blaðið - 11.01.2006, Qupperneq 22
30 I ÍPRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 blaðiö
Knattspyrna:
ísland leikur við Trinidad og Tobago
Allar líkur eru á því að íslenska A-
landsliðið í knattspyrnu karla mæti
Trinidad og Tobago í vináttulands-
leik þann 28. febrúar næstkomandi.
Leikið verður á heimavelli Q.P.R. i
London og það verða því hæg heima-
tökin fyrir leikmenn að koma sér á
leikinn. Landslið Trinidad og Tob-
ago er í 51. sæti á styrkleikalista al-
þjóðaknattspyrnusambandsinsmeð
608 stig en Island er sem stendur í
94. sæti styrkleikalistans með 482
stig. Trinidad og Tobago tekur þátt
í úrslitakeppni HM í Þýskalandi í
sumar og það er í fyrsta sinn sem
liðið kemst í úrslitakeppni HM.
Þjálfari liðsins er Hollendingur-
inn Leo Beenhakker en flestir knatt-
spyrnuunnendur þekkja þann mann
vel. Þekktustu leikmenn Trinidad
og Tobago eru án efa Dwight Yorke
sem lék lengi vel á Englandi með
Aston Villa og Manchester United
svo einhver lið séu nefnd. Þá má
einnig nefna aðalmarkvörð liðsins
sem er Tony Warner en hann leikur
með Heiðari Helgusyni í Fulham í
ensku úrvalsdeildinni. Varamark-
vörður liðsins er Shaka Hislop sem
er varamarkvörður West Ham
United.
Er frágengið að okkar menn mceti
landsliði Trinidad og Tobago í
London 28. febrúar ncestkomandi?
„Jú við erum langt komnir með að
semja við þá um landsleik í London
28. febrúar og þá verður leikið á
heimavelli Q.P.R.,“ sagði Geir Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, í
samtali við Blaðið í gær.
Hvernigkom þetta til?
„Eins og alltaf þá eru menn að
tala saman um mögulega landsleiki.
Frumkvæðið í þessu máli kom frá
þeim og þetta á sér um tveggja vikna
aðdraganda. Ég fagna þessu verk-
efni og það verður gaman að glíma
við eitt af þessum liðum sem spila i
úrslitakeppni HM og að auki verður
þetta fyrsta verkefni Eyjólfs Sverris-
sonar sem landsliðsþjáífara A-lands-
Enski deildabikarinn:
United - Blackburn í kvöld
Manchester United og Blackburn Ro-
vers mætast í kvöld í undanúrslitum
ensku deildabikarkeppninnar í
knattspyrnu. Leikurinn fer fram á
Ewood Park og er þetta fyrri leikur
liðanna en seinni leikurinn fer fram
á Old Trafford miðvikudaginn 24.
janúar.
Búist er við að Sir Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri Manchester
United, stilli upp sínu sterkasta
liði í kvöld en þó er nánast fullvíst
að Kóreumaðurinn snjalli, Ji-Sung
Park, leikur ekki með rauðu djöfl-
unum vegna hnémeiðsla. Annars
er leikmannahópur Sir Alex eins og
best verður á kosið og það verður án
efa sterkara lið sem mætir til leiks
en gerði markalaust jafntefli við Bur-
ton Albion í FA-bikarnum um síðast-
liðna helgi.
Hjá Blackburn endurheimtir
Mark Hughes, framkvæmdastjóri,
miðvallarleikmanninn Steven Reid
eftir að hann tók út eins leiks bann
í síðasta leik.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan
20.
karate
VINSÆLU
BYRJENDA-
NÁMSKEIÐIN
ERUAÐ
HEFJAST!
ALLAR UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Á
WWW.BREIDABLIK.IS/KARATE
Karatedeild Breiðabliks
liðsins,“ sagði Geir Þorsteinsson.
Eins og Geir koma inn á verðurþetta
fyrsta verkefni Eyjólfs Sverrissonar
sem landsliðsþjálfara. Hvernig líst
Eyjólfi á verkefnið?
„Mér líst vel á það og þetta verður
skemmtilegt. Það er ekki eins og
þessi lið spili saman á hverjum degi.
Þeir eru að fara á HM og því gríðar-
lega spennandi verkefni fyrir okkur,“
sagði Eyjólfur i samtali við Blaðið i
gær.
Hverniglíst Eyjólfi á að leika þennan
leik í London?
„Það er ennþá betra. Auðvelt fyrir
strákana að komast í leikinn. Þetta
er svona miðsvæðis ef þannig má að
orði komast. Ég reikna með að allir
gefi kost á sér í leikinn. Ég veit ekki
annað.“
Nú hafa Ivar Ingimarsson og
Jóhannes Karl Guðjónsson ekki
verið með landsliðinu í nokkurn
tíma þar sem þeir gáfu ekki kost á
sér undir stjórn Loga Ólafssonar og
Ásgeirs Sigurvinssonar.
Verða ívar og Jóhannes Karl með í
leiknum gegn Trinidad og Tobago?
„Þeir eru inni í myndinni eins og
allir aðrir. Eftir því sem ég kemst
næst veit ég ekki betur en að þeir
NBA-körfuboltinn:
gefi kost á sér í landsliðið á ný,“
sagði Eyjólfur Sverrisson mjög svo
ánægður með að fá þennan lands-
leik í lok febrúar.
Þetta er í fyrsta sinn sem þessar
þjóðir mætast á knattspyrnuvell-
inum og það verður athyglisvert að
fylgjast með hvernig okkar mönnum
kemur til með að ganga í leiknum
undir stjórn nýs landsliðsþjálfara.
Kobe Bryant er stórkostlegur
Aðalstjarna NBA-körfuboltaliðs-
ins Los Angeles Lakers, Kobe
Bryant, er að toppa allt í NBA-
deildinni þessa dagana. I síðasta
leik jafnaði hann met Wilt Cham-
berlain frá 1964 þegar Cham-
berlain skoraði 40 stig eða meira
í fjórum leikjum i röð. Kobe jafn-
aði þetta met þegar Lakers mætti
Indiana Pacers og hann skoraði
í leiknum 45 stig, tók 10 fráköst
og átti 5 stoðsendingar en Lakers
vann 96-90.
í hinum þremur leikjunum á
undan skoraði hann 50 stig gegn
Los Angeles Clippers, 48 stig gegn
Phildadelfía 7óers og 45 stig gegn
Memphis Grizzlies. Stórkostlegur
íþróttamaður.
„Ég hef verið þeirrar gæfu að-
njótandi að fá tækifæri til að leika
þennan stórkostlega leik. Ég er
bara mjög heppinn,“ sagði Kobe
Bryant við fréttamenn eftir leik-
inn gegn Indiana Pacers.
„Ég held að þetta sé alveg stór-
kostlegt afrek,“ sagði Phil Jackson,
þjálfari Los Angeles Lakers, við
fréttamenn og kallar hann nú ekki
allt ömmu sína í þessum málum.
Hann stýrði Michael Jordan og
félögum í Chicago Bulls til sex
meistaratitla í NBA-deildinni. Þar
afrekaði Jordan að skora 40 stig
eða meira í þremur leikjum í röð.
Rick Carlisle, þjálfari Indiana,
sagði eftir leikinn: „Hann er á
toppi síns ferils sem leikmaður.
Við urðum vitni af sannarlegu
afreki hjá stórkostlegum íþrótta-
manni. Það er sjaldgæft að maður
verði vitni að afrekum sem
þessum,“ sagði Carlisle eftir tap-
leikinn gegn Lakers.
Lakers mæta liði Portland Trail
Blazers í næsta leik og spurningin
er einungis hvort kappinn haldi
áfram sínum stórkostlega leik.
Það er þó ljóst að Kobe, þótt
hann sé frábær leikmaður, vinnur
ekki titilinn einn síns liðs. Lamar
Odom kom næstur i stigaskorun í
leiknum gegn Indiana með 17 stig
en aðrir leikmenn skoruðu undir
10 stig.
Kobe Bryant hefur farið hamförum að undanförnu í NBA-deildinni.
Lakers hefur nú unnið þrjá
leiki í röð og þrátt fyrir þessa
fjóra stórleiki Kobe Bryant hefur
þeim ekki tekist að vinna í öllum
þeim fjórum leikjum sem er jú
nokkuð athyglisvert. Los Angeles
Lakers er í 7. sæti vesturdeildar
NBA-deildarinnar með 18 sigur-
leiki og 16 tapleiki sem gerir 52,9%
vinningshlutfall.
Indiana Pacers er aftur á móti í
5. sæti austurdeildar með 18 sigur-
leiki og 14 tapleiki sem gerir 56,3%
vinningshlutfall.