blaðið - 31.01.2006, Qupperneq 16
16 I BÖRN OG UPPELDI
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 blaðiö
Heilinn breytist viðfœðingu barns
Mæður eru klárari,
óhræddari og sneggri!
Það sem einu sinni var sjálfhverf lífvera sem einblfndi á sínar eigin þarfir og eigin
sjálfsbjargarviðleitini verður að veru sem einblínir einungis á umönnun og aðhlynningu
afkvæmisins.
Ekkert dýr á jörðinni sýnir
afkvæmum sínum viðlíka
umhyggju og manneskjan.
Þessi umhyggja er það sem
tryggir manninum stöðu sína
í ríki náttúrunnar en nýlegar
rannsóknir benda til að ástæður
þessarar umhyggju séu að finna
í líkamlegum breytingum á
verðandi mæðrum. Þungun og
móðureðli breytir byggingu heila
mæðra og gerir þær umhyggju-
samari og betri uppalendur.
Nánast öll kvenkyns spendýr, frá
rottum til mannfólks, ganga í
gegnum hegðunarbreytingar á
meðan á meðgöngu stendur og
þegar móðurhlutverkið tekur við.
Það sem einu sinni var sjálfhverf
lífvera sem einblíndi á sínar eigin
þarfir og eigin sjálfsbjargarviðleit-
ini verður að veru sem einblínir
á umönnun og aðhlynningu
afkvæmisins. Þrátt fyrir að vís-
indamenn hafi lengi fylgst með og
dáðst að þessari umbreytingu eru
þeir fyrst núna að uppgötva hvað
veldur henni.
Nýjar rannsóknir gefa til kynna að
þessar áhrifamiklu hormónabreyt-
ingar sem konur finna fyrir meðan
á meðgöngu, fæðingu og brjóstgjöf
stendur geti endurskapað heila kven-
mannsins, stækkað taugafrumur á
sumum svæðum heilans og fram-
kallað breytingar á öðrum. Þessar
breytingar hafa áhrif á móðureðlið,
eins og að vernda börn frá hættu,
búa þeim öruggari stað og svo fram-
vegis. En þessar breytingar hafa líka
áhrif á aðra þætti svo sem minni,
lærdómsgetu, og svörun við ótta
og stressi. Hingað til hafa nagdýr
einungis verið rannsökuð en það
er líklegt að heilar kvenna breytist
líka við meðgöngu og fæðingu. Flest
spendýr eru með keimlíkt móður-
eðli, sem er sennilega stjórnað af
sömu heilasvæðum í mannfólki og
í rottum.
Veröiaunin eru afkvæmið sjálft
Eftir að æxlunarhormónarnirhrinda
af stað móðureðlinu þá hættir heil-
inn að treysta á hormónana og frá
þeim tíma getur afkvæmið hrint af
stað sömu tilfinningum. Þrátt fyrir
að nýfædd spendýr séu kröfuharðar
litlar verur þá er hollusta móður-
innar meiri en hjá flestum öðrum
dýrum. Fræðingar hið vestra benda
á að afkvæmið sjálft gæti verið „verð-
launin“ sem eflir móðureðlið. Þegar
mæður af rottukyni fá að velja um
unga eða kókaín þá velja þær und-
antekningarlaust ungana. Nokkrir
rannsakendur hafa komið fram
með þá tilgátu að þegar ungarnir
sjúga spena mæðra sinna þá losnar
um lítið magn af endorfíni í líkama
móðurinnar. Þetta náttúrulega
verkjalyf svipar til deyfilyfja, sem
dregur móðurina aftur og aftur að
unganum. Sogið og snertingin við
ungana getur líka orðið til þess að
hríðahormón losnar í líkama móður
sem hefur svipuð áhrif á hana.
Önnur spendýr, eins og mýs og
rottur, skortir sennilega frumefni
og hvatir mannfólksins og annast
því unga sína vegna þeirrar einföldu
ástæðu að það er gott.
Finna síður fyrir hræðslu og kvíða
Jeffrey P. Lorberbaum, við læknahá-
skólann í Suður-Karólínu rannsak-
aði heila mennskra mæðra þegar
þær hlustuðu á grát barna sinna.
Hegðunarmynstur þeirra var svipað
og hjá nagdýrum þar sem ákveðin
svæði í heilanum lýstust upp við
það að heyra ungana gráta. Auk
þess komust Andreas Bartels og
Semir Zeki frá London að þvi að þau
heilasvæði sem hafa stjórn á umbun
verða virk þegar mennskar mæður
horfa á börn sín. Líkindin á milli
mennskra mæðra og nagdýra gefa
til kynna að það sé almennt móð-
ureðli í heila spendýra við fæðingu
afkvæma þeirra. Rannsóknir hafa
líka sýnt fram á að rottumæður eru
fljótari að næla sér í bráð heldur en
rottur sem eru jómfrúr og munaði
þar um 220 sekúndur. Eins virð-
ast rottumæður finna síður fyrir
hræðslu og kvíða.
Fertugar mæður lifa lengur
Móðureðlið sjálft virðist hafa lang-
tímaáhrif á heilsu mæðra. Thomas
Perls við háskólann í Boston komst
að þeirri niðurstöðu að konur sem
urðu óléttar í kringum fertugsald-
urinn voru fjórum sinnum líklegri
til að lifa til 100 ára aldurs en konur
sem urðu óléttar fyrir fertugsaldur-
inn. Perls túlkar þessar niðurstöður
á þann veg að konur sem urðu nátt-
úrulega óléttar við fertugsaldurinn
eldast hægar en aðrar. Einnig er
mögulegt að meðgangan og móður-
eðlið hafi aukið við heila kvennanna
á viðkæmum tímapunkti, einmitt
þegar breytingarskeiðið minnkar
æxlunarhormónana. Vitsmunalegir
kostir móðureðlisins geta þar af
leiðandi leitt til betri heilsu og lang-
lífi. Nýverið hófu rannsakendur að
skoða hvort sá hæfileiki að geta gert
margt í einu tengist móðureðlinu.
Enn sem komið er vita vísindamenn
ekki svarið við því en rannsóknir
gefa til kynna að heili mannsins sé
mjög auðmótanlegur, bygging og
virkni hans getur breyst þegar staðið
er frammi fyrir áskorun. 1 rann-
sóknum háskólans í Regensburg
kom í ljós að það fundust brey tingar
í heila ungra manna og kvenna sem
höfðu lært að gera þrennt í einu. Á
sama hátt gætu heilar mæðra breyst
í þá átt að þær geta ráðið betur við
kröfur foreldrahlutverksins giftu-
samlega. Rannsóknir á heilum feðra
eru ekki eins langt á veg komnar en
benda samt til að heilar feðra breyt-
ist og aðlagist á svipaðan hátt og
heilar mæðra.
svanhvit@bladid.net
Þrátt fyrir að nýfædd spendýr séu kröfuharðar litlar verur þá er hollusta móðurinnar
meiri en hjá flestum öðrum dýrum.
Þegar mæður afrottukyni fá að velja um unga eða
kókaín þá velja þær undantekningarlaust ungana.
« *> *
■
* *?«*
Börn læra
>að sem fyrir
>eim er haft
Það barn sem býr við hnjóð
lærir að fordæma.
Það barn sem býr við hörku
lærir fólsku.
Það barn sem býr við aðhlátur
lærir einurðarleysi.
Það barn sem býr við ásakanir
lærir sektarkennd.
Það barn sem býr við mildi
lærir þolgæði.
Það barn sem býr við örvun
lærir sjálfstraust.
Það barn sem býr við hrós
lærir að viðurkenna.
Það barn sem býr við réttlæti
lærir sanngirni.
Það barn sem býr við öryggi
lærir kjark.
Það barn sem býr við skilning
lærir að una sínu.
Það barn sem býr við
alúð og vináttu
lærir að elska.
Lestur bóka á að vera skemmtilegur
Ert þú dramadrottning eða kóngur?
Hlæið, grátið, öskrið og hvíslið.
Lestur þarf ekki endilega að vera
hljóð athöfn heldur er hægt að um-
breyta lestrinum í eins manns sýn-
ingu sem mun örva áhuga barnsins
á skrifuðu og töluðu orði. Dragðu
út dramadrottninguna eða drama-
kónginn og leyfðu þeim aldeilis að
njóta sín með látbragði, úrvali radda
og fleira.
Einu sinni var.... Rithöfundar eyða
miklum tíma i inngang sögunnar.
Það er því við hæfi að gefa orðunum
það vægi sem þau eiga skilið með
því að leggja áherslu á þau. Gríptu
athygli barnsins með ákveðinni en
skemmtilegri röddu.
Lestu nöfn sögupersóna hægt og ró-
lega svo barnið skilji greinilega um
hvern er verið að ræða. Bækur snú-
ast um persónur svo vertu viss um
að barnið viti hver er hvað til að forð-
ast rugling.
Leiktu persónurnar með mismun-
andi röddum. Ef þú hefur tíma þá
skaltu skoða bækurnar áður en þú
lest þær upphátt fyrir barnið. Ann-
ars gætirðu sett persónurnar í stað-
alímyndir og gefið vondri prinsessu
sæta rödd eða góðum risa skugga-
lega rödd.
Leitaðu að tónaflæði og sjáðu orðin
fyrir þér. Treystu tímaskyni höfund-
arins til að leggja áherslu á rétta hluti.
Notafiu látbragfi. Þótt þú þurfir ekki
afi leika eftir hverri einustu hreyfingu f
bókinni þá lifnar textinn vifi ef þú leyfir
orðunum að stjórna látbragði þínu.
Margar barnabækur hafa að geyma
nokkurs konar lag sem gleður unga
hlustendur.
Talaðu hátt og lágt. Forðastu tón-
lausan lestur með því að hækka
tóninn og auka hraðann. Setningar
sem segja frá örvæntingarfullum
aðstæðum skulu lesast hátt og lágt.
En setningar þar sem aðstæðurnar
eru afslappaðar skal lesast hægt og
rólega.
Notaðu látbragð. Þegar þú lest bók
fyrir barn því þá mun það taka
eftir andliti þínu og líkama. Þótt þú
þurfir ekki að leika eftir hverri ein-
ustu hreyfingu í bókinni þá lifnar
textinn við ef þú leyfir orðunum að
stjórna látbragði þínu. En forðastu
það að ofleika. Leyfðu barninu líka
að nota ímyndunaraflið. Þú ert, þrátt
fyrir allt, einungis sögumaðurinn.
Vertu vakandi fyrir stemningunni
í bókinni. Hver einasta saga endar
með mikilvægu atriði. Taktu eftir
hvernig höfundurinn skapar spennu
og notaðu þá þekkingu til að búa til
dramatíska spennu. Þér hefur tekist
vel upp ef augu barnsins eru galopin
af spennu.
Að lokum, hægðu á þér og dragðu
djúpt andann. Ljúktu bókinni á ró-
legri nótum og endaðu á ákveðnum
lokum svo ekkert fari á milli mála.