blaðið - 12.01.2006, Side 24
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 blaAÍA
24 i Mflnnr
Blaðið/SteinarHugi
ONDVEGIS
ELDHÚS
RAGGA ÓMARS,
MATREIÐSLUMEISTARA
Þá er liðin vika frá því að stóra átakið byrjaði, að breyta mataræðinu frá
óhollustu til hollustu og ekkert gengur hjá mér persónulega. En ég hef samt
lofað sjálfum mér öllu fögru um að byrja í þessari viku og géra þetta eins og
maður. Ég bjó mér einmitt til rosa girnilegt salat í gær og ákvað að fara á
www.manneldi.is sem er frábær fróðleikssíða um allt sem tengist heilbrigðu
líferni. Þar náði ég mér í allar upplýsingar um næringargildi og fituinnihald
í ýmsum hráefnum sem mér finnst gott að borða og setja saman í máltíð
sem væri holl, góð og ekki stútfull af fitu. Ég komst að mörgu fróðlegu i því
sambandi. Þegar kemur að því að búa til matarmikið salat sem væri fram-
reiddur sem aðalréttur, og manni langar að hafa eitthvað annað i því heldur
en bara grænmeti, þá er möguleikarnir náttúrulega endalausir. Það er hægt
að setja nákvæmlega það sem manni finnst gott saman við brakandi ferskt
salat en það sem toppar alltaf góð salöt og er mikilvægast sem bragðauk-
inn í salatið eru dressingarnar og sósurnar. Að mínu mati á góð salat-dress-
ing að samanstanda af sýru, sætu og seltu svo sem ediki eða sitrónusafa,
hunangi, ávaxtasafa eða einhverju slíku og síðan náttúrulega góðri olíu.
Það er sagt að hlutföll í olíudressingar eigi að vera 3 hlutar olía og tveir
hlutar edik. Þetta myndar gott jafnvægi sem fyllingu í dressingu en síðan
er sjálfsagt að krydda þær með ýmsum bragðgjöfum eins og sinnepi, lauk,
kryddjurtum, hvítlauk, engifer, piparrót og svo mætti lengi telja. Uppskrift
dagsins er matarmikið kjúklingasalat með geggjaðri dressingu sem ég kalla
engifer og sinnepsdressing.
♦
F M R
TIL FASTEIGNAEIGENDA
Fasteignamat ríkisins sendir um þessar mundir tilkynningu um nýtt fasteignamat og brunabótamat sem gildir frá og með 31.
desember 2005.
FASTEIGNAMAT skal endurspegla staðgreiðsluverð fasteignar miðað við verðlag fasteigna í nóvembermánuði 2005.
Fasteignamat skiptist í húsmat og lóðarmat. Upplýsingar um söluverð fasteigna má finna á vef Fasteignamats ríkisins
www.fmr.is/verðsjá fasteigna.
Samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 ákveður yfirfasteignamatsnefnd í nóvembermánuði ár hvert
framreikningsstuðla fyrir skráð matsverð fasteigna með hliðsjón af breytingu verðlags fasteigna við kaup og sölu frá
nóvembermánuði fyrra árs. Skráðu matsverði fasteigna er síðan breytt í fasteignaskrá í samræmi við þá stuðla, sem og
breytingu á byggingarkostnaði og afskriftir, sbr. reglugerð nr. 406/1978, og það verð talið fasteignamatsverð frá og með
31. desember til jafnlengdar næsta árs nema sérstakt endurmat komi til.
Aðili, sem hefur verulega hagsmuni af matsverði eignar og sættir sig ekki við skráð mat, getur krafist úrskurðar Fasteignamats
ríkisins um matið. Frestur er til 1. apríl 2006 til að óska breytinga á fasteignamati frá 31. desember 2005. Krafa um endurmat
skal vera skrifleg og studd rökum og nauðsynlegum gögnum. Kæra má úrskurð Fasteignamats ríkisins til yfirfasteignamatsnefndar.
BRUNABÓTAMAT er vátryggingarfjárhæð brunatryggingar og skal það taka til þeirra efnislegu verðmæta húseignar sem
eyðilagst geta af eldi og miðast við byggingarkostnað að teknu tilliti til aldurs, slits, viðhalds og ástands eignar að öðru leyti.
Brunabótamati skal breytt árlega skv. þeim breytingum sem orðið hafa á byggingarkostnaði hinna ýmsu tegunda húseigna
næstliðið ár að teknu tilliti til útreiknaðra eða áætlaðra afskrifta vegna sama tímabils. Brunabótamat breytist jafnframt
mánaðarlega f samræmi við breytingu á byggingarvísitölu.
Húseigenda er skylt að brunatryggja húseign sína og ber ábyrgð á því að óska eftir fyrsta brunabótamati. Húseiganda er
jafnframt skylt að óska nýs brunabótamats á húseign ef ætla má að verðmæti eignarinnar hafi aukist vegna endurbyggingar
eða endurbóta.
Á heimasíðu Fasteignamats ríkisins www.fmr.is má fletta eftir heimilisfangi, fastanúmeri eða landnúmeri upp á fasteignamati og
brunabótamati fasteigna.
V. 515 5300
FASTEIGNAMAT RÍKISINS
w ww.f m r. i s
Borgartúni 21
105 Reykjavík
Fax 515 5310
Netfang fmr@fmr.is
Bjarnarbraut 8
310 Borgarnes
Fax 515 5480
Netfang fmrvcst@fmr.is
Hafnarstræti 95
600 Akureyri
Fax 515 5420
Netfang fmrnord@fmr.is
Kaupvangi 6
700 Egilsstaðir
Fax 515 5450
Netfang fmraust@fmr.is
Austurvegi 4
800 Selfoss
Fax 515 5460
Netfang fmrsud@fmr.is
„Kjúklingasalatið hans Ragga"
fyrirfjóra sem aðalréttur
4 kjúklingabringur (steiktar á pönnu (ólifu-
olíu og kláraðar inni í ofni, kryddaðar með
salti og pipar)
16 stk kokteiltómatar (skornir í tvennt)
8 stk grænn spergill (skrældur og soðinn
(saltvatni í 3 mín, skorinn í tvennt eftir
endilöngu)
'h cantalópumelóna (skorin í grófa bita)
16 stk grænar ólífur (skornar í tvennt)
ristaðar cashewhnetur (magn eftir smekk)
Góð blanda af salati sem inniheldur kletta-
salat og magnið alveg eftir smekk)
Allt raðað fallega saman á disk og
dressingin yfir eftir smekk.
VlP-dressingin:
150gdijonsinnep
3 dl ólívuolía
50 g hunang (3 msk)
'h dl rauðvínsedik
safi úr Vi sítrónu
2 tsk sesamolía
1 tsk fiskisósa, asísk.fish sauce" (má
sleppa)
100 g piklað engifer (eins og er notað með
sushi)
3 msk af safanum frá engiferinu
1 tsk karrý
1 tsk kóríanderduft
3 msk sesamfræ
Aðferð:
öllu blandað saman með töfrasprota
nema sesamfrœunum og ferskum
kóriander, því er bara hrcert saman
við dressinguna eftir á. Smakkað til
með salti ogpipar
Kveðja
Raggi
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
Ritstjórn
510-3799
Skiptiborð
510-3700
blaðið=