blaðið - 12.01.2006, Qupperneq 20
20 I FYRIR KONUR
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 blaöiö
Kynhegðun og klámnotkun
Konur kœra
sig ekki um klám
Undanfarna mánuði og jafnvel
ár hefur verið sífelld umræða um
klámvæðingu og þá sérstaklega i
tengslum við svokallaða klám-
kynslóð. Hæst hefur þar farið
umræða um að ungum stúlkum
hefur verið þröngvað til munn-
maka, jafnvel sem aðgangseyrir í
partý. Guðbjörg Hildur Kolbeins
fjölmiðlafræðingur kennir nám-
skeið í Háskóla Islands sem ber
heitið Klám og ofbeldi i mynd-
miðlun og hennar reynsla er sú
að flestar konur kæra sig ekkert
um klám.
Guðbjörg talar um að konur og
karlar hafa öðruvísi viðhorf gagn-
vart klámnotkun. „Samkvæmt Ira
Reiss, fyrrum prófessor í félags-
fræði við Háskólann í Minnesota,
er ástæða þess að við höfum ólík
viðhorf gagnvart klámnotkun sú að
karlmönnum stafar ekki ógn af klám-
notkun kvenna. Auk þess er klám
kvenna yfirleitt falið í erótiskum
bókmenntum. Það sem konum
finnst vera erótískt getur verið falið
í bókmenntum en karlmenn þurfa
sjónræna örvun. Díana Russell, pró-
fessor í félagsfræði, hefur komist að
því að konum finnist sér ógnað af
klámi, þeim finnst það vera ljótt og
þær hreinlega treysta sér ekki til að
horfa á það. Það er líka mín reynsla
af því að tala við ungar konur, þær
hafa gert mun minna af því að nota
klám heldur en karlmenn. Viðbrögð
kvenna eru svo sterk við klám-
myndum að það hefur komið fyrir
að nemendur mínir hafa kastað
«
99.................
Þessar konur eru
jafnframt líkarí karí-
mönnum í klámnotkun
sinni, viðhorfum til
kynhegðunarauk þess
sem þær hafa minna
sjálfsálit en aðrar konur
og þær eru jafnframt
líklegri til að eiga
fráskilda foreldra
Sérstaklega framleitt
klám fyrir konur
Guðbjörg segist ekki halda að konur
séu hræddar við að viðurkenna
að þær noti klám. „Eina reynslan
sem ég hef eru samtölin við nem-
endur mína og þær hafa ekki verið
hræddar við að tala um það ef þær
hafa horft á klám en viðhorf þeirra
gagnvart klámi eru allt önnur en við-
horf strákanna. Klám er markaðs-
sett og framleitt fyrir karlmenn og
konur upplifa það því á allt annan
háttenkarlmenn.Þessisjónrænaupp-
lifun virkar ekki eins sterkt á konur
og konum finnst vera kvenfyrir-
litning, misnotkun og niðurlæging
í kláminu,“ segir Guðbjörg og bætir
við að einnig sé framleitt klám fyrir
konur. „Það eru yfirleitt konur sem
framleiða klám fyrir konur og þær
byggja þá sitt klám í kringum sam-
bönd og tilfinningar. Þær reyna að
gæta meira jafnréttis í sínu klámi.“
Ungir strákar vilja að
stúlkur horfi á klám
Aðspurð að því hvort konur horfi
meira á klám nú til dags heldur en
áður segist Guðbjörg ekki telja það.
„Það sem er mögulega að gerast er að
karlmenn eru að draga konur inn
í sína eigin klámnotkun. Það eru
mörg dæmi um að ungir strákar
vilja að stelpur horfi á klám. Það er
reyndar til ein bandarísk rannsókn
sem sýnir það að konur geri ekki
minna af því að horfa á klám heldur
en karlmenn en við verðum að gera
Settu þig íforgang:
Sparaðu tíma
að eyða tíma
1 hátæknisamfélagi okkar, þar sem
allt virðist gerast á ofurhraða, virðist
sífellt vera erfiðara að taka frá tíma
fyrir sjálfan sig. Jafnvel einungis til
þess að vafra einn um Laugaveginn
og skoða í búðarglugga eða liggja í
símanum klukkustundum saman
og tala við löngu týnda vini. En það
skemmtilega er að það er hægt að
finna réttu tækifærin fyrir þessar
stundir, og jafnvel án þess að fórna
einhverju öðru. Það er nefnilega
hægt að spara nokkrar sekúndur,
mínútur og jafnvel klukkustundir
á einfaldan hátt. Það eina sem er
þá eftir er að finna leiðir til að eyða
þessum tíma bara í þig og engan
annan
í. Nýttu biðtímann sem best. Láttu
senda þér fréttafyrirsagnirnar í
símann og þá geturðu kynnt þér nýj-
ustu fréttir og málefni á meðan þú
bíður í röð.
2. Fáðu þér debetkort eða vertu viss
um að taka alltaf nægan pening út
úr bankanum svo þú þurfir ekki að
fara oft í viku í bankann.
3. Geymdu lista yfir þær myndir
sem þig langar að sjá og þær bækur
sem þig langar að lesa á símanum
þínum. Þannig þarftu ekki að eyða
tíma í að leita eftir rétta lesefninu
á bókasafninu eða réttu spólunni á
myndbandaleigunni.
4. Geymdu hluti þar sem þú ætlar
að nota þá. Til að mynda geturðu
geymt ruslapoka þar sem ruslið er,
hreinlætisvörur fyrir baðherbergið
99.........................
Geymdu lista yfir þær
myndir sem þig langar
að sjá og þær bækur
sem þig langar að lesa
á símanum þínum.
inni á baðherbergi og svo framvegis.
5. Geymdu niðurskorið, frosið græn-
meti í frystinum sem er svo auðveld-
lega hægt að skella í heita rétti, pott-
rétti og annað þess háttar.
6. Þegar þú ferð í snyrtingu þá
skaltu fara í handsnyrtingu og fót-
snyrtingu á sama tíma. Það sparar
tíma.
Fogrolund við Furugrund Kópovogi
Námskeið hefjast 1 l.jarnúar
Skróning í sfmo 8917190
Kennarl:
Slgríður Guðjohnsen
Rope Yoga kennarl
www.sigga.is
I hátæknisamfélagi okkar þar sem allt
virðist gerast á ofurhraða virðist sifellt
verða erfiðara að taka frá tíma fyrir
sjálfan sig.
7. Settu þér tveggja mínútu reglu. Ef
þú færð tölvupóst sem tekur innan
við tvær mínútur að svara þá skaltu
gera það. Annars skaltu geyma það
til lok dagsins.
8. Þegar þú pantar þér tíma hjá
lækni, í snyrtingu, hárgreiðslu eða
annað skaltu alltaf panta fyrsta
mögulega tímann. Þá eru minni
líkur á að tímanum seinki.
9. Hættu að bíða eftir óstundvísum
vinum. Láttu þá vita að héðan í frá
bíðurðu einungis í 20 mínútur áður
en þú ferð.
10. Slepptu því að elda nokkur kvöld
í viku. Það er hægt að kaupa mjög
góðan tilbúin mat á ýmsum stöðum.
Keyptur matur þarf ekki endilega
að vera óhollur þannig að þú getur
borðað hollt og vel án þess að þurfa
að hafa fyrir því.
Klám er markaðssett og framleitt fyrir karlmenn og konur upplifa það því á allt annan
hátten karlmenn.
greinarmun á klámi eða klámi. Það
er til klám sem er ætlað konum,
körlum og pörum. Til dæmis hvetur
fyrrnefnd Díana Russell konur til að
kynna sér klám til að þær geti horfst
í augu við þá kvenfyrirlitningu
sem er í klámi vegna þess að konur
verða að vita hvað þær eru að berjast
gegn.“
Háskólamenntaðir stunda
frekar munnmök
Samkvæmt Guðbjörgu fer kyn-
hegðun fólks til dæmis eftir mennt-
unarstigi. „Það hefur sýnt sig að kyn-
hegðun helst í hendur við menntun
og háskólamenntað fólk er líklegra
til að stunda munnmök heldur en
fólk sem er með minni menntun.
Að sama skapi eru þeir sem eru
líklegastir til að nota klám háskóla-
menntað fólk. Háskólamenntaðir
eru kannski víðsýnna að sumu
leyti og hafa þetta umburðarlyndi
gagnvart klámi sem aðrir hafa jafn-
vel ekki.“ Að sama skapi segir Guð-
björg að það sé margt sem einkennir
konur sem nota klám og til dæmis
hafa þær jafnan minna sjálfstraust
en aðrar konur. „Ég fann eina rann-
sókn sem rannsakaði notkun kvenna
og karlmanna á klámblöðum og
niðurstaðan var sú að það eru mun
fleiri karlmenn sem nota klámblöð.
En þær konur sem nota klámblöð
á annað borð gera jafnmikið að því
og karlmenn. Þessar konur eru jafn-
framt líkari karlmönnum í klám-
notkun sinni, viðhorfum til kyn-
hegðunar auk þess sem þær hafa
minna sjálfsálit en aðrar konur og
þær eru jafnframt líklegri til að eiga
fráskilda foreldra.“
svanhvit@bladid.net
Skondin ummœli um konur og menn:
Að baki farsæls
karlmanns er
undrandi kona
Ég giftist aldrei því ég þurfti þess
ekki. Ég á þrjú gæludýr heima sem
þjóna sama tilgangi og eiginmaður.
Ég á hund sem urrar á morgnana,
páfagauk sem blótar allan eftirmið-
daginn og kött sem kemur seint
heim á kvöldin.
Marie Corelli
Ef þú vilt að eitthvað verði sagt þá
skaltu spyrja mann. Ef þú vilt að eitt-
hvað verði gert, spyrðu konu.
Margaret Thatcher
Ég móðgast ekki vegna heimsku-
legra ljóskubrandara vegna þess að
ég veit að ég er ekki heimsk.og ég
veit líka að ég er ekki ljóshærð.
Dolly Parton
Að baki farsæls karlmanns er
undrandi kona
Maryon Pearson
Góðar stúlkur fara til himna,
óþekkar stúlkur fara hvert sem er.
Helen Gurley Brown
Hvað svo sem konur gera þá þurfa
þær að gera það helmingi betur en
karlar til þess að vera taldar hálf-
drættingur þeirra. Sem betur fer er
það ekki erfitt.
Charlotte Whitton
Það eru tvær leiðir til að rífast við
konur. Hvorug virkar.
Will Rogers
Kona án manns er eins og fiskur án
hjóla.
Gloria Steinem
Þegar konur er niðudregnar þá
annað hvort borða þær eða versla.
Menn ráðast inn í annað land.
Elayne Boosler
Frjáls kona er sú kona sem stundar
kynlíf fyrir giftingu og stundar
vinnu eftir giftingu.
Gloria Steinem