blaðið - 10.01.2006, Qupperneq 20
24 i MENNING
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 blaöiö
Gamalt sakamál grafið upp
Fáir heimilisglæpir hafa valdið jafn
miklu fjölmiðlafári og morðið á Belle
Crippen á gamlárskvöld árið 1910 í
London og almenningur sökkti sér
ofan í ffásagnir af öllu sem
viðkommálinu.Morðinginn ^
var eiginmaður Belle, læknir- * ir'’
inn Hawley Harvey Crippen. w ^
Nær einni öld síðar er fjallað ^ rinppBNS
um þetta fræga sakamál í bók- SJk'.,.. ;
inni Supper with the Crippens --
eftirDavidJamesSmith. ^
Belle var sögð nöldursöm og
ráðrík og aukþess drykkfelld og
daðmrgjöm. Eiginmaður hennar átti
ástkonu, Ethel Le Neve, sem var ritari
hans og þau höfðu hafið ástarsamband
fljótlega eftir að hún hóf vinnu hjá
honum.
í febrúarmánuði 1910 fékk Crippen
nóg af eiginkonu sinni og byrlaði henni
eitur. Hann hlutaði hkið í sundur og
grófeinhverjarleifarþess undirkjallara-
gólfinu. Höfuð Belle og útlimir fúndust
aldrei. f sex mánuði reyndi Crippen að
dylja glæpinn með furðulegum lygavef.
Fyrst sagði hann að Belle hefði farið til
Ameríku vegna fjölskyldumála, sfðan
sagði hann hana hafa veikst þar og lát-
ist í Kaliforníu. Á þessum tíma flutti ást-
kona hans inn á heimili þeirra hjóna og
tók að sér húsmóðurskyldurnar.
brá henni svo að hún féll f öngvit en
Crippen sagði: „Guði sé lof að þessu er
lokið.“
Til stóð að rétta sameiginlega yfir
0 • parinu en fallið var ffá því af ótta
^ við að almenningur fengi samúð
með Edith og myndi yfirfæra
þá samúð á Crippen. Edith var
sýknuð en ólíklegt er annað en
að hún hafi haft fulla vitneskju
um morðið. Crippen neitaði að
hafa myrt eiginkonu sína en var
sakfelldur og hengdur í nóvemb-
ermánuði 1910.
,Guði sé lof að þessu er lokið"
Lögreglurannsókn var hafin á hvarfi
Belle og Crippen virtist gera sér ljóst
að það væri einungis tímaspursmál
hvenær hann yrði handtekinn. Hann
ákvað að flýja ásamt ástkonu sinni.
Hann khppti hár hennar stutt og lét
hana klæðast drengjafötinn. Þau tóku
sér far með skipi og þóttust vera feðgar.
Á sama tfma hóf lögreglan rannsókn
í húsi Crippens og fór að grafa undir
kjaharagólfmu en þaðan barst mikih
fnykur.
Skipstjórinn á skipinu sem Crip-
pen og ástkona hans voru farþegar á
tók eftir þeim þar sem þau héldust í
hendur. Hann hafði einmitt verið að
lesa um þau í DaUy MaU og þekkti þau
samstundis. Hann sendi símskeyti til
Englands. Crippen varð þannig fyrsti
morðinginn sem var handtekinn
vegna símskeytis. Lögregluforingi fór
um borð í skipið. Þegar Edith sá hann
Leyndarmál Edithar
í bók sinni um máhð lagðist höfundur-
inn, David James Smith, f rannsóknir á
lífi Ethel eftir lát Crippens. Hann komst
að því að Ethel skipti um nafn og tók
upp nafnið Harvey, sem var seinna for-
nafn Crippens. Eldd verður annað séð
en að með þessu hafi hún vUjað tengj-
ast manninum sem hún hafði elskað
svo heitt. Hún flutti tU Kanada þar
sem hún bjó í nokkur ár áður en hún
sneri aftur tU Englands. Hún giftist 31
árs gömul, eignaðist tvö börn og bjó í
London en sagði eiginmanni sínum
aldrei ffá því að hún væri Ethel le Neve.
Húnlést árið 1967,84 áragömul, ogvirð-
ist aldrei hafa hætt að elska Crippen.
Börn hennar eru á lífi og fýrir tuttugu
árum sagði blaðamaður þeim sannleik-
ann um móður þeirra. Sonur hennar
segist trúa staðfastlega á sakleysi
hennar en segist jafnframt óskaþess að
hann gæti farið aftur í tímann og spurt
móður sína ýmissa spurninga.
Nær öld er liðin frá því að hann myrti eig-
inkonu sfna. I nýrri bók er fjallað um þetta
fræga sakamál.
Ástkonan Ethel le Neve. Hún hætti aldrei að elska Crippen.
Bíbí og blakan snýr aftur
Janúarverkefni Hugleiks í Leikhús-
kjallaranum er gamanóperan Bíbí og
blakan eftir þá Ármann Guðmunds-
son, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir
Tryggvason. Hugleikur hefur verið
með mánaðarlegar skemmtanir í
Leikhúskjallaranum í vetur undir yfir-
skriftinni: Þetta mánaðarlega.
Verkið segir ffá hinni ungu og
fögru Bfbí sem bíður ein eftir að ástin
sæki hana heim, en mál hennar vand-
ast þegar tvo gesti ber að garði sömu
nóttina: Töfrandi en dularfullan
rúmenskan nýbúa og ábúðarmikinn
vampýruveiðara sem telur sig heldur
en ekld vera kominn í feitt.
Bíbí og blakan er langlífasta og víð-
förulasta sýning Hugleiks og fagnar
nú tíu ára afmæli sínu. Verkið var
frumsýnt í Höfundasmiðju Leikfélags
Reykjavíkur 1996 og seinna sama vor
tekin til sýninga hjá Hugleik. Árið
2000 var sýningin fulltrúi íslands á
alþjóðlegri leiklistarhátíð í Litháen og
var í framhaldinu boðið á aðra hátíð í
Rússlandi af fulltrúum rússneska
áhugaleikhússambandsins sem heill-
uðust mjög af sýningunni. Erlendri sig-
urgöngu Bíbíar lauk síðan í Rudolstadt
í Þýskalandi, þangað sem henni var
boðið af þýskum leiklistarforkólfum
eftir sýninguna í Rússlandi.
Verkið hefur tekið talsverðum breyt-
ingum í áranna rás og hafa höfundar
notað tækifærið í hvert sinn sem
nýtt ferðalag var á döfinni að breyta
og bæta. Leikarar að þessu sinni eru
þau Einar Þór Einarsson, Björn Thor-
arensen, Hulda B. Hákonardóttir, Silja
B. Huldudóttir, Þorgeir Tryggvason,
Þórunn Guðmundsdóttir og Ylfa Mist
Helgadóttir auk píanóleikarans Aðal-
heiðar Þorsteinsdóttur.
Aðeins verður ein sýning á verkinu,
miðvikudaginn 11. janúar nk. og hefst
hún kl. 21.00. Aðgangseyrir er 1.000
kr.
ENSKA ER OKKAR MAL
ENSKUNAMSKEIÐ AÐ HEFJAST
Okkar vinsælu talnámskeið, auka orðaforði og sjálfstraust
• Talnámskeið 5 og 10 vikur
• Viðskiptanámskeið
• Málfræði og skrift
• Enskar smásögur
1 Námskeið fyrír 10. bekk
1 Málaskólar (Englandi
• Ævintýranámskeið fyrír
böm 5 til 12 ára
HRINGDU OG SKRÁÐU ÞIG í VIÐTAL í DAG
Hringdu í síma 588 0303 • FAXAFENI 8 • www.enskuskolinn.is
109 SU DOKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri linu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
niu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
3 9 8
8 6 9
2 5 4 7
7 1 2
3 9 6 5
8 7 4
1 8 6 5
3 5 1
3 9 7
2 6 3 1 7 8 5 9 4
4 9 1 3 5 2 6 7 8
7 8 5 6 9 4 2 1 3
1 7 4 2 3 6 8 5 9
8 5 2 7 1 9 4 3 6
6 3 9 4 8 5 7 2 1
3 2 7 8 6 1 9 4 5
9 1 8 5 4 7 3 6 2
5 4 6 9 2 3 1 8 7