blaðið - 31.01.2006, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÖAR 2006 bla6Í6
Kjaradómur:
Ríkisstjórnin
skipar nefnd
Nefnd hefur verið skipuð af
ríkistjórninni til þess að fara yfir
lög um Kjaradóm og kjaranefnd.
Henni er ætlað að gera tillögur um
breytingar á þeim lögum „í ljósi
reynslunnar og ábendinga sem fram
hafa komið um anmarka á þeim,“
eins og það er orðað í tilkynningu
frá forsætisráðuneytinu. Sérstaldega
á að skoða hvort ástæða sé til þess
að breyta núverandi fyrirkomulagi
um launaákvarðanir. Meðal annars
verði hugað að þeim viðmiðum
og fyrirmælum sem úrskurðarað-
ilum eru sett í lögum. Einnig mun
nefndin fjalla um laun hverra skuli
ákveðin með þessum hætti og
hvernig skipan þeirra skuli háttað.
Jón Sigurðsson, formaður
Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráð-
herra er formaður nefndarinnar en
aðrir tilnefndir eru: Páll Þórhallsson,
lögfræðingur í forsætisráðuneyt-
inu.AðalsteinnÁrni Baldursson
tilnefndur af Frjálslyndum, Svan-
fríður Jónasdóttir, Samfylkingu,
Svanhildur Kaaber, frá VG og þau
Þórunn Guðmundsdóttir og Gunn-
arBjörnsson frá Sjálfstæðisflokki.
Rán í Happdrœtti Háskólans:
Ungur maður
yfirheyrður
Rétt fyrir hádegi í gær var framið
rán hjá Happdrætti Háskólans í
Tjarnargötu. Maður með svarta
lambhúshettu og íklæddur bláum
kuldagalla ruddist inn í afgreiðsluna
vopnaður byssu. Ekki lá ljóst fyrir
þegar Blaðið fór í prentun hvort um
væri að ræða alvöru skammbyssu
eða leikfang. Hann heimtaði fé úr
peningakössum og komst í burtu
áður en lögregla kom á staðinn en
hún fékk upplýsingar um ránið
í gegnum boðkerfi Securitas.
Ekki fékkst upp gefið hve mikla
peninga maðurinn komst yfir
með þessum hætti en þó var um
eitthvað fé að ræða. Hann forðaði
sér upp í Grjótaþorp og þar fannst
kuldagallinn skömmu síðar.
Tvítugur maður handtekinn
Allt tiltækt lið lögreglunnar var
kallað út vegna ránsins og leituðu
menn ræningjans fram eftir degi.
Síðdegis í gær handtók lögreglan
svo tvítugan karlmann grunaðan
um ránið. Hann var fluttur til
yfirheyrslu en hafði ekki játað
þegar síðast fréttist. Skrifstofa
Happdrættis Háskólans var lokuð
það sem eftir var dags vegna
vettvangsrannsókna.
ito-m
í r
SKIPULAG
( n
©
200 cm
Skápar
á brautum
Hámarks nýting á plássi
Leitiö
tilboóa
Skjalaskápar
Læstir
fataskápar
fyrir vinnustaöi
og skóla
Margar stærðir og geróir!
Gæöi og gott verö!
Geymsluskápar
'SOld ehf.
Nethyl3-3a -110 Reykjavík
Sími 5353600- Fax 5673609
www.isold.is • www.hillur.is
Formaður Landverndar:
Aðeins 30% álvera í heim-
inum knúin orku frá kolum
Álver Alcoa í Rochester, New York
í aðdraganda álráðstefnunnar sem
haldin var sl. föstudag birtist frétt á
vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar
er því meðal annars haldið fram, að
ef álverin hér á landi yrðu lögð niður
væru allar líkur á því að útstreymi
gróðurhúsalofttegunda i heiminum
ykist. Þetta er rökstutt á þann veg,
að gera megi ráð fyrir því að stór
hluti af áli og járnblendi yrði ann-
ars staðar framleiddur með orku úr
jarðefnaeldsneyti. Björgólfur Thor-
steinsson, formaður Landverndar
varar við því að málið sé sett upp
á þennan hátt. „Því hefur oft verið
haldið fram að ál sem er framleitt
úr endurnýjanlegum orkugjöfum
væri annars framleitt úr kolum ann-
ars staðar,“ segir Björgólfur. „Það er
svolítið bratt að segja þetta. Hlutur
Sérsmíðaóir hornsófar
- ykkar hugmynd, okkar smíöi
sími: 553-9595
kola í framleiðslu áls í heiminum er
ekki nema um 30%. Meira en fimm-
tíu prósent af áli í heiminum er fram-
leitt með vatnsafli.“
Rökin bíta ekki
Björgólfur segir að þannig mætti
allt eins segja, að ál sem framleitt
yrði annars staðar, yrði framleitt
með vatnsorku í Kanada eða í
Suður-Ameríku, til dæmis í Venezú-
ela. „Losunin sem við erum að tala
um hér á landi er líka hverfandi lítil
miðað við heildarlosun í heiminum."
Að mati Björgólfs ættu íslendingar
frekar að auka vísindarannsóknir á
loftslagsbreytingum. „Með því móti
gætum við lagt eitthvað af mörkum
til alþjóðlegs þekkingargrunns sem
er nauðsynlegur til þess að finna
lausn á þessu vandamáli. Þessi rök,
að framleiða verði ál með vatns-
orku hér á landi til þess að koma í
veg fyrir að það verði framleitt með
kolum annars staðar, þau bíta ein-
faldlega ekki.“