blaðið - 12.01.2006, Page 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 blaöi6
blaöi
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Lögmannafélag íslands:
Sjálfstæði lögmanna stefnt í voða
- segir formaður Lögmannafélags íslands. Lögmenn ekki sáttir við að Fjármálaeftirlitið
hafifengið heimild til að aflétta bankaleynd lögmannastofu.
Olíufélögin:
Bensínverð
hækkar
Olíufélögin Esso, Olís og Skeljungur
hækkuðu öll verð á bensíni hjá sér
í gær. Hjá Olís og Esso hækkaði lítr-
inn um tvær krónur en hjá Skeljungi
um i,8 krónur. Ástæðan er hækkun
oliuverðs á heimsmörkuðum. Atl-
antsolía hefur enn ekki gefið út
hvort að þeir muni hækka bensín-
verð hjá sér en að sögn talsmanna
er verið að fara yfir stöðuna og mun
ákvörðun verða tekin fljótlega. ■
Þróunarsamvinna:
Framlög aukin
Framlag Islands til þróunaraðstoðar
mun aukast um 0,16 prósentustig
sem hlutfall af landsframleiðslu á
næstu fjórum árum. Þetta kemur
fram í ársskýrslu Þróunarsam-
vinnustofnunar íslands. f dag nema
framlög úr ríkissjóði um 0,19% af
landsframleiðslu en samkvæmt
áætlunum mun hlutfallið verða
komið í 0,35% árin 2008 til 2009. Þá
kemur fram í skýrslunni að í krafti
aukinna fjárframlaga var stofnað
til þróunarsamvinnu við tvö lönd
til viðbótar á árinu þ.e. Sri Lanka og
Nikaragúa. ■
Úrskurður Héraðsdóms Reykja-
víkur frá því í nóvember á síðasta
ári þar sem Fjármálaeftirlitinu
(FME) var heimilað að aflétta banka-
leynd lögmannastofu getur skaðað
sjálfstæði lögmanna segir formaður
Lögmannafélags íslands. Fjölmargir
reikningar tengdust alls ekki rann-
sókn málsins.
Óheiðarlegt og rangt
Bankaleynd var aflétt af reikningum
lögmannsstofunnar Lögmenn Laug-
ardal ehf. í nóvembermánuði síð-
astliðnum vegna rannsóknar FME
á stofnfjárviðskiptum í Sparisjóð
Hafnarfjarðar (SPH). Ríkislögreglu-
stjóri hefur nú öll þau gögn undir
höndum en eigendum lögmanna-
stofunnar barst engin tilkynning
né vitneskja að þessi heimild hefði
verið gefin. Brynjar Níelsson, lög-
maður lögmannsstofunnar Lög-
menn Laugardal, segir að FME
hafi með aðgerð sinni brotið lög og
krafðist þess fyrir Héraðsdómi í gær
að ríkislögreglustjóra væri óheimilt
Lögmannafélag (slands fundaöi sérstaklega um málið í gærkvöldi..
BlaiiöAteinarHugi
að nota þau gögn sem hald var lagt
á við rannsókn málsins. „Við erum
ósáttir við þessa aðgerð og teljum
hana vera óheiðarlega og ranga. Það
er alls staðar klúður í þessu máli.
I fyrsta lagi að biðja um þetta. I
öðru lagi að veita þetta og svo það
að bankinn skuli láta þetta yfir sig
ganga. Bankinn gat neitað þessu og
látið málið fara upp í Hæstarétt.“
Samband við skjólstæðinga
Helgi Jóhannesson, formaður Lög-
mannafélags Islands, telur að FME
hafi ekki heimild til að fara inn á
umrædda reikninga og segir að
þessi aðgerð hafi skaðað sjálfstæði
lögmanna og samband þeirra við
skjólstæðinga sína. „Mín afstaða er
sú að það beri að standa vörð um
sjálfstæði lögmanna og þegar svona
eftirlitsstofnanir og rannsóknarað-
ilar eru að beita úrræðum sem þeir
hafa þá verður lögmaður að fá að
koma að því máli. Hann þarf að fá
tækifæri til að sinna hagsmunum
sinna skjólstæðinga. Þarna er það
lannig að lögmaður veit ekkert af
iví að það er svipt bankaleynd af
lessum reikningum." Þá gagnrýnir
Helgi það bankaleyndinni hafi
verið svipt af öllum reikningum
lögmannastofunnar jafnvel þó þeir
tengdust ekki rannsókn málsins.
,Við metum mikið trúnaðarsamband
okkar við skjólstæðingana og í þessu
tilviki er það samt þannig að þarna
er bankanum veitt heimild til þess
að varpa bankaleyndinni af öllum
bankareikningum stofunnar vegna
fimm milljóna eða meira sem gæti
fræðilega séð verið meirihlutinn af
viðskiptavinunum stofunnar. Mér
finnst skrítið að bankinn hafi ekki
spyrnt við fótum til að þess að halda
uppi rétti síns viðskiptavinar.“ ■
Farsóttafréttir:
Átta HlV-smit
greindust í fyrra
Bólusetning gegn hettusótt gefur góða raun
Alls greindust átta einstaklingar
með HlV-smit á íslandi í fyrra. Af
þeim sem greindust voru fimm
karlar en þrjár konur. Alls hafa 184
einstaklingar greinst með sjúkdóm-
inn hér á landi frá upphafi. Þetta
kemur fram í Farsóttarfréttum sem
sóttvarnarlæknir sendi frá sér í gær.
Þar segir að þetta sé í „samræmi við
þróun undanfarinna ára sem bendir
til takmarkaðrar útbreiðslu HIV-
smits hér á landi”.
Má bjóða þér í te?
4 glænýjar, ilmandi og dásamlegar gerðir af
Zhena's GypsyTea.
Kynning \
Fjarðarkaupum
í dag
Fimmtudag 12. og
föstudag 13 jan.
kl. 15 - 18
Talið er að fimm hinna smituðu
hafi verið gagnkynhneigðir en að
þrír hafi verið samkynhneigiðir
karlar. Sérstaklega er tekið fram í
Farsóttarfréttunum að enginn fíkni-
efnaneytandi hafi greinst með HIV
smit á árinu.
Hettusóttarfaraldur (rénum
Nokkuð hefur verið um hettusótt-
arfaraldur að undanförnu, þar sem
meirihluti þeirra sem sýktust voru
ungmenni á aldrinum 20 til 24 ára.
í nóvembermánuði síðstliðnum
greindust 20 einstaklingar með sjúk-
dóminn, en það voru flest greind til-
felli í einum mánuði á síðasta ári. I
næsta mánuði á eftir dró hinsvegar
mjög úr greindum tilfellum, þegar
10 einstaklingar greindust með sjúk-
dóminn. Ástæðu fyrir þessum sam-
drætti er talið að sóttvarnarlæknir
hvatti ungmenni fædd á árunum
1981 til 1985 að láta bólusetja sig gegn
sjúkdómnum.
„Margir brugðust skjótt við
þessum tilmælum og í desember-
mánuði 2005 voru mjög margir ein-
staklingar bólusettir þótt nákvæm
tala sé ekki fyrirliggjandi” segir í
Farsóttarfréttum. Ennfremur er
tekið fram að vonir standi til um að
með bólusetningarátakinu hafi tek-
ist að hefta útbreiðslu faraldursins.B
Fœreyskur togari í íslenskri
lögsögu:
Staðinn að
meintum ólög-
legum veiðum
Flugvél Landhelgisgæslunnar stóð
færeyskan togara að meintum
ólöglegum veiðum í íslensku efna-
hagslögsögunni, rétt innan við
miðlínuna milli Islands og Færeyja
í síðustu viku. Deilur hafa staðið
um legu miðlínunnar. Færeyski tog-
arinn var 1,9 sjómílur fyrir innan
íslensku lögsögumörkin samkvæmt
færeyskri túlkun en 8,4 sjómílur
samkvæmt íslenskri túlkun. Ekki
var hægt að færa togarann til hafnar
þar sem Landhelgisgæslan var ekki
með varðskip á svæðinu. Áhöfn
flugvélarinnar reyndi ítrekað að
ná sambandi við togarann með fjar-
skiptum og ljósmerkjum en fékk
ekkert svar. Auk þess að hafa ekki
leyfi til að veiða í íslenskri lögsögu,
vanrækti togarinn tilkynninga-
skyldu og braut með því gegn lögum
um veiðar og vinnslu erlendra skipa
í fiskveiðilandhelgi íslands.
Ákveðið var að óska eftir aðstoð
lögregluyfirvalda í Færeyjum við
rannsókn málsins með milligöngu
Ríkislögreglustjóra. Málið var sent
til Færeyja aðfararnótt 6. janúar
sl. fyrir milligöngu alþjóðadeildar
Ríkislögreglustjórans og er til rann-
sóknar hjá lögreglunni í Þórshöfn.B
UTSflLfl
ÚTSflLfi
ÚTSHLfl
15-50%
ÚTSfllfl
ÚTSflU)
Opnunartími
11-18virkadaga
11-14 lau
www.ynja.is Hamraborg7 Kópavogi Sími 544 4088
O Heiðskirt (3 Léttskýjað Skýjað ^ Alskýjað
Rigning, litilsháttar //' Rignlng 2 9 Súld Snjókoma
2 *
SJJ Slydda SJJ
Snjóél
Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
NewYork
Oriando
Osló
Parls
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vln
Algarve
Dublin
Glasgow
04
10
03
03
03
03
01
04
06
08
12
05
08
14
03
07
03
08
-03
14
10
09
*
*
*
2°
///
^-6°
-3° *
*
cf
// /
4°/ / /
/ //
%
2°
//
///
// /
///
3°///
*
-3°
*
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands
,2.V
** V
///