blaðið


blaðið - 11.01.2006, Qupperneq 8

blaðið - 11.01.2006, Qupperneq 8
8 i ERLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 blaöið Lögregla á Spáni lœtur til skarar skríða: Meintir hryðjuverkamenn handteknir Lögregla á Spáni handtók 17 manns í gær sem grunaðir eru um að hafa fengið íslamska vígamenn til að standa að árásum í frak. Ríkisút- varp Spánar greindi fráþessu. Hand- tökurnar áttu sér stað árla morguns í Madrid, Barcelona í Baskahéruðum í norðurhluta landsins. Meðal þeirra sem voru hand- teknir voru trúarleiðtogi og maður sem kann að tengjast árás á ítalska lögreglumenn í írak. Sjálfsmorðs- árás sem gerð var á stöð ítalskrar herlögreglu í suðurhluta fraks árið 2003 varð 18 ítölum og 9 frökum að bana. f síðasta mánuði voru 16 manns handteknir á Spáni sem einnig voru grunaðir um að hafa aflað nýrra víga- manna. Dómari dæmdi sex þeirra til fangelsisvistar fyrir að hafa ráðið fólk til að standa að hryðjuverkum eða starfa með uppreisnarmönnum í Tsétséníu, írak og Kasmír. Hinir 12 voru látnir lausir á skilorði á meðan frekari rannsókn færi fram á málum þeirra. Sú rannsókn beindist einkum að mosku í borginni Malaga í suðurhluta Spánar sem spænskir embættismenn segja að íslamskir öfgamenn sæki oft. a Sérsveitamenn úr spænsku lögreglunni vifi hús f Barcelona þar sem meintir hryðjuverka menn voru handteknir í gær Óvœnt niðurstaða á þingi Úkraínu: Vantraust samþykkt á ríkisstjórnina Þing Úkraínu samþykkti van- trauststillögu á ríkisstjórnina í kjölfar harðrar gagnrýni á samn- inga sem hún náði við rússneska ríkisfyrirtækið Gazprom um verð á jarðgasi. 250 þingmenn greiddu vantrauststillögunni atkvæði sitt en 225 atkvæði þurfti til að sam- þykkja hana. Samþykktin sem tók þegar í stað gildi kom mörgum á óvart enda var búist við að Júrí Jeka- núrof, forsætisráðherra, myndi standa hana af sér þrátt fyrir mikla óánægju í röðum þing- manna. Jekanúrof mun gegna embættinu áfram þangað til að Viktor Júsjenkó, forseti landsins, Vantrauststillaga á Júrí Jekanúrof, forsætisráöherra Úkrafnu, var samþykkt á úkraínska þinginu í gær. útnefnir nýjan forsætisráðherra. Þingkosningar eru ráðgerðar í Úkraínu 26. mars. Tveir fyrrverandi forsætis- ráðherrar, Júlía Tymosjenkó og Viktor Janúkovits, höfðu báðir látið í ljós gagnrýni á samninginn en samkvæmt honum samþykktu Úkraínumenn nærri tvöföldun á verði á jarðgasi. Tymasjenkó var helsti hvatamaður þess að van- trauststillagan var borin upp en hún hefur heitið því að berjast gegn samningnum sem undirrit- aður var í síðustu viku. ■ Fá að kjósa í Austur-Jerú- salem fsraelsmenn munu heimila Palestínu- mönnum að greiða atkvæði í Austur-Jerúsalem í þingkosningum Palestínumanna þann 25,janúar. Shaul Mofaz, varnarmálaráð- herra fsraels, greindi frá þessu í f;ær. Bandaríkjamenn höfðu hvatt sraela til að láta af andstöðu sinni við kosningar í borginni. fsraelar höfðu hótað því að koma í veg fýrir kosningar í borginni út af andstöðu sinni við þátttölcu hinna herskáu samtaka Hamas. Mofaz sagði ffétta- mönnum að arabar í Austur-Jerú- salem myndu geta greitt atkvæði á fimm stöðum f borgarhlutanum. ■ Oaten gefur kost á sér Mark Oaten, talsmaður frjálslyndra demókrata í Bretlandi í innanrík- ismálum, hefur staðfest að hann muni bjóða sig fram til leiðtoga flokksins. Oaten, sem er 41 árs, mun því etja kappi við Sir Charles Menzies Campbell sem er sá eini sem hefur boðið sig fram enn sem komið er. Menzies hefúr gegnt embættinu síðan Charles Kennedy sagði af sér í síðustu viku. Enn- fremur er talið líklegt að forseti flokksins, Simon Hughes, muni gefa kost á sér í leiðtogakjörinu. ■ Shaul Mofaz varn- armálaráðherra fsraels. NISSAN PATHFINDER SKIPT_um landslag HÖFUM ALLT ÁRIÐ SKEMMTILEGT! Fullbúinn 7 manna jeppi með cruise control, spólvörn, skriðvörn, regnskynjara og miklu meira. Frábær aukahlutapakki fylgir í janúarl Pathfinder XE beinskiptur 32" dekk, stigbretti og dráttarbeisli að verðmæti 250.000 krónur. / Pathfinder SE beinskjptur Pathfínder SE sjóifskiptur Pathfinder LE sjálfskiptur Pathfinder LEIT Veiðikortið 2006 og árs aðild að 4x4 klúbbnum í kaupbætil Oplö: Ménudaga - föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00 Nýárstilboð - 250.000,- kaupauki Tegund Tilbúinn á götuna Ingvar Helgason Ágreiningur Eþíópíu og Erítreu um landamœri: Bandaríkjamenn reyna að leysa deiluna Bandaríkin hyggjast senda hóp erind- reka og háttsettra manna innan hers- ins til Eþíópíu og Erítreu til að freista þess að leysa langvinnar landamæra- deilur ríkjanna. John Bolton, sendi- herra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur kynnt framtakið fyrir öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna. Hann sagði að hópurinn myndi verja 30 dögum til að reyna að leysa úr ágreiningnum. Jendayi Frazer, aðstoð- arráðherra í málefnum Afríku, mun fara fyrir hópnum sem heldur af stað í næstu viku. I síðasta mánuði skipuðu stjórnvöld í Erítreu friðargæsluliðum frá vest- rænum löndum að yfirgefa hlutlaust svæði við landamærin. Jean-Marie Guehenno, yfirmaður friðargæslustarfs Sameinuðu þjóð- anna, sem var nýlega á ferð í lönd- unum tveimur, segir að Bandarílein hafi það pólitíska vald og trúverðug- leika sem til þurfi til að koma friðar- ferlinu í gang á ný. Martin Plaut, sérfræðingur breska ríkisútvarpsins (BBC) í málefnum Afríku, segir mikilvægt að fýrrver- andi hershöfðingi, Carlton Fuiford, sé ( hópnum. Plaut segir ennfremur að þetta sé síðasta tæláfærið til að koma friðarferlinu í gang á ný en óttast þó að árangur náist ekki þar sem hvor- ugur deilenda virðist vilja gefa eftir í deilunni. _ John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóöunum, segir að Bandaríkja- menn muni senda hóp erindreka til Erítreu og Eþíópfu í næstu viku til að reyna að leysa deilur ríkjanna. Ástrali festist í þvottavél Kalla þurfti út slölckviliðsmann til að bjarga ólánsömum Ástrala úr þvotta- vél sem hann hafði fests í þegar hann var í feluleik með börnunum sínum á dögunum. Börn mannsins voru ekki lengi að finna hann þar sem hann sat í hnipri í vélinni en aftur á móti þurfti hann að bíða í klukkustund áður en slökkviliðsmanninum tókst að losa hann úr prísundinni. I stað þess að taka þvottavélina í sundur teygði slökkviliðsmaðurinn höndina inn í vélina og dró manninn út. Maðurinn sagðist íhuga að setja börnum sínum strangari reglur um hvar megi fela sig þegar þau eru í feluleik og vonast til að þau freistist ekki til að fela sig í þvottavélum eins og hann sjálfur. ■

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.