumkvæðið
framan af fyrri hálfleik og voru einu
marki yfir þegar flautað var til hálf-
leiks. Staðan var 8-7. Víkingsstúlkur
komu mjög ákveðnar til seinni hálf-
leiks og komust yfir 9-11 en þá kom
góður kafli hjá Gróttu og þær skor-
uðu næstu fimm mörkin og breyttu
stöðunni í 14-11, sér í vil. Lokamín-
útur venjulegs leiktíma voru æsi-
spennandi og Grótta leiddi 14-13 og
Víkingur átti síðustu sókn leiksins.
Þegar leiktíminn var útrunninn var
aðeins eftir aukakast sem Víkings-
stúlkur áttu og þær náðu að jafna
metin, 14-14. Því varð að framlengja
og eftir fyrri hálfleikinn í henni var
staðan enn jöfn. I seinni hálfleik
framlengingar náðu Gróttustúlkur
að síga fram úr og sigra í leiknum
með tveggja marka mun, 18-16.
Alvöru bikarleikur þarna á ferð.
Markahæstu leikmenn
Gróttu voru sem hér segir:
Þórdís Valdimarsdóttir, 5 mörk,
Berglind Gunnarsdóttir, 3 mörk,
Dagmar Magnadóttir, 3 mörk,
Vigdís Pálsdóttir, 3 mörk.
Markahæstar í liði liði Víkings
(b) voru sem hér segir:
Kristrún Gústafsdóttir, 7 mörk,
Þorgerður Atladóttir, 4 mörk,
Guðrún Árnadóttir, 2 mörk,
Fríða Jónsdóttir 2 mörk.
Grótta var fyrsta liðið til að kom-
ast í undanúrslit en úrslitaleikur-
inn fer fram í Laugardalshöll 26.
febrúar.
Úr leik Gróttu og Vfkings(b) í 4. flokki kvenna í bikarnum um helgina.
Dregið í enska bikarnum:
Bikarmeistarar Arsenal
fá Bolton
Úr leik Burton Albion og Manchester United í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar.
1 gær var dregið i fjórðu umferð
ensku bikarkeppninnar, FA-CUP,
og það má segja að bikarmeistarar
Arsenal hafi verið allt annað en
heppnir. Þeir drógust gegn Bolton
og fer leikurinn fram á heimavelli
Bolton, Reebok-leikvanginum. Man-
chester United, sem gerði marka-
laust jafntefli við utandeildarlið
Burton Albion, mætir Wolves á úti-
velli þ.e.a.s. ef United slær út Burton
Albion en liðin mætast 18. janúar á
Old Trafford og má alveg fastlega
reikna með sigri Manchester United.
Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í
Chelsea fá útileik gegn annað hvort
Everton eða Millwall.
Jóhannes Karl Guðjónsson og
hans félagar í Leicester sem unnu
Tottenham svo eftirminniJega á
sunnudagskvöld, 3-2, fá heimaleik
gegn Southampton og verða mögu-
leikar Leicester á að komast áfram
að teljast nokkuð góðir. Núna eru 32
lið eftir í keppninni en úrslitaleikur-
inn fer fram undir lok maí á hinum
nýja Wembley-leikvangi.
Liðin sem drógust saman í
32-liða úrslitunum eru þessi:
Stoke City eða Tamworth - Barnsley
eða Walsall,
Cheltenham eða Chester
- Newcastle,
Coventry - Nuneaton eða
Middlesbrough,
W.B.A. eða Reading - Torquay eða
Birmingham,
Portsmouth - Liverpool,
Leicester - Southampton,
Bolton - Arsenal,
Manchester City - Leeds eða Wigan,
West Ham - Blackburn,
Wolves - Burton Albion eða Manc-
hester United,
Aston Villa - Port Vale,
Millwall eða Everton - Chelsea,
Brentford - Sunderland,
Preston - Crystal Palace,
Colchester - Derby,
Charlton - Leyton Orient.
Leikirnir fara fram helgina 28. og
29. janúar næstkomandi.
Liö 8. flokks Fjölnis í körf uknattleik og þjálfari liösins, Benedikt Guðmundsson.
Körfubolti yngriflokka:
Reykjavíkurmótið
í 8. flokki
Það var mikið um að vera í Rima-
skóla í Grafarvogi um helgina þar
sem piltar í 8. flokki voru að leika
í Reykjavíkurmótinu. Þetta eru
piltar fæddir 1992, sem þýðir að
þeir eru 13 ára gamlir. Fjögur lið
tóku þátt að þessu sinni: Fjölnir,
KR, ÍR og Valur.
Það voru Fjölnismenn sem
stóðu uppi sem sigurvegarar eftir
hreinan úrslitaleik við Val í loka-
leik mótsins. Fjölnismenn unnu
alla þrjá leiki sína frekar sann-
færandi og er þetta þriðja árið í
röð sem þeir verða Reykjavíkur-
meistarar. Þá eru þeir einnig
núverandi íslandsmeistarar og
hafa ekki tapað leik í vetur. Þessi
flokkur hjá Fjölni hefur sett stefn-
una á óopinbert Norðurlanda-
mót félagsliða (Scania Cup) um
páskana og verður fróðlegt að sjá
hvernig þessir efnilegu strákar
standa sig gegn þeim bestu á
Norðurlöndum.
Úrslit leikjanna urðu sem hér segir:
Lau. 7.jan.2006 Fjölnir - [R 73-28
Lau. 7.jan.2006 Valur-lR 51-36
Lau. 7.jan.2006 Fjölnir - KR 70-24
Sun. 8.jan.2006Valur-KR 48-45
Sun. 8.jan.2006 KR - [R 36-27
Sun. 8.jan.2006Fjölnir-Valur 69-22
Lokastaðan
Nr. Félag Leik U T Stig Nett Stig
1. Fjölnir 3 3 0 212:74138 9
2. Valur 3 2 1 121:150 -29 7
3. KR 3 1 2 105:145 -40 3
4. ÍR 3 0 3 91:160 -69 1
U-16 kvenna valið
í körfubolta
Ingvi Gunnlaugsson, þjálfari landsliðs
kvenna skipað leikmönnum 16 ára og
yngri, valdi um helgina 20 stúlkur í
leikmannahóp til undirbúnings fyrir
Norðurlandamótið sem fer fram í Sví-
þjóð í maí næstkomandi.
Hópurinn er skipaður eftir-
töldum leikmönnum:
Hildur Pálsdóttir, Keflavík,
María Skagförð, Keflavík,
Telma DísOlafsdóttir, Keflavík,
Kristín Rut Jóhannsdóttir, Keflavík,
Salbjörg Sœvarsdóttir, Kormákur,
Lóa Dís Másdóttir, Kormákur,
Lilja Ósk Sigmarsdóttir, Grindavík,
Jenny Ósk Oskarsdóttir, Grindavík,
Alma Rut Garðarsdóttir, Grindavík,
Ingibjörg Jakobsdóttir, Grindavík,
Aldís Pálsdóttir, Haukar,
Kristín Fjóla Reynisdóttir, Haukar,
Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Haukar,
Klara Guðmunds-
dóttir, Haukar,
Guðrún Emilsdóttir,
Haukar,
Helena Hólm,
Haukar,
Gunnhildur Gunn-
arsdóttir, Snœfell,
María Björnsdóttir,
Snœfell, Ingvi Gunnlaugsson
Guðný Gígja Skjaldardóttir, Hörður,
Hafrún Hálfdánardóttir, Hamar
/Selfoss.
Eins og sést á þessari upptalningu
koma langflestar stúlkurnar frá
Haukum í Hafnarfirði eða sex talsins,
fjórar koma frá Grindavík og fjórar fr á
Keflavík. Athygli vekur að tvær stúlkn-
anna koma frá liði Kormáks og er það
vel.
Paris Dakar
Mótorhjólakappi lét lífið
Enn eitt dauðsfallið varð í gær í
Paris Dakar rallkeppninni þegar ástr-
alski mótorhjólakappinn Andy Cal-
decott lét lífið. Þar með varð hann
tuttugasti og þriðji keppandinn frá
upphafi sem lætur lífið í þessari erf-
iðu keppni. Paris Dakar rallið er nú
haldið í 28. skipti og Andy Caldecott
var 41 árs gamall og hafði gengið
mjög vel í sfðustu tveimur aksturs-
leiðum keppninnar. Hann lætur eftir
sig eiginkonu og eitt barn.