blaðið - 23.01.2006, Qupperneq 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 blaöiö
Gunnar I. Birgisson:
Sakaóur um að skreyta
sig með stolnum fjöðrum
Bœjarfulltrúi í Kópavogi gagnrýnir Gunnar Birgisson fyrir að gera tillögur á launamála-
ráðstefnunni áföstudagað stnum. Gunnar gefur lítið fyrir gagnrýnina.
blaðið_______________
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ biadid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Fóta sig á
svellinu
Umhleypingar síðustu daga hafa
breytt snjósköflum borgarinnar í
svellbunka. Slíkum veðrabrigðum
hefur oft fylgt hrina beinbrota
og annarra slysa þegar mönnum
verður hált á svellinu. Menn virð-
ast hins vegar hafa farið varlegar
nú um helgina en oft áður því
samkvæmt upplýsingum frá slysa-
varðstofu Landspítalans voru slys
tengd hálkunni með minnsta móti
og næstum ekki fyrir hendi. Vakt-
hafandi læknir sagði að ekki hefði
verið eins lítið að gera á slysavarð-
stofunni síðan á aðfangadag. Það
virðist því vera að menn séu orðnir
sleipari í því að fóta sig nú eða þá að
fólk hafi hreinlega ekki hætt sér út á
klakabreiðurnar. ■
Fundur þing-
forseta
Hafsteinn Karlsson bæjarfulltrúi
gagnrýnir fréttaflutning síðustu
daga þar sem sagt er að Gunnar Birg-
isson, bæjarstjóri í Kópavogi, hafi
lagt fram tillögur á launamálaráð-
stefnu sveitarfélaganna. „Þetta var
þannig að í upphafi ráðstefnunnar
töluðu tveir starfsmenn nefndar-
innar. Þeir fóru yfir málin, greindu
ástandið og settu svo fram níu val-
kosti. Þegar Gunnar Birgisson stígur
í pontu þá tekur hann undir þrjá af
þessum valkostum og leggur til að
reynt verði að vinna með þá áfram,
eins og næstum því allir ræðumenn
sem á eftir honum komu gerðu
einnig. Eftir ráðstefnuna heyrir
maður svo í fréttum að hann hafi
lagt þarna eitthvað til persónulega
og hafi legið yfir tillögunum sem er
algjörlega út í hött.“ I fréttatilkynn-
ingu frá Gunnari segir meðal ann-
ars: „Á ráðstefnunni kynnti Gunnar
I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi,
tillögur sem fela í sér launahækkun
í tveimur skrefum.“
Ekki tillögur Gunnars
Hafsteinn segir það einfaldlega
rangt að þessar tillögur séu sérstak-
lega frá Gunnari komnar. „Hann var
búinn að tala fjálglega fyrir ráðstefn-
una um að hann myndi koma þarna
með einhver útspil. Síðan var það
ekkert þannig að menn dúkkuðu
upp með einhverjar lausnir heldur
voru allir þarna saman komnir til
þess að finna góða lausn.“ Hafsteinn
segir annað hafa vakið athygli á
ráðstefnunni. „Það virtist vera að
Gunnar hafi fengið að sjá þessar hug-
myndir sem þarna voru lagðar fram
fyrir ráðstefnuna. Ég veit ekki hvort
að hann hafi haft einhvern meiri
aðgang að þessu en aðrir en það leit
þannig út þarna.“ Hafsteinn segist
hafa, ásamt öðrum, gagnrýnt það
fyrirkomulag sem viðhaft var að
menn fengju ekki að sjá þá valkosti
sem í boði voru fyrir ráðstefnuna.
,Það er auðvitað sérstakt ef að einn
maður hefur fengið að sjá þessar
hugmyndir, en aðrir ekki.“
Gunnar blæs á gagnrýnina
,Þessi maður getur ekki skrifað neitt
nema óþverra um fólk og ég þreyti
mig ekki á því að lesa svona. Þetta
fólk er allt uppfullt af einhverjum
samsæriskenningum og getur ekki
sagt sannleikann í neinum málum,"
segir Gunnar. Hann bætir því við að
ekki hafi Hafsteinn sjálfur komið
með neinar tillögur „og ekki talaði
Samfylkingin í Kópavogi á þessari
launamálaráðstefnu um eitt eða
neitt. Hann sagði ekki eitt einasta
orð þarna þegar hann hafði tæki-
færi til þess að láta ljós sitt skína.“
Gunnar segir starfsmenn sambands-
ins hafa sett fram valkosti á ráðstefn-
unni. „Mín tillaga var síðan sú að
blanda saman nokkrum þessara val-
kosta. Þetta var í þeim dúr sem ég
hef verið að tala um, ég hef auðvitað
verið að pæla heilmikið í þessum
málum.“
Þetta fólk á bágt
Gunnar gefur ekkert fyrir þær ásak-
anir Hafsteins að hann hafi haft
tillögur launanefndarinnar undir
höndum fyrir ráðstefnuna. „Ég hef
auðvitað verið að pæla í þessum
málum fram og til baka. Allir sem
kynnt hafa sér eitthvað í málinu
vita að það eru bara tvær leiðir sem
til greina koma, taxtarnir og ein-
greiðslurnar. Þessar tillögur voru í
þeim dúr og komu mér því ekkert
á óvart. En ég var ekkert búinn að
vinna þær eitt eða neitt með starfs-
mönnum nefndarinnar. Ég var bara
búinn að vinna þær í mínum ranni.“
Hann segir ekkert til í því að hann
hafi fengið tillögurnar fyrir ráðstefn-
una og segist ekki hlusta á svona
málflutning. Hann bætir við: „Þetta
fólk á bágt.“ ■
Virkjunarmál:
Hægt að sameina sjónarmið
Sólveig Pétursdóttir, forseti Al-
þingis, sækir í dag fund norrænna
þingforsetameð forsætisnefnd Norð-
urlandaráðs í Osló. Á fundinum
verður rætt um starfsemi Norður-
landaráðs og áherslur í starfi ráðs-
ins næsta árið.
Að fundinum loknum mun for-
seti Alþingis eiga tvíhliða fund með
forseta norska þingsins og kynna
sér ýmsa þætti í starfi stórþingsins.
Tíðindalít-
il helgi
Helgin gekk tiltölulega vel fyrir sig
frá sjónarhóli lögreglunnar. Engin
alvarleg mál komu upp og fyrir utan
nokkra smápústra skemmtu borgar-
búar sér í miðbænum nokkuð átaka-
laust. Ölvunarakstursmál voru þó
heldur algengari en um meðal helgi
en 15-16 stútar voru teknir um helg-
ina samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu. ■
Samtök atvinnulífsins (SA) kynntu
i gær niðurstöður könnunar sem
Gallup gerði fyrir samtökin þar sem
afstaða fólks til stóriðju er könnuð.
Samkvæmt könnuninni telja 70%
landsmanna unnt að sætta sjónar-
mið umhverfisverndar og virkjunar
vatnsafls. Enn fleiri, eða 88%, telja
að hægt sé að sætta sjónarmið um-
hverfisverndar og virkjunar gufu-
afls. Ennfremur kemur fram í könn-
uninni að 77% íslendinga telja að
raforkufyrirtækin hafi staðið sig vel
þegar kemur að umhverfismálum
og 71% aðspurðra telja álfyrirtækin
að sama skapi hafa staðið sig vel í
umhverfismálunum. Könnunin var
framkvæmd í gegnum síma í nóvem-
ber og voru 1.303 í endanlegu úrtaki
og svöruðu 801, eða 61,5%.
Frá Kárahnjúkum
Þarf að virkja með um-
hverfisvænum hætti
Kolbrún Halldórsdóttir, alþingis-
kona, er á meðal þeirra sem hvað
mest hafa látið að sér kveða í barátt-
unni gegn virkjanaframkvæmdum.
Hún segist halda að öll þjóðin óski
þess að hægt sé að sætta þessi sjón-
armið. „Kannski sættum við þessi
sjónarmið best á þann hátt að viður-
kenna það að með því að vernda nátt-
úruna erum við einnig að nýta hana.
Ósnortin náttúra er í sjálfu sér auð-
lind sem okkur hefur verið falið að
varðveita fyrir allan heiminn. Þegar
fólk fer að átta sig á því að ósnortin
náttúra getur fært okkur tekjur þá
held ég að fólk opni augun fyrir því
að það má nýta náttúruna á annan
hátt en til raforkuframleiðslu."
Könnunin kemur Kolbrúnu ekki
á óvart. „Við hjá VG höfum alltaf
sagt að þá raforku sem í raun þarf
að framleiða þarf að framleiða með
umhverfisvænum hætti. Ég held að
þjóðin sé okkur sammála um það.“
Suðurlandsvegur:
Brýnt að hraða
framkvæmdum
Sturla Böðvarsson, samgönguráð-
herra, telur brýnt að ráðast í fram-
kvæmdir við Suðurlandsveg eins
fljótt og hægt er. „Verið er að fara
yfir stöðu vegarins fyrir samgöngu-
áætlunina og það á eftir að skýrast
á vordögum hvenær framkvæmdir
hefjast," sagði Sturla í viðtali við
fréttavefinn sudurland.is. Sturla
átti fund með Vinum Hellisheiðar
og þingmönnum Suðurkjördæmis
um málið á dögunum þar sem hann
fjallaði meðal annars um undirbún-
ing þess að vegurinn fari inn á sam-
gönguáætlun og hvaða kostir eru
í boði. Ráðgert er að tvöfalda Suð-
urlandsveg milli Selfoss og Hvera-
gerðis og leggja svo kallaðan 1+2 veg
yfir Hellisheiði. ■
CAFEADESSO
2. hæð í Smáralind v/Vetrargarðinn
SALAT
hollt og gott í
hádeginu
komdu og smakkaðu!
Opiö virka daga 10.00-19.00
fimmtudaga 10.00-21.00
laugardaga 10.00-18.00
sunnudaga 11.30-18.00
simi 544 2332
www.adesso.is
O HeiðsKírt (3 Léttskyjað ^ Skýjað Alskýjað
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
-02
11
-13
-04
-03
-07
-10
-04
02
08
13
-05
04
17
-03
02
-05
06
-11
15
07
08
*
cv
*
-1
/
/, Rignlng,Iftilsháttar /// Rlgnlng f^ Suid Sniúkoma
þ • *
O / / / 2° * ©*, .V
X z'
y ' r/;
CK2° ✓ '
*
Sjj Slydda ^jj Snjóél
Skúr
rV
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
Á morgun
*
2°V 0
' / -JO
/ /
/ "
1°