blaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 8
8 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 I blaóiö
Lögmenn:
Teljaskrif DV
varða við lög
Lögmennirnir Sigríður Rut
Júlíusdóttir og Sveinn Andri
Sveinsson, sem Blaðið ræddi við
í gær, telja einsýnt að forsíðu-
fregn DV um mann, sem framdi
sjálfsmorð í kjölfar umfjöllunar-
innar, hafi brotið í bága við lög.
„Mér sýnist að þessi fréttaflutn-
ingur hljóti að vera brot á hegn-
ingarlögum um ærumeiðingar
og friðhelgi einkalífsins," segir
Sveinn Andri Sveinsson. „Þar vega
væntanlega þyngst ákvæði um
rangar sakargiítir, því hver maður
er saklaus uns sekt hans er sönnuð.
f þessu tilfelli verður málið aldrei
upplýst, því rannsókninni er
sjálfhætt þegar sakborningur deyr.
Hann verður því aldrei sakfelldur,
er með öðrum orðum saklaus og
því stendur fréttaflutningurinn
eftir sem rangar sakargiftir."
Sigríður Rut tekur í sama streng,
en telur erfitt að segja til um það
hvort einhver eftirmál verði. „En
hér ræðir um fébótaábyrgð, refsi-
ábyrgð og siðferðislega ábyrgð. Ég
held við þurfum ekkert að ræða
um siðferðislega ábyrgð í málinu,
hún liggur í augum uppi. Fébóta-
ábyrgðin kynni að vera vegna
ærumeiðinga, en það er spurning
hvort hún flyst til ættingja eftir
að maðurinn deyr. Hins vegar er
tómt mál að tala um refsiábyrgð
vena þess að blaðið hafi hvatt til
sjálfsvígs með skrifum sínum.
Til þess þyrfti að sanna ásetn-
ing í málinu. Það er útilokað.“
Þau Sigríður og Sveinn Andri
minna á að ritstjóri DV, Jónas Krist-
jánsson, hafi haldið áfram á sömu
braut í viðtali í Blaðinu í gær, eftir
að maðurinn lést. Telja þau með
þeim orðum grundvöll til þess fyrir
ættingja mannsins að höfða mál
vegna þess að þar hafi verið vegið
að minningu hins látna og æru.
Sveinn Andri Sveinsson telur að
boltinn sé nú hjá eigendum DV,
fýrst ritstjórar þess sjái ekki að sér.
,En sem gamall blaðamaður get ég
nú sagt að svona skrif koma blaða-
mennsku nákvæmlega ekkert við.“
Sóknarpresturinn á ísafirði
„Hér ríkir
mikil sorg í dagu
Líkt og kemur fram annarsstaðar
í Blaðinu eru ísfirðingar almennt
slegnir yfir viðburðum síðustu
daga. Sr. Skúli Ólafsson, starfandi
sóknarprestur á fsafirði, staðfesti
þetta í samtali við Blaðið, en vildi'
ekki tjá sig um málið að öðru leyti.
,Hér ríkir mikil sorg í dag, víða
er flaggað í hálfa stöng og fólki er
brugðið," sagði Sr. Skúli Olafsson.
Þórdís J. Sigurðar-
dóttir, stjórnarfor-
maður Dagsbrúnar
Dagsbrún:
Stjórnarmenn
vilja ekki
ræða DV
Þórdís J. Sigurð-
ardóttir, stjórn-
arformaður
Dagsbrúnar,
móðurfélags
dagblaðsins DV,
sendi tilkynn-
ingu frá sér í
gær, þar sem
hún sagði að
stjórn félagsins
myndi „ræða
þá umíjöllun
sem átt hefur sér stað undanfarna
daga um DV“ á stjórnarfundi á
morgun. Ekki reyndist unnt að
ná tali af Þórdísi eða Gunnari
Smára Egilssyni, forstjóra Dags-
brúnar, en þau eru saman á ferð
erlendis í erindum Dagsbrúnar.
Þeir stjórnarmenn Dagsbrúnar,
sem Blaðið náði tali af vildu sem
minnst tjá sig og töldu rétt að
stjórnin kæmi saman fyrst og í fram-
haldinu myndi álit hennar og vilji
koma fram í stjórnarsamþykktum.
Davíð Scheving Thorsteins-
son, stjórnarmaður í Dagsbrún,
sagði að hann vildi ekki ræða
fréttaflutning og efnistök DV á
opinberum vettvangi. „Það gerum
við á föstudaginn, þessi sjö manna
hópur og þá kemur í ljós hvað er
til ráða. Ég bíð bara eftir minni
skoðun, eins og maðurinn sagði.“
Ari Edwald, sem senn tekur við
forstjórastöðu Dagsbrúnar, kvaðst
vissulega hafa skoðun á þeirri stöðu,
sem upp væri komin. Hann vildi
hins vegar ekki ræða það, enda
tæki hann ekki við störfum fyrr en
í. febrúar. „Ég mun ekki láta uppi
neina skoðun á störfum eða stefnu
fyrirtækisins fyrr en mér hefur
gefist tími til þess að kynna mér
fyrirtækið eftir að ég kem þangað til
starfa. Ég hugsa að ég gefi mér tíma
til þess að hlusta og læra áður en
ég fer að gefa miklar yfirlýsingar.“
Kauphöllin:
Hlutabréf
Dagsbrúnar
féllu mest
Gengi hlutabréfa Dagsbrúnar, móð-
urfélags DV, féll um 3,17% í Kauphöll
fsland í gær á sama tíma og Úrvals-
vísitalan steig um 0,22%. Dagsbrún
féll langmest allra hlutabréfa í Kaup-
höllinni, en næstmesta lækkunin var
hjá Össuri og nam hún 0,85%. Að
þessu leyti virðist markaðurinn hafa
tekið mjög við sér vegna neikvæðrar
umræðu um DV undanfarin dægur.
Blaðamenn DV voru í þungum þönkum þegar þessi mynd var tekin í gær, en Ijósmyndara Blaðsins var meinaður inngangur á ritstjórn-
arskrifstofurnar við Skaftahlíð. Athygli vakti í gær að ritstjórarnir vildu ekki veita systurmiðli sínum Nýju fréttastöðinni (NFS) viðtal og
sendu fréttamönnum þar raunar tóninn.
Umsátursástand á DV
BlaðiÖ/Steinar Hugi
Isfirðingar slegnir
Almenn reiði ígarð DV
f sfirðingar eru slegnir í kjölfar
atburða þriðjudagsins, er karl-
maður á sextugsaldri þar í bæ
svipti sig lífi sama dag og mynd
af honum birtist á forsíðu DV
sakaður um nauðgun. Víða er
flaggað í hálfa stöng og viðmæl-
endum Blaðsins þar í bæ ber
saman um að mikil sorg ríki í
bæjarfélaginu öllu og fólki sé
almennt brugðið.
Einn viðmælandi Blaðsins á fsa-
firði sagði að bæjarbúar væru orð-
lausir, vissu vart hvaðan á sig stæði
veðrið og bætti því við að DV hafi
endanlega gengið of langt. „Þeir
birtu bæði mynd og nafn án þess
að búið væri að sanna sök hans
að nokkru leyti. Það þekktu allir
þennan mann í bænum og það hefur
áhrif. Ég er reið við DV, mun ekki
snerta það héðan af og veit af fjölda
annarra á sömu skoðun," sagði kona
á fimmtugsaldri sem ekki vildi láta
nafns sins getið. „Svona vinnubrögð
eru óþolandi. Menn spyrja sig, hvað
kemur næst - hverju getum við
átt von á úr þessari átt í kjölfarið?"
sagði annar bæjarbúi.
„Þvert um geð að selja svona blöð"
Jónas Gunnlaugsson, bóksali í Bók-
hlöðunni á ísafirði, segist hafa hætt
sölu á DV fyrir nokkru og telur
atburði síðustu daga staðfesta þá af-
stöðu hans. „Ég sel ekki Dagblaðið
og hef ekki gert í nokkurn tíma, því
mér er einfaldlega þvert um geð að
selja svona blöð. Eg er mjög ánægður
með þá afstöðu mína núna og þetta
staðfestir að ákvörðunin var rétt,“
sagði Jónas.
Gísli Úlfsson, framkvæmdastjóri
Formenn þingflokka á Alþingi
sendu í gær frá sér tilkynningu þar
sem tekið var undir ályktun ung-
liðahreyfinga stjórnmálaflokkanna
þar sem því var beint til ritstjórnar
DV að endurskoða ritstjórnarstefnu
sína. Enginn var þó jafnberorður í
gagnrýni sinni og Hjálmar Árnason,
þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins, sem sagði á heimasíðu
sinni í gær, að myndbirting DV í gær
verslunarinnar Hamraborgar á ísa-
firði, segir að verslunin hafi til þessa
ekki ritskoðað neysluvenjur kúnna
sinna og muni ekki taka upp á því
nú. „Við látum okkar kúnna um
að ákveða hvað þeir vilja, þótt við
hvetjum engan til þess að lesa DV.
Við tókum hinsvegar blaðið úr sölu
í gær, þar sem okkur þótti fréttin
óviðeigandi.“
af grunuðum manni með viðeig-
andi fullyrðingum hafi reynst vera
dauðadómur án réttarmeðferðar
eða laga. Spurði Hjálmar hvernig
ritstjóri, eigendur, auglýsendur og
kaupendur blaðsins hyggist axla
sína ábyrgð á málinu, hvernig
íslenskir neytendur bregðist við og
hvernig blaðamannastéttin hyggist
bregðast við. Grein Hjálmars er í
heild sinni á síðu 16 í Blaðinu í dag.
Hjálmar Árnason:
Segir skrif DV
dauöadóm
UTSALA UTSALA
Dömugallabuxur
^ttUortatin'a
frá 990.- ksS
$
Fálkahúsinu • Suðurlandsbraut 8 • www.cogc.is • opið: 10-18 virka daga • lau: 11-17 • S. 554 0655