blaðið - 12.01.2006, Qupperneq 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 blaöi6
Ályktun Blaðamannafélags íslands:
Ber að starfa
í samræmi
við siðareglur
félagsins
Stjórn Blaðamannafélags Islands
fundaði í gær vegna máls karl-
manns sem framdi sjálfsvíg í
kjölfar umfjöllunar um meint
kynferðisbrot hans gegn ungum
Eiiltum. Stjórn Blaðamannafélags
slands harmar þann atburð sem
leitt hefur til umræðu um vinnu-
brögð og ritstjórnarstefnu DV.
Stjórnin leggur áherslu á að í
siðareglum BÍ stendur að blaða-
menn skuli sýna íyllstu tillitssemi
í vandasömum málum, forðast
allt, sem valdið geti saklausu fólki,
eða fólki sem á um sárt að binda,
óþarfa sársauka eða vanvirðu.
Ritstjóri DV hefur áður lýst því
að blaðið fari eftir eigin siðareglum
þótt þær stangist á við siðareglur
BÍ. Þetta telur stjórn Blaðamannafé-
lagsins ótækt, og álítur að hverjum
blaðamanni sé skylt að starfa í
samræmi við siðareglur félagsins.
Áfengisverð:
Hið opinbera
heldur áfengisverði uppi
Þrátt fyrir hagstœða gengisþróun hefur verð á áfengi ekki lœkkað. Ástœðan sögð vera
undarleg skattlagning hins opinbera.
Verð á áfengi, hvort sem um er að
ræða sterk eða létt vín, hefur lítið
sem ekkert breyst undanfarna mán-
uði, þrátt fyrir að staða íslensku
krónunnar hefur styrkst verulega.
Það þýðir að hver flaska kostar
færri krónur í innkaupum til lands-
ins og eðlilegt væri að ætla að slíkt
myndi skila sér til neytenda. Svo er
hinsvegar ekki og er fulltrúi ÁTVR
sammála fulltrúa innflytjenda um
að ástæðunnar sé ekki að leita hjá
innflytjendum, heldur í undarlegri
skattlagningu ríkisins. Hún valdi
því að verðbrey tingar á víni erlendis,
sem og lægra innkaupaverð skili sér
ekki í lægra vöruverði til íslenskra
neytenda.
Algengt áfengisgjald
rúmar 400 krónur
Verðlagning á áfengi byggir upp á
nokkrum hlutum. I fyrsta lagi er
það áfengisgjald, sem er ákveðin
krónutala íyrir hvert prómill af
áfengi. Af léttvíni er algengt gjald á
bilinu 400 til 450 krónur. Ofan á það
kemur síðan álagning ÁT VR sem og
virðisaukaskattur. Ágúst Hafberg,
framkvæmdastjóri vörusviðs ÁTVR
segir að dæmið geti litið út á eftirfar-
andi hátt. Léttvínsflaska er keypt á
750 krónur til verslunarinnar. Þar af
er áfengisgjaldið 450 krónur, en inn-
flytjandi fær 300 krónur fyrir flösk-
una. Með álagningu og vsk. kostar
flaskan út úr búð 1.055 krónur. Ef
innflytjandinn myndi lækka sitt
gjald um 10% myndi flaskan hins-
vegar aðeins lækka um 42 krónur,
eða niður í 1.013.
„Af því að áfengisgjadið er hærra
en innkaupsverðið er 10% hækkun
á innkaupsverðinu ekki að skila sér
í 10% lækkun á útsöluverði”, segir
Ágúst.
Lítil framlegð
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra stórkaup-
manna segir framlegð innflytjanda
af 1000 króna léttvínsflösku sé á bil-
inu 50 til 70 krónur.
„Það sér hver maður að það er ekki
mikið rými til verðbreytinga þó
að það verði til að mynda einhver
breyting á gengi krónunnar” segir
Andrés. Hann bendir á að tæp 70%
af útsöluverði sterkra vína gangi
Blaöiö/Steim Hugi
Gengisbreytingar upp á jafnvel tugi prósenta skilar sér ekki í lægra áfengisverði til
íslenskra neytenda. Föst upphæð áfengisgjalds hefur þarna mikið að segja.
beint í ríkissjóð í formi ýmis konar
skatta og að á meðan áfengisgjald
sé reiknað út á þennan hátt verði
staðan óbreytt. „Það kemst ekkert
vit í þennan markað fyrr en áfengis-
gjald verður lækkað verulega, það
er grundvallaratriði þessa máls. Við
höfum eytt miklu púðri í að benda á
að svona verðpólitík standist ekki”,
segir Andrés.
Hann segir ennfremur að óform-
leg verðkönnun á verði tuttugu vína
sem keypt eru inn í dollurum hafi
leitt í ljós að um helmingur þeirra
hafi lækkað óverulega í verði hér á
landi milli ára. Þrjú hafi hækkað en
verð sjö vína hafi staðið í stað. Þau
vín sem hafi lækkað séu aðallega
dýr vín, en hlutfall áfengisgjaldsins
í heildarverði þeirra sé lægra en í
verði ódýruvínanna.
íbúðalánasjóður:
Heildarútlán
umfram áætlanir
Utsala!
enn meiri verðlækkun
Flottur fatnaður frá kr. 350.-
Leikföng, Ijós, verkfæri, gjafavara,
skartgripir, fæðubótarefni ofl. ofl.
JBp It f| Austurhrauni 3, Gbæ/KAYS
|J l^f I www.bmagnusson.is
B.MAGNUSSON hf. Opið 10-18 og lau 11-14
Útlán íbúðalánasjóðs jukust um 26%
í desembermánuði síðastliðnum
miðað við sama mánuð í fyrra.
Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu
Ibúðalánasjóðs fyrir desember 2005.
Þá nam heildarútgáfa sjóðsins í
útboðum íbúðabréfa á síðasta ári
um 47 milljörðum.
5 milljarðar í desember
I desembermánuði síðastliðnum
námu heildarútlán Ibúðalánasjóðs
5 milljörðum en alls lánaði sjóður-
inn 17,1 milljarð króna á fjórða árs-
fjórðungi síðastá árs. Heildarútlán
sjóðsins árið 2005 voru 73,7 millj-
arðar sem er eilítið yfir væntingum,
en áætlanir höfðu gert ráð fyrir að
heildarútlán yrðu 72,6 milljarðar.
Þar af tilheyrðu 68 milljarðar svo-
kölluðum almennum lánum en 5,6
milljarðar leiguíbúðalánum.
Fjármögnunarkjör versna
Fram kemur í skýrslunni að fjár-
mögnunarkjör sjóðsins hafi versnað
á undanförnum mánuðum. Ávöxt-
Heildarútlán Ibúöalánasjóös áriö 2005
námu 73,7 milljörðum.
unarkrafa íbúðarbréfa var 4,1 til
4,3% eftir flokkum bréfa. Hækkun
Seðlabanka íslands á stýrivöxtum
í desember var nokkuð undir vænt-
ingum og því lækkaði ávöxtunar-
krafa íbúðabréfa lítillega í kjölfarið
en það hafi síðan gengið til baka. Þá
segir að heildarvelta íbúðabréfa á síð-
asta ári hafi verið góð og numið um
66% af heildaraveltu skráðra skulda-
bréfa í Kauphöll Islands og ríflega
30% af skráum verðbréfum.
Sjávarútvegur
Loðnan fundin
Loðnubáturinn Guðmundur
Ólafur ÓF-91 kom til hafnar í gær
með fullfermi af loðnu. Megnið af
loðnunni, sem fékkst í fjórum hölum
í fyrradag, fannst um 70 sjómílur
norðaustur af Hraunhafnartanga.
Leit að loðnu hefiir staðið um
nokkurn tíma, og voru menn
orðnir svartsýnir á að hún fyndist
yfirleitt. Hún virðist hins vegar
vera að ganga inn í lögsöguna fyrir
norðan land um þessar mundir.
Árekstur
vörubíla
Vörubíll rann á annan á Krýsu-
víkurvegi í grennd við malar-
námurnar í Vatnsskarði síðdegis
i gær. Draga þurfti annan bílinn
mikið skemmdan af vettvangi
en ökumaður hans var fluttur
á slysadeild til aðhlynningar.
Nokkur hálka var á veginum þegar
áreksturinn varð og er talið að
hún hafi átt sinn þátt í honum.
Þá varð umferðarslys við
brúna í Hnífsdal á fjórða tím-
anum í gær. Bíll sem var á leið
ffá Isafirði mun hafa runnið til í
hálku með þeim afleiðingum að
hann lenti á stólpa brúarinnar.