blaðið - 12.01.2006, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 blaöiö
Hvalfjörður:
Byggja þarf ný göng
segir stjórnarformaður Spalar. Umferð ígegnum göngin hefur verið mun meiri en áœtlanir
gerðu ráðfyrir.
Stjórnarráðið:
Heilbrigðisráðu-
neytið dýrast,
Hagstofan
ódýrust
Áætluð útgjöld Heilbrigðisráðu-
neytisins á þessu ári munu nema
rúmum 126 milljörðum króna
samkvæmt nýjustu áætlunum sem
birtar voru á heimasíðunni www.
rikiskassinn.is í gær. Útgjöld þess
nema rúmlega 42% af heildarút-
gjöldum allra ráðuneytanna saman-
lagt. Menntamálaráðuneytið kemur
í öðru sæti með rúman 41 milljarð
króna, eða tæp 14% allra útgjalda.
Ódýrasta ráðuneytið er Hagstofa
íslands, en áætluð útgjöld þess eru
um 656 milljónir króna, sem er um
0,2% heildarúgjalda ráðuneytanna
allra. Næst ódýrast er forsætisráðu-
neytið með með rúman 1.1 milljarð
króna og í þriðja neðsta sæti er
viðskiptaráðuneytið með útgjöld
upp á um 1,4 milljarð króna.
I ráðuneytunum landsins,
sem eru fjórtán talsins, starfa
um 500 manns sem er um 2,5%
af fjölda ríkisstarfsmanna. ■
Gera verður ný Hvalfjarðargöng til
að koma til móts við aukinn um-
ferðarþunga á svæðinu segir Gísli
Gíslason, stjórnarformaður Spalar
ehf., rekstrarfélags Hvalfjarðar-
ganga. Umferð í gegnum göngin
jókst um 13% á síðasta ári.
Umferðin aukist jafnt og þétt
Allt útlit er fyrir það að Hvalfjarð-
argöngin muni sprengja flutn-
ingsgetu sína innan skamms. Að
meðaltali keyra um 4.500 bílar í
gegnum göngin á degi hverjum
en hönnunarforsendur gera ráð
fyrir 5.000 bílum. Samkvæmt
Marínó Tryggvasyni, aðstoðar-
framkvæmdastjóra Spalar, hefur
umferð aukist jafnt og þétt frá því
að göngin voru opnuð árið 1998. I
fyrra nam aukningin um 12 til 13%
en alls fóru þá rúm 1,6 milljón bíla
í gegnum göngin. Marínó segir að
þegar sé byrjað að vinna að bygg-
ingu nýrra ganga en að sú vinnsla
sé enn á frumstigi. „Málið er ennþá
á frumstigi en menn eru farnir að
hugsa fyrir þessu því það þarf að
fara gera eitthvað.“
Samsíða göng
Gísli Gíslason, stjórnarformaður
Spalar, segir að auka verði flutn-
ingsgetu Hvalfjarðarganga þar sem
að öðrum kosti sé hætta á því þau
hamli eðlilegri umferð. „Ef vöxtur-
inn verður í einhverjum takti við
það sem er meðaltalið frá upphafi
opnunar ganganna þá mun afkasta-
geta verða þröskuldur á umferðina.
Eg hef sagt að það væri ekki óeðli-
legt að með einhverjum aðgerðum
yrði stefnt að því að árið 2008 til
2010 lægi fyrir aukning í afkasta-
getu og þá hefur m.a. hefur verið
horft til þess að leggja önnur sam-
síða göng að sunnanverðu.“ Gísli
segir að ekkert liggi fyrir enn sem
komið er enda sé vinna rétt að
hefjast. „Þetta er rétt að mjakast
af stað og nokkuð langt í það að
menn hafi þetta á borðinu. Menn
eru bara að skoða hvernig sé hægt
að leysa þetta og hvað þetta kemur
til með að kosta o.s.frv. en gróflega
áætlað geri ég ráð fyrir því að bygg-
ing nýrra ganga gætu kostað á bil-
inu 1,6 til 1,8 milljarð króna.“ ■
Blaíií/SteinarHugi
Umferðarteppur gætu orðið tíðari við Hvalfjarðargöngin ef flutningsgeta þeirra verður
ekki aukin.
Landssamband lögreglumanna:
Mótmælir breytingum
á umferðarlögum
Brandenborgarhliðið í Berlfn og nánasta umhverfi var sett f nýjan búning af Ijóslista-
manninum Karli Feldman f tilefni af Grænu vikunni, matvælasýningunni þar sem
fslenskri matargerðarfist er gerð sérstök skil.
Landkynning:
Berlínarbúum kynnt
íslensk matargerðarlist
Landssamband lögreglumanna mót-
mælir harðlega fýrirliggjandi frum-
varpi til breytinga á umferðarlögum
sem það telur geta haft slæm áhrif á
löggæslumál á landinu. Samkvæmt
frumvarpinu fá starfsmenn Vega-
gerðarinnar heimild til að stöðva
ökutæki og sinna margþættu eftir-
liti með ökutækjum og ökumönnum.
Þeim verður heimilt að banna för
ökutækis ef þeir gruna að alvarleg
brot hafi átt sér stað til að hindra
áframhaldandi brot þar til lögregla
kemur á vettvang.
1 tilkynningu frá Landssambandi
lögreglumanna segir að ekki þurfi
að velkjast í vafa um að með þessari
breytingu á umferðarlögum muni
starfsmönnum Vegagerðar verða
veitt víðtækt lögregluvald og illskilj-
anlegt hvernig tillögur að svo van-
hugsuðum lagabreytingum komi til.
Landsambandið bendir jafnframt
á að á undanförnum vikum hafi
forsvarsmenn ýmissa fyrirtækja
er frumvarpið varðar lýst yfir and-
stöðu við að Vegagerðin eigi í enn
frekara mæli að taka við hlutverki
lögreglu. Þeir telja sig eiga rétt á að
faglegu eftirliti verði sinnt af lög-
reglu en ekki af ófaglærðum starfs-
mönnum Vegagerðarinnar. ■
Sendiráð íslands í Berlín stendur
þessa dagana fyrir kynningu á ís-
lenskri matargerðarlist i tengslum
við Grænu vikuna, eina stærstu
matvælasýningu heims, sem haldin
er árlega í Berlín. Á íslensku mat-
arkynningunni, sem stendur út
mánuðinn, verður kynnt íslenskt
sjávarfang, bleikja, lambakjöt, skyr
og skyrtertur, ostar og ostakökur,
konfekt og vatn.
Matarkynningin stendur yfir á
tveimur þekktum veitingahúsum
í Berlín. Þessa vikuna stendur svo
HELGARVEISU
fyrir 4 til 6
kr. 2.490
QuiznosSuB
HMMM...OLÓÐAOUR
Lækjargata 8
Suðurlandsbraut 32
Islensk vika í veitingasal norrænu
sendiráðanna í Berlín, en þar fram-
reiðir Friðrik Sigurðsson, meist-
arakokkur utanríkisráðuneytisins,
við hlið Kenneth Gjerrud, norsks
matreiðslumeistara matsalarins, ís-
lenska rétti, allt frá fiskibollum til
íslenskrar kjötsúpu og frá bláberja-
skyri til rjómaostaköku.
I dag býður Einar K. Guðfinnsson,
sjávarútvegsráðherra, svo til opn-
unarmóttöku í tilefni af íslenskum
vikum á veitingastaðnum Sachs,
sem staðsettur er í hjarta fyrrum
Vestur-Berlínar. Þar hefur Árni
Siemsen, íslenskur veitingastjóri
Sachs, yfirumsjón með matarkynn-
ingunni til mánaðamóta.
Sendiráðið, í samstarfi við Frið-
rik Sigurðsson og Árna Siemsen,
stendur í dag einnig fyrir sérstakri
kynningu á íslenskum matvælum
fyrir valinn hóp meistarkokka í
Berlín 12. janúar. Sumar vörurnar
eins og sjávarfang hafa verið fluttar
út til Þýskalands um árabil, en fyrir-
hugað er að aðrar muni koma inn á
markaðinn á næstu mánuðum eins
og lambakjöt, skyr, eldisbleikja og
vatn. ■
Bráðabirgðatölur
Fiskistofu:
Heildarafli
minnkar
Heildarafli ársins 2005 var 1.667.287
tonn samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskistofu. Það er 61 þúsund tonnum
minni afli en árið áður. 157 þúsund
tonnum minni kolmunnaafli skýrir
þennan samdrátt segir í tilkynningu
ff á Fiskistofu. Á móti aflasamdrætti
í kolmunna vó 80 þúsund tonna
aukning í loðnuafla og 40 þúsund
tonna aukning í síldarafla á árinu. Afli
íslenskra skipa í desember 2005 var
tæplega 72 þúsund tonn en aflinn var
85 þúsund tonn í desember 2004. Sam-
dráttur afla milh ára stafar af minni
afla uppsjávartegunda. Vegur þar mest
rúmlega 8 þúsund tonna samdráttur
í sfldarafla. Hins vegar veiddust rúm-
lega 9 þúsund tonn af loðnu við loðnu-
leit í desember 2005, sem er meiri
loðnuafli en fékkst í desember 2004. ■
öryggismál:
Tvö ný björgun-
arskip sjósett
Slysavarnafélagið-Landsbjörghefur
sjósett tvö ný björgunarskip sem
félagið keypti frá breska sjóbjörg-
unarfélaginu RNLI. Þau munu
koma í stað eldri skipa félagsins á
Vopnafirði og Siglufirði. Skipin eru
18 ára gömul en voru endurbyggð
fyrir um 3 árum. Skipin eru af
gerðinni Árun og hefur Slysavarna-
félagið-Landsbjörg nú 11 slík skip
í þjónustu sinni. I tilkynningu frá
félaginu segir að skip af þessari
gerð hafi reynst vel hér við land, séu
hagkvæm í rekstri og vel búin til
björgunarstarfa. Ennfremur segir
í tilkynningunni að það auðveldi
mjögþjálfun skipverja að skipin
séu eins en Slysavarnaskóli Sjó-
manna sér um samræmda þjálfun
áhafna björgunarskipa félagsins. ■
Janus ullarvörumar eru sérlega vandaðar og má þvo í þvottavél
Útsalan í fullum gangi
20-60% afsl.
Eigum einnig stórar stærðir Sendum um allt land
Barónsstíg 3 S. 552 7499 Opið: Virka daga 10 til 18 • Lau 10 til 16
M^ljL...
I islenskl
Betra skipu/ag á nýju árí!
(rífstofuvörum frá Múlalundi
..„0 Shrifborðs Mo ttur ]
kr
t
MULALUNDUR
Vinnustofa SlBS
V Hátúni lOc • S: 562-8500 * Fax: 552-8819 • www.