blaðið - 11.01.2006, Side 30
38IFÓLK
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 blaöið
borgarinn
TITLAR
Eitt af því sem fslendingar eru mjög
viðkvæmir fyrir eru nafngiftir og titlar.
(fréttum fyrir skemmstu var sagt frá
því að í manntali frá sautjánhundruð
og súrkál hafi titlarnir vinnukvensnift
og sveitaómagi verið skjalfestir merki-
miðar á fólk þess tíma. Nú til dags yrði
sennilega uppi fótur og fit ef einlíver
notaði þessi orð, þó ekki nema væri í
hálfkæringi. Smáborgarinn fór að velta
fyrir sér nafngiftum i víðara samhengi
og hvernig nöfn á sama hlutnum hafa
breyst í tímanna rás.
I greiningaviðmiðum á þroskastöðu
fólks var áður fyrr talað um fávita
eða vanvita eða að vera vangefin. For-
skeytið van- lýsirskorti á einhverju. Ann-
að dæmi um það er að vera vannærður
eða vanhæfur. Of- er líka forskeyti sem
lýsir vel því sem fjallað er um eins og
ofgnótt. En af hverju að breyta nöfn-
um á þroskastöðu fólks svo dæmi sé
tekið? Smáborgarinn hefur þá kenn-
ingu að það sem gerist er að fólk hefur
tilhneiglngu til að nota ákveðin heiti
á neikvæðan hátt. Þannig hefur orðið
vangefin sennilega hljómað á flestum
skólagöngum landsins og þá oftar en
ekki hnýtt saman við blótsyrði og upp-
hrópanir. Við þá stöðu má ekki búa og
sérfræðingar reyna að koma upp með
nýyrði sem ekki er eins auðvelt að snúa
út út. Hinir fullorðnu hafa þó ekki við
litlu snillingunum sem alltaf tekst að
tengja áður hlutlausum orðum í meira
gildishlaðin. „Ertu eitthvað misþroska!"
er sennilega þegar farið að hljóma á
skólagöngum. Vinur Smáborgarans
benti honum eitt sinn á hvað mongólíti
væri neikvætt orð. Smáborgarinn hugs-
aði sig um en sá í fljótu bragði ekkert
neikvætt við orðið, það er hins vegar
samhengið og hugsunarhátturinn sem
býraðbaki sem skiptir máli.
Hjúkrunarfræðingar hétu áður hjúkrun-
arkonur, en nú þykir það ekki nógu fínt.
Á hinn bóginn erallt ílagi að kalla konu
leikkonu og engum finnst það asna-
legt. Orðið kennslukona er hins vegar
alveg út í hött og þekkist ekki lengur í
íslenskri tungu.
Fólk sem vinnur við símsvörun kallast
nú móttökuritarar eða þjónustufull-
trúar. Konan sem skúrar er ræstitækn-
ir og matráðskonan heitir matráður.
Skjólstæðingar Félagsþjónustunnar
kallast nú viðskiptavinir og vonar Smá-
borgarinn að þau viðskipti gangi vel og
að báðir aðilar hagnist eins og í frjálsri
samkeppni. Hvað sem öllum titlum
líður heldur Smáborgarinn áfram að
vera Smáborgari og ber höfuðið hátt
undir þeim titli.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Björn Ingi Hrafnsson, frambjóðandi.
Tekur þú strætó?
„Ég tek stundum strætó, en notkunin hefur farið minnkandi hin síðari
ár. Mér finnst eins og mörgum öðrum að leiðakerfið sé ekki hannað
með mínar þarfir í huga, heldur eitthvað allt annað. Það er lengra í
strætóskýlið fyrir mig eftir breytingarnar en áður var. Hins vegar hef
ég stundum farið í strætisvagninn með sonum mínum sem eru miklir
aðdáendur strætisvagnanna. Þá er það í þeim tilgangi að fara í hring-
ferð. Það er að segja, við förum ekki út úr honum fyrr en við erum komn-
ir heim aftur.“
Björn Ingi hefur skotið fram þeirri hugmynd að strætisvagnakerfið verði gert gjaldfrjálst.
Hljómsveitirnar á
Brit-verðlaununum
m
Hljómsveitin Coldplay hefur staðfest að hún komi fram á
Brit-verðlaunaafhendingunni á þessu ári. Aðrir sem koma
þar fram eru The Kaiser Chiefs, James Blunt, KT Tunstall,
Kelly Clarkson, Kanye West og Paul Weller koma þar einn-
ig fram. Weller mun fá sérstök heiðursverðlaun á hátíðinni
sem verður haldin þann 15. febrúar í Earl’s Court i Lund-
únum. Chris Evans mun verða kynnir, annað árið í röð.
Tilkynnt verður um tilnefningar til verðlaunanna á næstu
dögum.
Söngvari Spandau Ballet á sjúkrahús
Fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Spandau Ballet, Tony Hadley, er að jafna
sig á sjúkrahúsi í Lundúnum eftir að hann gekkst undir botnlangauppskurð.
Farið var með söngvarann í flýti á Whittington-sjúkrahúsið í norðurhluta
Lundúnaborgar síðastliðið laugardagskvöld, eftir að hann fór að
kvarta undan kviðverkjum. Umboðsmaður hans, John Glo-
ver, segir: „Hann verður á spítala í nokkra daga og við frest-
uðum öllu sem hann ætlaði að gera í janúar. Hann er í góðu
yfirlæti á sjúkrahúsinu og þótt hann sé svolítið dasaður líður
honum ágætlega.“ Hadley er að vona að hann nái að jafna sig
fyrir 30. janúar, en þá ætlaði hann að taka þátt í fjallgöngu
upp á Mount Roraima í Venesúela, í góðgerðarskyni.
Scarlett Johansson
útilokar ekki lýtaaðgerð
Scarlett Johansson er staðráðin í að berjast gegn öldrun með lýtaaðgerð, um leið
og fegurð hennar fer að dvína. Hin 21 árs gamla stjarna úr kvikmyndinni „Lost in
Translation“er alveg til í að gangast undir aðgerð ef á þarf að halda, en telur þó að
fegurðin geti líka komið innan frá. Hún segir: „Já, ég trúi svo sannarlega á fegrun-
araðgerðir. Mig langar ekkert til að líta út eins og gömul beygla, það er ekkert gam-
an. En ég held líka að ef maður er sáttur við sjálfan sig þá sé það kynþokkafullt.
Kannski finnst fólki ég einmitt vera kynþokkafull af þvi mér líður þannig.“
Alla virka daga
milli 17-18
XFM
FM91.9 EYKJAVIK
ókeypis til
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
eftir Jim Unger
Hvað á ég að banna þér oft að smella fingrum þegar
ég er að draga tennur úr sjúklingi undir dáleiðslu?
HEYRST HEFUR...
Sú saga gengur nú um bæ-
inn að eigendur DV ætli
að skipta um mann í brúnni
- þ.e.a.s. að fá nýjan mann til
að ritstýra hinu umdeilda blaði.
Nafn Eggerts Skúlasonar
hefur heyrst í þeirri umræðu ,
en hann hefur mikla reynslu
af fréttamennsku, meðal ann-
ars á gamla Tímanum og svo á
Stöð 2. Þegar Blaðið hafði sam-
band við Eggert í gær vegna
málsins sagði hann ekkert hæft
í þessari sögu. „Þó að mér væri
boðinn samsvarandi starfsloka-
samningur og Ragnhildur þá
myndi ég ekki fara þangað,“
sagði hann.
Sagt er að
maðurinn
læri svo lengi
sem hann
lifi. Það á svo
sannarlega við
um Thomas Möller athafna-
mann og bróður Ástu Möller,
þingmanns Sjálfstæðisflokks-
ins, sem flæktur var í samráðs-
mál Esso, Olís og Shell. Til að
koma öllu samráðinu í kring
var tölvupóstur óspart notaður.
I einum af tölvupóstum Thom-
asar lét hann þau fleygu orð
falla „að fólk væri fífl“ og átti
þar augljóslega við viðskipta-
vini olíufélaganna, sem létu
bjóða sér hverja verðhækkun-
ina á fætur annarri. Nú kennir
Thomas tímastjórnun, m.a. í
dagbók Odda fyrir árið 2006,
og segir þar að ekki skuli nota
tölvupóst fyrir viðkvæm gögn,
skamma- eða fúkyrðabréf.
Thomas hefði betur aflað sér
þessarar vitneskju fyrr.
Flosi Eiríksson, oddviti Sam-
fylkingarinnar í Kópavogi,
býður sig fram í fjórða sæti list-
ans í prófkjöri fyrir bæjarstjórn-
arkosningarnar
í vor. Flokkur-
inn er með þrjá
menn inni núna
þannig að það er
| óvíst að sjálfur
oddvitinn hljóti
kosningu. Bregð-
ist það telja margir að Flosi ætli
að hella sér út í landsmálapólit-
íkina að ári liðnu. Það er svo allt
annað mál hvort að það tekst.
Framsóknarmenn hafa ver-
ið duglegir
við aðkynnasigí
vikunni. Þannig
heimsækir þing-
flokkurinn tugi
fyrirtækja á höf-
uðborgarsvæð-
inuþar sem rætt
er við almenna
starfsmenn og stjórnendur. Til-
gangurinn er sá að kynna sér
atvinnulífið, auk þess sem pól-
itíkin verður ofarlega á baugi.
Halldór Ásgrímsson, formað-
ur flokksins, fer hins vegar
mjúku leiðina í kynningarátaki
sínu - heimsókn til 300 þúsund-
asta íslendingsins tryggði hon-
um forsíður og öruggt pláss á
öldum ljósvakans.