blaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 19
blaðið MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006
TÍSKA I 27
99..............................................................
Þó að þetta sé 23.000 manna byggðarlag
er mikil nánd og notalegheit hérna.
Sumir tala um að það sé þorpsbragur á bænum
og það er held ég nokkuð til í því."
annar hver bæjarbúi er skráður til
þátttöku eða félagsmaður í íþróttafé-
lagi! Við vorum að veita afreksfólki
í íþróttum viðurkenningar í lok árs-
ins og þá kom í ljós að við áttum 440
íslandsmeistara í Hafnarfirði árið
2005. Það fannst okkur nokkuð gott
hlutfall.“
Þróttmikið menningarlíf
En þiðfáist við fleira en íþróttir
hérna. Menningarlífið er með ólík-
indum þróttmikið.
„Já, það hefur sprungið út á und-
anförnum árum og þar held ég að
hafi margir samverkandi þættir
komið til. Við höfum byggt upp
mjög góða aðstöðu, annars vegar
Hafnarborg, sem er okkar lista- og
menningarsetur og geysilega mikil-
vægt hér í mannlífinu. Hins vegar
reistum við mjög öflugan tónlistar-
skóla, sem er með glæsilega aðstöðu
í samtengingu við Þjóðkirkjuna hér
í miðbænum. Þetta tvennt hefur
haft veruleg áhrif á menningarlífið
með því að fóstra fjölmarga frum-
kvöðla, sem hafa haldið úti öflugu
starfi og hleypt nýjum krafti í menn-
ingarlífið. Bæjaryfirvöld hafa sem
betur fer verið opin fyrir að styðja
og styrkja menninguna, þó eflaust
vildu menn alltaf sjá meira að gert
í þeim efnum. Við tókum því fagn-
andi þegar leiklistarfélagið Hervör
og Hávör komu hingað í Fjörðinn
og þar hefur tekist að búa til þriðja
atvinnuleikhúsið hér á höfuðborg-
arsvæðinu, sem hefur af miklum
metnaði náð að skapa sér sérstöðu í
íslensku leikhúslífi.
Við höfum farið þá leið að gera sér-
staka rekstrarsamninga til þriggja
ára við þessa kóra, listafélög og aðra
slíka hópa og þeim hefur verið stuðn-
ingur í því meðan bæjarfélagið auðg-
ast fyrir vikið. Þetta fjör í listalífinu
hefur svo endurspeglast sérstaklega
í okkar eigin listahátíð, Björtum
dögum. Þar er það fyrst og fremst
heimafólkið, sem heldur henni uppi
og hefur gefist vel.“
Fleiri verkefni til sveitarféiaganna
Nú hafa menn rætt mikið um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga upp á síðkastið. Telurðu að
rétt sé að breyta henni frekar en
orðið er?
„Ég er þeirrar skoðunar að það
liggi beint við að það eigi að færa
miklu fleiri verkefni til sveitarfé-
laganna. Við erum á allt öðru róli
en okkar helstu nágrannalönd í
þessum efnum. Þar eru um 70% af
samfélagslegu verkefnunum hjá
sveitarfélögunum en um 30% hjá
ríkinu. Þessu er þveröfugt farið hér.
Ég held að sveitarfélögin hafi sýnt
það og sannað með grunnskólunum
hvers þau eru megnug.
Menn gleyma því oft þegar þeir
horfa til grunnskólans hvað þar er
margvísleg þjónusta, miklu meiri
og betri en þekktist hér áður fyrr,
skólamáltíðir, heilsdagsskólinn og
allur aðbúnaður er allt öðruvísi en
áður var. Auðvitað hefur þetta verið
dýrt. Sveitarfélögin hafa lagt miklu
meira í skólastarfið en þekktist áður
og þar kemur tvennt til, annars
vegar metnaður sveitarfélaganna
en síðan er nálægðin við íbúana auð-
vitað þannig að menn þurfa að gera
betur en ríkið komst upp með hér í
gamla daga.
Það hins vegar kallar á það að
sveitarfélögin eru að bera meiri
kostnað á sama tíma og tekjuhliðin
hefur breyst verulega og umræðan
um tekjuskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga er enn óútkljáð.“
Það væri kannski ráð að gefa
sveitarfélögum frjálsari hendur
hvað tekjur sínar varðar?
„Ég er ekki viss um það að það eigi
að vera svo hörð samkeppni milli
sveitarfélaganna í skattheimtunni,
heldur fremur að þau hafi aðkomu
að óbeinum skatttekjum, sem nú
renna beint í ríkissjóð. Hvaða sann-
girni er t.d. í því að sveitarfélögin
kosti stóran hluta umferðarkerfis-
ins á sama tíma og þau fá ekki krónu
af bifreiðagjöldum, bensíngjöldum
eða öðrum þeim álögum sem bíleig-
endur greiða. Á hvaða götum halda
menn að allir þessir bílar aki?“
Byggðin teygist suður með sjó
En ef við horfum aðeins fram
á veginn, hver telurðu að verði
stærstu viðfangsefni Hafnar-
fjarðar næsta áratuginn eða svo?
„Fyrst og fremst eru það skipulags-
málin. Byggðin mun halda áfram að
teygja sig hér suður með ströndinni.
Skipulagsmálin og samstarfið við
sveitarfélögin hér suður frá verður
æ stærra verkefni. Að mínu mati
var það mikil synd að ekki skyldi
verða af sameiningu okkar við Voga
í haust, vegna þess að þar eru miklir
sameiginlegir hagsmunir. Ég get
nefnt dæmi að það er verktaki að
fjárfesta í landi suður í Lónakoti og
Hvassahrauni og stefnir á að byggja
þar 10.000 manna byggð. Og hvar er
hún? Jú.húnerálandamerkjumHafn-
arfjarðar og Vatnsleysustrandar.
Ég hef enga trú á því að byggð
muni þróast upp eftir öllu Kjalarnesi
og upp í Hvalfjörð. Hún mun þróast
hér út í áttina að alþjóðaflugvell-
inum í Keflavík. Það sjá allir, sem á
annað borð hafa augun opin.
1 öðru lagi verður horft til þess
hvar menn ætla að byggja næstu
stóru hafskipahöfn á höfuðborgar-
svæðinu. Þá þurfa menn að horfa
hér innan Faxaflóans þar sem mark-
aðurinn er.
Það tengist kannski þriðja at-
riðinu, sem er hvernig þróunin í
orkuöflun verður og ég held að við
séum að fara inn í nýtt tímabil í því.
Stórar vatnsaflsvirkjanir verða tæp-
ast mikið fleiri og þá þurfa menn að
horfa til nýrrar tækni og tækifæra
á háhitasvæðunum. Þau eru ekkert
síður hér á okkar svæði en á Hellis-
heiðinni hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Það er verið að fara af stað með heil-
miklar boranir í Trölladyngju og á
Krísuvíkursvæðinu og þar eru veru-
lega vannýttar auðlindir, sem geta
skipt okkur Hafnfirðinga miklu
máli. En það verður mikil vinna að
koma því í kring.
Framtíðin er hér suður með
ströndinni og við verðum upptekin
af þeirri þróun næstu áratugi" ■
andres@bladid.net
lceland Spa & Fitness (ISF) kynnir nýjung:
FJOL$KYLDUKORT
okkur’.
Dað margborgar sig
að vera í Klúbbnum ISF97-
og öll fjöl$kyldan er með!
' , f>
% m
Ef báðir foreldrar eru í klúbbnum *ISF97 fylgir frítt með svokallað Fjölskyldukort.
Með Fjölskyldukortinu býðst krökkum, á aldrinum 12-16 ára, í fjölskyldunni að æfa
frítt með foreldrum sínum og yngri börnin fá frítt í Kroppakot (barnagæslu ISF).
Það margborgar sig að vera í klúbbnum ISF97-
og öll fjöl$kyldan er með!
*Lágmark 12 mán. binditími á aðeins 2.990 kr. á mánuoi