blaðið - 12.01.2006, Side 32
32 I MENNING
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MaöÍA
Arnaldur enn
og aftur á toppnum
Landskerfi bókasafna hefur tekið
saman lista yfir þær bækur sem
mest voru lánaðar út í bókasafns-
kerfinu Gegni. Ekkert lát er á
velgengni Arnaldar Indriðasonar
meðal íslenskra lesenda en hann á 7
af 10 útlánahæstu titlunum í flokki
íslenskra skáldsagna. í flokki barna-
bóka er Fíasól ífínum málum eftir
Kristínu Helgu Gunnarsdóttur hæst,
í flokki rita almenns eðlis Fuglamir
okkar eftir Stefán Aðalsteinsson og
Grétar Eiríksson og vinsælasta tíma-
ritið er Andrés önd.
Allar bækur
1. Kleifarvatn/Arnaldur Indriðason
2. Kafteinn Ofurbrók og vandrœðin
með prófessor Prumpubrók/Dav
Pilkey
3. Kafteinn Ofurbrók og brjálaða
brókarskassið/Dav Pilkey
4. Kafteinn Ofurbrók og innrás ótrú-
lega asnalegu eldhúskerlinganna/
DavPilkey
5. Da Vinci lykillinn/Dan Brown
6. Röddin/Arnaldur Indriðason
7. Grafarþögn/Arnaldur Indriðason
8. Synir duftsins/Arnaldur
Indriðason
9. Skúli skelfir verður ríkur í hvelli/
Francesca Simon
10. Skúli skelfir og draugagangurinn/
Francesca Simon
íslenskar skáldsögur
1. Kleifarvatn/Arnaldur Indriðason
2. Röddin/Arnaldur Indriðason
3. Grafarþögn/Arnaldur Indriðason
4. Synir duftsins/Arnaldur
Indriðason
5. Bettý/Arnaldur Indriðason
6. Dauðarósir/Arnaldur Indriðason
7. Mýrin/Arnaldur Indriðason
8. Karítas - án titils/Kristín Marja
Baldursdóttir
9. Óþekkta konan/Birgitta H.
Halldórsdóttir
10. Dauðans óvissi tími/Þráinn
Bertelsson
Arnaldur Indriðason. Bókasafnsgestir
gleypa bækur hans í sig.
Fimmtugasta sýning á
Ég er mín eigin kona
Á laugardagskvöldið (14. jan.) verður
fimmtugasta sýning á hinu geysivin-
sæla leikriti, Ég er mín eigin kona,
sem sýnt er í Iðnó. Leikritið er eftir
Doug Wright og hefur hlotið fjölda
verðlauna vestra, meðal annars. bæði
Pulitzer-og Tony verðlaunin.
Leikritið hefúr verið sýnt fyrir fullu
húsi frá því snemma í haust og er ekk-
ert lát á aðsókn. Það byggir á sannsögu-
legum atburðum og er aðalpersónan
hin þýska Charlotte von Mahlsdorf,
sem fæddist karlmaður en kaus að lifa
lífi sínu sem kona.
Það er Hilmir Snær Guðnason sem
fer með öll 35 hlutverk leiksins. Fer
hann á kostum og hefúr hlotið frá-
bæra dóma fyrir leik sinn.
Gagnrýnendur Blaðsins sögðu m.a.
eftir frumsýninguna: „Það var nánast
óraunverulegt að verða vitni að þeirri
tæru kúnst sem Hilmir Snær býr yfir...
Svona gera bara snillingar.”( Súsanna
Svavarsdóttir). „Hilmir Snær vinnur
algeran leiksigur í þessari sýningu...
Ekki hægt að hugsa sér betra kvöld í
leikhúsi.”(Heimir Már Pétursson) og
Karl Th.Birgisson sagði: „Ég hef ekki
orðið fyrir viðlíka áhrifum í leikhúsi
áður.”
Guðni Kolbeinsson þýddi verkið,
lýsingu annast Björn Bergsteinn Guð-
mundsson, búninga gerðu Dýrleif Ýr
Örlygsdóttir og Margrét Einarsdóttir,
leikmynd er eftir Gretar Reynisson og
leikstjóri er Stefán Baldursson.
Hilmir Snær fer á kostum I Ég er mfn eigin
kona, en fimmtugasta sýning verður á
laugardag.
Kilja frá Máli
og menningu
Heimsins heimsk-
asti pabbi eftir
Mikael Torfason er
komin út í kilju.
Martemn Máni
er nútímamaður á
niðurleið.þriggja
barna faðir í Þing-
holtunum. Hann er hamingju- og
öryggisfíkill, hefur átt erfiða æsku
og ber ör á sál og líkama. Foreldrar
hans eru af hippakynslóðinni, en
sjálfúr tilheyrir hann kynslóð sem
sífellt á að vera hress, á framabraut
og í góðu formi. Marteinn Máni
er hins vegar ekkert af þessu.
Aukaprentun á Da
Vinci lyklinum
Kvikmynd eftir Da Vinci lyklinum
verður frumsýnd 19. maí. Um það
bil sjö vikum fyrir frumsýningu
myndarinnar hyggst útgáfuforlagið
Random House gefa út rúmlega
fimm milljón eintök af bókinni í
þremur mismunandi kiljuútgáfum.
Þótt tólf milljón eintök hafi verið
prentuð af bókinni í Norður-Am-
eríku er forlagið sannfært um að
enn sé nógur markaður fyrir fleiri
prentanir, ekki síst vegna frumsýn-
ingar myndarinnar. Til marks um
það er bent á að bókin hafi stokkið
úr fimmta sæti í annað sæti eftir að
tímaritið Newsweek birti grein um
kvikmvndina á forsíðu sinni.
Laugardagssteina i
Listasatni íslands
Næstkomandi laugardag verður
sýningin NÝ fSLENSK MYND-
LIST II - um rými og frásögn í
Listasafni íslands skoðuð í fylgd
sýningarstjóra og nokkurra lista-
manna sem eiga verk á sýning-
unni. Fjallað verður um forsendur
sýningarinnar, hlutverk listaverks-
ins og samspil við sýningarrýmið
ásamt stöðu mannsins í rýminu.
Hvað gerist þegar listaverk er
tekið til sýningar í þjóðlistasafni?
Hvaða áhrif hefur það þegar verkið
er sett í námunda við önnur skyld
eða óskyld verk? Hver er staða
þeirra sem fara um sýninguna?
Hvað verður um listaverkið að sýn-
ingu lokinni?
Farið verður um sýninguna í
fylgd Hörpu Þórsdóttur, listfræð-
ings og eins af sýningarstjórum
sýningarinnar auk listamannanna
Huldu Stefánsdóttur, Kristins E.
Hrafnssonar, Ragnars Helga Ólafs-
sonar, Söru Björnsdóttur, Unnars
Arnars Jónassonar Auðarsonar og
Þóru Sigurðardóttur.
109 SU DOKU talnaþrautir
Lausn siðustu gátu Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eöa lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
5 7 3
8 9
3 8 7
6 4 2
5 1 3
7 2 5
2 4 9
2 1
4 3 7
3 7 8 9 1 5 4 2 6
5 4 6 2 3 7 9 8 1
9 2 1 4 6 8 3 5 7
1 3 9 8 5 2 7 6 4
8 6 4 7 9 1 5 3 2
2 5 7 6 4 3 1 9 8
6 9 5 1 2 4 8 7 3
4 8 2 3 7 9 6 1 5
7 1 3 5 8 6 2 4 9