blaðið


blaðið - 11.01.2006, Qupperneq 10

blaðið - 11.01.2006, Qupperneq 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 blaöiö VETUR er lífsstíll! IGNiS 4X4 Verð 1.740 þús WAGON R+ 4X4 Verð 1.520 þús. SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17. Sími 568 5100. www.suzukibilar.is íranir taka upp kjarnorkurannsóknir á ný íranir rufu innsigli á kjarnorkurannsóknarstofum sínum ígœr oghyggjast halda áfram rannsóknum. Áhyggjur manna afþví að íranir hafi t hyggju að þróa kjarnorkuvopn hafa aukist í kjölfarið. íranir fjarlægðu innsigli af kjarn- orkurannsóknarstöðvum sínum í gær og lýstu því yfir að þeir hefðu tekið til við kjarnorkurannsóknir á ný. Við það eykst enn frekar spenna milli alþjóðasamfélagsins og Irana út af kjarnorkuáætlunum þeirra. Iranir kynntu í síðustu viku áætlanir um að halda áfram rann- sóknum á framleiðslu á kjarnorku- eldsneyti. I kjölfarið jukust áhyggjur manna af því að yfirvöld í Teheran hefðu í hyggju að hefja smíðar á kjarnavopnum. Iranir hafa staðfast- lega haldið því fram að rannsókn- unum sé ætlað að undirbúa vinnslu á kjarnorku til raforkuframleiðslu. Éftirlitsmenn frá Alþjóðakjarn- orkumálastofnuninni innsigluðu rannsóknastofurnar fyrir meira en tveimur árum með samþykki Ir- ana sem vildu draga úr tortryggni á alþjóðavettvangi í garð kjarnorku- áætlunar þeirra. Eftirlitsmenn Alþjóðakjarnorku- málastofnunarinnar voru viðstaddir í gær þegar íranskir embættismenn fjarlægðu innsiglin að sögn Melissu Fleming, talsmanns stofnunarinnar. Fleming sagði ennfremur að þær 35 þjóðir sem ættu sæti í stjórn stofn- unarinnar myndu fá nánari upp- lýsingar um hvað íranir hyggðust gera með útbúnaðinn síðdegis í gær. Hún vildi ekki svara hvort að íranir ætluðu að hefja auðgun úrans. Mohammed Saeedi, aðstoð- arframkvæmdastjóri Kjarnorkumálastofn- unar Irans, ræðir við fjölmiðlafólk í gær. Ætla ekki að framleiða kjarnorkueldsneyti Mohammed Saeedi, aðstoðar- framkvæmdastjóri Kjarnorkumála- stofnunar Irans, sagði að íranir myndu ekki halda áfram framleiðslu á kjarnorkueldsneyti en auðgað úran þarf í hana. „Við höldum að- eins áfram rannsóknarstarfi, ekkert meira en það,“ sagði Saeedi. Bandaríkjamenn, sem hafa sakað stjórnvöld í íran um að hafa í hyggju að smíða kjarnorkuvopn, hafa ítrekað að Iranir kunni að vera kærðir til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna aðgerðanna. Rússar benda aftur á móti á að viðræður sé eina leiðin til að ná árangri. I næsta mánuði er fyrirhugað að viðræður milli Rússa og írana haldi áfram en vonast er til að þar verði komist að málamiðlun. Mótmæli vegna áhlaups á mosku r 1 u < ^ • . t'N Súnnímúslími stendur vörð við Al Qura moskuna í Bagdad í gær. Súnnímúslímar mótmæltu áhlaupi bandarískra hersveita á mosku í Bagdad sem sagt er að hafi tengst ráni á bandarískum blaðamanni. Um 700 manns söfnuðust saman við moskuna til að mótmæla áhlaup- inu sem átti sér stað um helgina. Sex voru handteknir í áhlaupinu en vísbendingar höfðu borist um að menn innan moskunnar tengdust ráninu. Jill Carroll, blaðamanni á Christian Science Monitor, var rænt af vopnuðum mönnum á laugardag. Allan Enwiyah, túlkur hennar, var skotinn til bana en bíl- stjóri hennar komst undan. Carroll var 31. fjölmiðlamaðurinn sem rænt er í landinu síðan innrásin var gerð árið 2003 að sögn samtak- anna Fréttamenn án landamæra. Neðanjarðarbókmenntir í Stokkhólmi Borgaryfirvöld í Stokkhólmi hyggj- ast koma upp eins konar bóka- sjálfsölum í neðanjarðarlestakerfi borgarinnar í því skyni að hvetja farþega til að lesa meira. Til að byrja með verður slíkum vélum komið fyrir á þremur stöðvum í tilraunaskyni. Fólk mun geta stungið bókasafnskortum sínum í vélarnar og valið á milli tæplega 700 titla að sögn Sænska dagblaðsins. Martin Hafström, talsmaður Borg- arbókasafns Stokkhólms, segir að tilgangurinn sé meðal annars sá að ná til fólks sem undir venjulegum kringumstæðum lesi ekki bækur. „Við viljum auka áhuga fólks á lestri og á bókmenntum yfir höfuð. Ég held að þetta sé áhugaverð tilraun þar sem í Stokkhólmi er að finna stærsta almenningssamgöngukerfi Bráðum veröur hægt að ná sér í bækur að landsins," sagði Hafström. Iesa 4 neðanjaröarlestastöövum í Svíþjóð. Tœpar tvœr vikur til kosninga í Kanada Ihaldsmenn Paul Martin, leiðtogi Frjálslynda flokksins, og Stephen Harper, leiðtogi Ihaldsflokks- ins, takast á í kappræðum fyrir þingkosn- ingarnar í Kanada. með forystu íhaldsmenn hafa mest fylgi í skoðanakönnunum þegar aðeins eru tæpar tvær vikur til þingkosn- inga í Kanada. Ihaldsmenn mælast með 37% fylgi en helstu keppinautar þeirra, frjálslyndir, flokkur Paul Martins, forsætisráðherra, aðeins með 29% samkvæmt nýrri könnun sem birt var í upphafi vikunnar. For- skot íhaldsmanna hefur ekki verið jafnafgerandi síðan í upphafi kosn- ingabaráttunnar seint í nóvember þegar minnihlutastjórn Martins var steypt af stóli eftir að vantraust- tillaga stjórnarandstöðuflokkanna hafði verið samþykkt. Frjálslyndi flokkurinn hefur verið við stjórn- völinn í landinu síðan 1993 en fylgi hans hefur minnkað í kjölfar hneykslismáls. Kosningar fara fram þann 23. janúar. Falsanir Hwangs staðfestar Hópur manna undir forystu suður- kóreska visindamannsins Hwang Woo-suk falsaði tvær tímamóta- skýrslur um stofnfrumurannsóknir en tókst að einrækta hund fyrstir allra í heiminum. Rannsóknanefnd við Þjóðarháskólann í Seoul stað- festi þetta í gær og sagði að málið væri hneyksli. Vísindamenn segja að málið sé eitthvert mesta svindl sem komið hafi upp í vísindaheim- inum á síðustu timum. Hwang sagði af sér út af hneykslinu skömmu fyrir jól en afhjúpun hans kom mörgum Suður-Kóreubúum í opna skjöldu enda hafði verið litið á hann sem eins konar þjóðhetju vegna afreka hans á vísindasviðinu. Þrátt fyrir að hafa beðið mikla álitshnekki í vísindaheiminum á Hwang Woo-suk sér enn stuðningsmenn meðal suður-kóresku þjóðarinnar.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.